Morgunblaðið - 12.02.1999, Qupperneq 28
28 FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN/PRÓFKJÖR
Eflum fólk
og byggðir
NÚ ER gaman að
vera til. Nú er gaman
að vera samfylkingar-
sinni. Langþráður
draumur íslensks jafn-
aðar- og félagshyggju-
fólks er að verða að
veruleika. Við erum að
móta sterka breiðfylk-
ingu þeirra sem hafa í
heiðri manngildi frem-
ur en auðgildi. Þetta
eru merkir atburðir í
íslenskri stjómmála-
sögu, ef til vill þeir
merkustu í áratugi.
Eg er ein þeirra sem
sé fram á drauminn
minn rætast. Prófkjör
Samfylkingarinnar á Norðurlandi
eystra fer fram næstkomandi laug-
ardag, 13. febrúar. Það er opið öll-
um sem ekki eru flokksbundnir
annars staðar. Eg gef kost á mér
til forystu í prófkjörinu vegna þess
að ég er sannfærð um að sameinuð
munum við eflast og öðlast þann
kraft sem þarf til að breyta. Koma
í framkvæmd stefnu og hugsjónum
sém bæta það samfélag sem við bú-
um í. Eg vil gjarnan leggja krafta
mína í það starf.
Jöfnun tækifæra
okkar allra
Leggja þarf áherslu á jöfnun
tækifæra. Það á bæði við um fólk og
byggðir. Raunhæfar aðgerðir til að
efla byggð utan höfuðborgarsvæð-
isins eru eitt brýnasta
verkefnið sem bíður
stjórnvalda. Uppbygg-
ing Háskólans á Akur-
eyri er gott dæmi um
nýja hugsun sem skilar
raunverulegum ár-
angri á forsendum og
að frumkvæði íbúanna.
Því slík aðgerð sem
hvorki er ölmusa né
útibú, en byggir á vilja
og getu okkar er al-
vöru úrræði sem eflir
fólk og byggðir. Ríkis-
stjómin hamrar á því
hvað kaupmáttur fólks
haií aukist. Það er
vissulega rétt en þeirri
aukningu er misskipt eins og svo
mörgu öðru. Kaupmáttur er heldur
ekki eini mátturinn sem máli skipt-
ir. Máttur til áhrifa, máttur til
mennta og máttur til sköpunar eru
einnig auðæfi sem allir eiga að hafa
aðgang að óháð búsetu, aldri, efna-
hag eða kyni.
Mannauðurinn er
endurnýjanleg auðlind
Stór hópur fólks hefur framfæri
sitt af lífeyri, vegna aldurs eða fötl-
unar. Þetta fólk hefur mátt sæta
skerðingu á kjörum undanfarin ár.
Góðærið skilar sér ekki til þeirra.
Það er kominn tími til að við skoð-
um tryggingakerfið og breytum því
sem þarf til að gera það nothæft að
nýju. Það eitt að kalla aldraða og
Kristín
Sigursveinsdóttir
fólk með fötlun bótaþega í tíma og
ótíma segir meira en margt annað
um það viðhorf sem reynt er að ala
á í samfélaginu. Með því að halda
lífeyri við sultarmörk er verið að
viðhalda misrétti og koma í veg
fyrir að fólk fái notið lífsins á
mannsæmandi hátt.
Þessu viijum við breyta. Við vilj-
um að samfélagið efli fólk fremur
en dragi úr því máttinn. Megin-
markmið velferðarkerfisins á að
vera að virkja alla þegna landsins
til þátttöku í samfélaginu þannig
að nýta megi krafta sem flestra
/
Eg gef kost á mér til
forystu í prófkjörinu,
segir Kristín Sigur-
sveinsdóttir, vegna
þess að ég er sannfærð
um að sameinuð mun-
um við öðlast þann
kraft sem þarf til að
breyta.
þjóðinni til hagsbóta. Leggja þarf
áherslu á mannauð, þekkingu og
reynslu, það eru auðlindir sem
vaxa við það að vera nýttar.
Máttur hinna mörgu getur flutt
fjöll. Eg hvet alla sem vilja leggjast
á sveif með Samfylkingunni til þess
að nýta sér tækifærið sem nú býðst
og velja þá einstaklinga sem þeir
treysta best til að sækja fram og
móta og bæta samfélag okkar. Eg
bið um stuðning í 1.-2. sætí.
Höfundur er iðjuþjálfí og þátttak-
andi í prófkjöri Samfylkingarinnar
á Norðurlandi eystra.
Auðlindir í eigu þjóðar
UNDANFARIN
misseri hefur hart ver-
ið tekist á um stjórnun
fiskveiða á Islands-
miðum. Aflaheimild-
irnar hafa safnast á
hendur fárra og stórra
útgerða og heilu sjáv-
arþorpin hafa verið
skilin eftir kvótalaus
og geta sér engar
bjargir veitt. Auðlindir
sjávar eru sameign ís-
lensku þjóðarinnar og
tryggja þarf að svo sé
með skýrum hætti.
Brýnt er að stöðva
braskið með kvótann
og eðlilegt er að út-
gerðarmenn greiði hóflegt veiði-
gjald fyrir nýtingu auðlindarinnar.
Gjald sem að minnsta kosti stend-
ur undir rannsóknum og viðhaldi á
auðlindinni.
Um réttlætismál
að ræða
Það er eitt af meginverkefnum
Samfylkingar félagshyggjufólks að
tryggja sameign þjóðarinnar á
auðlindum sínum á landi og hafi.
Sjálfstæðisflokkurinn neitar að
horfast í augu við alvöru málsins
og formaður flokksins hefur gefið
til kynna að um smá-
vægilegt skattamál sé
að ræða.
En svo er alls ekki.
Um er að ræða rétt-
lætismál sem brennur
á þjóðinni allri. Sátt er
um að stjóma þarf
fiskveiðum með afla-
heimildum, en málið
snýst um réttlæti og
ranglæti við úthlutun
heimildanna og hvort
greiða beri fyrir veiði-
leyfin. Mikilvægt er að
útgerðin bíði ekki
skaða af breytingunum
á úthlutun kvótans og
stíga þarf varlega til
jarðar í þessum efnum og gera
breytingarnar í áfóngum.
Jöfnun námskostnaðar
Virkjun fallvatna Islands er ekki
síður hitamál í samfélaginu en
stjórnun fiskveiða. Borið hefur á
öfgum í umræðunni á milli þeirra
sem vilja algjöra friðun hálendisins
og þeirra sem vilja að iðnvætt sé
sem mest og virkjað eftir þörfum.
Hrein náttúra og óspillt hálendis-
fegurð eru ekki síður auðlindir en
virkjanir og stóriðja. Ferðamanna-
þjónusta er í miklum vexti og
Anna Kristín
Gunnarsdóttir
-/elinek
Fegurðin kemur innan frá
Laugavegi 4, sími 551 4473.
tryggja verður að svo verði áfram
og ekki má virkja til tjóns svo á
náttúrunni bitni.
Þarna þarf að fara varlega og
gæta þess að stóriðjuframkvæmdir
spilli ekki fegurð og hreinleika
landsins en hins vegar er það mik-
ilvægt fyrir atvinnulífið og ekki síst
á landsbyggðinni að virkjað sé með
skynsamlegum hætti. Atvinnmálin
eru einn brýnasti málaflokkurinn
fyrir 1 andsbyggðarfó 1 k enda laun
oft á tíðum lægri en á höfuðborgar-
Það er eitt af megin-
verkefnum Samfylking-
ar félagshyggjufólks,
segir Anna Kristfn
Gunnarsdóttir, að
tryggja sameign þjóð-
arinnar á auðlindum
sínum á landi og hafí.
svæðinu og miklum mun kostnað-
arsamara að halda heimili. Hvort
heldur er litið til húshitunar, rekst-
urs bílsins eða menntunar barn-
anna. Jafna þarf námskostnað á
milli landsbyggðar og höfuðborg-
arsvæðisins til að tryggja fjöl-
breytni atvinnulífsins þannig að
sveiflur í sjávarútvegi og landbún-
aði hafi minni áhrif en nú er og af-
komendur okkar geti snúið aftur
að skólagöngu lokinni og nýtt
menntun sína í heimahögum. Við
þurfum að fylkja liði til að rétta
hlut landsbyggðarinnar og stöðva
fólksflóttann. Til þess þurfum við
öfluga Samfylkingu félagshyggju-
fólks og þar skiptir þitt atkvæði
máli. Framboðslistann á Norður-
landi vestra veljum við í opnu próf-
kjöri nú á laugardag og þar gef ég
kost á mér í efsta sæti. Samfylkj-
um til sigurs.
Höfundur tekur þátt i prófkjörí
Samfylkingarinnar á Norðuriandi
vestra.
Samfylkingin
hreyfing fólksins
UNDANFARNAR
vikur höfum við orðið
vitni að fæðingu Sam-
fylkingarinnar í próf-
kjörum hennar í
Reykjavík og á
Reykjanesi. I þessum
prófkjörum hefur ber-
lega komið í ljós að
Samfylkingin er raun-
veraleg fjöldahreyfing
fólksins. A meðan Da-
víð Oddsson veltir því
fyrir sér hverjir era
honum þóknanlegir
meðframbjóðendur á
lista Sjálfstæðismanna
hafa rúm tuttugu þús-
und manns tekið þátt í
tveimur prófkjöram Samfylkingar-
innar og valið sína fulltrúa.
Alþýðubandalagið var á sínum
tíma stofnað utan um þá hugsjón
að samfylkja félagshyggjufólki.
Nú er sá draumur að rætast.
Næstkomandi laugardag gefst
kjósendum á Norðurlandi eystra
tækifæri til að taka þátt í því að
móta nýja breiðfylkingu félags-
hyggjufólks með því að velja full-
trúa á lista Samfylkingarinnar. Eg
gef kost á mér í 1. sæti listans
vegna þess að ég vil taka þátt í að
skapa þessa nýju fjöldahreyfingu.
Róttækt umbótaafl
Samfylkingin er róttækt um-
bótaafl sem á ekki síður brýnt er-
indi á landsbyggðinni en á höfuð-
borgarsvæðinu. Hún er hreyfing
fólksins gegn flokkum sérhags-
muna sem hafa deilt og drottnað í
íslensku samfélagi með alvarlegum
afleiðingum fyrir landsbyggðina.
Raunveraleg byggðastefna felur í
sér að fólk á landsbyggðinni sé
fullgildir þátttakendur í mótun
samfélagsins. Besta leiðin til að
tryggja það er að skapa virðingu
fyrir almennum lýðræðisreglum.
Þai’ sem jöfnuður og réttlæti ræð-
ur ákvörðunum en ekki miðstýrt
skömmtunarvald í Reykjavík.
I fyrsta skipti á lýðveldistíman-
um gefst meirihluta Islendinga
tækifæri til að fylkja liði um fjölda-
hi’eyfingu róttækra jafnaðar-
manna. Það hefur margoft komið
fram að meirihluti þjóðarinnar vill
öflugt mennta-, heilbrigðis-, og al-
mannatryggingakerfi sem allir
hafa aðgang að. Samfylkingin fær
mikinn hljómgrunn vegna þess að
hún hefur sett þessi
mál fremst í forgangs-
röðina. Jöfnuður, rétt-
læti og lýðræði eru
hugtök sem eiga líka
við þegar kemur að
málefnum lands-
byggðarinnar. Sam-
fylkingin vill að tæki-
færi fólks til atvinnu,
atvinnurekstrar og
búsetu séu jöfn. A
undanfömum áratug
hafa um 15 þúsund
manns flutt frá lands-
byggðinni á höfuð-
borgarsvæðið, eða
sem svarar til allra
íbúa Akureyrar. I öðr-
um löndum væra fólksflutningar af
þessu tagi flokkaðir sem flótta-
mannavandamál. En ríkisstjórnin
lætur sér fátt um finnast þótt hús-
Samfylkingin, segír
Örlygur Hnefíll Jóns-
son, er róttækt um-
bótaafl sem á ekki síð-
ur brýnt erindi á lands-
byggðinni en á höfuð-
borgarsvæðinu.
eignir fólks á landsbyggðinni verði
verðlausar vegna gífurlegrar sam-
þjöppunar fjármagns hjá vildar-
vinum stjórnarflokkanna sem hafa
fengið auðlindir sjávar afhentar á
silfurfati.
Til þess að landsbyggðin geti
rétt hlut sinn þarf afl sem horfir til
framtíðar og leggur rækt við ný-
sköpunarkraft ungu kynslóðarinn-
ar og hvetur til framfara og fjöl-
breytni í atvinnu- og menningarlífí
alls staðar á landinu. Jón Baldvin
Hannibalsson spurði á sínum tíma:
„Hverjir eiga Island?" Kjósendur í
Reykjavík og á Reykjanesi hafa
svarað spurningunni í tveimur
prófkjörum: Fólkið á Island. Lát-
um það svar enduróma á Norður-
landi eystra um næstu helgi með
þátttöku í prófkjöri Samfylkingar-
innar, hreyfingu almannahags-
muna gegn sérhagsmunum.
Höfundur er lögmaður á Húsavfk,
frambjóðandi í 1. sæti Samfylking-
arinnar á Norðurlandi eystra.
Örlygur Hnefill
Jónsson
plorgivwtWsibrib
Prófkjör
Útdráttur greína um prófkjör vegna alþingiskosninga vorið 1999.
Greinarnar eru birtar í heild á Netinu www.mbl.is
Kraftmikla
konu á þing
Ágúst Frímann Jakobsson, aðstoðar-
skólastjóri Grunnskóla Hvammstanga,
skrifar:
Nú er komið að
því að velja fólk á
lista Samfylkingar-
innar á Norður-
landi vestra. Á
laugardaginn fer
fram opið prófkjör
þar sem fólkinu í
kjördæminu gefst
kostur á að velja
fulltiúa sína á Al-
þingi. Anna Kristín Gunnarsdóttir
gefur kost á sér í fyrsta sæti á fram-
boðslista Samfylkingarinnar og þar
er tækifæri til að velja kraftmikla
konu á þing.
Anna Kristín hefur verið í farar-
broddi í sveitarstjórnamálum um
árabil og hefur mikla reynslu til að
bera og gjörþekkir kjördæmið. Það
væri mikill akkur að því ef hún veld-
ist í efsta sæti framboðlistans og
fengjum við þar öfluga baráttukonu
fyrir atvinnu-og byggðmálin í kjör-
dæminu, svo ekki sé minnst á
menntamálin sem eru hennar sér-
fag. Yeljum Önnu Ki’istínu til for-
ystu Samfylkingarinnar í prófkjör-
inu á laugardag.
Ný rödd
jafnréttis
Þórgnýr Dýrfjörð, deildarstjóri á
Akureyri, skrifar:
Prófkjör Samfylkingar á Norður-
landi eystra fer fram á laugardag-
inn kemur og Kristín Sigursveins-
dótttir býður sig fram til 1.-2. sætis.
Ágúst Frímann
Jakobsson