Morgunblaðið - 12.02.1999, Side 37

Morgunblaðið - 12.02.1999, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR 1999 37s VALGARÐUR KRISTJÁNSSON + Valgarður Kristjánsson fæddist á Ytri- Tjörnum í Eyjafírði 15. apríl 1917. Hann lést á Land- spítalanum 5. febr- úar síðastliðinn. Foreldrar hans voru Kristján H. Benjamínsson, f. 24.10. 1866, d. 10.1. 1956, og Fanney Friðriksdóttir, f. 6.1. 1881, d. 13.8. 1955. Valgarður átti ellefu systkini og af þeim eru eftirlifandi Svava, f. 1910, Baldur, f. 1912, Hrund, f. 1919, og Friðrik, f. 1926. Látin systkini Valgarðs eru Laufey, f. 1899, Benjamín, f. 1901, Inga, f. 1903, Auður, f. 1905, Theodor, f. 1908, Bjart- mar, f. 1915, og Dagrún, f. 1921. Hinn 27.11. 1948 kvæntist Valgarður Björgu Ivarsdóttur, f. 25.8. 1928. Foreldrar hennar eru Sigrún Guðbjörnsdóttir, f. 4.2. 1900, og ívar Þórðarson, f. 4.1. 1904, d. 5.5. 1983. Börn Valgarðs og Bjargar eru: 1) Signín, f. 9.5. 1949, maður hennar er Maggi G. Ingólfsson og eiga þau tvo syni, Björn Val og Arnþór Snæ. 2) Arnaldur, f. 29.6. 1950, kona lians er Amdís Jónsdóttir og eiga þau tvo syni, Snoira Örn og Birki Örn. Auk þess á Arnaldur einn son frá því fyrir hjónaband, Sveinbjöm Frey. 3) ívar, f. 9.10. 1954, kona hans er Ragnheiður Hrafnkelsdóttir og eiga þau tvo syni, Hrafnkel og Val- garð. Ivar var áður í sambúð með Krist- ínu H. Ingvadóttur sem er látin og eiga þau eina dóttur, Björgu. 4) Valgarð- ur, f. 1.2. 1960, kona hans er Hild- ur Harðardóttir og eiga þau tvo syni, Hermann Fannar og Hjört Loga. 5) Kristján Fannar, f. 28.11. 1965, kona hans er Sigríður Elísabet Snorradóttir og eiga þau eina dóttur, Önnu Margréti. Valgarður varð stúdent frá MA 1941. Lögfræðiprófí lauk hann frá HÍ 1947. Hann starf- aði sem fulltrúi hjá sýslumanni í Snæfells- og Hnappadalssýslu 1947- 1948, var starfsmaður hjá Almennum tryggingum 1948- 1949 og erindreki LÍtí 1949- 1950. Fulltrúi hjá bæjar- fógetanum á Akranesi var hann 1951-1961, fulltrúi yfírborgar- dómara í Reykjavík 1962 og síðan borgardómari 1962-1982. Síðustu starfsár ævinnar vann hann hjá bæjarfógetanum í Hafnarfírði við þinglýsingar, á árunum 1982-1989. títför Valgarðs fer fram frá Hafnaríjarðarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Elsku pabbi. Við ævilok ástvinar reikar hugurinn víða og minning- amar hrannast upp. Við andlát pabba er okkur efst í huga þakklæti fyrir góðan og kærleiksríkan föður. Það er gott að minnast föður sem vildi öllum vel og var öllum góður. Fjölskyldu sína elskaði pabbi um- framt allt, og það sem einkenndi hann helst var einstök ljúfmennska. Pabbi var fagurkeri og andans mað- ur og bera Ijóðin hans þess gott vitni. Ljóðelskur var hann og bók- hneigður. Bestu stundimar hans vora þó þegar hann settist við pí- anóið sitt og spilaði. Þá gat hann gleymt stund og stað, en jafnframt heillað okkur aðdáendur hans. Það var gott að leita til pabba þegar þess þurfti. Þá var útrétt og hjálp- andi hönd rétt fram. Hönd sem var svo traust og styrk að allar áhyggj- ur hurfu þegar gripið var í hana. Slíkar minningar era góðar þegar hugurinn reikar. Síðustu árin átti pabbi við van- heilsu að stríða sem hann tók á með miklu hugrekki. En það hallaði und- an fæti, og síðustu vikurnar sem hann lifði þurfti hann á sjúkrahús- vist að halda. Þá var gott að geta setið hjá honum og haldið í höndina hans, sem var farin að þynnast en þó lengi svo ótrúlega styrk, og end- urgoldið kærleika hans. Við vitum að nú er hann í landi ljóss og friðar og að honum líður vel. Elsku mamma, við biðjum guð að veita þér styrk. Þú varst stoð og stytta pabba í veikindum hans, og fyrir það viljum við þakka þér. Á banabeði naut hann kærleiks- ríkrar umönnunar á deild 32 A á Landspítalanum og færam við starfsfólki deildarinnar bestu þakk- ir fyrir það. Elsku pabbi, far þú í friði. Börnin þín. Nú hefur Valgarður, tengdafaðir minn, kvatt sína fógru veröld eftir langan dag. Eg sá Valgarð fyrst fyrir rúmum áratug. Hann bar með sé virðuleika hins roskna embættismanns, en um leið alþýðleika og tilgerðarleysi hins óbreytta leikmanns. Hann var prúð- mannlegur í fasi, svipurinn eilítið fjarrænn og úr bláum augunum skein græskulaus góðvild. Það var ómögulegt annað en láta sér líka vel við þennan mann. Stuttu síðar varð Valgarður fyrir miklum veikindum. Eftir það átti hann við talörðugleika að stríða þó að hann skildi hvað aðrir sögðu. í einu vetfangi vora líka öll hans helstu áhugamál frá honum tekin. Hann gat ekki lengur spilað á pí- anóið sitt og seitt þar fram ljúfa tóna tilveranni til dýrðar og einnig var honum nú fyrirmunað að leita að fró í lestri ljóða og góðra bóka. Á þessum tímamótum í lífi Valgarðs hófust kynni okkar. Endurhæfíngin eftir veikindin gekk vonum framar og það var aldrei uppgjöf á Valgarði að fínna. Þrátt fyrir skerta hreyfí- getu fór Valgarður í sund á hveijum morgni og lengst af gekk hann heim á eftir hvemig sem viðraði. Ég held að viljinn til þess að njóta lífsins enn um sinn hafí skipt sköpum og einnig sá dyggi stuðningur sem hann fékk hjá Björgu, konu sinni. Ég hafði alltaf á tilfinningunni að í augum Valgarðs væri Björg ekki bara eig- inkona og lífsfóranautur, heldur líka ástin hans bjarta. Þó að lífsskilyrði Valgarðs hafí orðið erfiðari eftir veikindin og ef- laust hafi sótt að honum depurð og kvíði á stundum held ég samt að Valgarði hafi fundist hver dagur merkilegur. Það var eins og grámi hversdagsleikans næði aldrei alveg að honum. I kvæðum Valgarðs, sem hann orti á stolnum stundum, kem- ur fram sú afstaða að fagna beri hverri nýrri sólarapprás. Þau era óður til lífsins og ástarinnai- eins og birtist í kvæðinu „Kvöldljóð": Gengin er sól að grænum viði, golan mér strýkur létt um kinn. Ilmandi jörðin andar friði, unaðarkennd, í sál mér inn. Yfir mér hvelfist bjartur, breiður, blikandi stjömuhiminn skær, skínandi fagur, hár og heiður, horfir á lítið blóm, sem grær. Brosir við augum yndisfögur almættisdýrðar veröldin. Bráðum mun aftur láð og lögur ljóma við árdagssólarskin. (Valgarður Kristj.) Af þessari sömu virðingu fyrir líf- inu umgekkst Valgarður umhverfi sitt, sjálfan sig og aðra. Aldrei hitti maður Valgarð svo fyrir að hann væri ekki óaðfinnanlega snyrtur. Það var eins og kusk eða krampur festust ekki á fötunum hans og ef maður kom nálægt honum bar að vitum daufa angan af fínum kólon- ilmi. Þegar hann heilsaði fagnaði hann manni hlýlega eins og við hefðum ekki sést lengi og þegar hann kvaddi gleymdi hann ekki að tjá sig um að stundin hafí verið ynd- isleg (og það hvarflaði að manni að líklega væri það bara alveg satt). Ég skynjaði hjá Valgarði djúpa þrá eftir fegurð og samhljómi og stund- um fannst mér eins og hann ætti sinn eigin prívatheim - og sá heim- ur væri bæði betri og fallegri staður en okkar hinna. Ég veit að trú okkar Valgarðs á því hvað taki við eftir jarðvistina var ekki á einn veg. Þó vona ég af öllu hjarta að hans trú sé rétt og að hann megi enn á ný njóta árdegis- sólar í fagurri veröld. Ég þakka Valgarði samfylgdina. Ragnheiður Hrafnkelsdóttir. Mig langar til að minnast fóstra míns, Valgarðs Kristjánssonar, í fá- einum orðum. Þegar við nánasta fjölskylda Val- garðs sátum saman í kringum rúm- ið hans á Landspítalanum fyrir nokkram dögum og vissum hvert stefndi hrönnuðust upp minningar. Ég var aðeins nokkurra daga gömul þegar þau hjónin Valgarður og Björg Ivarsdóttir, móðursystir mín, þá ung hjón með tvö börn á Jaðars- brautinni á Akranesi, opnuðu heim- ili sitt fyrir mér og móður minni, Helgu ívarsdóttur. Arin urðu fímm, en í tuttugu ár naut ég jóla og ann- arra hátíðisdaga í faðmi þessara ljúfu hjóna og barna þeirra. Þau veittu mér ást og öryggi sem ég væri þeirra eigið barn. Valgarður gaf mér gælunafnið „Skotta“. Sem bami þótti mér nafnið undirstrika væntumþykju hans í minn garð. Seinna á unglingsárunum upplifði ég nafngiftina sem skemmtilega uppástungu þessa annars alvöru- gefna manns. I mínum huga var Valgarður ekki bara dáður lögmað- ur, borgardómari og kennari, held- ur maður mikilla mannkosta og fyr- irmyndarfaðir. Handleiðsla hans á uppvaxtaráranum var björt og við sem hennar nutum búum að þeirri birtu um ókomna tíð. Hann var list- hneigður, sérstakt prúðmenni, traustur, ljúfur og sterkgreindur. Valgarður var mikill tónlistarann- andi og spilaði yndislega á píanó. Fyrir okkur börnin var jafn eðlilegt að hlusta á meistarana Beethoven, Chopin, Mozart og List eins og að borða skyr og brauð í hádeginu. Tónlistin var stór þáttur í heimilis- lífinu og eru stundimar ófáar þar sem spilað var og sungið. Sér í lagi minnist ég jólanna og áramótanna. Valgarður var gæddur ríkri kímni- gáfu. Oft eftir annasaman vinnudag hafði hann gaman af að lesa upp úr dagblöðunum klaufalegan frétta- flutning og skondnar greinar fyrir konu sína Björgu sem naut kímn- innar. Ég get seint fullþakkað örlæti og ást þeirra hjóna í minn garð en segi takk, takk, takk fyrir allt. Ég og fjölskylda mín kveðjum þig í bili, Valgarður minn, en erum þess jafn- framt fullviss að við hittumst hinum megin þar sem þú bíður með þitt þétta og hlýja faðmlag. Björgu, Sigrúnu, Adda, Ivari, Valla og Kristjáni Fannari, mökum þeirra og börnum vottum við okkar dýpstu samúð. Linda, Gunnar Vagn og böni. Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disk- lingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin Word og Wordperfect eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins í bréfasíma 569 1115, eða á netfang þess (minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið. greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi. Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðal- línubil og hæfilega línulengd - eða 2.200 slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnar- nöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. t Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, EIÐUR BERGMANN HELGASON, Hlíðargerði 3, lést miðvikudaginn 3. febrúar á öldrunardeild Landakotsspítala. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Sérstakar þakkir til starfsfólks deildar 4-11 Landakotsspítala. Valborg Sveinsdóttir, Frosti Bergmann Eiðsson, Sólveig Haraldsdóttir, Logi Bergmann Eiðsson, Ólöf Dagný Óskarsdóttir, Hjalti Bergmann Eiðsson, Sindri Bergmann Eiðsson og barnabörn. t Systir okkar og fósturmóðir, ÞURÍÐUR JÓNSDÓTTIR, Bjarnarstöðum, Bárðardal, andaðist á Sjúkrahúsi Þingeyinga föstudaginn 5. febrúar. Útförin fer fram frá Lundarbrekkukirkju laugar- daginn 13. febrúar kl. 14.00. Jarðsett verður í heimagrafreit. María Jónsdóttir, Kristín Jónsdóttir, Hulda Guðný Ásmundsdóttir, Guðmundur Þór Ásmundsson. t Elskuleg eiginkona mín og móðir okkar, DÓRA ÍRIS THORARENSEN, Hátúni 10a, lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur laugardaginn 30. janúar sl. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Jón Ástráður Thorarensen, Ingibjörg Rósa ívarsdóttir, Ingólfur Valur fvarsson, Ásmundur ívarsson. t Elskuleg föðursystir okkar, INGIBJÖRG BJARNADÓTTIR, Ránargötu 3, Reykjavík, verður borin til grafar frá Eyrarbakkakirkju laugardaginn 13. febrúar nk. og hefst athöfnin kl. 14.00. Katrín, Ingibjörg, Bjarni og Jóhann Jóhannsbörn. t Elskulegur eiginmaður minn, GUNNAR ÞÓRSTEINSSON, Víkurbraut 24, Grindavík, lést á St. Jósefsspítala miðvikudaginn 10. febrúar. Fjóla B. Guðnadóttir. t Kveðjuathöfn hjartkærs föður okkar, tengda- föður, afa og langafa, GUÐMUNDAR PÁLSSONAR frá Höskuldsey, Varmahlíð 2, Hveragerði, verður í Hveragerðiskirkju í dag, föstudaginn 12. febrúar, kl. 14.00. Útförin fer fram frá Staðastaðarkirkju á morgun, laugardaginn 13. febrúar, kl. 14.00. Jón Guðmundsson, Alma Garðarsdóttir, Klara Guðmundsdóttir, Ómar Þór Helgason, Páll Arnar Guðmundsson, Þóra Vigdís Guðmundsdóttir, Sigríður Ólöf Guðmundsdóttir, afabörn og langafabörn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.