Morgunblaðið - 12.02.1999, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR 1999 45
FRÉTTIR
Kópurinn enn í
Húsdýragarðinum
KÓPURINN, sem
fannst við höfnina í
Reykjavík og gekkst
undir aðgerð þar sem
kýli var fjarlægt af
baki hans, er enn til
umönnunar í Hús-
dýragarðinum. Að
sögn Margrétar
Daggar Halldórsdótt-
ur, rekstrarsljóra
Húsdýragarðsins, líð-
ur kópnum eftir at-
vikum vel. Sárið
grær hins vegar ekki
alveg nógu vel og var
von á dýralækni til
að loka sárinu.
Að sögn Margrét-
ar Daggar er kópur-
inn sprækur og étur
af bestu lyst. „Á
meðan hann étur
höfum við engar
áhyggjur af honum.
Það er ómögulegt að
segja til um hvenær
hann nær sér að
fullu,“ segir Margrét
Dögg en kópurinn Morgunblaðið/Kristina
verður ársgamall í SELALAUG Húsdýragarðsins Ijósum
mars- skrýdd, eins og hún Ieit út skömmu fyrir jól.
Sýning á
fræðsluefni
um heim-
spekisöguna
FÉLAG áhugamanna um heim-
speki efnir til sýninga á fræðsluefni
um heimspekisöguna.
Um er að ræða nýlega þýska
sjónvarpsþætti þar sem þýski heim-
spekingurinn Hans-Georg Gadamer
segir sögu heimspekinnar. Þættirn-
ir eru sex talsins og tekur hver
þeirra hálftíma í sýningu. Félags-
mönnum FÁH, og hverjum öðrum
sem áhuga hafa, er boðið að sjá
þættina á tveimur sýningarkvöld-
um, þrjá þætti í senn, föstudagana
12. og 19. febrúar næstkomandi í
stofu 101 í Odda. Sýningin hefst kl.
18 og stendur til kl. 19.30.
Þættimir eru textaðii’ á íslensku.
Húnvetning-afé-
lagið heldur
menningardag
SUNNUDAGINN 14. febrúar
gengst Húnvetningafélagið í
Reykjavík iyrir menningar- og
skemmtidagskrá í Húnabúð, Skeif-
unni 11.
Á dagskrá eru tónlistaratriði,
upplestur, ljóðaflutningur og frá-
sagnir. M.a. munu þeir Páll á Höllu-
stöðum og Pálmi á Akri segja frá
ýmsu fróðlegu og skemmtilegu af
Alþingi. Af tónlistaratriðum má
nefna kvartettsöng, kontrabassa-
leik, djassleik á píanó, einsöng og
kórsöng, en Húnakórinn mun flytja
nokkur lög undir stjórn Kjartans
Ólafssonar.
Dagskráin hefst kl. 14 og stendur
til kl. 17.
Selirnir í-ugluðust
í ríminu
Að sögn Margrétar Daggar
fer matarlyst selanna í Húsdýra-
garðinum eftir birtuskilyrðum.
Þegar daginn fer að lengja og
birtan færist í aukana, dregur
úr matarlyst selanna. Um jólin
kom hins vegar upp örlítill rugl-
ingur á matarvenjum þeirra
vegna þess hve vel garðurinn
var upplýstur með jólaljósum.
Þau urðu til þess að selirnir
misstu lystina um tíma. Þeir
munu þó hafa farið að jafna sig
undir lok janúarmánaðar og að
sögn Margrétar Daggar eru þeir
nú gráðugri en áður.
Málþing um vís-
indasöguna
FÉLAG um átjándu aldar fræði
heldur málþing sem ber yfirskrift-
ina ,Af vettvangi vísindasögunnar“
laugardaginn 13. febrúar nk. í Þjóð-
arbókhlöðu, fyrirlestrasal á 2. hæð.
Málþingið hefst kl. 13.30 og því lýk-
ur um kl. 16.30.
Á málþinginu verða flutt fjögur
erindi. Leó Kristjánsson, jarðelis-
fræðingur, fjallar um silfurbergið
frá Helgustöðum. Helgi Björnsson,
jöklafræðingur, fjallar um jöklarit
Sveins Pálssonar. Einar H. Guð-
mundsson, prófessor í stjarneðlis-
fræði, fjallar um stjaramælingar
Rasmusar Lievogs 1779-1805 og
Hilmar Garðarsson, sagnfræðingur,
og Trausti Jónsson, veðurfræðing-
ur, fjalla um veðurmælingar á Is-
landi á 18. og 19. öld.
Flutningur hvers erindis tekur
um 20 mínútur. Að erindunum lokn-
um fara fram pallborðsumræður
með þátttöku fýrirlesara. Fundar-
stjóri verður Þór Jakobsson, veður-
fræðingur.
Veitingar verða fáanlegar í veit-
ingastofu í Þjóðarbókhlöðu, 2. hæð.
Öllum er heimill ókeypis aðgangur.
Málþing um
heimaslys
á Egilsstöðum
SLYSAVARNAFÉLAG íslands
stendur fyrir málþingi um
heimaslys á Hótel Héraði, laugar-
daginn 13. febráar kl. 14. Áhersla
verður lögð á að fjalla um tíðni
heimaslysa, stöðu slysaskráningar,
öldrunarmál og tíðni slysa hjá
öldruðum ásamt brunavörnum.
Meðal fyrirlesara eru: Halla Ei-
ríksdóttir hjúkrunarforstjóri sem
mun fjalla um tíðni heimaslysa og
hvert beri að stefna. Ragnhildur
Rós Indriðadóttir talar um ung-
bamaeftirlit og bamaslys. Baldur
Pálsson mun fjalla um brunaslysa-
vamir. Trausti H. Ólafsson frá Lög-
gildingarstofunni ræðir um slys af
völdum rafmagns og skráningu á
þeim og Jón Snædal öldrunarlæknir
mun fjalla um slysa- og forvarnir
aldraðra og almenn heilræði til
þeima. Hlynur Jónasson, deildar-
stjóri slysavarnadeildar, setur mál-
þingið og segir frá nýútkomnum
bæklingi fyrir aldraða og fjallar um
slysavarnir hjá öldruðum. Fundar-
stjóri er Þuríður Backmann.
Málefni þingsins em þau mál sem
ofarlega em í umræðu dagsins í
slysavörnum enda hefur ríkið hafíð
átaksverkefni til að draga úr slysum
bama og unglinga og árið 1999 er
tileinkað öldruðum, segir í fréttatil-
kynningu.
Gömul stríðs-
mynd sýnd
í bíösal MÍR
„EF heimilið væri þér kært“ (Éslí
darog tebé tvoj dom) nefnist kvik-
myndin sem sýnd verður í bíósal
MIR, Vatnsstíg 10, sunnudaginn 14.
febrúar kl. 15. Myndin var gerð á
árinu 1967 undir leikstjóm Vassilys
Ordynskís sem samdi tökuritið
ásamt hinum kunna stríðsfréttarit-
ara og rithöfundi Konstantín
Simonov og fræðimanninum E.
Vorobjov.
Fjallar kvikmyndin um sögulega
atburði - upphaf innrásar Þjóðverja
í Sovétríkin sumarið 1941 og orrust-
una um Moskvu. Myndin er sett
saman úr samtíma fréttamyndum
frá vígstöðvunum og öðm myndefni
sem fengið var víðsvegar að m.a. úr
þýskum söfnum.
Skýringar með myndinni eru á
dönsku. Aðgangur er ókeypis og öll-
um heimill.
LEIÐRÉTT
Röng fyrirsögn
RÖNG fyrirsögn var á frásögn af
ræðu Davíðs Oddssonar, forsætis-
ráðherra, á viðskiptaþingi Verslun-
arráðs í gær. í ræðu forsætisráð-
herra sagði orðrétt. „Gera má ráð
fyrir að raunvextir af verðtryggðum
lánum til langs tíma verði einungis
um og yfir 3,5% á næstu misserum,
sem er gleðilegt í ljósi þess að fyrir
aðeins tveimur árum var talið að afar
erfítt yrði að komast niður fyrir hinn
sálfræðilega 5% múr, sem svo var
nefndur.“ Fyrirsögn greinarinnar
var hins vegar svohljóðandi „Vextir
af verðtryggðum lánum lækki í
3,5%“. Eru hlutaðeigandi beðnir vel-
virðingar á mistökunum.
Álitsgerðir lögmanna
í MORGUNBLAÐINU í gær og sl.
miðvikudag kom fram að borgarlög-
maður hefði hrakið lögfræðiálit lög-
manns Hafnarfjarðar. Hið rétta er
að borgarlögmaður hefur samið
álitsgerð þar sem hann svarar áliti
lögmanns Hafnarfjarðai’. Beðist er
velvirðingar á þessum mistökum.
Eyjaijarðar en ekki Akureyrar
Frá því var sagt í blaðinu á mið-
vikudag að Jóhannes Gíslason bassa-
söngvari hefði lokið 8. stigi í söng og
haldið tónleika af því tilefni í Frey-
vangi, en missagt var að hann hefði
stundað nám við Tónlistarskólann á
Akureyri. Hann stundaði söngnám
við Tónlistai’skóla Eyjafjarðar.
Vinnur hjá Akureyrarbæ
RANGLEGA var fullyrt í Morgun-
blaðinu í gær að Kristín Sigursveins-
dóttir, iðjuþjálfi á Akureyri og þátt-
takandi í prófkjöri Samfylkingarinn-
ar á Norðurlandi eystra, starfaði á
Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri.
Hún starfar þar ekld lengur heldur
hefur hún hafið störf hjá Akureyrar-
bæ sem verkefnisstjóri.
Röng myndbirting
RÖNG mynd birtist í hluta af upp-
lagi blaðsins í gær með fréttinni
Krosskonur á kvennamóti á bls. 16.
Skipt var um mynd þegar mistökin
uppgötvuðust og var myndin rétt í
stærstum hluta upplagsins. Beðist er
velvirðingar á þessu.
400 flugliðar
Um 400 flugliðar taka þátt í píla-
grímaflugi Atlanta sem hefst í næstu
viku. Verða þá alls 750 flugliðar í
starfi hjá félaginu en í frétt blaðsins í
gær mátti skilja að sá fjöldi annaðist
pílagrímaflugið. Biðst blaðið velvirð-
ingai’ á því.
veruleika
’úéÍÍIÉSl
HSÉðflp
VERSLUN FYRIR ALLA I
HEIÍDSÖIU
rtlíRSUiP'5*
■W
Vib Fellsmúla
Sími 588 7332
’3aB>
Cf.'X ■
f. l x jt <
" 1 iéW ! ý í ,/Æ