Morgunblaðið - 12.02.1999, Síða 46
46 FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR 1999
MORGUNB L AÐIÐ
Ferdinand
YE5, MA'AM..REQUE5T
PERMI55ION TO 60 5EE
THE 5CHOOL NURSE..
I FEEL AN ANXIETY
ATTACK C0MIN6ON.
HURRY;5IR!5ME'5 G0IN6
TO GET THERE BEFORE
Já, kennari, ég bið ura leyfi til að Ég finn að ég er að fá kvíðakast. Flýttu þér, herra! Hún verður á
fara til skólahjúkrunarfræðings- undan þér þangað!
ins.
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Góð þjónusta er
aðalsmerki Tals hf.
Frá Arnþóri Halldórssyni:
í BRÉFI til Morgunblaðsins þann
10. febrúar heldur Ki-istján Frið-
bert Friðbertsson fram staðhæfu-
lausum og beinlínis röngum full-
yrðum um þjónustu Tals hf. Sætir
það furðu að einstaklingur veitist á
þennan hátt að Tali að því er virð-
ist með þeim ásetningi að valda
fyrirtækinu tjóni.
I öðni lesendabréfi sem Ki-istján
hefur sent Morgunblaðinu, ásamt
aftriti til Tals, viðurkennir hann að
hafa „nokkuð ýkt“ og „kryddað
með staðreyndum" þær fullyrðing-
ar sem fram komu í fyrri greininni,
svo notað sé orðalag hans sjálfs.
Þar að auki hefur komið fram í
samtali Kristjáns við þjónustu-
stjóra Tals að hann hafi einungis
einu sinni haft samband við þjón-
ustufulltrúa Tals, en ekki 15-20
sinnum eins og hann fúllyrðir í les-
endabréfi sínu. Aðrar fullyrðingar
Kristjáns um Tal eru sama marki
brenndar - stórlega ýktar eða
beinlínis rangar.
Af þessu tilefni vill Tal hf. koma
á framfæri við lesendur Morgun-
blaðsins eftirfarandi staðreyndum
um þjónustu fyrirtækisins:
í þjónustuveri Tals starfa alls 28
manns sem veita alhliða þjónustu í
tengslum við farsímanotkun, leið-
beina um notkun símtækja, tal-
hólfa og annarrar þjónustu sem
Tal býður upp á. Þjónustuver Tals
er opið allan sólarhringinn, alla
daga vikunnar. Yfir 5.000 símtölum
er að meðaltali svarað í viku hverri.
Allt að 1.200 símtölum er svarað
dag hvern. Meðal bið eftir svari
þjónustufulltrúa er 19 sekúndur.
Bið umfram 2 mínútur eftir svari
þjónustufuUtrúa á sér einungis
stað í innan við 2% tilfella á mesta
annatíma.
Öll símtöl úr Tal GSM farsíma í
þjónustuver Tals eru gjaldfrjáls.
Tal býður upp á gjaldfrjálst númer
fyrir almenna símnotendur -
800 6066.
Tal er með fullkomnasta tækni-
búnað sem völ er á til að þjónusta
viðskiptavini sína. Fyrirtækið
býður upp á fjölbreytta þjónustu
sem sniðin er að þörfum við-
skiptavina þess. Sem dæmi, þá er
þeim aðilum sem mikið hringja
Tal GSM í Tal GSM símtöl bent á
að nota þjónustuleiðina FríTal, en
á þann hátt tryggir notandinn sér
ávallt lágmarksverð, 10 kr. fyrir
hverja mínútu. TímaTal er aftur á
móti þjónustuleið sem hentar
þeim sem nota símann aðallega á
daginn. í TímaTali er umtalsvert
hagstæðara gjald á þeim mínútum
sem eru innifaldar í mánaðar-
gjaldinu borið saman við
dagtaxta.
ARNÞÓR HALLDÓRSSON,
framkvæmdastjóri sölu- og
markaðssviðs Tals.
Fljót og góð þjónusta
hjá Tali hf.
Frá Kristjáni Fr. Friðbertssyni:
VARÐANDI „Tal-skrif‘ mín sem
birtust í Mbl. 10 feb. sl. Eftir um-
hugsun, ábendingar og hin ýmsu
viðbrögð varðandi áðurnefnt bréf
mitt til blaðsins vil ég að eftirfar-
andi komi fram:
Þjónustusími Tals. Bréfið hið
fyrra var ritað eftir að ég hafði lent
í að bíða eftir sambandi við þjón-
ustufulltrúa. Ég játa að ég hef
nokkuð ýkt að hafa þurft að bíða í
20 mínútur eftir sambandi og bið
eftir því að komast í samband er
undantekning en ekki regla. I öðr-
um tilfellum hef ég fengið svar
nánast um leið og ég hringi. Nú
hefur það gerst að undanfarnar 2
yikur hef ég mikið erindi átt við
þjónustusímann og fengið mjög
góða þjónustu, vægast sagt. Hún
er fljót, nákvæm og unnin af mikilli
þjónustulund.
Skv. áreiðanlegum heimildum er
einungis rukkað fyrir símtöl í þjón-
ustusíma, séu þau ekki úr síma-
kerfi Tals hf. Þ.e. ekki úr svoköll-
uðum Tal GSM og leiðréttist það
hér með og til þess eins ætlast að
sölumenn Tals taki sér þetta til
íhugunar og kynni sér betur mál
þess fyrirtækis sem þeir vinna hjá
- enda var sá hluti hins fyrra bréfs
á því að sölumenn svöruðu þessu
máli á víxl. Hefði því verið auðvelt
að komast hjá því.
Þeir sem einnig lásu hina fyrri
grein taka eftir því að hér kveður
við annan tón. Astæða þess er sú
að hin fyrri skrif voru úr penna
hins óupplýsta. Það er að segja ein-
staklings sem leitað hafði upplýs-
inga frá röngum hliðum, sem
reyndust svo verri en engar. Það
skal einnig sterklega athugað að
það bréf byggðist mest á því að
ungur maður var að lýsa skoðun
sinni og ýmissa vina sinna. Til að
þetta mætti vekja áhuga hins al-
menna manns var þetta svo
„kryddað" með staðreyndum, sem
á endanum reyndust ekki nægilega
réttar. Hafa skal það er sannara
reynist.
Að lokum ætla ég að leyfa mér
að hrósa auglýsingum Tals annars
vegar og hins vegar Ólafi nokkrum,
þjónustustjóra Tals, íýrir skjót og
góð viðbrögð, gott viðmót og fyrir
að hafa veitt mér upplýsingar um
þessi málefni. Meðal áðurnefndra
upplýsinga er sú staðreynd að
meðalbið er ekki nema 20 sek í
þjónustusíma og hef ég því verið
einstaklega óheppinn og ekki gott
dæmi yfir heildina.
KRISTJÁN FR. FRIÐBERTSSON,
Fífuhvammi 3, Kópavogi.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt ti! að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.