Morgunblaðið - 12.02.1999, Blaðsíða 52
52 FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
HARMONIKUBALL
verður annað kvöld, laugardagskvöld
í ÁSGARÐI, Glæsibæ við fllfheima. Hefst kl. 22.00.
Fálagar úr Harmonikufélagi Reykjavíkur og Caprí tríó
leika fyrir dansi. Söngvari er Ragnheiður Hauksdóttir.
KVIKMYNDIR/SAMBÍÓIN og Nýjabíó í Keflavík og á Akureyri hafa tekið til sýn-
inga hina gríðarlega vinsælu teiknimynd Pöddulíf, sem gerð er af þeim sem bjuggu
til Toy Story. Aðalleikari í íslensku útgáfunni er Felix Bergsson, en í þeirri ensku
er m.a, að finna Kevin Spacey.
Maurar, engisprettur og
flær í þrívíddartækni
Raggi Bjama og Stefán Jökulsson
slá á léttari nótur á Mímisbar
Radisson SAS
Saga Hotel
Reykjavík
Borðapantanir í simum 557 9717 og 587 6080
Munið hin frábæru sunnudagskvöld með hijómsveit
Hjördísar Geirs frá kl. 21.30—01.00
^[œtur^aíinn
Smiðjuvegi 14, ‘Kópavogi, sími 587 6080
Loksins — loksins — loksins
Hinn hugljúfi stór-
söngvari, Einar
Júlíusson, verður
heióursgestur
okkar um helgina
ásamt Hilmari
Sverrissyni og
Önnu Vilhjálms.
Sjáumst hress!
raunverulegir, með skuggum, tónum
og öllu.“ Þeir sem vilja sjá myndina
með ensku tali eiga kost á því í Bíó-
borginni þar sem leikarar á borð við
Kevin Spacey (Usual Suspects), Jul-
ia Louis-Dreyfus (Seinfeld), David
Hyde Pierce (Frasier), Richard Kind
(Spin City, Mad about You) og Dave
Foley (The Wrong Guy) ijá skordýr-
unum líf.
í öllum Sambíóunum og Nýjabíói
í Keflavík og á Akureyri er hins
vegar hægt að hlýða á myndina í ís-
lenskri talsetningu, þar sem Felix
Bergsson og fleiri landsþekktir leik-
arar eru í aðalhlutverkum.
Kvikmyndahátíðin í Berlín
Björninn
skriðinn
úr híði
ÞRÁTT fyrir kulda og trekk
safnaðist múgur og margmenni
saman fyrir framan Zoo Palast á
miðvikudag til að fylgjast með
opnun Kvikmyndahátíðarinnar í
Berlín. Opnunarmyndin var Ai-
mee & Jaguar, lesbísk ástarsaga
byggð á sannri sögu sem gerðist
í síðari heirnsstyrjöldinni. Var
henni tekið með fagnaðarlátum
ólíkt fyrri forsýningu fyrir fjöl-
miðla, þar sem henni var fálega
tekið.
Hin 85 ára Lilly Wust sem er
fyrirmynd Aimee í myndinni var
viðstödd sýninguna og var henni
fagnað með dynjandi lófataki
þegar hún grátklökkri röddu
sagði eftir sýninguna að myndin
væri tileinkuð Jaguar.
Stoltur af Berlín
Gerhard Schroeder kanslari
Þýskalands bauð hátíðargesti
velkomna með nokkrum orðum,
en hann þurfti síðan frá að
hverfa vegna fyrirhugaðrar ferð-
ar til Washington. „Eg er ekki að
gera lítið úr Cannes, Feneyjum
eða Hollywood þegar ég segi að
við séum stolt af Berlín," sagði
hann, en borgin mun á næstu
dögum hýsa margar stórstjörnur
úr kvikmyndaheiminum sem
munu keppa um hin hefðbundnu
verðlaun hátíðarinnar, Berlínar-
björninn.
Áður en Schroeder steig í
ræðustól ræddi hann við Steven
Spielberg um „Shoah“-safn Spiel-
bergs, sem er stórt myndbanda-
safn með viðtölum við gyðinga
sem lifðu helförina af. Aætlað er
að safn Spielbergs verði hluti af
fyrirhuguðu safni í Berlín sem
tileinkað er helförinni gegn gyð-
ingum.
Stjörnum prýdd Berlín
Frægir Ieikstjórar eins og Ter-
rence Malick, Bertrand Taverni-
er, Claude Chabrol og Robert
Altman verða á Kvikmyndahátíð-
inni auk hryllingssmiðsins David
Cronenbergs og munu þeir berj-
ast um Berlínarbjörninn ásamt
fleiri Ieikstjórum. Tuttugu og
fimm kvikmyndir eru sýndar á
LEIKKONURNAR Maria Schrader og Juliane Koehler sem Ieika í
opnunarmynd hátíðarinnar Aimee & Jaguar stilla sér hér upp með
Lilly Wust sem er fyrirmynd annarrar aðalpersónu myndarinnar.
KANSLARI Þýskalands, Gerhard Schröeder, ræðir
hér við Ieikstjórann Steven Spielberg.
hátíðinni og keppa um verðlaun
þessa tólf daga.
Á síðasta ári var talað um að
stærstu stjörnurnar hefðu verið
fjarverandi á hátíðinni en annað
er uppi á teningnum í ár, því
gestalistinn skartar ekki ófræg-
ara fólki en Steven Spielberg,
Meryl Streep, Nicholas Cage,
Ben Affleck, Harvey Keitel, Gwy-
neth Paltrow og Jennifer Jason
Leigh.
Berlín verður því stjörnum
prýdd næstu daga en Kvik-
myndahátíðin stendur yfir til 21.
febrúar næstkomandi.
FRUMSÝNING
Lífið er enginn dans á rósum
fyrir maurana á Maura-
eyju. Hvert einasta sumar
hellist yfir þá heill her af
engisprettum. Þær krefjast vænn-
ar sneiðar af ávöxtum erfiðis maur-
anna og setja blett á lífið í þessu
friðsæla samfélagi. Söguhetja
myndarinnar heitir Flik og er
maur, sem er ekki jafnhefðbundinn
í hugsun og hinir maurarnir. Hann
tekur upp hjá sér að ná í hjálp og
einhvern veginn fer það svo að
hann fær atvinnulausar fiær, sem
hafa misst vinnuna í lélegum flóa-
sirkus, til þess að ganga til liðs við
maurana og berjast gegn engi-
sprettunum.
Þessir nýju vinir, maurarnir og
flærnar, leggjast svo á eitt til að
undirbúa uppgjörið við engisprett-
urnar. En það gengur ekki allt eins
og til var stofnað og þegar áætlunin
fer úr böndunum fara hlutirnir að
gerast og margt óvænt gerist þegar
Flik reynir að bjarga heimkynnun-
um og góðu maur-orði.
Kveikjuna að sögunni er að finna
í dæmisögu Esóps um áhyggjulausu
engisprettuna sem biður lúsiðnu
maurana um að gefa sér að eta. Úr
þeim söguþræði spinna höfundar
Pöddulífs nýjan vef.
Þeir eru annars vegar Walt Dis-
ney-stórfyrirætkið og hins vegar
fyrirtækið Pixar, sem er teikni-
myndadeild Apple-tölvufyrirtækis-
ins. Samstarf þeirra hófst með
gerð Toy Story og nú hafa þau
samið um að gera saman fimm
teiknimyndir.
Leikstjórinn er John Lasseter,
óskarsverðlaunahafi fyrir Toy
Story, sem einnig er höfundur sögu
og handrits ásamt Joe Ranft og
Donald McEnery og Bob Shaw.
Tónlistin í myndinni er eftir hinn
þekkta Randy Newman.
„Krakkar elska pöddur," segir
Lasseter. „Ég veit það af því að ég
er krakki í hjarta mínu. Ég á fimm
syni og þeir hafa allir eytt miklum
tíma úti í garði að leika sér við pödd-
ur. Heimur skordýranna er svo heill-
andi. Þegar ég var krakki reyndi ég
oft að ímynda mér að ég væri lítill og
grasið hátt eins og risatré í risastór-
um skógi. Það að horfa á veröldina
sem við þekkjum frá sjónarhóli skor-
dýrs fannst mér heillandi og ég var
viss um að út úr því gæti komið at-
hyglisverð mynd. Með tölvutækninni
eigum við kost á því að búa til þrí-
víddarheima sem eru næstum því