Morgunblaðið - 12.02.1999, Side 60
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLANI, 103 REYKJAVIK, SÍMI6691100, SÍMBRÉF6691181
PÓSTHÓLF3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR 1999
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Stefnt að
vetnis-
fram-
leiðslu
i* • ■
r
■ r “f
.. ini
msSSSm ISJ -
■■ ? * -
mm9*m;^S, _ ...
Eldhamri bjargað
ELDHAMRI GK, 229 tonna stálbáti, var bjargað í gær vélarvana um eina mflu út af Krísuvíkurbjargi. Um 40 mínútum eftir að tilkynn-
^ing barst frá bátsverjum náðu björgunarsveitarmenn á björgunarbátnum Oddi V. Gíslasyni að koma taug í Eldhamar. „Við áttum ein-
hver hundruð metra eftir í land en björgunarbáturinn er öflugur og var fljótur að koma til okkar,“ sagði Stefán Jónsson háseti.
■ Vorum/6
*
Ognaði
flugfreyj-
um og
áreitti
Halldór Ásgrímsson telur að Sjálfstæðisflokkurinn geti náð meirihluta
Framsóknarflokkurinn
leiði næstu ríkisstjórn
Ognaði
flugfreyj-
um og
áreitti
KARLMAÐUR var handtekinn
við komu Flugleiðavélar til
Keflavíkur um klukkan átta í
gærkvöldi. Vélin var að koma
frá London og hafði maðurinn
ógnað flugfreyjum og áreitt
þær kynferðislega, að sögn lög-
reglunnar á Keflavíkurflugvelli.
Var maðurinn mjög drukkinn
og fékk að dúsa í fangageymsl-
um lögreglunnar yfir nóttina.
Á hvolfí
utan vegar
BETUR fór en á horfðist þegar
jeppi og fólksbíll rákust saman
skammt frá Marbæli í Skaga-
firði í gærkvöldi. Jeppinn hafn-
aði á hvolfi í skurði utan vegar
og telur lögreglan að notkun bíl-
belta og veltigrind jeppans hafi
komið í veg fyrir að ökumaður-
inn, sem var einn í bílnum, slas-
aðist.
HALLDÓR Ásgrímsson, utanríkis-
ráðherra og formaður Framsóknai'-
flokksins, sagði á opnum stjórnmála-
fundi, sem Framsóknarfélag
Reykjavíkur efndi til í gærkvöldi,
útilokað að Framsóknarflokkminn
muni fara með forystu og eiga for-
sætisráðherra í næstu ríkisstjóm,
nema hann fái góða kosningu í þing-
kosningunum í vor.
„Okkur heyrist það á Samfylking-
unni núna að þeir vilji gjarnan að
Framsóknarflokkurinn leiði næstu
ríkisstjórn. En halda menn að
Framsóknarflokkurinn muni gera
það án Joess að hann fái góða kosn-
ingu? Eg hef sagt að það hljóti að
vera markmið Framsóknarflokks-
ins að vilja leiða næstu ríkisstjórn.
Það hefur alltaf verið markmið
hans. Það er ekkert nýtt í því. Við
viljum vera í forystu í íslensku
samfélagi og teljum okkur hafa al-
veg fulla burði til þess,“ sagði Hall-
dór.
Halldór sagði að Sjálfstæðisflokk-
urinn gæti náð hreinum meirihluta í
alþingiskosningunum, eins og kann-
anir hefðu sýnt, og sagðist hann
taka þær niðurstöður alvarlega.
Viljum fara „þriðju leiðina"
eins og Bretar
Halldór lagði áherslu á að Fram-
sóknarflokkurinn væri miðjuflokkur
og sagði að hvorki hægri né vinstri
stefna dygðu til að takast á við þau
viðfangsefni sem blöstu við. „Við er-
um eini flokkurinn í íslenskum
stjórnmálum sem segir hreint út:
Við erum miðjuflokkur. Við viljum
fara þessa þriðju leið eins og Bretar
eru að fara núna, vegna þess að það
er eina leiðin sem er fær. Hægri
leiðin er orðin ófær, það er búið að
loka henni, vinstri leiðin er ófær og í
reynd er hún ónýt, hún er gjald-
þrota,“ sagði Halldór.
Alþýðuflokkur hefur nánast
yfirtekið Alþýðubandalagið
Halldór gagnrýndi Samfylking-
úna harðlega á fundinum, m.a. fyrir
óábyrga utanríkispólitík og vitnaði
þar sérstaklega til afstöðunnar til
Atlantshafsbandalagsins. „Eg er
furðu lostinn yfir því að Alþýðu-
flokkurinn skuli hafa gefið þetta eft-
ir og tekið í reynd upp stefnu gamla
Alþýðubandalagsins, sem er dautt, í
varnar- og öryggismálum. Væntan-
lega í staðinn fyrir það að geta nán-
ast yfírtekið Alþýðubandalagið að
mestu leyti, því þessi nýi flokkur,
sem þarna er að verða til, er náttúr-
lega ekkert annað en endurbættur
Alþýðuflokkur. Þetta er fyrst og
fremst krataflokkur, sem þarna er
að fæðast, að mínu mati, en gerir þá
Daimler-Chrysler
meðal fjárfesta
STOFNUN hlutafélags með er-
lendum aðilum um framleiðslu á
vetni í Aburðarverksmiðjunni í
Gufunesi er á næsta leiti. Eignar-
haldsfélag íslenskra aðila mun fara
með 51% eignarhald í aðalfélaginu
en 49% eignarhald verður á hönd-
um erlendra aðila, þ.á m. stórfyrir-
tækisins Daimler-Chrysler. Há-
skóli Islands er aðili að málinu.
Tvö önnur erlend stórfyrirtæki
Að sögn Skúla Bjarnasonar,
stjórnarformanns Áburðarverk-
smiðjunnar munu tvö önnur erlend
stórfyrirtæki koma að félaginu.
„Félaginu er ætlað að standa fyrir
rannsóknarverkefnum í sambandi
við vetni og vetnisnotkun, flutning
og geymslu; notkun þess í sam-
göngutækjum, bátum og skipum. I
framhaldinu er mögulegur útflutn-
ingur.“
Skúli segir tilraunaverkef'nið
álitlegt í augum hinna erlendu að-
ila, m.a. vegna smæðar samfélags-
ins, en það auðveldi tilraunir. „Við
framleiðum okkar vetni með raf-
greiningu, rafmagnið framleiðum
við með fallorku eða gufuorku.
Þannig að við eram að tala um al-
gerlega vistvæna lausn.“
Vetni í óbreyttu formi þarf að
geyma við gríðarlegan kulda eða
undh- miklum þrýstingi, og er ætl-
unin því, hvað einkabíla varðar, að
nota vetni geymt í metanóli
Skúli segir að til þess að fram-
leiða metanól þurfi kolefnisgjafa og
horfí menn til járnblendisins eða
álversins um útvegun á kolmón-
oxíði til að búa það til.
reginskyssu að halda sig við vinstri
áherslur og taka upp utanríkis-
stefnu Aiþýðubandalagsins, að
nokkru leyti, sem er gjörsamlega
úrelt,“ sagði Halldór.
Hann sagði að ýmsir möguleikar
væru á stjórnarmynstri eftir kosn-
ingar og Framsóknarflokkurinn
gengi óbundinn til næstu kosninga.
„Framsóknarflokkurinn má aldrei
fara út í einhverja ævintýra-
mennsku með íslenskt þjóðfélag
eins og það er í dag,“ sagði hann.
„Ef við fáum ekki góða kosningu í
næstu kosningum hljótum við að
skoða okkar hug, því ef það verður
dómur kjósenda að okkur sé ekki
vel treystandi til að vera í land-
stjóminni eigum við náttúralega að
hlíta þeim dómi.“ Halldór sagði að
það yrði áfall fyrir flokkinn ef hann
fengi ekki nema 10-11 þingmenn
eins og spáð hefði verið í könnun.