Morgunblaðið - 25.03.1999, Blaðsíða 4
4 FIMMTUDAGUR 25. MARZ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Mannvernd sendir kæru
vegna eyðublaðs landlæknis
SAMTÖKIN Mannvernd hafa sent heilbrigðis-
ráðherra stjórnsýslukæru vegna eyðublaðs sem
landlæknisembættið hefur útbúið fyrir þá sem
vilja ekki láta skrá heilsufarsupplýsingar sínar í
miðlægan gagnagi-unn á heilbrigðissviði. Telja
samtökin að eyðublað landlæknis sé ekki í sam-
ræmi við gagnagrunnslögin. Fara þau þess á leit
við ráðuneytið að það felli úr gildi ákvörðun land-
læknisembættisins um eyðublaðið og að hannað
verði nýtt eyðublað.
„Petta er í rauninni athugasemd við eyðublaðið
og ósk okkar um að gert verði annað og betra
eyðublað, svo auðveldara verði fyrir fólk að átta
sig á því og auðveldara að segja sig úr grunnin-
um,“ segir Pétur Hauksson, varaformaður Mann-
verndar.
Ekki skilyrði að eingöngu séu
notuð eyðublöð landlæknis
Mannvemd gerir fjölmargar athugasemdir við
eyðublaðið í kærunni, m.a. það orðalag yfirskrift-
ar eyðublaðsins að um sé að ræða beiðni um úr-
sögn úr gagnagrunninum. Þetta orðalag sé ekki í
samræmi við lögin og almenningur gæti skilið
það svo að landlæknir hefði vald til að hafna
beiðninni.
Mattin'as Halldórsson aðstoðarlandlæknir
bendir á að í lögunum segi að fólk geti sent beiðni
um úrsögn úr grunninum. Það sé heldur ekki
sjálfgefið að orðið sé við beiðninni ef t.d. væri um
að ræða beiðni um að skrá ekki upplýsingar um
látna ættingja o.s.frv., því ekki sé heimilt að
verða við því skv. lögunum.
Mannvernd gagnrýnir einnig ummæli Magn-
úsar Baldurssonar, deildarstjóra landlæknisemb-
ættisins, um að einungis eyðublöð landlæknis
verði tekin gild sem úrsögn. Matthías segir að
hér sé misskilningur á ferðinni því ekki sé gerð
krafa um að einungis séu notuð eyðublöð sem
landlæknir hafi útbúið. „Ef það er alveg skýrt
hvað við er átt í beiðnum sem okkur berast, þá
tökum við þær líka gildar,“ sagði hann.
I stjórnsýslukærunni eru ennfremur gerðar
athugasemdir við að á eyðublaðinu segi að þar til
gengið hafi verið frá skilyrðum rekstrarleyfis sé
ekki ljóst nákvæmlega hvaða upplýsingar verða í
gagnagrunninum. „I fyrsta lagi er það fráleitt að
einstaklingur sem undirritar þetta skjal skuli
eiga að undirrita yfirlýsingu um að ekki sé ljóst
hvaða upplýsingar verði í fyrirhuguðum gagna-
grunni á sama tíma og einstaklingurinn er að
reyna að gera landlækni ljóst hvað ekki má fara í
gagnagrunninn af upplýsingum um hann. Skýr-
ingar (hugleiðingar) landlæknisembættisins eiga
ekki við ofan við undirskrift einstaklingsins.
I öðru lagi er rangt að einstaklingur geti „skipt
um skoðun" án þess að tiltaka hvaða takmarkanir
eru á því að geta skipt um skoðun. Lögin gera
ráð fyrir því að upplýsingum sem einu sinni eru
komnar inn verði ekki eytt ef einstaklingur tekur
ákvörðun um að hætta þátttöku eftir að færsla
upplýsinga hefst,“ segir í kærunni.
Hægd að eyða upplýsingum
án þess að brjóta dulkóðun
Matthías segir að tæknilega sé ekkert því til
fyrirstöðu að eyða upplýsingum um einstaklinga
úr grunninum án þess að brjóta dulkóðun gagn-
anna og persónugreina viðkomandi einstakling.
Lögin geri ráð fyrir að stöðugt sé bætt við þær
upplýsingar sem fyrir eru í grunninum eftir þvi
sem tímar líða og að mati sérfræðinga Iand-
læknisembættisins sé hægðarleikur að senda
skipun inn í grunninn um að eyða tilteknum
upplýsingum með þessum hætti. „Ur því að það
er hægt að setja dulkóðaðar upplýsingar inn í
grunninn, hlýtur að vera hægt að eyða þeim líka
með því að senda skilaboð með sömu dulkóðun
um að eyða gögnunum. Ef ekki væri hægt að
senda boð um að eyða gögnum um einstaklinga
væri ekki heldur hægt að bæta við upplýsingum
um sama einstakling inn í grunninn," sagði
Matthías.
Matthías segir að landlæknisembættið hafi
lagt sig fram um að kynna málið á hlutlausan
hátt fyrir fólki og auðvelda þeim sem það vildu að
skrá sig úr grunninum.
Ók á bifreið langveikrar stúlku fyrir utan sjúkrahús og stakk af
Hafði átt
bifreiðina
í 3 stundir
Morgunblaðið/Golli
ROSA Oddrún Gunnarsdóttir við skemmdan bflinn.
EKIÐ var á glænýja bifreið sem
sautján ára gömul stúlka var að fá
til eignar í fyrrakvöld fyrir utan
sjúkrahúsið sem hún lá á og síðan
af vettvangi. Stúlkan, Rósa Oddrún
Gunnarsdóttir, hefúr átt við lang-
vinn veikindi að striða og er háð
því að hafa bifreið til afnota. Tjón-
valdurinn hafði ekki gefið sig fram
eða fundist í gærkvöldi.
Forsaga málsins er sú að fyrir
um þremur árum fékk Rósa Odd-
rún heilabólgu í kjölfar flensu og
hefur æ síðan glímt við alvarleg
veikindi, þar á meðal ólæknandi
flogaveiki. Hún fær flogaveikisköst
fyrirvaralaust og verður bifreið að
vera innan seilingar þegar slíkt
gerist. „Hún kemst ekkert án þess
að vera á bfl, hvorki í skólann né
annað, og því var þetta vægast sagt
bagalegt fyrir hana,“ segir móðir
Rósu, Guðbjörg B. Guðmundsdóttir.
Ætluðu að sýna bflinn
Hefur Rósa lagt til hliðar um
langt skeið peninga af örorkubót-
um sínum, auk þess sem lán fékkst
hjá Tryggingastofnun, og átti loks
fyrir skömmu nægjanlega mikið til
að kaupa bifreið af tegundinni
Toyota Yaris.
„Pabbi Rósu, bróðir og systir,
komu gagngert frá Keflavík til að
sýna henni bflinn. Þau komu að
Landspitalanum og gengu inn á
Bamaspítala Hringsins til að segja
henni fréttimar. Rósa hafði verið í
aðgerð í gær og verið svæfð,
þannig að hún var of máttfarin til
að komast fram úr rúminu fyrr en
um muleytið. Þá fómm við inn í
herbergið sem foreldrar hafa að-
stöðu í og bentum henni á bifreið-
ina í gegnum rúðuna. Þar var þá
stödd kona sem hafði séð að ekið
var á bifreiðina en ekki vitað hver
ætti hana. Pabbi Rósu hljóp út og
það reyndist rétt vera; bifreiðin var
dælduð eftir ákeyrslu. Bifreiðin
hefur kannski staðið á bflastæðinu í
um tuttugu mínútur áður en þetta
gerðist," segir Guðbjörg.
Einungis var búið að keyra bif-
reiðina frá bflasölunni og í bæinn
þegar ákeyrslan varð. Bfllinn var
því alls búinn að vera í eigu Rósu
Oddrúnar í þtjár stundir og búið að
aka honum um 50 kílómetra. „Þetta
var alveg grátlegt,“ segir Guð-
björg.
Vitnið sem sá til tjónvaldsins
sagði hann hefði ekið ljósri fólksbif-
reið, nokkurra ára gamalli, sem
lagt var við hliðina á bfl Rósu. Vitn-
ið sá hins vegar ekki bflnúmerið áð-
ur en tjónvaldurinn branaði á brott.
Hins vegar var Subaru Justy-bifreið
þar skammt frá og er talið að öku-
maður hennar hafi séð atvikið bet-
ur, en það vitni að atburðinum hef-
ur hins vegar ekki gefið sig fram
við lögregluna enn sem komið er.
Guðbjörg segir að frambretti bif-
reiðarinnar sé talið ónýtt og erfitt
hafi reynst að opna framhurð henn-
ar eftir ákeyi-sluna. Ijónið var met-
ið lauslega í gærmorgun og talið
nema að minnsta kosti 70 þúsund
krónum.
Umboðið býðst til að borga
„Það var hringt í okkur frá
Toyota-umboðinu í dag og þeir
buðust til að greiða kostnaðinn við
viðgerðina, sem er mjög vel gert og
við emm afar þakklát. Það er þó
vonandi að tjónvaldurinn fái sam-
viskubit og gefi sig fram, eða þá að
vitnið á Subaru-bifreiðinni hafi séð
númerið á bflnum sem tjóninu olli
og láti vita,“ segir Guðbjörg.
Davíð Oddsson um
loftárásir á Serba
Ríkis-
stjórnin
samþykk
DAVIÐ Oddsson forsætisráð-
herra sagði í samtali við Morg-
unblaðið í gær að ríkisstjórnin
hefði fyiTr sitt leyti samþykkt að
Atlantshafsbandalagið hótaði
loftárásum ef árásir Serba á
þjóðemishópa í Kosovo héldu
áfram og benti á að í þeirri sam-
þykkt hefði falist að ríkisstjórnin
myndi styðja loftárásir á Serba
bæru hótanh’nar ekki árangur.
Davíð benti einnig á að þessi
afstaða ríkisstjórnaiinnai- hefði
verið ítrekuð við Javier Solana,
framkvæmdastjóra NATO, þeg-
ar hann kom hingað til lands í
janúar sl.
„Við höfum líka samþykkt að
ef friður næst munum við
leggja okkar fram í fjármunum
til að taka þátt í eftirlitsstarfi á
staðnum með sama hætti og við
höfum áður gert í Bosníu,“
sagði forsætisráðherra og benti
á að m.a. Solana hefði verið
kynnt þessi afstaða ríkisstjórn-
arinnar í heimsókn hans til Is-
lands.
Keflavíkur-
flugvöllur
hugsanlega
notaður
HALLDÓR Ásgrímsson utan-
ríkisráðherra sagði í gær að ís-
lensk stjómvöld styddu fyrir-
hugaðar hemaðaraðgerðir Atl-
antshafsbandalagsins gegn Jú-
góslavíu þrátt fyrir að þau von-
uðust til þess að eitthvað yi'ði til
að koma í veg fyrir að af þeim
þyrfti að verða.
„Það er mjög alvarlegt að
NATO geri árásir á ríki sem
ekki hefur gert árás á aðildarríki
þess en hér er um mjög sérstak-
ar aðstæður að ræða,“ sagði
hann. „Arásimar em örþrifaráð
sem gripið er til þar sem við telj-
um að okkur beri að standa með
bræðmm okkar í Kosovo.“
Þá sagði Halldór það hafa leg-
ið fyiir mánuðum saman að ís-
lensk stjómvöld muni veita
heimild til þess að Keflavíkur-
flugvöllur yrði notaður í tengsl-
um við hernaðaraðgerðirnai' ef
þess gerðist þörf.
Tveir úrskurð-
aðir í gæslu-
varðhald
RÚMLEGA fertugur karlmaður
vai- úrskurðaður í fyrrakvöld í
gæsluvarðhald til 6. april næst
komandi, í svo kallaða síbrota-
gæslu, að kröfu lögreglunnar í
Reykjavík.
Maðurinn var handtekinn í
tengslum við rannsókn lögregl-
unnar á auðgunarbroti sem
snýst meðal annars um vörur
sem sviknar hafa verið út úr
verslunum og fyrirtækjum. Alls
er verðmæti þess varnings sem
um ræðir talið nema um Geimur
milljónum króna. Maðurinn er
einnig talinn tengjast ýmsum
öðrum málum sem lögreglan
hefur til rannsóknar, þar á með-
al fíkniefnamálum. Einn maður
er þegar í gæsluvarðhaldi vegna
málsins.
heimilisbankinn
www.bi.is
a rettn
ókeypis aðgangur til ársins 2000
ff,
S k í m
®BÚNAÐARBANKINN
Tmustur banld
mánaða
internettenging fylgir