Morgunblaðið - 25.03.1999, Blaðsíða 14
14 FIMMTUDAGUR 25. MARZ 1999
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
h
Fjölsóttur borgarafundur um framtíð Akureyrarvallar
Morgunbláðið/Kristján
FRAMTIÐ Akureyrarvallar var rædd á borgarafundi í Sjallanura í fyrrakvöld, þeir Kristján Þór Júhusson bæjarsljórí, Árni Ólafsson skipu-
lagsstjóri, Benedikt Guðmundsson atvinnuráðgjafi, Bragi Guðmundsson, formaður Ungmennafélags Akureyrar, og Hannes Karlsson, aðstoð-
arframkvæmdasljóri verslunarsviðs KEA, sátu fyrir svörum.
Stórmarkaður eða íþrótta-
iðkun í hjarta bæjarins?
STEFÁN Gunnlaugsson formaður knattspyrnudeildar KA (t.v.) var einn þeirra sem leituðu svara við
mörgum spurningum sem brenna á vörum knattspyrnuáhugamanna.
Skiptar skoðanir voru
meðal bæjarbúa á
borgarafundi um það
hvort reisa skyldi stór-
markað á íþróttasvæði
miðbæjarins. Þeir sem
vilja aðalleikvanginn
áfram á sínum stað
voru meira áberandi.
Margrét Þóra Þórs-
dóttir sat fundinn.
NDSTÆÐINGAR þess
að stórmarkaður verði
byggður á Akureyrar-
velli höfðu sig meira í
frammi á fjölsóttum borgarafundi
sem haldinn var í Sjallanum í
fyrrakvöld, en Útvarp Norðurlands
og útvarpsstöðin Frostrásin efndu
til hans.
Fundarefnið var framtíð Akur-
eyrarvallar en tvö fyrirtæki, Rúm-
fatalagerinn og KEA Nettó, hafa
sótt um leyfi til að byggja 12 þús-
und fermetra verslunarhúsnæði á
vellinum. Vinnuhópur á vegum
skipulagsnefndar bæjarins hefur
að undanfórnu skoðað ýmsar hliðar
málsins og er gert ráð fyrir að
hann Ijúki störfum innan skamms,
þá hefur íþrótta- og tómstundaráði
verið falið að gera áætlun um hvað
kostar að reisa ný íþróttamann-
virki annars staðar verði aðalvöll-
urinn lagður niður. Um mikið hita-
mál er að ræða á Akureyri og sitt
sýnist hverjum, ýmist þykir mönn-
um hugmyndin fráleit eða frábær,
en þeir sem eru þeirrar skoðunar
benda á að ekki veiti af þeirri inn-
spýtingu sem fjárfesting af þessu
tagi myndi hafa í fór með sér.
Kristján Þór Júlíusson, bæjar-
stjóri á Akureyri, sagðist líta svo á
að ósk fyrirtækjanna tveggja um
hvort hægt sé að útvega þeim um-
rædda lóð undir verslunarhúsnæði
feli ekki í sér neina afarkosti fyrir
íþróttafélögin. „Það er engan veg-
inn verið að stilla fólki upp gagn-
vart einhverjum afarkostum,“
sagði Kristján. „Ég vil að málið
verði skoðað fordómalaust frá öll-
um hliðum. Ég er hlynntur því að
fyrirtækjum sé kleift að fjárfesta
hér í bænum fyrir nokkur hundruð
milljóna króna. Við þurfum ein-
faldlega á því að halda að auka
okkar skatttekjur,“ sagði Kristján
og kvað ekkert mæla á móti því að
aðalleikvangur bæjarins yrði
byggður upp annars staðar, vildu
menn á annað borð hafa slíkan
leikvang.
Benedikt Guðmundsson atvinnu-
ráðgjafí sagði að ef tekin yrði
ákvörðun um að leggja íþróttavöll-
inn niður yrðu bæjaryfirvöld jafn-
framt að hafa tilbúna áætlun um
gerð sambærilegs eða betra svæðis
í hans stað. Eins og staðan væri nú
gætu hvorki KA- né Þórs-svæðin
tekið við því starfí sem fram færi á
Akureyrarvelli. Taldi Benedikt að
uppbygging nýs aðalvallar ásamt
byggingu fjölnota íþróttahúss
myndi kosta um einn milljarð og þó
svo að Akureyringar skulduðu lítið
og margir bentu á að í lagi væri að
taka lán til framkvæmda væru
bæjarbúar örugglega ekki sam-
mála því að nota þá alla í fram-
kvæmdir á íþróttasviðinu.
Stórfyrirtæki setja
aðalskipulag í uppnám
Bragi Guðmundsson, formaður
Ungmennafélags Akureyrar, sagði
afskaplega einkennilegt að stórfyr-
irtæki gætu sett aðalskipulag bæj-
arins í uppnám. Hann sagði frjálsí-
þróttaaðstöðu á Akureyrarvelli
vissulega þurfa endurbóta við, en á
vellinum væru mikilvæg mann-
virki. Það sem þó skipti mestu í
sínum huga væri spurningin um
hvort Akureyringar vildu aðalleik-
vang í bænum eða ekki. Stórvið-
burðir á íþróttasviðinu nytu sín
betur þar en á félagssvæðum og
hvatti Bragi því til þess að leik-
vangurinn yrði byggður myndar-
lega upp í stað þess að leggja hann
undir stórmarkað.
Bragi taldi það vissulega gott ef
fyrirtæki vildu fjárfesta í bænum,
„en mér finnst það nú ekki mikill
vilji til fjárfestinga ef þessi stórfyr-
irtæki geta ekki hugsað sér að fjár-
festa nema einmitt í þessari lóð.
Það eru margar aðrar lóðir til í
bænum og vegalengdirnar hér eru
ekki slíkar að það skipti öllu máli
hvar þessar verslanir eru, við ök-
um þangað á bílum,“ sagði Bragi.
Hann benti á að óhemju fé kostaði
að byggja upp nýjan aðalvöll, en
tiltölulega lítið að gera nauðsynleg-
ar breytingar á þeim sem fyrir er.
Óviðunandi aðstaða og
stækkun því nauðsynleg
„Við sóttum um þessa lóð fyrst
og fremst af rekstrarlegum for-
sendum,“ sagði Hannes Karlsson,
aðstoðarframkvæmdastjóri versl-
unarsviðs KEA. Hann sagði KEA
Nettó nauðsynlega þurfa að
stækka við sig, núverandi húsnæði
væri um 1.350 fermetrar og velta
síðasta árs hefði verið um 1.300
milljónir, eða 100 milljónir á fer-
metra. „Þetta er aðstaða sem við
getum ekki búið við mjög lengi,“
FERMINGARTILBOÐ
FOTONEX 101ix APS
Sjálfvirkur fókus
Sjálvirkt ijósop og hraði
Einföld filmuþræðing
Dagsetning
Taska fylgir
FUJIFILM NEXIA filma fylgir
Verð aðeins kr. 9.990
vs&mzEísföm
Skipholti 31, Sími 568 0450 Kaupvangsstræti 1, s. 461 2850
sagði Hannes. Akureyrarvöllur
væri albesta svæðið sem völ væri á
í bænum og verslunin vildi vera
þar sem fólkið er flest eða mið-
svæðis í bænum. Sagði Hannes að
fengist leyfi til að byggja á íþrótta-
vellinum myndi strax verða hafíst
handa, Rúmfatalagerinn myndi
eiga bygginguna en KEA leigja
pláss í húsinu.
Árni Ólafsson, skipulagsstjóri
Akureyrarbæjar, sagði að undan-
farna áratugi hefði þróunin orðið
sú að stórverslanir hefðu leitað út
úr bæjunum, þar sem landrými er
nægt og gott pláss fyrir bílastæði.
Víða væri verið að reyna að snúa
þessari þróun við með handafli, fá
stórmarkaðina nær miðbæjunum.
Sjálfur hefði hann áhuga á að
stuðla að minni umferð. Greindi
skipulagsstjóri frá því að um
breytingu á aðalskipulagi væri að
ræða sem um giltu ákveðin lög
sem tryggðu lýðræðislega umfjöll-
un og afgreiðslu, þannig að slík
breyting gæti aldrei farið fram hjá
bæjarbúum.
Aðalleikvangur á
Melgerðismelum?
Fjölmai-gir fundarmanna tóku til
máls, en m.a. spurði Jón Hjaltason ^
hvort ekki væri til önnur lóð undir ■
„svona höll“ en íþróttavöllurinn. Ifi
Tómas Ingi Olrich taldi óskynsam- p
legt að einblína eingöngu á völlinn
og spurði hvort menn hefðu skoðað
aðra kosti í miðbænum sem og að
byggja bílastæðahús. Sýrulist hon-
um deilur um málið komnar á það
stig að stefndi í óefni. Skipulags-
stjóri sagði að fyrirtækin bæði
hefðu áform um að stækka við sig
og myndu eflaust gera það hvort «
sem þau fengju völlinn eður (
Ýmsir möguleikar hefðu ver
skoðaðir, m.a. bílastæðið austan við “
Skipagötu. Hannes sagði íþrótta-
völlinn ekki einu lóðina sem til
gi-eina kæmi en hún væri hins veg-
ar besti kosturinn. Benedikt Guð-
mundssson dró mjög í efa að svo
væri, benti á slæma aðkomu úr
suðri og að Glerárgata væri þjóð-
vegur í þéttbýli.
Ævarr Hjartarson kvaðst tals- j
maður þess að nýta íþróttavöllinn <
undir annað, en að sínu mati væri (
nýting vallarins lítil, engum væri
hleypt inn á völlinn fyrr en eftir 17.
júní og tímabilið væri búið í sept-
ember. Menn væru hræddir um að
stórmarkaðurinn dræpi miðbæinn,
en hann sæi ekki hvernig hægt
væri að drepa eitthvað sem þegar
væri dautt. Benti Ævarr á að
ákjósanlegt væri að byggja nýjan k
aðalleikvang á Melgerðismelum í
Eyjafjarðarsveit, en einnig var á J ;
fundinum bent á uppbyggingu slíks W
leikvangs á Hrafnagili. Urðu marg-
ir, einkum þeir sem tengjast frjáls-
um íþróttum, til að mótmæla öllum
slíkum hugmyndum.
Myndu Akureyringar mótmæla
Akureyrarkirkju?
Stefáni Gunnlaugssyni var heitt í
hamsi og vildi fá að vita hver það
hefði verið innan bæjarkerfisins
sem bent hefði á Akureyrarvöll
sem svæði undir stórmarkað. Hann
sagði völlinn þann eina utan höfuð-
borgarsvæðisins þar sem hægt
væri að leika landsleiki og þá mót-
mælti hann því að völlurinn væri
lítið nptaður, ofnotkun væri nær
lagi. Óviðunandi ástand væri í
knattspyrnunni, þegar væri búið
að leggja mður Sanavöllinn og MA- L
völlinn og íþróttaskemman heyrði
brátt sögunni til, en ekkert nýtt jj
hefði komið í staðinn. „Það er ekki jp
hægt að bjóða upp á þetta,“ sagði
Stefán og fannst sem verið væri að
etja saman vinsælum fyrirtækjum í
bænum og íþróttafólki. Skoraði
hann á bæjaryfirvöld að láta gera
skoðanakönnun á vilja bæjarbúa í
málinu, sjálfur væri hann ekki í
vafa um að mikill meirihluti væri á
móti þessu ráðslagi. Árni skipu-
lagsstjóri sagði á fundinum að
hann væri viss um að Akureyring-
ar myndu mótmæla Akureyrar-
kix-kju á núverandi stað væri hún
óbyggð.