Morgunblaðið - 25.03.1999, Blaðsíða 63

Morgunblaðið - 25.03.1999, Blaðsíða 63
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR FIMMTUDAGUR 25. MARZ 1999 63 mun ekki framar til vera, hvorki harmur né kvöl er framar til. Hið fyrra er farið.“ (Opinberunarb. 21.4.) Rósa Jónsdóttir Sayari. Mig langar í örfáum orðum að minnast Vigdísar Kristínar sem j nú er látin. Eg kynntist henni þegar ég fluttist til Islands og kvæntist dótturdóttur hennar. Hún tók strax vel á móti mér og byrjaði að kenna mér íslensku. Hún vildi endilega að ég kallaði sig ömmu. Hún sýndi líka fjöl- skyldu minni áhuga og spurði alltaf frétta af henni. Amma Vigdís var mjög gestrisin, auðmjúk og hlý. Það var alltaf gam- an að heimsækja hana og hún sýndi g öllum hlýju og vinarhug. Hún sýndi hagsmunum fjöl- skyldu sinnar mikinn áhuga og var 9 ánægð þegar við keyptum okkur íbúð. Amma Vigdís kunni þannig líka að samgleðjast fólki sínu. Ég þakka fyrir að hafa fengið að kynnast henni. Sofðu í friði. Adel Benedikt Sayari. Mig langar til að kveðja kæra móðursystur með örfáum orðum. Frá árinu 1976, er ég fór í skóla til 1 Reykjavíkur, var Nökkvavogur 39 fastur punktur í tilveru minni. Alltaf var ég velkomin sama hvað mig vanhagaði um, hvort sem það var að læra að prjóna hæl, þvo þvott eða bara að spjalla. Einn vet- ur bjó ég hjá Viggu og Bárði og var ég eins og ein af börnum þeirra. Enda þótt þau ættu níu börn var Ieins og þau munaði ekkert um að bæta einu við. Velvild og umhyggja fyrir öðrum einkenndu hana Viggu alla tíð. Alltaf var hún boðin og búin að hýsa mig og fjölskyldu mína. Er ég var að koma og eiga dæturnar, þá var höfð dvöl hjá Viggu og í þeirra huga var hún Vigga amma. Þegar móðir mín þurfti að dveljast langdvölum á sjúkrahúsi í Reykja- vík og síðar faðir minn þá var það Vigga og fjölskylda sem voru tengiliðir við okkur systkinin þar sem við búum úti á landi. Fyrir allt í þetta verður seint fullþakkað. Minning lifir um góða konu. Megi góður Guð varðveita þig og blessa, elsku Vigga. Erla. Nú er hún dáin, hún amma með hlýlega brosið og góða skapið. Hún !var vitur kona hún amma. Og allt sem hún vissi var af því að hún var búin að borða svo mikinn fisk, eða það sagði hún allavega. Ég man líka allar sögurnar sem hún sagði okkur um pabba okkar og systkini hans; hvernig pabbi og vinir hans voru alltaf úti í fótbolta og handbolta og þess háttar. Amma hafði gaman af því að ferðast, og hvarvetna sem hún fór með okkur, kunni hún sögu frá þeim stað síðan s,g hún hafði verið þar. Hún hafði alltaf gaman af því að vera innan um fólk, og naut þess að 1§ spila. Hún sem alltaf gat spilað við mann, hvort heldur hún kunni spil- ið eða ekki. Því ef hún kunni það ekki, þá lærði hún það, bara til þess að geta spilað. Henni fannst líka ofsalega gaman að fá heimsóknir, þó ekki væru nema tíu mínútna stopp, og þegar einhver kom til hennar ljómaði hún öll af gleði og m kátínu. I þessari tilveru er komið að leið- arlokum en ég vona að þér líði vel 91 þar sem þú ert, amma mín. Hanna Björk. Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disk- lingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin Word og Wordperfect eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins í bréfasíma 569 1115, eða á netfang þess ||| (minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið pj greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi. Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina ^ fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðal- línubil og hæfilega línulengd - eða 2.200 slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnar- nöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. d BÆRING VAGN AÐALSTEINSSON + Bæring Vagn Aðalsteinsson fæddist í Bolungar- vík 25. mars 1949. Hann lést í Reykja- vík 14. september 1989. Bæring Vagn var elstur af sjö systkinum. Hin eru: Jónas Friðgeir (lát- inn), Hilmar, Viðar, Svanur, Selma, og Halldór. Öll eru þau Elíasbörn. Utför Bærings fór fram frá Foss- vogskirkju 22. sept- ember. „í upphafi skapaði Guð himin og jörð. Jörðin var þá auð og tóm, og myrkur grúfði yfir djúpinu, og andi Guðs sveif yfir vötnunum. Guð sagði: „Verði ljós!“ og það varð ljós. Guð sá, að ljósið var gott og Guð greindi ljósið frá myrkrinu." (1. Mós. 1. kafli 1-4.) Mig langar að minnast föður míns, Bærings Vagns Aðalsteins- sonar, sem hefði orðið fimmtugur í dag hefði hann lifað. Þú varst fallegur drengur en um- fram allt annað varstu góður drengur. Ljóshærður með hátt enni, blá augu og broshýr. Þú varst glaðlegt bam, fjörlegur og frískur. Þú tókst þín fyrstu spor innan við tveggja ára og varst fljótur að átta þig á umhverfi þínu. Þú ólst upp í Bol- ungavík, sjávarþorpi á Vestfjörðum. Varst þar í þemskuleikjum um- kringdur góðum leikfélögum og systkinum sem þótti afar vænt um þig. Þú varst stóri bróðir þeirra og í huga þeirra vissir þú svo margt og kunnir. Jónas heitinn Friðgeir, bróðir þinn, minnist æskuáranna þannig að ömggt má telja að það hafi verið líf og fjör á æskuheimili ykkar. Skólaganga þín var hefðbundin sem var í þá daga og fór fram í gmnn- skóla Bolungavíkur. Þú varst vel gefinn og greindur piltur en hafðir ekki tíma til að læra, það var svo margt annað skemmtilegt sem beið þín handan við homið og vafalaust hefur þú verið barn þíns tíma og ekki mátt missa af neinu, líkur æsk- unni sem alltaf er að flýta sér að fullorðnast og verða stór. 16 ára fórstu fyrst til sjós. Þú varst fljótt talinn afburða góður sjó- maður og sterkur. Duglegur varstu, enda hraustmenni af Guðs náð. Sjómennsk- an var þitt ævistarf og minnist ég góðra stunda með þér við höfnina í Grandarfirði þar sem þú bjóst seinni hluta ævi þinnar og varst að huga að eigin trillu. Þú og móðir mín náðuð ekki saman og víst er að þá ert þú byrjaður að þróa með þér þinn sjúkdóm sem átti eftir að hafa áhrif á allt þitt lífshlaup. Veikindi þín settu þér fljótlega skorður sem erfitt reyndist að eiga við, pabbi minn. Þú fluttist til Grandarfjarðar haustið 1978, kynntist þar góðri konu, sem síðar varð eiginkona þín og móðir að tveimur börnum. Ég var svo heppin að fá að koma til ykkar í fríunum mínum. Móttökurn- ar vora alltaf hlýjar og mér leið fljótlega eins og ég væri komin heim. Seinna slituð þið samvistum og var það eifiður tími fyrir ykkur bæði tvö. Þú varst afar stoltur yfir því að verða pabbi og föðurhlutverkið fór þér vel. Ég veit að þú hefðir helst kosið að geta verið meira með börnunum þínum sem vora þér allt og þinn fjársjóður hér á jörðu. Ég sakna þín mikið. Þú værir stoltur af okkur sem eram að fást við það í dag sem þú hefðir helst kosið fyrir okkar hönd. Lítill ljóshærður drengur með hátt enni, blá augu og broshýr er fæddur í fjölskylduna og hann ber nafnið þitt. Hann veit að afi Bæring er hjá Guði og það er sko ekki slæmt. Það er leitt að hann geti ekki fengið að kynnast örmum þínum og kossum og því góða hjartalagi sem þú varst kunnur af. Mér finnst lífið undarlegt sem bæði gefur og tekur frá okkur mönnunum góðar gjafir, þegar áætl- að var að ég fæddi hinn 14. septem- ber en það er dagurinn sem þú lést. Ég sem hafði misst svo mikið fékk að upplifa þá gleði að eignast mikið. HELGA JONINA MAGNÚSDÓTTIR + Helga Jónína Magnúsdóttir frá Blikastöðum fæddist á Vestur- hópshólum í Þver- árhreppi í V-Húna- vatnssýslu 18. sept- ember 1906. Hún lést 24. febrúar síð- astliðinn og fór út- för hennar fram frá Lágafellskirkju 8. mars. Nú hefur kvenskör- ungurinn Helga á Blikastöðum kvatt vort jarðneska líf. Fyrst man ég Helgu í desemberbyrjun 1948. Þá komu þau Blikastaðahjón á heimili foreldra minna að Bjargarstöðum í Mosfells- sveit. Móðir mín hafði alið barn og komu þau Helga og Sigsteinn með gjafir handa móður og barni. Þessi fyrstu kynni mín, þá fjögurra ára snáða, urðu til þess að ég bar virð- ingu og vinarþel til þessarar mikil- hæfu konu frá þeim degi. Um árabil buðu þau Blikastaða- hjón fólkinu á nágrannabæjunum til jólaveislu. Var þar borið fram allt það besta sem völ var á í mat og drykk. Helga var til margra ára formaður Kvenfé- lags Lágafellssóknar. Kom þá í hlut hennar að stjórna jólatrés- skemmtunum sem hún gerði af svo mikilli snilld að enginn gat betur. Ég varð þeirrar gæfu aðnjótandi að fá vinnu hjá Mosfells- hreppi þá er Helga var oddviti hreppsins. Það var gott að vera verka- maður hennar. Hún stjórnaði af röggsemi en þó með ljúfmennsku. Hvað er dýrmætara unglingi en að vinna undir verkstjórn slíkrar konu? í oddvitatíð Helgu hefst mik- ið uppbyggingarstarf, byggður barnaskóli og hafin smíði sundlaug- ar og svo byggðarkjarna sem nú er orðinn að þéttbýli. Ég vil fyrir hönd mína og minna þakka fyrir að hafa átt Helgu Magnúsdóttur að vini. Blessuð sé minning þín. Sveinbjörn frá Bjargarstöðum. Bæring litli kom svo í heiminn 1. september 1996. Ommu minni, sem hefur misst mikið úr sínum fjársjóði bið ég Guðs blessunar og huggunar. Öðram ást- vinum þínum sendi ég hugheilar samúðarkveðjur á þessum degi. Megi Drottinn blessa og varð- veita minningu þína héðan í frá og að eilífu. Ég vil vegsama þig, ó, Guð minn, þú konungur, o_g prísa nafti þitt um aldur og ævi. A hveijum degi vil ég prísa þig og lofa nafn þitt um aldur og ævi. Mikill er Drottinn og mjög vegsamlegur mikilleikur hans er órannsakanlegur. Ein kynslóðin vegsamar verk þín fyrir annarri og kunngjörir máttarverk þín. Pær segja frá tign og dýrð vegsemdar þinnar: „Ég vil syngja um dásemdir þínar." Og um mátt ógnarverka þinna tala þær: „Eg vil segja frá stórvirkjum þínum.“ Þær minna á þína miklu gæsku og fagna yfir réttiæti þínu. (145. Davíðssálmur) Svanfríður Ósk. Frágangur afmælis- og minn- ingargreina MIKIL áhersla er lögð á, að handrit séu vel frá gengin, vél- rituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disk- lingur fylgi útprentuninni. Það eykur öryggi í textameðferð og kemur í veg fyrir tvíverknað. Þá er enn fremur unnt að senda greinarnar í símbréfi (569 1115) og í tölvupósti (minning@mbl.- is) — vinsamlegast sendið greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi. Auðveldust er móttaka svokall- aðra ASCII skráa sem í daglegu tali era nefndar DOS-texta- skrár. Þá eru ritvinnslukerfin Word og WordPerfect einnig nokkuð auðveld úrvinnslu. Um hvern látinn einstakling birtist ein uppistöðugrein af hæfilegri lengd, en aðrar grein- ar um sama einstakhng tak- markast við eina örk, A-4, mið- að við meðallínubil og hæfilega línulengd, - eða 2.200 slög (um 25 dálksentimetra í blaðinu). t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vin- áttu við andlát og útför ástkærs föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, BJÖRGVINS GUÐMUNDSSONAR frá Viðey, Vestmannaeyjum, Árskógum 8, Reykjavík. Ragnheiður Björgvinsdóttir, Gunnar St. Jónsson, Guðmundur Ó. Björgvinsson, Björg Valgeirsdóttir, barnabörn og barnabarnabarn. t Þökkumi innilega samúð og hlýhug við andlát og útför föður okkar, tengdaföður, afa og lang- afa, FRIÐRIKS GARÐARS JÓNSSONAR fyrrv. lögregluþjóns frá Arnarbæli, Lönguhlíð 3, Reykjavík. Baldur Friðriksson, Selma Jónsdóttir, Sigurður Kr. Friðriksson, Unnur Færseth, Hildur Jóna Friðriksdóttir, Sigfús Örn Árnason, barnabörn og barnabarnabörn. t Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGURLAUG ELÍN GUÐMUNDSDÓTTIR, verður jarðsungin frá Háteigskirkju föstudaginn 26. mars kl. 13.30. Höskuldur Egilsson, Svanlaug Baldursdóttir, Magni Baldursson, Brynhildur Þorgeirsdóttir, Hallgerður Baldursdóttir, Svend Ornskov, Ásgerður Baldursdóttir, Jóhann Kroll, Sigurlaug Höskuldsdóttir, Sturla Þór Guðmundsson, barnabörn og barnabarnabarn. t Elskuleg móðir okkar, AÐALHEIÐUR VALDIMARSDÓTTIR, sem lést fimmtudaginn 18. mars, verður jarðsungin frá Fáskrúðsfjarðarkirkju laugardag- inn 27. mars kl. 14. Axel Guðlaugsson, Sigfríð Guðlaugsdóttir, Valdimar Guðlaugsson, Þórhildur Guðlaugsdóttir, Kristjana Guðlaugsdóttir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.