Morgunblaðið - 25.03.1999, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 25. MARZ 1999 25
Forseti
Paragvæ
í klípu
EINUM degi eftir að Luis
Maria Argana, varaforseti
Paragvæ, var myrtur af
óþekktum byssumönnum sam-
þykkti þing landsins að höfða
mál á hendur Raul Cubas for-
seta til embættismissis. Er Cu-
bas sakaður um að hafa misnot-
að völd sín er hann sleppti Lino
Oviedo, fyrrverandi stjórnanda
hers landsins, úr fangelsi en
Oviedo afplánaði tíu ára dóm
eftir misheppnað valdarán árið
1996. Á þriðjudag hafði þingið
sakað Cubas og Oviedo um að
hafa fyrirskipað morðið á Arg-
ana, sem átt hafði í illdeilum við
þá Cubas og Oviedo um völd í
Colorado-stj ómarflokknum.
Mikil spenna er í Paragvæ í
kjölfar morðsins.
Boesak fær
sex ár
í fangelsi
DÓMARI í Suður-Afríku
dæmdi í gær Allan Boesak, sem
á sínum tíma beitti sér gegn að-
skilnaðar-
stefnu hvítra
manna í land-
inu, til sex ára
fangelsisvistar
íyrir að hafa
stolið eriend-
um fjármun-
um sem ætl-
aðir voru fórn-
arlömbum að-
skilnaðarstefnunnar. Boesak
sagði eftir úrskurðinn að hann
myndi áfrýja dómnum. I síð-
ustu viku hafði dómarinn úr-
skurðað Boesak sekan en Nó-
belsverðlaunahafínn Desmond
Tutu bað Boesak griða í fyrra-
dag, að sögn vegna framlags
hans í baráttunni gegn aðskiln-
aðarstefnunni.
Clinton hafði
hreinan skjöld
SUSAN McDougal, sem lék
eitt af aðalhlutverkunum í
Whitewater-málinu svokallaða,
sem Bill Clinton Bandaríkjafor-
seti dróst inn í, sagði fyrir rétti
í gær að Clinton hefði sagt satt
og rétt frá afskiptum sínum af
fjármálahneykslinu umtalaða.
Fyrrverandi eiginmaður Susan
McDougal, Jim McDougal, var
dæmdur fyrir fjársvik í
Whitewater-málinu en lést í
fangelsi í fyrra. Eftir að
McDougal var dæmdur árið
1996 breytti hann framburði
sínum og bendlaði Clinton við
málið en Susan McDougal
leiddi í gær líkur að því að lát-
inn eiginmaður sinn hefði
breytt framburði sínum til að
hefna sín á Clinton, vegna þess
að honum hefði fundist forset-
inn veita sér ónógan stuðning
þegar hann var saksóttur.
Fjöldamorð
í Kongó
MEIRA en 250 manns hafa ver-
ið myrt í nýjum fjöldamorðum í
lýðveldinu Kongó í þessari viku,
að sögn fréttastofu kaþólskra
trúboðasamtaka í landinu. Voru
þar að verki hópar Rúanda-
Hútúmanna sem hefna vildu
árása manna af ættflokkum
Kongómanna. Árásirnar áttu
sér stað í austurhluta Kongó í
Kivu-héraði og koma í kjölfar
frétta um fjöldamorð á eitt
hundrað manns fyrr í vikunni.
Allan Boesak
ERLENT
Reuters
Lestarslys í Kenýa
AÐ minnsta kosti þrjátíu og
tveir fórust í lestarslysi í Kenýa
í fyrrinótt. Var Ieitt getum að
því að hemlar lestarinnar hefðu
brugðist og gat þá lestarstjóri
ekki haft hemil á hraðanum
sem varð til þess að lestin fór út
af sporinu. Lestin var á leiðinni
frá Naíróbí til Mombasa við
Indlandshafið. Voru a.m.k.
fimm hinna látnu erlendir
ferðamenn.
f Ferðahandbókiii
1999 os 9000
Lykill að góðu ferðalagi, sem nýtist þér vel og
kynnir þér heillandi KARÍBAHAFIÐ
- allt innifalið á frábæru verði
Muncfii 28« mars - heimsent til þín
með MORGUNBLAÐINU*
v
FERÐAhKKI hb IUIAIN
PRIMA-
HEIMSKLÚBBUR INGOLFS
Austurstræti 17.4. hæð, 101 Reykjavík, sími 562 0400, fax 562 6564
netfang: prima@heimsklubbur.is, heimasíða: hppt//www.heimsklubbur.is
i:
kagreinar
í búntum
(Forsythía)
(4-6 greinar í búnti)
kr, 399
Kartöflur
§9 kr/kf
gullauga og rauðar
Melónur
Páskabegóníur
kr.439,«
Blómkál
^Hkr/kg
Heimaeyj arkerti
12 í pakka
gul/græn