Morgunblaðið - 25.03.1999, Side 38
38 FIMMTUDAGUR 25. MARZ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
NÝLEGA kom út
skýrsla Þjóðhagsstofn-
unar um ástandið í
efnahagsmálum. Þar er
meðal annars endur-
skoðuð hagvaxtarspá
fyrir yfirstandandi ár.
Hagvöxtur á þessu ári
er nú áætlaður 4,8% en
fyrri spá var 5%. Þar
sem landsframleiðslan
er yfir 600 milljarðar
kr. skiptir slík spá
miklu máli í hagstjórn.
Lokaði fjái'lögum
með bjartsýnisspá
Þetta endurmat til
lækkunar á hins vegar
sérkennilega forsögu. Þegar fjár-
lagafrumvarpið var lagt fram í októ-
ber á síðasta ári var gert ráð fyrir
4,6% hagvexti á næsta ári. Það er
venja fyrir þriðju umræðu fjárlaga
að endurmeta tekjuáætlun ríkisins
fyrir næsta ár og endurskoða hag-
vaxtarspá. Þá kom frá Þjóðhags-
stofnun álit um að í stað 4,6% hag-
vaxtar á árinu 1999 skyldi gera ráð
fyrir 5% hagvexti. Eg vakti strax a1>
hygli á þessu í umræðu um fjárlögin
og benti m.a. á að flestar þjóðir voni
á þessum tíma að endurskoða hag-
vaxtarspár sínar til lækkunar. Þetta
enduimat til hækkunar virtist því að
mínu mati ekki byggt á traustum
grunni. Hinn nýorðni fjármálaráð-
herra Geir Haarde svaraði þá litiu.
Geir þolir illa gagnrýni
Geir Haarde skrifar nú grein í
Morgunblaðið 20. mars sl. um þjóð-
hagsspána og gerir
ekkert úr frávikum í
henni og er mjög ósátt-
ur við gagnrýni mína á
efnahagsstefnu stjóm-
arinnar. Endurmat
Þjóðhagsstofnunar í
desember leiddi þó til
þess að tekjur ríkisins
vora áætlaðar tæpum 2
milijörðum meiri vegna
meiri hagvaxtar og
aukinna umsvifa í efna-
hagslífinu eins og fram
kemur í nefndarálitum
þingnefnda frá þessum
tíma. Fjárlögin vora
síðan afgreidd með
rúmlega tveggja millj-
arða króna afgangi. Þessi breyting í
desember skipti því miklu máli ólíkt
því sem Geir heldur fram í grein-
inni.
Ríkisstjómin lagði mikla áherslu
á hversu traust fjármálastjómin
væri og áhyggjur væru því ástæðu-
lausar. Nú er annað komið á daginn.
Aðeins þremur mánuðum síðar
lækkar Þjóðhagsstofnun spána. Það
er kristaltært að bjartsýnisspá
Þjóðhagsstofnunar í desember
gerði Geir Haarde kleift að loka
fjárlögunum með nokkram hagnaði.
Það er hins vegar ómögulegt að
segja til um hvort fjárlögin riðlast
vegna þessa einfaldlega vegna þess
hve ónákvæmt þetta mat er og fleiri
þættir hafa þarna áhrif.
Sérfræðingar hafa áhyggjur
Það era fleiri aðvörunarorð í
efnahagsmálum sem Geir Haarde
Fjármálastjórn
*
I skýrslu Þjóðhags-
stofnunar nú er talað
um hættu á verðbólgu,
segir Agúst Einarsson.
Goðsögnin um trausta
fjármálastjórn ríkis-
stjórnarinnar á ekki við
rök að styðjast.
lætur fram hjá sér fara eins og sést
vel á grein hans í Morgunblaðinu.
Hin nýja skýrsla Þjóðhagsstofnun-
ar vekur athygli á miklum við-
skiptahalla, aukningu erlendra
skulda og þensluhættu. Þetta era
allt atriði sem ég hef bent á áður í
umræðu um efnahagsmál.
Það er hægt að leiða fram fleiri
vitni. Sérfræðingar OECD vöraðu í
haust við hættu á þenslu. Vitaskuld
er þó uppsveifla í hagkerfinu og
meiri en hjá flestum nági-annaríkj-
unum. Astæður fyrir þessu era m.a.
hátt verð á sjávarafurðum og mjög
lágt olíuverð. Gagnrýni mín á efna-
hagsstefnu ríkisstjórnarinnar er
ekki einungis vegna þess að ég telji
áherslur hennar rangar en slíkt er
vitaskuld oft háð pólitísku mati
heldur tel ég andvaraleysi hennar
varhugavert. Það var ekkert mark
tekið á varnaðarorðum sérfræðinga
OECD í haust.
Sérfræðingar Seðlabankans vör-
uðu einnig við þenslumerkjum í
haustskýrslu sinni og töldu að út-
lánaaukning bankanna væri sér-
stakt áhyggjuefni vegna hættu á
verðbólgu. Þegar ég spurði forsæt-
isráðherra á Alþingi um viðbrögð
ríkisstjórnarinnar við varnaðarorð-
um Seðlabankans kvað hann allt
vera í góðu lagi.
I skýrslu Þjóðahagsstofnunar nú
er talað um hættu á verðbólgu,
nokkuð sem ég hef varað við undan-
farna mánuði. Goðsögnin um
trausta fjármálastjórn ríkisstjórn-
arinnar á ekki við rök að styðjast.
Margir veikleikar
í hagstjórninni
Það era margs konar veikleikar í
hagstjórninni. Viðskiptahalli þessa
og síðasta árs er yfir 60 milljarðar
og hefur aldrei verið hærri. Erlend-
ar skuldir Islendinga era að aukast.
Skuldir heimilanna hafa stóraukist
eða um 50 milljarða á síðasta ári.
Skuldir sveitarfélaganna aukast.
Sparnaður er hættulega lítill.
Fjárfestingar hafa fram að síðasta
ári verið langt undir því sem er í ná-
grannalöndunum. Verð á sjávaraf-
urðum er að lækka, t.d. á mjöli og
lýsi, sem er mjög fljótt að hafa áhrif
í sjávarútvegi. Mismunur milli
þegnanna hefur aukist.
Afgangur fjárlaga var ekki ein-
ungis tryggðui' með bjartsýnni hag-
vaxtarspá heldur er sala eigna ríkis-
ins orðið umfangsmikið tekjuöflun-
artæki. I ár verða eignir ríkisins
seldar fyrir 8 milljarða. Eignir
verða hins vegar ekki seldar nema
einu sinni.
Geir stingur höfðinu
í sandinn
Geir Haarde segir í gi-eininni í
Morgunblaðinu að efnahagsmál á
íslandi séu mjög traust. Hann
skellir skolleyi'um við ýmsum
hættumerkjum sem hér eru rakin
og margir sérfræðingar benda á.
Eg er ekki að gera lítið úr þeim
________________UMRÆÐAN
Geir Haarde fellur
á fyrsta prófínu
Ágúst
Einarsson
hagvexti sem ríkt hefur undanfarin
ár. Ég fagna sérstaklega þeirri
framleiðniaukningu í atvinnulífinu
sem ég hef talið að væri í gangi og
er nú staðfest í skýrslu Þjóðhags-
stofnunar.
Vitaskuld átti að nota tækifæri
uppsveiflunnar og gera kerfisbreyt-
ingar í sjávarútvegi og landbúnaði,
auka rannsóknh- og þróun og
styrkja menntakerfið stórlega.
Ekkert af þessu hefur verið gert.
Þessi ríkisstjóm hefur því alls ekki
haft góða stjórn á málum en bjarg-
ast vegna uppsveiflunnar sem nú er
að síga á seinni hlutann að mati
Þjóðhagsstofnunar.
Geir kýs að bregða _upp glans-
mynd af efnahagsmálum nú og
næstu missera. Það er rangt mat og
hann er að blekkja kjósendur.
Reynslan mun leiða í ljós að næsta
ríkisstjóm mun þurfa að grípa til
annarra aðgerða en þessi hefur
fylgt til að málin fari ekki úr bönd-
unum.
Morgunblaðið
styður mig!
Meira að segja Morgunblaðið,
sem er hallt undir nýja fjármálaráð-
herrann og ríkisstjórn hans, sér
ástæðu til þess í leiðara 18. mars að
vara fólk við. I leiðaranum segir
m.a.: „Viðvaranir Þjóðhagsstofnun-
ar, Seðlabanka og annarra sér-
fróðra aðila verður þó að taka alvar-
lega. Það má ekki gerast að efna-
hagsleg velsæld landsmanna brenni
upp í nýrri verðbólguskriðu. Það er
hlutverk ríkisstjórnar og fjáimála-
yfirvalda að sjá til þess að það ger-
ist ekki.“
Það eru einmitt svona viðvaranir
sem ég hef haft á orði um nokkra
hríð. Geir Haarde tekur ekki á
þessu. Nýi fjármálaráðherrann hef-
ur ekki verið lengi í starfi en hann
hefur þó þegar fallið á fyrsta próf-
inu sínu.
Höfundur er alþingisinaður
Sanifylkingarinnar.
§
Suðurveldið - HafnarQörður -
Suðurnes - Suðurland
MIKLAR breytingar
hafa orðið síðustu ára-
tugi hvað varðar dreif-
ingu byggðar um land-
ið. Um 60% þjóðarinn-
ar búa á höfuðborgar-
svæðinu. Mig langar
hér að velta upp stöðu
sveitarfélaganna sunn-
an Reykjavíkur við þau
skilyrði sem upp eru
komin. Höfuðborgar-
svæðið teygir sig í raun
frá Kjalarnesi að
Straumsvík. Reykjavík
hefur langsterkasta
stöðu innan svæðisins,
bæði vegna stærðar
sinnar og þá ekki síður
sem eini seljandi hita og rafmagns
til notenda. Við slíkar aðstæður má
segja að t.d. Hafnarfjörður standi á
tímamótum. Þróun alls staðar í
heiminum sýnir að hverfi í útjaðri
stórborga þróast gjaman í að verða
„svefnbæir" þar sem atvinnustarf-
semi er lítil og tekjur sveitarfélags-
ins því takmarkaðar. Spyrja má
hvort sú þróun sé ekki þegar hafin.
Sveitarstjómir þurfa að vera sér
meðvitandi um hvert stefni. Hafn-
firðingar standa í raun á krossgöt-
um. Leiðimar era jafnvel ekki nema
tvær.
Að halla sér
til norðurs
Með athafnaleysi
væri mörkuð sú stefna
að láta Hafnarfjörð
síga norður til náðar
Reykjavíkur og leyfa
þannig bæjarfélaginu
að þróast í rólegan
svefnbæ. Nú kann sú
leið að vera fýsileg fyr-
ir einhverja en vissu-
lega mun hún setja
mark sitt á bæjarbrag-
inn og þá ekki síður
tekjur sveitarfélagsins
eða atvinnulíf. Til
lengri tíma litið má
segja að Hafnarfjörður rynni
þannig saman við höfuðborgina og
yrði henni háður að flestu leyti.
Grun hef ég um að Hafnfirðingar
hafi meiri metnað en svo.
Sókn til suðurs
Önnur leið er sú að snúa sér af
krafti til suðurs og blása til sóknar í
atvinnulífi. Með því móti er leitast
við að efla sjálfstæði Hafnarfjarðar
og styrkja þann brag sem margir
kjósa að finna í bæ sínum. En hvað
þarf til að skapa kröftugt atvinnu-
líf? Auk almennra skilyrða, s.s.
Hjálmar
Árnason
vörulistinn
Ármúla 17a,
sími 588 1980. ■
Stjörnuspá á Netinu
mbl.is
-/\LLTAf= e/TTHXSAÐ NÝTT
Samgöngur
Til þess að koma mál-
inu á rekspöl telur
Hjálmar Arnason eðli-
legt að fulltrúar at-
vinnulífs, sveitarstjórna
og fjármálastofnana á
svæðinu myndi með sér
félag um „Suðurveldið“.
efnahagslegs stöðugleika og góðs
rekstraramhverfis þarf mannauð,
orku, samgöngur og hafnir. Full-
yrða má að allir þessir þættir séu til
staðar í og sunnan við Hafnarfjörð.
Sé litið á svæði sem nær frá Hafn-
arfirði austur að Þorlákshöfn og
Ölfusi og áfram vestur eftir Reykja-
nesskaga má segja að þar blasi
möguleikamir við. Spumingin er
sú: Hvernig má nýta þá möguleika?
Reykjanesskaginn frá Svartsengi
yfir í Trölladyngju og á Krísuvíkur-
svæðið hreinlega ólgar af vistvænni
orku. Frá Þorlákshöfn meðfram
strandlengjunni í Hafnarfjörð eru
hvorki meira né minna en níu hafn-
ir, auk Keflavíkurflugvallar. Fjórir
fiskmarkaðir era á svæðinu, öflug
hitaveita og raforkuver (HS), eitt
álver og að öllum líkindum mun rísa
magnesíumverksmiðja. Á þessum
hring era nokkrar náttúraperlur,
sögufrægir staðir og eftirsótt ferða-
mannasvæði. Á svæðinu eru fjórir
framhaldsskólar og a.m.k. þrjú at-
vinnuþróunarfélög. Þarna liggja
tækifærin og þau þarf að nýta.
Öflugt suðurveldi
Ýmislegt þarf að gerast svo nýta
megi sóknarfærin. Mikilvægt skref
hefur verið stigið með viðræðum
sveitarstjórnarmanna í Kópavogi,
Garðabæ, Bessastaðahreppi og
Hafnarfirði við fulltrúa Hitaveitu
Suðumesja. Ganga þær viðræður út
á samstarf í orkumálum enda HS
með langa og farsæla reynslu af
slíku starfi. Þarna gæti skapast
svigrúm til samkeppni við hið ágæta
og öfluga fyrirtæki Orkuveitu
Reykjavíkur. Slík samkeppni kæmi
öllum aðilum vel þegar upp er stað-
ið.
Verði magnesíumverksmiðja að
veraleika munu verða ákveðin tíma-
mót í atvinnulifi landsmanna því úr-
vinnsla á magnesíum er talin hag-
kvæmust meðan efnið er enn fljót-
andi (dýrt að hita það upp aftur).
Hins vegar má flytja fljótandi
magnesíum allt að 3 klst. í tankbíl-
um frá verksmiðju án þess að spilla
eiginleikum þess til úrvinnslu. Þessi
léttmálmur er eftirsóttur af bílaiðn-
aðinum vegna styrkleika síns og
léttleika. Rétt er og að benda á að
magnesíum og ál er gjaman notað í
blöndu. Má sjá hvílikir möguleikar
era þarna til staðar fyrir nýsköpun í
atvinnulífi og verðmætasköpun.
Gangi áætlanir um vetnisvæðingu
eftir þarf orku til framleiðslu þess.
Gufuaflið á Reykjanesskaganum á
eftir að verða mikils virði í þeim
efnum. Drjúgur hluti af afla lands-
mann berst að landi á umræddu
svæði. Með nýsköpun og samstarfi
aðila má lyfta grettistaki á sviði
fiskvinnslu enda margar athyglis-
verðar nýjungar á því sviði nú þeg-
ar í þróun. Með samstilltu átaki má
blása til mikillar sóknar í ferðaþjón-
ustu á hringnum með Hafnarfjörð,
Krísuvík, Suðurstrandaiveginn,
Bláa lónið, hvalaskoðun, Eldvörp,
Garðskagavita, fræðasetrið í Sand- .
gerði o.s.frv., að ekki sé minnst á
gönguleiðina frá Reykjanestá að
Þingvöllum. Ég tel Skagann sem i
ferðaperlu mjög svo vannýtta auð-
lind þrátt fyrir þá staðreynd að
flestir ef ekki alhr ferðamenn fara
þarna um. Þannig koma mjög marg-
ir ferðamenn til Suðurnesja og höf-
uðborgarinnar í stuttan stans og
gætu vel hugsað sér að skreppa í
stuttar en óvenjulegar ferðir. Og
sannarlega má bjóða upp á slíkar s
ferðir.
Samstillt átak
Til þess að koma málinu á rek-
spöl tel ég eðlilegt að fulltrúar at-
vinnulífs, sveitarstjóma og fjár-
málastofnana á svæðinu myndi með
sér félag um „Suðurveldið". Hlut-
verk þess félags væri m.a. að setja
markmið um þau tækifæri sem fyrir
hendi eru á hinum ólíku sviðum og
leita leiða til að ná þeim markmið-
um. Mikilvægur þáttur í því væri að
koma upp öflugum nýsköpunar- og
áhættusjóði með sameiningu þeirra
atvinnuþróunarfélaga sem fyrir eru,
ásamt viðbót frá sveitarfélögum, at-
vinnulífi og Nýsköpunarsjóði.
Ekki teldi ég óeðlilegt að mynda
þannig pott með einum milljarði
króna til fjárfestinga í nýsköpun á
svæðinu. Átak þarf að vinna í sam-
göngum. Flýta þarf tvöfóldun
Reykjanesbrautar (enda kostar hún :
mannslíf á hverju ári), leggja Suð-
urstrandarveg, Krísuvíkurleið og
Osabotnaveg. Þannig væra sam-
göngur um svæðið orðnar góðar og
sköpuðu grundvöll að öflugu sam-
starfi.
Ég leyfi mér að fullyrða að með
slíku samstarfi væri mynduð kröft-
ug atvinnuheild Suðurveldisins sem
teygði sig frá Suðurnesjum um
Hafnarfjörð og austur í Ölfus. Jafn-
vel gæti áhrifa þessa svæðis gætt til
Kópavogs og Garðabæjar. Segja má
að þetta sé útfærsla á byggða-
stefnu.
Höfundiir er alþingismaður.