Morgunblaðið - 25.03.1999, Page 39

Morgunblaðið - 25.03.1999, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. MARZ 1999 39 UMRÆÐAN Sturla Böðvarsson hefur menntamálaráðherra leitt öfl- ugt átak við að nýta upplýsinga- tæknina í skólastarfí. í fjárlögum þessa árs eru verulegir fjármunir settir til þess að nýta upplýsinga- tæknina, einkum með því að auka fjarkennslu. Fyrir því er vaxandi skilningur að nýta eigi tölvutæknina til þess að efla og auka námsfram- boð um allt land. Forsenda þeirra aðgerða er að auka fjánnuni til þessa mikilvæga verkefnis og þjálfa kennara og nemendur í því að not- færa sér þá möguleika sem fjarnám veitir. Fjárveitingar til uppbyggingar tölvukerfa Meirihluti fjárlaganefndar hafði um það forystu að leggja verulegar fjárhæðir til menntastofnana sem þær mættu nýta við að efla fjar- kennslu og bjóða upp á nýja kosti símenntunar. Með auknum fjár- munum til þessa þáttar mennta- kerfísins eru skapaðir möguleikar til þess að koma upp tæknibúnaði, fjárfesta í hugbúnaði, kosta skipu- lagningu fjarkennslu, kosta náms- gagnagerð fyrir fjarkennslu og þjálfa kennara er sinni eingöngu kennslu um tölvukerfi. Á mjög fjölmennri ráðstefnu sem haldin var í Menntaskólanum í Kópavogi um upplýsingatækni í skólastarfí kom fram áhugi á þeirri stefnumörkun sem menntamálaráð- herra hefur staðið fyrir. Ráðstefnan var kynnt á netinu, auk þess sem lesa má setningarræðu mennta- málaráðherra á heimasíðu hans. Þar gerir hann grein fyrir afstöðu sinni til þessara mikilvægu mála. Símenntunarmiðstöðvar, fjar- kennsla og ný skólastefna Á Vesturlandi hefur verið stofnuð Símenntunarmiðstöð að frumkvæði Létt, tæknileg og full af nýjungum Öllum ber saman um það, segir Sturla Böðvarsson, að fjarkennsla skapar mikla möguleika fyrir þá sem búa í hinum dreifðu byggðum. Framfarir í menntamálum ganga sjaldan hljóðalaust fyrir sig. Á þessu kjörtímabili og því síðasta hafa orðið miklar breytingar í menntamálum þjóðarinnar undir forystu sjálfstæðismanna í stóli menntamálaráðherra. Um þessar mundir er unnið að sérstöku verk- efni í samstarfi menntamálaráðu- neytis og Eyrarsveitar. Það felur í sér að bjóða nemendum í Grundar- firði aðgang að fjarkennslu, en þar er ekki framhaldsskóli. Ekki fer á milli mála að um er að ræða mjög áhugavert frumkvöðlaverkefni sem gæti stuðlað að því að nem- endur gætu dvalið í heimabyggð lengur en ella og notið náms í framhaldsskóla úr sinni heima- byggð með hjálp fjarkennslu. Þarna er á ferðinni einstakt verk- efni sem ástæða er til að fylgjast með og veita allan þann stuðning sem vert er. Aukin tækifæri til menntunar með fjarkennslu er vissulega byggðamál. Höfundur er alþingismaður Sjálfstæðisflokksins á Vesturlandi. Skeifunni 19 - S. 568 1 71 7 Vor- og sumarlínan er komin Arrow Rock Anorakkur kr. 6.990. • Convertible buxur kr. 5.990. • Elkhorn skyrta kr. 4.490. • Elkhorn stuttbuxur kr. 3.990. Slate-Slide sandalar kr. 6.990. • Snake River skór kr. 7.990.- Aukin fjarkennsla er mikilvægt byggðamál Á MÁLÞINGI um búsetu á ís- landi, sem Háskóli Islands stóð fyr- ir, kom fram í setningarræðu Páls Skúlasonar rektors að Háskóli Is- lands hyggist stofna til miðstöðvar fjarkennslu og landsbyggðar- tengsla. Ástæða er til þess að fagna þessari ákvörðun sem sýnir að Há- skóli Islands er að vakna til vitund- ar um skyldur sínar gagnvart lands- byggðinni og Páll Skúlason rektor hefur tekið af skarið í málinu innan Háskólans. Skýr vilji til aukinnar fjarkennslu Öllum ber saman um það að fjar- kennsla skapar mikla möguleika fyrir þá sem búa í hinum dreifðu byggðum. Allt þetta kjörtímabil Atvinnuráðgjafar Vesturlands sem starfar á vegum Samtaka sveitarfé- laga á Vesturlandi. Auk Atvinnu- ráðgjafar hafa Samvinnuháskólinn á Bifröst, Bændaskólinn á Hvann- eyri og Framhaldsskóli Vesturlands unnið að málinu. Forsenda þess rekstrar er, eins og í flestu öðru, fjármagn til starfseminnar. Til þess að koma símenntunar- og fjar- kennslumiðstöðvum á legg var sér- stök fjárveiting veitt til þeirra og er gert ráð fyrir því að gerðir verði samningar milli þeirra og mennta- málaráðuneytisins þar sem verkefn- in verði skilgreind og skýrð. Til Sí- menntunarmiðstöðvar á Vestur- landi voru veittar sjö milljónir króna á fjárlögum og er þess að vænta að það verði til þess að koma þessu mikilvæga byggðamáli vel af stað. Aðrar menntastofnanir fengu einnig framlög, auk þess sem menntamálaráðuneytið hefur auð- vitað fjármuni til þess að koma í framkvæmd nýrri skólastefnu sem verið er að hrinda í framkvæmd um land allt. Gert Boyle stjórnarformaður Columbia mbl.is Menntun

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.