Morgunblaðið - 27.03.1999, Page 16

Morgunblaðið - 27.03.1999, Page 16
16 LAUGARDAGUR 27. MARZ 1999 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI Formaður knattspyrnudeildar KA um hugmyndir um að leggja Akureyrarvöll niður Mikil útgjöld fyrir bæinn verði völlurinn lagður niður STEFÁN Gunnlaugsson formaður knattspyrnudeildar KA segist ekki hafa heyrt nein rök sem mæli með því að Ákureyrarvöllur verði lagður niður, en forsvarsmenn Rúmfatala- gersins og KEA Nettó bíða nú svars bæjaryfirvalda við erindi sínu um að fá að byggja 12 þúsund fermetra verslunarhúsnæði á lóðinni. Stefán vill að gerð verði skoðanakönnun meðal bæjarbúa um afstöðu þeirra til málsins en hann telur mikinn meirihluta á móti því að leggja völl- inn undir verslunarmiðstöð. Þá gagnrýnir hann forsvarsmenn bæj- aiáns og segir engar áætlanir um hvað taki við vera fyrir hendi, verði völlurinn lagður niður. Að mati Stefáns mun það hafa mun meiri útgjöld í fór með sér fyrir bæjarfélagið að leggja völlinn niður °g byggja upp annars staðar. Bær- inn væri ekki að hagnast um stórar upphæðir á breytingunni, þvert á móti væri hægt að sýna fram á að hún hefði í fór með sér mikil útgjöld. Hann telur ekki hægt að færa þá starfsemi sem fram fer á vellinum til félagssvæða KA og Þórs, svæði KA sé of lítið til að taka við aukningunni og þá mæli fátt með því að hafa að- stöðu til knattspyrnuiðkunar og frjálsíþrótta á félagssvæði Þórs, þar sem ekki væri hægt að æfa þessar íþróttir á sama tíma. Yrði byggður upp nýr aðalleikvangur tæki það 5- 10 ár, en þeir sem vilja byggja á Akureyrarvelli hafi lýst því yfir að þeir vildu hefjast handa við fyrsta tækifæri. „Bæjai-yfirvöld hafa sagt að völlurinn yrði ekki lagður niður fytT en sambærileg aðstæða væri fyrir hendi, þannig að þetta fer eng- an veginn saman,“ sagði Stefán. Hleypti öllu í uppnám Eg sé heldur ekki hvernig við eig- um að trúa því að til séu peningar til að byggja upp nýja aðstöðu þegar stendur í stappi að fá fé til viðhalds íþróttasvæðanna,“ sagði Stefán, en hann telur að aðstaða til knatt- spymuiðkunar hafi farið hríðversn- andi í bænum á síðasta áratug. Vellir sem fótboltamenn hafi áður haft að- gang að, við menntaskólann og Sana- völlur, hafi verið lagðir niður og ef bæta ætti aðalvellinum við sæi hann ekki annað en í því fælist sú ákvörð- un að leggja knattspyrnu af í bænum. „Það yrði ekki hægt að gera út lið eftir þá ráðagerð," sagði hann. Stef- án kvaðst ævinlega hafa verið já- kvæður í garð bæjaryfirvalda og þykir mai’gt gott gert í íþróttamál- um, en hugmyndin um að leggja aðal- völlinn niður hafi hleypt öllu í upp- nám, menn hafi greinilega komið henni af stað án þess að gera sér grein fyrir hvaða afleiðingu hún hefði í fór með sér. Eina ráðið sé að hefjast handa við undirbúning fjölnota íþróttahúss á félagssvæði Þórs svo sem um hefur verið rætt og tryggja að bæði félög hafi af því jöfn afnot. Mikilvægl að finna lausn „Margir og þar á meðal skipulags- stjóri segja Akureyringa mótmæla öllu en hann nefndi Akureyrarkirkju sem dæmi um íhaldssemi bæjai’búa. Sjálfur er ég reyndar viss um að ef til stæði að byggja hana núna yrðu það skipulagsyfirvöld sem settu sig á móti því, þar sem engan veginn eru næg bílastæði umhverfís hana,“ sagði Stefán. Hann vill umfram allt að fundin verði lausn á málinu sem sátt er um, enda segir hann fyrh'- tækin tvö meðal þein-a vinsælustu í bænum og eigi þátt í að laða fólk til bæjarins sem aðiár njóti góðs af. Nefnir hann þá- hugmynd að færa Drottningarbraut til austurs en með því skapist nægt landrými fyrir verslunai'húsnæðið, það væri heppi- legi'i og ódýrari lausn en sú sem nú er til umfjöllunar. „Það kæmi mið- bænum betur, því ég sé ekki annað en ef þetta leyfi fæst og verslunar- miðstöðin rís með KEA Nettó, Rúm- fatalagernum og 15-20 sérverslunum muni það ganga að miðbænum dauð- um,“ sagði Stefán. KIRKJUSTARF AKUREYRARKIRKJA: Sundferð sunnudagaskólans verður á morgun, sunnudag, farið frá íþróttahöllinni kl. 10.30. Fermingarguðsþjónustu í kirkjunni kl. 10.30 og 13.30. Altaris- ganga feimingarbarna kl. 19.30 á mánudag. Morgunbæn kl. 9 á þriðju- dag. Mömmumorgunn í Safnaðar- heimili kl. 10 til 12 á miðvikudag. GLERÁRKIRKJA: Fermingar- messa kl. 10.30 og 13.30 á morgun, sunnudag. Kirkjuskólinn fer í heim- sókn til StæiTÍ-Árskógskirkju. For- eldrai' hvatth' til að mæta með börn- um sínum. Lagt af stað frá Glerár- kirkju kl. 10.30 á morgun. Kyrrðar- og tilbeiðslustund kl. 18.10 á þriðju- dag. Hádegissamvera á miðvikudag frá kl. 12 til 13. HJÁLPRÆÐISHERINN: Fund- ir og samkomur falla niður á morg- un, pálmasunnudag. Heimilasam- band á mánudag kl. 15. HÚSAVÍKURKIRKJA: Guðs- þjónusta með altarisgöngu kl. 14 á morgun, pálmasunnudag. Vænst er góðrar þátttöku fermingarbarna og foreldra þeh-ra. KAÞÓLSKA KIRKJAN: Messa í dag, laugardag, kl. 18 og á morgun, sunnudag, kl. 11 í kirkjunni við Eyr- ariandsveg 26. SJÓNARHÆÐ: Sunnudagaskóli í Lundarskóla kl. 13.30 á morgun, sunnudag. Almenn samkoma á Sjón- arhæð, Hafnarstræti 63 kl. 17 sama dag. Fundur fyrir 6-12 ára böm kl. 18 á mánudag á Sjónarhæð. íþróttafélagið Þór reiðubúið að taka við hlutverki aðalleikvangs Uppbyggingar- samningur verði gerður við bæinn „VERÐI ákveðið að leggja núver- andi aðalleikvang bæjarins niður og taka þar upp aðra starfsemi, lýsir íþróttafélagið Þór sig reiðubúið til viðræðna við bæjaryfirvöld um gerð uppbyggingarsamnings sem gerir félaginu kleift að ganga endanlega frá svæði sínu svo að það geti gengt hlutverki aðalleikvangs með sóma fyrir knattleiki og frjálsar íþróttir,“ segir í ályktun félagsfundar Þórs sem haldinn vai- fyrir skömmu. Nið- urstaða fundarins var sú að svæðið geti í framtíðinni uppfyllt allar kröf- ur sem fullnægja þarf fyrir aðstöðu á LEIGUSKIPTI Til leigu er u.þ.b. árs gamalt einbýlishús 150 fm á Akureyri, í skiptum fyrir einbýlishús eða raðhús í vesturbæ, Garðabæ eða Kópavogi. Leiguskipti u.þ.b.1 ár. Upplýsingar gefur Gunnar Guðbrandsson, s. 893 2262. sviði knattspyrnu og frjálsra íþrótta ásamt svæði fyrir stærstu gerð íþróttahúss. Svala Halldórsdóttir framkvæmda- stjóri Iþróttafélagsins Þórs sagði að ákveði bæjai-yfi-völd að leggja Akui'- eyrarvöll undir byggingar geti félagið tekið við þeirri starfsemi sem þai' fer fram fái það aðstöðu úti í hverfunum, í Síðu- og Giljahverfum. Hægt væri að koma upp völlum við skólana í þessum hverfum sem myndu nýtast til æfinga. Verður ekki tekið til baka Svala hvatti til þess að ákvörðun yrði tekin að vel athuguðu máli og gæta þyrfti að því að ekki skapaðist tómarúm hjá þeim sem stunduðu íþróttir verði farið í framkvæmdir á Ákureyrarvelli. „íþróttirnar hér mega alls ekki við upplausnai'ástandi sem gæti skapast,“ sagði Svala. Hún sagði það sína skoðun að varhuga- vert væri að fórna Akureyrarvellin- um, græn svæði í bænum væru ekki of mörg. „Þetta er mál sem ekki er hægt að vinna í einum grænum hvelli, en það er hópur að skoða þetta frá öllum hliðum,“ sagði Svala. „Fólk verður að átta sig á því að verði sú ákvörðun tekin að leggja völlinn niður er það ákvörðun sem ekki verður tekin til baka.“ Morgunblaðið/Kristján Halló páskar Djúpt á mjúkum mararbotni Snæfínnur snjókarl mættur NEMENDUR í Myndlistarskólanum á Akureyri hafa líkt og síðustu ár útbúið snjókarlinn Snæfinn á miðju Ráðhústorgi. Vörubflar hafa flutt hvert hlassið af snjó á fætur öðru á torgið, enda er karlinn um sjö metrar á hæð og býsna gildvaxinn. Að venju verður mikið um að vera í bænum um páskana og höfst hátíð- in „Halló páskar" formlega í gær, föstudag, með dagskrá á Ráðhús- torgi. DJÚPT á mjúkum mararbotni er heiti á dagskrá sem flutt verður í Deiglunni á Akureyri í kvöld, laugar- dagskvöldið 27. mars og hefst kl. 20.30. Arthúr Björgvin Bollason hefur sett dagskrána saman og haft til fyr- irmyndar Heine-dagski-á sem flutt var í Gerðarsafni í Kópavogi í tilefni af 200 ára afmæli Heinrichs Heine 10. nóvmber 1997. Sú kvöldskemmt- un fékk mikið lof í fjölmiðlum. Dagskráin er fjölbreytt og mun skiptast á söngur og lestur á ljóðum skáldsins og völdum köflum úr end- uiminningum þess. Arthúr Björgvin er í aðalhlutverki og fer með hlutverk skáldsins en með honum les Olöf Ása Benediktsdóttir. Sigrún Ai'na Ai'n- grímsdóttir og Sveinn Ai'nar Sæ- mundsson sjá um tónlistarflutning og Þuríðui' Baldursdóttir og Elvý Guð- ríður Hreinsdóttir syngja við undir- leik Richards Simm. Sungin verða lög við ljóð Heines eftii’ Schumann, Schubert, Mendelssohn og fleiri. PENTAX FERMINGARTILBOÐ PENTAX ESPIO 738G Aðdráttarlinsa 38-70mm Sjálfvirkur fókus Sjálvirkt Ijósop og hraði Einföld filmuþræðing Vörn gegn rauðum augum Dagsetning 3 stk. FUJIFILM SUPERIA filmur fylgja Verð aðeins kr.14.990 Skipholti 31, Sími 568 0450 Kaupvangsstræti 1, s. 461 2850 Ljóðasamkeppni Kristnihátíðarnefnd Þingeyj arprófastsdæmis efnir til samkeppni um hátíðarljóð í tilefni 1000 ára kristni í landinu. Skal í ljóðinu, (sálminum), sérstaklega minnast Þorgeirs Ljósvetn- ingagoða og hans þáttar í kristnitökunni, auk þess sem ljóðið varpi ljósi á sögu kristninnar í landinu. Skilafrestur er til 1. maí. Góð verðlaun verða veitt. Ljóðunum skal skila undir dulnefni en rétt nafn höfundar skal fylgja með í lokuðu umslagi. Ljóðin sendist til: Kristnihátíðarnefnd Þingeyinga, sr. Pétur Þórarinsson, Laufási, 601 Akureyri Fuglalíf í Galleríi Svartfugli GERÐUR Guðmundsdóttir textíllistakona opnar einkasýn- ingu á 27 verkum í Galleríi Svartfugli, Akureyri, í dag, laugardag kl. 16. Verkin eru unnin á þessu ári með bland- aðri tækni, einkum silkiþrykk, útsaumi og málun. Sýningin er opin alla daga, nema mánudaga, frá kl. 14-18.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.