Morgunblaðið - 27.03.1999, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 27.03.1999, Qupperneq 22
22 LAUGARDAGUR 27. MARZ 1999 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI s Hagnaður af rekstri Vátryggingafélags Islands 311 milljónir króna Besti árangur frá stofnun félagsins HAGNAÐUR Vátryggingafélags íslands á liðnu ári nam 311,3 milljónum króna eftir skatta en var 305 milljónir króna árið á undan. Hagnaður fyrir skatta á síðasta ári var 433 milljónum króna samanborið við 405 milljónir árið á undan og er þetta besti árangur félags- ins frá stofnun þess. Aðalfundur VÍS var hald- inn á Akureyri í gær, fóstudag. Þar kom fram að iðgjöld hafa áfram lækkað í ýmsum greinum enda ríkir hörð samkeppni á markaðnum. Eitt stjórtjón varð á árinu en í heild lækkuðu tjón ársins lítillega miðað við fyrra ár. Ný tækifæri hafa opnast á fjármagns- markaði til að taka þátt í lífeyrisumsýslu lands- manna og hefur VIS í samstarfi við Líftrygg- ingafélag íslands, Landsbanka Islands og Fjárvang boðið fram ýmsar nýjungar í þeim efnum og hefur þannig tekist að vera í farar- broddi við að samþætta fjármála- og vátrygg- ingastarfsemi á Islandi. Bókfærð iðgjöld síðasta árs námu 4.651,9 milljónum króna og hækkuðu um 3,1% milli ára. Eigin iðgjöld ársins lækkuðu um 1% milli ára. Tjón ársins námu 4.092,7 milljónum króna á móti 4,373,1 milljón króna á fyrra ári og nem- ur lækkunin 6,4%. Hreinn rekstrarkostnaður nam 971,9 milljónum króna og hækkaði um 4,2%, einkum vegna hækkana á sölukostnaði. Heildarfjárfestingartekjur félagsins námu 1.133,6 milljónum króna á móti 1.121,2 milljón- um árið 1997 og hækkuðu því um 1,1%. Hagn- aður af vátryggingastarfsemi nam 32,1 milljón króna samanborið við 145,8 milljónir árið á undan. Á árinu 1998 störfuðu 108 manns hjá fé- laginu miðað við hedsársstörf. Heildarniðurstaða efnahagsreiknings í árs- lok 1998 nam 16,237 milljónum króna miðað við 15.250 milljónir í árslok 1997 og hefur hækkað um 6,5%. Heildarvátryggingaskuld fé- lagsins nam 12.842,4 milljónum í árslok og hækkaði um 4,5% og er nú 279,3% af iðgjöld- um ársins á móti 263,4% við árslok 1997. Af heildarvátryggingaskuld nam tjónaskuld fé- lagsins 9.772 milljónum króna í lok síðasta árs miðað við 9.304 milljónir í árslok 1997. Nafn- verð hlutafjár félagsins er 533,3 milljónir króna og bókfært eigið fé 2.220,1 milljón króna samanborið við 1.918,1 í lok árs 1997 og hefur því hækkað um 302 milljónir króna eða 15,7 milljónir og nemur nú 59,2% af iðgjöldum á móti 50,5% árið áður. Arðsemi eigin fjár á síð- asta ári nam 16,2%. Umhverfísmál í vaxandi mæli framtíðarverkefni Innlend samkeppni á vátryggingamarkaði var mikil á síðasta ári og þá hafa íslenskir vá- tryggingamiðlarar í auknum mæli kynnt starf- semi erlendra vátryggingafélaga. Til að bregð- ast við breyttum markaðsaðstæðum endur- skoðaði VÍS framboð sitt á fjölskyldutrygging- um á síðasta hausti og bjóðast nú frekari val- kostir í þeim efnum til að koma til móts við ólíkar þarfír viðskiptavina. Verulegt samstarf var við Landsbanka Islands á liðnu ári, bæði í markaðsmálum og eins á sviði ýmiskonar samnýtingar og samvinnu í dreifikerfum félag- anna og er unnið að enn frekara samstarfi fyr- irtækjanna á þessu sviði. Litið er svo á að umhverfismál verði í vax- andi mæli framtíðarverkefni vátryggingafélaga og mun VÍS kappkosta að taka þátt í þeirri þróun sem á sér stað á þeim vettvangi, meðal annars með ráðstefnu um umhverfismál og tryggingar sem haldin verður í næsta mánuði. Fram kom á aðalfundinum að gerðar hafa verið ráðstafanir vegna þess vanda sem ártalið 2000 getur haft í för með sér í tölvukerfum fé- lagins og var skilmálum þess breytt á síðasta ári með tilliti til vandans og voru vátrygginga- takar upplýstir um málið á ýmsan hátt. Á fundinum var samþykkt að greiða hluthöf- um 10% arð. Um 42 milljóna hagnaður Aðalfundur Líftryggingafélags Islands var einnig haldinn á Akureyri í gær og kom þar fram að hagnaður af rekstri þess nam 41,9 milljónum króna á síðasta ári samanborið við 31,3 milljónir árið á undan. Bókfærð iðgjöld námu 214,1 milljón króna. Eigið fé félagsins nam í árslok 380,9 milljónum króna. Kynntar voru á fundinum ýmsar nýjungar á sviði líf- og lífeyristrygginga í samstarfi við Vátryggingafé- lag íslands, Landsbanka íslands og Fjárvang. Samþykkt var að gi-eiða hluthöfum 10% arð. Eimskip færir út kvíarnar í Noregi Samið um háhitaboranir á Nesjavöllum Kaupir flutn- ingsmiðl unar- fyrirtæki EIMSKIP hefur gengið frá samn- ingum um kaup á flutningsmiðlunar- íyrirtækinu Giske Shipping AS í Ála- sundi í Noregi. Með þessum kaupum er Eimskip að efla þjónustu sína í Noregi og þá sérstaklega í Vestur- Noregi og taka aukinn þátt í þeirri þróun sem verður í flutningastarf- semi í Noregi á næstu árum, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá félaginu. Eriendur Hjaltason framkvæmda- stjóri utanlandssviðs Eimskips sagði í samtali við Morgunblaðið að kaupin myndu styrkja stöðu Eimskips í Vestur-Noregi auk þess sem almenn umsvif félagsins í Noregi myndu aukast í kjölfarið. Með sterka stöðu í gámaflutningum Giske Shipping AS, sem er þekkt fyrirtæki á norskum flutningamark- aði samkvæmt tilkynningunni, hefur verið umboðsaðili Eimskips Norge AS síðan 1996. Fyrirtækið var stofn- að árið 1991 og hefur sérhæft sig í flutningum á sjávarafurðum. „Fyrir- tækið er með sterka stöðu í gáma- flutningum frá Vestur-Noregi til Austurlanda fjær og Evrópu. Ala- sund er stærsta útflutningshöfn á sjávarafurðum í Noregi og því mikil- vægur hlekkur fyrir flutningaþjón- ustu Eimskips. Giske Shipping er einnig umboðsaðili fyrir ýmis erlend skipafélög í Álasundi. Hjá fyrirtæk- inu starfa nú 5 manns,“ segir í til- kynningunni. í fréttinni segir að markmið Eim- skips með kaupum á Giske Shipping sé að halda áfram þeirri þróun á starfsemi fyrirtækisins í Noregi, sem hófst árið 1996 með stofnun eig- in skrifstofu í Tromsö í Norður Nor- egi og beinum frystiflutningum til N- Ameríku. Eimskip rekur nú 21 starfsstöð erlendis í 10 löndum, en þar af eru 18 í Evrópu. Á síðustu misserum hefur verið unnið að aukinni sam- hæfingu og markaðsstarfi skrifstofa og dótturfyrirtækja Eimskips í Evr- ópu. Starfsemi Giske Shipping AS verðu löguð að þeirri starfsemi sem Eimskip er með í Evrópu, og tengd þjónustuneti fyrirtækja sem félagið rekur í Evrópu, Eystrasaltslöndun- um og við Norður-Átlantshaf. SAMNINGURINN var undirritaður af Sigfúsi Jönssyni forstjóra Innkaupastofnunar Reykjavíkurborgar, Bent S. Einarssyni framkvæmdasfjóra Jarðborana hf., og Guðmundi Þóroddssyni forstjóra Orkuveitu Reykjavíkur. 230 milljóna króna samningnr Jarðborana og Reykjavíkur UNDIRRITAÐUR hefur verið verksamningur milli Orkuveitu Reykjavíkur og Jarðborana hf. um boranir á Nesjavöllum. Fjái-hæð samningsins nemur um 237,2 millj- ónum króna, auk virðisaukaskatts. Að sögn Bents S. Einarssonar framkvæmdastjóra Jarðborana hf. er hér um verðugt verkefni fyrir fyrirtækið að ræða. „Framkvæmdir á háhitasvæðum eru mjög flóknar og kemur þá vel í ljós hve kunnátta og reynsla starfsmanna okkar nýtist vel. Auk þess er framkvæmd af þessari stærðargráðu mikilvæg fyrir fyrirtækið.“ í fréttatilkynningu kemur fram að verkið tekur til bor- unar á tveimur 2.000 metra djúpum borholum. Önnur borholan er boruð lóðrétt og er hún ætluð sem varahola fyrir Nesjavallavfrkjun. Hin holan er rannsóknarhola sem valinn hefur verið staður sunnarlega á svæðinu uppi í hlíðum Hengilsins. Þar er gert ráð fyrir að stefnubora til suðvesturs inn undir fjallið. Talið er að upp- streymi jarðhitans sé undir Henglin- um og rannsóknir á þessum stað geti leitt til þess að vinnslusvæðið stækki til suðurs. Ef árangur verður góður í þessum borunum er mögulegt að tvær aðrar holur verði boraðar á sama borstæði til suðurs og suðaust- urs. I stefnuborun er beitt sömu tækni og notuð hefur verið á undan- gengnum árum við boranir í Kröflu. Jarðboranir hf. hafa samið um tæknilegt samstarf við bandaríska fyrirtækið Halliburton, sem er leið- andi aðili á sviði stefnuborunar í heiminum. Undirbúningur verksins er að hefjast og áætlað er að því Ijúki í október 1999, að því er segir í fréttatilkynningu. Einar Kr. Jonsson á aðalfundi Tæknivals hf. Skipulagsbreytingar skili hagnaði ÁriM9S7. “eistu elnVonni. ®0r vöirturfytlrtakaltis tasii’rtxtnt uinnalosknflMnatjtttatto ' ■>;' ''tarvettót VÖXTURINN kallar á nýtt stjórnskipulag segir Einar Kr. Jónsson. EINAR Kristinn Jónsson, fráfar- andi stjórnarformaður Tæknivals hf., skýrði á aðalfundi félagsins í gær frá þeim stjórn.skipulagsbreyt- ingum sem meðal annars eiga að snúa 13,4 milljóna króna tapi félags- ins á síðasta ári upp í 70-90 m. kr. hagnað á þessu ári. Meginskýringin á tapi félagsins á síðasta ári var að hans sögn sú að fýrrnefnd skipulagsbreyting, sem ákveðið var að fara út í árið 1997, hafi skilað sér seinna en reiknað var með. „Meginskýrining á lakri af- komu félagsins er sú að víðtæk end- urskipulagning þess hefur skilað sér mun seinna en reiknað var með. Félagið hefur á örskömmum tíma vaxið úr mjög litlum frumkvöðla- drifnum rekstri í umsvifamikinn og flókinn rekstur. Það kallar á nýtt stjórnskipulag og nýjar stjórnunar- áherslur." Hann sagði að fýrirtækið hefði vaxið hratt á undanfórnum árum og styrkt sig í sessi sem stærsta fyrir- tæki á tölvumarkaðnum hérlendis. Hinsvegar væri breytinga þörf vegna breytinga á kröfum markað- arins til tölvu- og upplýsingatækni- fyrirækja, krafan um heildarlausnir væri þar orðin mjög hávær. „Þessi víðtæka endurskipulagning var ekki aðeins brýn vegna aukinna krafna markaðarins, hún var einnig brýn vegna stærðar félagsins, sem kallaði á önnur vinnubrögð, annað skipulag og ákvarðanaferli og breytta stjórnun frá því sem áður var. Hér er um dæmigert fýrirtæki að ræða sem vex úr því að vera frumkvöðladrifið í það að þurfa að dreifa ákvörðunum víðar um íýrir- tækið og koma á innra eftirliti,“ sagði Einar. I aðalatriðum fela breytingarnar í sér að ásýnd Tæknivals á markaðn- um verður orðin fjórþætt, að sögn Einars. í Tæknivali hf. eru seldar tölvur, hugbúnaður og netbúnaður auk þess sem íýrirtæki og stofnanir eru þjón- ustuð, Digital býður uppá heildar- lausnir og upplýsingatæknibúnað fyrir stærri fyrirtæki, BT tölvur eru verslanir og stórmarkaðir fyrir ein- staklinga og heimili og í fjórða lagi er heildsala Tæknivals, sem verður gerð sjálfstæðari en áður. Framkvæmdastjórinn kjörinn í stjórn Á fundinum var ný stjórn félags- ins kjörin. Andri Teitsson og Frosti Bergsson voru kjörnir í stjórn áfram, en í stað Einars Kristins Jónssonar, formanns stjórnar, Gylfa Arnbjörnssonar meðstjórn- anda og Ómars Arnar Ólafssonar meðstjórnanda sem allir hættu í stjórninni, voru nýjir stjórnarmenn kosnir þeir Jón Árni Rúnarsson, Úlfar Hinriksson og Rúnar Sig- urðsson, framkvæmdastjóri Tækni- vals.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.