Morgunblaðið - 27.03.1999, Síða 23

Morgunblaðið - 27.03.1999, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI LAUGARDAGUR 27. MARZ 1999 23 79 milljóna kr. hagnaður hjá FISK Passat ber sigurorð af Camry Detroit. Reuters. PASSAT, meðalstór bíll Volkswagen AG, hefur borið sigurorð af Toyota Camry, sem lengi hefur fengið beztu einkunn í þeim stærðarflokki í ár- legri einkunnagjöf tímaritsins Consumer Reports. Passat hefur verið endurhannaður og sigrar í árlegri könnun, sem skýrt er frá í bílablaði tímaritsins í apríl á hverju ári. Ritið hefur valið Camry bezta bfl- inn í sínum flokki á hverju ári síðan hann var innleiddur 1983 og hann hefur verið mest seldi bflhnn í Bandaríkjunum í tvö ár. Mjög mjótt var á mununum og í raun og veru sigraði Passat 1998- gerð Camry í fyrra, en skortur á við- brögðum frá lesendum varð til þess að ekki var mælt með nýju gerðinni. Camry var vinsælasti bíllinn í Bandaríkjunum í fyrra og seldust 429.575 af þeirri gerð, en sala á Passat jókst um 164% miðað við 1997 í 39.272 bfla. Sala Passat í febrúar var 41% meiri en á sama tíma í fyrra. Jetta-gerð VW hafnaði í öðru sæti í flokki minni fólksbfla á eftir Protege frá Mazda Motor Corp. Audi A6 sigr- aði Lexus ES300 í flokki dýrari bfla. Nýja bjallan vinsæl „Nýja bjallan" frá VW fór langt fram úr Acura Integra frá Honda Motor Co í hópi smábfla, en ekki var mælt með henni frekar en Passat í fyrra vegna skorts á við- brögðum frá lesendum. Pótt Camry missti kórónu sína sigruðu Camry Solara og Avalon í sínum flokkum. Auk þess var mælt með Sienna og Lexus RX300 í sín- um flokkum, þótt aðrir bflar fengju betri einkunnir, vegna skorts á við- brögðum lesenda. Aðrir sigurvegarar voru meðal annars Z3 (sportbfll) frá BMW, For- ester (lítill jeppi) frá Subaru, V70 frá AB Volvo (skutbíll) og F150 og Ford Ranger frá Ford (pallbflar). ------------------------- Bylting íbanka- geira Italíu Mflanó. Reuters. TVEIR af stærstu bönkum Ítalíu hafa boðið í keppinauta sína og munu þar með koma af stað mikilli upp- stokkun í ítalska bankageiranum. UniCredito Italiano, stærsti banki Italíu, miðað við markaðsvirði, hefur gert tilboð um hlutabréfaskipti í Banca Commerciate Italiana til að koma á fót nýjum banka með eignir upp á 250 milljarða evra. Sao Paolo, stærsti banki Ítalíu miðað við eignir, svaraði með því að bjóða í Banca di Roma til að koma á fót nýjum banka með eignir upp á 286 milljarða evra. Tilboðin eru síðasti liður í örri samþjöppun í evrópskum bankamál- um. Evrópskir bankar keppast um að sameinast til að draga úr kostnaði og keppa á alþjóðamarkaði. Það tak- mark hefur orðið mikilvægara en ella vegna evrunnar. Tilboðin eru einnig til marks um víðtækar umbætur í ítölskum íyrir- tækjum vegna þess að þau hafa lagzt á sveif með fjálsri markaðshyggju. Nýju ítölsku bankarnir verða meðal stærstu banka Evrópu. Hörð samkeppni Hræringarnar á Italíu koma í kjöl- far viðureignar helztu banka Frakk- lands um tögl og hagldir í franska fjármálageiranum. UniCredito sagði að tengslin við BCI mundu leiða til stofnunar fímmta stærsta banka Evrópu með tilliti til eigna og að hann yrði kallað- ur Eurobanca. San Paolo í Torino sagði að með samruna þess banka og Banca di Roma, stærsta banka Suður-Ítalíu, yrði komið á fót „öflugri fjármála- stofnun á evrópskan mælikvaða, sem yrði vel í sveit sett til að hagnýta um- talsverð áhrif í ítölsku viðskiptalífi“. Starfsmenn hinna fjögurra banka eru rúmlega 100.000 og búizt er við nokkrum uppsögnum. FISKIÐJAN Skagfirðingur hf. (FISK) var rekin með 79 milljóna króna hagnaði á árinu 1998 á móti 12 milljóna kr. hagnaði á árinu 1997. Kvótaárið er rekstrarár FISK og reyndist vera 150 millj- óna kr. hagnaður af fyrirtækinu á rekstrarárinu sem lauk 1. septem- ber sl. Því hefur hagnaðurinn minnkað síðustu mánuði ársins. Rekstrartekjur á almanaksárinu 1998 voru 2.257 milljónir og jukust um 13,25%. Hagnaður án afskrifta og fjármagnskostnaðar var 568 milljónir á móti 347 milljónum árið 1997. Að teknu tilliti til afskrifta, fjármagnsgjalda og óreglulegra tekna nam hagnaður ársins 79 millj- ónum kr. eins og fyrr segir. Veltufé frá rekstri nam 428 milljónum kr. Jón Eðvald Friðriksson, fram- kvæmdastjóri FISK, vekur á því at- hygli að þótt skuldir fyrirtækisins lækki milli ára, aukast fjármagns- gjöld um 77 milljónir kr. Stafar það af óhagstæðri gengisþróun á síð- ustu mánuðum ársins 1998. Fram kemur í upplýsingum frá Jóni að afkoma landvinnslu FISK hefur batnað verulega milli ára og stafar það af skipulagsbreytingum sem gerðar hafa verið á vinnslunni svo og hagstæðum ytri skilyrðum. Afkoma útgerðar FISK var góð á árinu að því undanskildu að rækju- veiðar gengu illa. ^mb l.i is ALLTAf^ rjÝTl Herra- undirfdt ^Páskagreinar í búntum (Forsythía) (4-6 greinar í búnti) o n Kartöflur jp| 59 kr/kf gullauga og rauðar Melónur Blómkál Heimaeyj arkerti 12 í pakka gul/græn 'EiÁmmml -Tá&ÍudimÆð
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.