Morgunblaðið - 27.03.1999, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 27. MARZ 1999 29
VIÐSKiPTI
Dresdner
semur um lok
skattamáls
Frankfurt. Reuters.
DRESDNER Bank AG í Þýzka-
landi og skrifstofa saksóknara í
Diisseldorf hafa samþykkt sam-
komulag til að binda enda á sex ára
rannsókn á ásökunum um að starfs-
menn Dresdner hafi hjálpað við-
skiptavinum að skjóta sér undan
sköttum.
Kannað var hvort Dresdner hefði
hvatt fjárfesta til að flytja fjánnagn
til Luxemborgar til að komast hjá
því að greiða þýzkan staðgreiðslu-
skatt. Bankinn samþykkti að greiða
37 milljóna marka sekt.
FyiTverandi aðalframkvæmda-
stjóri bankans, Jiirgen SaiTazin,
sem lét af störfum í desember 1997
til að bæta ímynd bankans vegna
rannsóknarinnar, fékk eins árs skii-
orðsbundinn fangelsisdóm og var
dæmdur til að greiða 1,5 milljóna
marka sekt.
Yfirmaður Dresdner Bank Lux-
embourg S.A., Friedrich Otto
Wendt, fékk einnig skilorðsbundinn
dóm og 500.000 marka sekt. Fjórir
aðrir núverandi og fyrrverandi full-
trúar í stjóm bankans samþykktu
að greiða sektir að upphæð tvær
milljónir marka.
Neita ásökunum
Dresdner ítrekaði að bankinn
hefði ekki skipulagt markvissa
áætlun um að hjálpa fjárfestum að
komast hjá því að greiða skatta.
Hann sagði að samkomulagið hefði
verið gert fyrst og fremst til að hlífa
rúmlega 350 starfsmönnum við
frekari rannsókn.
Saksóknaraembættið kvað rann-
sókn sína hafa sýnt að ráðunautar
viðskiptavina um allt Þýzkaland
hefðu tekið á málum þeirra á svip-
aðan hátt í meginatriðum.
Samkvæmt rannsókn skattyfir-
valda voru um 5,1 milljarður marka
fluttur úr landi undir yfirvarpi nafn-
lausra Dresdner-reikninga 1992-
1996. Þannig komust viðskiptavinir
Dresdners hjá því að greiða hund-
rað milljóna marka í skatta.
-----------------
NTC leigir hús-
næði í kjallara
Kringlunnar
NTC hf., sem rekur sjö fataverslan-
ir, hefur tekið á leigu eitt þúsund
fermetra húsnæði í kjallara Kringl-
unnar, þar sem skemmtistaðurinn
Amma Lú var áður til húsa. NTC
mun nýta húsnæðið fyrir skrifstof-
ur, lager og þjónustukjarna fyrir
verslanir sínar.
NTC hf. (Northern Trading
Company) rekur nú samtals sjö
fataverslanir. Fimm þeirra eru í Kr-
inglunni; Sautján, Smash, Deres,
Morgan og skóverslun, en tvær við
Laugaveg; Sautján og Smash. A
næsta ári er fyrirhugað að Sautján
flytji sig til innan Kringlunnar og
tvöfaldi rými sitt frá því sem nú er.
Verslanir NTC hafa notið mikill-
ar velgengni og velta þeirra aukist
ár frá ári. Velta fyrirtækisins nam
um 1.400 milljónum á síðasta ári og
eru starfsmenn þess um 110 talsins.
Hæð: 160 cm
Breidd: 59,3 cm
Dýpt: 60 cm
Kælir: 206 I nettó
Frystir: 78 I nettó,
4 stjörnu
Hæð: 141,4 cm
Breidd: 54,0 cm
Qýpt: 57,5 cm
Kælir: 198 I nettó
Frystir: 46 I nettó,
4 stjörnu
HAGKAUP
ARDO AKF 29
kæli- og frystiskápur
<
Meira úrval - betri kaup