Morgunblaðið - 27.03.1999, Blaðsíða 32
32 LAUGARDAGUR 27. MARZ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
_______________ÁRÁS NATO Á JÚGÓSLAVÍU_
NATO mætti lítilli mótstöðu
í annarri lotu árásanna
UMFANG loftárása Atlantshafs-
bandalagsins (NATO) á Júgóslavíu
fyrstu tvo dagana er sagt hafa
komið mörgum sérfræðingum í
opna skjöldu en flestir áttu von á
því að NATO myndi í upphafi ein-
beita sér að því að leggja í rúst
með stýriflaugum tilteknar bæki-
stöðvar serbneska hersins í
Kosovo. NATO hefur hins vegar
ekki látið þetta nægja heldur fylgt
stýriflaugaárásum eftir með loft-
ái'ásum um gervalla Júgóslavíu.
Annarri lotu árásanna lauk í
morgunsárið í gær og hét George
Robertson, vamarmálaráðherra
Bretlands, því þá að árásirnar
myndu halda áfram „nótt eftir
nótt“ uns Slobodan Milosevic, for-
seti Júgóslavíu, skipaði „morðma-
skínu“ sinni að hætta hemaði sín-
um gegn Kosovo-Albönum. Ro-
bertson sagði Milosevic sekan um
„villimennsku sem hefði ekki sést í
Evrópu síðan á miðöldum“ og að
NATO hefði orðið „stöðva morðin í
Kosovo sem bersýnilega em enn í
gangi“.
Vestrænum fréttamönnum var
á fímmtudag vísað frá Júgóslavíu
en nokkur fjöldi rússneskra
fréttamanna er þar enn við störf,
og jafnframt var rússneska sendi-
ráðið í Belgrad enn opið, og sendi
stjómvöldum í Moskvu fréttir af
gangi mála í Júgóslavíu. Rúss-
nesku fréttastofumar Jtar-Tass
og RIA sögðu frá því að árásir
NATO á Júgóslavíu hefðu fram að
þessu valdið dauða á milli 120 og
130 manns, og að af þeim væra
flestir óbreyttir borgarar. Itar-
Tass sagði jafnframt að meira en
Fulltrúar NATO sögðu
í gær að herþotur
þeirra hefðu mætt lítilli
mótstöðu í annarri lotu
loftárása á skotmörk í
Júgóslavíu. Aðgerðirn-
ar eru sagðar ganga
samkvæmt áætlun.
LOFTÁRÁSIRNAR
350 manns hefðu særst í árásum
íyrstu tvær næturnar. Wesley Cl-
ark, yfírmaður herja NATO, hef-
ur sakað serbnesk stjórnvöld um
að hafa sett á svið myndir, sem
sýndar hafa verið í sjónvarpi víða
um heim, af illa særðu fólki í
sjúkrahúsum en viðurkenndi að
erfitt væri fyrir vesturveldin að
meta stöðuna. „En við geram allt
sem í okkar valdi stendur til að
tryggja að sem fæstir óbreyttir
borgarar falli eða verði fyrir
meiðslum," sagði Clark á fimmtu-
dag í Brassel.
U mfangsmikl ar
árásir á skotmörk í Kosovo
Samanlagt hefur NATO nú gert
loftárásir á fimmtíu skotmörk.
Önnur lota árásanna í fyrrinótt
beindist að flugvöllum í Jú-
góslavíu, hermannaskálum og
loftvamarbyrgjum, að sögn vitna.
Miklar sprengingar heyrðust í ná-
grenni Belgrad, höfuðborgar Jú-
góslavíu, og sögðu serbneskar út-
varpsstöðvar að þótt skotmörk
NATO hefðu að mestu verið hern-
aðarmannvirki þá hefðu flug-
skeyti einnig lent á hýbýlum
óbreyttra borgara, „enda eru
flugskeyti ekki viti bornar" og
gætu því ekki gert greinarmun á
mannvirkum.
Bandaríkjaher greindi frá því að
tuttugu Tomahawk-stýriflaugum
hefði verið skotið frá herskipum í
Adríahafinu. Þeim var fylgt eftir
með sprengjuloftárásum. Skot-
mörkin munu hafa verið um fjöra-
tíu hernaðarmannvirki og á meðal
þeirra sem urðu illa úti voru her-
mannaskálar í Urosevac og
Prizren í Kosovo, þar sem nokkurt
mannfall var sagt hafa átt sér stað.
Verksmiðja í bænum Trstenik i
Serbíu, sem framleiddi hemaðar-
útbúnað, varð fyrir flugskeytum
og einnig flugvöllur í Nis, næst-
stærstu borg Serbíu. Loks var
einnig skotið á hemaðarmannvirki
í Svartfjallalandi.
Heimildarmenn Reuters-frétta-
stofunnar í Kosovo sögðu loftárás-
ir NATO hafa lagt „100 prósent" í
rúst bækistöðvar sérsveita
serbneska hersins í Hajvalia í
Kosovo, sem gegnt hefðu lykilhlut-
verki við hemað Serba í héraðinu,
og að umtalsvert mannfall hefði
orðið þar. Skotfærageymsla í hlíð-
um Grmija, rétt utan við héraðs-
höfuðborgina Pristina, var „60
prósent ónýt“ að sögn sömu aðila
og loks urðu bækistöðvar í Prist-
ina fyrir skemmdum af völdum
loftárásanna.
NATO skaut flugskeytum ít-
rekað á tvær stórar ratsjárhvelf-
ingar og samskiptamöstur á
Golash-fjalli í Kosovo en eitt
mastranna stóð þó enn, að sögn
vitna. Ratsjárstöðvar í Slatina,
nærri Pristina, urðu einnig fyrir
flugskeytum, sem og byggingar á
flugvellinum í Pristina. Flug-
brautin sjálf var hins vegar ekki
meðal skotmarka enda myndi
NATO líklega vilja nota flugvöll-
inn í Pristina sem höfuðstöðvar
fyrir friðarsveitir sínar í Kosovo,
breyttu stjórnvöld í Belgrad
stefnu sinni, og samþykktu Ram-
bouillet-friðarsamkomulagið sem
fyrir liggur.
Loks greindi Tanjug-fréttastof-
an júgóslavneska greindi frá því að
Stefan Nemanja-hermannaskálar
Serba í borginni Kosovka Mitrovia
í Norður-Kosovo hefðu orðið fyrir
skemmdum. Sprungu, að sögn
Tanjug, tvö flugskeyti í búðunum,
um fimm hundrað meta frá miðbæ
borgarinnar. Ekkert mannfall
varð, en umtalsverðar skemmdir á
mannvirkjum.
Mættu litilli
mótstöðu
Júgóslavíuher sagði í yfirlýsingu í
gær að hann hefði náð að valda
NATO-hemum „umtalsverðum
skaða“ en að sögn fulltrúa NATO
snera allar flugvélar bandalagsins
heim úr leiðöngram sínum heilu og
höldnu. Sextíu og fjórar herþotur
tóku þátt í árásunum í fyrrinótt og
að sögn fulltrúa NATO mættu þær
lítilli mótstöðu. Engar júgóslav-
neskar herþotur efndu til loftbar-
daga og Serbar gerðu einungis
eina misheppnaða tilraun tU að
skjóta flugskeyti á þotumar.
Þessar upplýsingar vekja ýmsar
spumingar um hemaðarstefnu
Serbanna. Loftvamarkerfi Serba,
sem NATO gerir nú skipulegar tU-
raunir til að leggja í rúst er sagt í
stfi við gamaldags kerfi gömlu
Sovétríkjanna. Kerfið er sagt afar
öflugt en alls ekki óvinnandi vígi,
enda sé það háð notkun gamaldags
flugskeyta frá sjötta og sjöunda
áratugnum.
Áleitnar spumingar
„írakar höfðu yfir að ráða mun
betra loftvarnarkerfi í upphafi
Persaflóastríðsins," segir Chris
Foss hjá samtökunum Jane’s
Defence Weekly. „Þeir áttu mjög
frambærilegt þýskt loftvamar-
kerfi sem olli vesturveldunum
miklum vandkvæðum. Júgóslavar
eiga ekkert í líkingu við þetta."
A hinn bóginn era aðstæður
verri á Balkanskaga, land er ekki
flatt eins og í Irak heldur fjöUótt
og skýjabólstrar geta gert skyggni
flugmanna mjög erfitt, auk þess
sem veður era válynd. NATO hef-
ur aukinheldur réttilega áhyggjur
af hinum öflugu SA-10 flugskeyt-
um, sem Serbar era sagðir hafa yf-
ir að ráða, þótt óljóst sé hversu
mörgum.
Ymsar áleitnar spumingar vakna
hins vegar við þær fregnir að Ser-
bar hafi ekki borið hönd yfir höfuð
sér í árásunum í fyrrinótt og era
nokkrai' getgátur á lofti um mögu-
legar skýringar á því. Því hefur
verið fleygt að þeir hyggist bíða um
sinn áður en þeir beita flugskeytum
á jörðu niðri gegn herþotum
NATO. Jaínframt er ekki útUokað
að loftárásir NATO hafi þegar
skaðað möguleika þeirra tfi vama
umtalsvert. Að síðustu gætu Ser-
bar haft einhver önnur markmið,
og einhver önnur brögð uppi í
erminni. Þeir hétu því jú í upphafi
að veijast árásum NATO með öU-
um hugsanlegum brögðum.
Rússneskur
almenningur
tekur undir
fordæmingu
Reuters
Á myndinni sjást rússneskir þjóðernissinnar kveikja í bandaríska fánanum í mótmælum fyrir framan bú-
stað ræðismanns Bandaríkjanna í St Pétursborg í gær. Lýstu þeir reiði sinni vegna árása NATO og kröfð-
ust þess að Rússland skerist í leikinn og verji „bræður sína“ Serba.
Moskvu. Reuters.
VIÐBROGÐIN
BORÍS Jeltsín, forseti Rúss-
lands, átti í gær fund með
þeim ígor fvanov utanríkis-
ráðherra, Jevgení Prímakov
forsætisráðherra og Igor
Sergejev varnarmálaráðherra
til viðræðna um ástandið f Jú-
góslavíu. Rússar eru allt annað
en ánægðir með aðgerðir
NATO gegn „bræðrum" sínum
Serbum og í gær bað Príma-
kov leiðtoga dúmunnar, neðri
deildar rússneska þingsins, að
fresta atkvæðagreiðslu um
staðfestingu START-2 afvopn-
unarsamningsins við Banda-
ríkjamenn í mótmælaskyni.
Dúman hafnaði hins vegar
tilmælum Prímakovs um að
fresta atkvæðagreiðslu, sem
fram á að fara 15. apríl, um
hvort mál verður höfðað gegn
Jeltsín, sem leitt gæti til emb-
ættismissis forsetans. Hafði
Prímakov beðið dúmuna um
frestun þar sem hann teldi
slíka atkvæðagreiðslu veikja
stöðu Rússlands nú þegar loft-
árásir NATO á Júgóslavíu
stæðu yfir.
Júrí Lúshkov, borgarsljóri
Moskvu, sem talinn er líklegur
til að bjóða sig fram í forseta-
kosningunum á næsta ári í
Rússlandi, fordæmdi í gær
hernaðaraðgerðirnar í Jú-
góslavíu og sagði þær meiri
ógnun við frið í heiminum held-
ur en Kúbudeiluna árið 1962.
Lúshkov sagði í samtali við
sjónvarpsstöðina LCI að Jú-
góslavíustríðið gæti orðið „ann-
að Víetnam-stríð“ og gaf í skyn
að Rússar gætu þurft að hug-
leiða að bijóta það bann sem er
í gildi á sölu vopna til Jú-
góslavíusijórnar.
Alda mótmæla
í Rússlandi
Hann sagði NATO-árásirnar
vísbendingu um yfirburðastöðu
Bandaríkjanna í heiminum en
varaði við því að það væri ekki
endilega gott fyrir Evrópu að
fylgja blint þeim skipunum sem
kæmu frá Washington. Lýsti
hann árásunum sem verstu ógn-
un við frið í heiminum siðan
seinni heimsstyrjöldinni lauk.
„Deilan um flugskeytin í Kúbu
ógnaði friði í heiminum. En
þetta er enn verri ógnun,“
sagði Lúshkov.
Að minnsta kosti fjögur hund-
ruð Rússar söfnuðust saman fyr-
ir framan bandaríska sendiráðið
í Moskvu í gær til að mótmæla
árásunum í Júgóslavíu og lýsa
stuðningi við Serba. MikiII fjöldi
lögreglumanna varði hins vegar
sendiráðið fyrir hugsanlegum
uppþotum. Einnig safnaðist fólk
saman fyrir framan bústað
bandaríska ræðisinannsins í St
Pétursborg.
„Er þetta frelsi?“
Mikill hiti var í mótmælend-
um í Moskvu og héldu þeir á
Iofti spjöldum sem á var letrað
„látið Júgóslavíu í friði“ og „við
munum veija slavneska bræður
okkar“. Bflsljórar þeyttu horn
bifreiða sinna er þeir keyrðu
framhjá sendiráðinu en einnig
kom til mótmæla fyrir framan
breska sendiráðið.
„Bandaríkjamenn eru alltaf
að tala um frelsi og nú fáum við
að sjá hvað þeir meina. Frelsi
merkir semsé stríð,“ sagði hinn
sjötfu og fimm ára gamli Niko-
lai Kazlukhin, sem var meðal
mótmælenda. „Þeir eru að
murka lífið úr bræðrum okkar.
Næst snúa þeir sér að Hvíta-
Rússlandi og Rússlandi."