Morgunblaðið - 27.03.1999, Side 38

Morgunblaðið - 27.03.1999, Side 38
38 LAUGARDAGUR 27. MARZ 1999 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Carmina burana 1 Lista- / safni Islands KÓR Menntaskólans í Reykjavík flytur fyrsta hlutann úr Carmina burana eftir Carl Orff í Lista- safni íslands í kvöld kl. 20.30. Einnig verða flutt þjóðlög og mótettur og ástarvalsar eftir J. Brahms. Sigrún Ólafsdóttir syngur einsöng og Guðný Þóra Guðmundsdóttir leikur einleik á fiðlu. Undirleikari Guðnýjar verður Lára Bryndís Eggerts- dóttir. í Carmina burana leika Anna Guðný Guðmundsdóttir og Krystyna Cortes á píanó og Eggert Pálsson á pákur auk fleiri slagverkshljóðfæraleikara úr Sinfóníuhljómsveit Islands. Kór Menntaskólans í Reykja- vík starfar nú fjórða veturinn undir handleiðslu Marteins H. _ Friðrikssonar, dómorganista. I kórnum eru 40 söngvarar sem hafa æft tvisvar í viku á Iofti Dómkirkjunnar. Kórinn hefur farið í æfingaferðir og hefur ný- lokið upptökum fyrir væntan- lega geislaplötu. Aðgöngumiða má panta hjá kórfélögum eða kaupa í forsal Dómkirkjunnar. jpa| KÓR Menntaskólans í Reykjavík. Menning í Menntaskól- anum á Egilsstöðum Egilsstöðum. Morgunblaðið. GUÐBERGUR Bergsson rithöf- undur kom austur á Hérað og heimsótti Menntaskólann á Egils- stöðum í tilefni af 20 ára afmæli skólans sem verður næsta haust. Ákveðið var að halda upp á afmæl- isár skólans með ýmsum menning- arviðburðum. Koma Guðbergs var sú fyrsta á árinu. Guðbergur hitti nemendur og sagði frá verkum sínum og las fyrir þá tvær örsög- ur. Fór yfir uppbyggingu sagn- anna og andstæður i frásögn. Hann hélt síðan almennan fyrir- lestur í sal skólans um listamann- inn Goya. Fleiri viðburðir tengdir afmæli Menntaskólans á Egilsstöðum verða á næstunni. Til stendur að hafa opinn dag í apnl og munu þann dag verða haldnir nemenda- tónleikar í Egilsstaðakirkju þar sem fjölmargir nemendur munu flytja tónlist úr ýmsum áttum. Morgunblaðið/Anna Ingólfs GUÐBERGUR Bergsson las tvær örsögur fyrir nemendur Menntaskólans á Egilsstöðum Föstutónlist í Hveragerðis- kirkju Á PÁLMASUNNUDAG kl. 17 flytur Kúkjukór Hveragerðis- og Kot- strandarsókna föstutónlist í „Tón- listar-vesper“ í Hveragerðiskirkju. Meðal verka eni „Sjö orð Rrists á krossinum“ eftir Grunmach og verk eftir J.S. Bach og Zoltan Kodáli. Stjórnandi kórsins er Jörg E. Sondermann organisti. Hann leikur jafnframt orgelverk eftir J.S. Bach og eigin partítu um sálmalagið „Hvað hefur þú, minn hjartkær Jesú, brotið?“ Kór og djass- sveit frá Kali- forníu í tón- leikaferð FIMMTÍU manna menntaskólakór og djassveit frá Menlo School, San Francisco í Kalifomíu, heldur tón- leika í Reykjavík á sunnudag. I Ráðhúsinu verða tónleikar með djassveitinni kl. 14. Stjórnandi er Mark Warren. I hljómsveitinni leika Peter Backlund, trommur, Ra- hman Jamael, trompet, Matt Joy, gítar, Amir Rao, trommur, Cyrus st. Amand, bassi, Allison Terry, trompet, Mathew Urbanek, básúnu og Seth Zeren, saxófón. Á efnis- ski-ánni eru m.a. löðgin Ain’t Mis- behavin, Alone Together, Black Bird, Blue Bells of Scotland, Mercy, Mercy, Mercy, Moten Swing, Sweet Georgia Brown og Swing Low. Hljómsveitin vann til silfurverð- launa í Honolulu Hawaii Festival 1998. Kórtónleikar í Hallgrímskirkju Menlo-kórinn syngur í Hallgríms- kirkju kl. 17 undir stjóm Lindu Jor- dan. Flutt verða m.a. lög eftir Pablo Casals, Randall Thompson, Maurice Dumflé, John Ruter, gamalt amer- ískt sönglag og sálmalög. Kórinn hefur unnið til margra verðlauna og sungið í Carnegie Hall. I kórnum syngur stúlka af ís- lenskum ættum, Stefanie Olsen. Amma hennar, Vivian Hansen, er ættuð úr Hjaltadal í Skagafirði, en foreldrar hennar fóm vestur um haf árið 1882. Tónleikar í Skálholtskirkju Kórinn syngur í Skálholtskirkju þriðjudaginn 30. mars kl. 17 í boði Unglingakórs Biskupstungna og stjómar kórnum, auk Lindu Jord- an, Hilmar Amar Agnarsson, stjómandi unglingakórs Biskups- tungna. Héðan fer kórinn í tónleikaferð til Skotlands. Aðgangur að tónleikunum er ókeypis. Strákur í Hnífsdal á tækifærisverði Sópran og blásarar í Hallgríms- kirkju Á TÓNLEIKUM Listvinafélags Hallgrímskirkju á morgun kl. 20.30 koma fram sópransöng- konan Margrét Bóasdóttir og Blásarakvintett Reykjavíkur. Þau flytja fjögur verk eftir Schubert, Sweelinck, Mozart og Jón Hlöðver Áskelsson. Eftir Franz Schubert flytja þau Offertorium D. 136 op. 4 „Totus in corde lanqueo“ f. sópran, C-klarínettu og blásara- kvartett sem Schubert samdi ár- ið 1815, aðeins 17 ára að aldri. Þá flytur blásarakvintettinn til- brigði um þjóðlagið „Mein jun- ges Leben hat ein End“ eftir Jan Pieters Sweelinck í útsetn- ingu Ernests Lubins. Eftir Jón Hlöðver Áskelsson flytja þau „Þrjú ljóð fyrir sópranrödd og blásarakvintett“. Ljóðin eru úr „Vísum um drauminn" eftir Þorgeir Sveinbjarnarson en verkið var frumflutt á kirkju- listarviku í Akureyrarkirkju í maí 1993. Lokaverkið á tónleik- unum eru þrír þættir úr Ser- enödu nr. 12. K 388 í c-moll fyr- ir blásarakvintett eftir Wolf- gang Amadeus Mozart í útsetn- ingu Mordechais Rechtmans. Margrét Bóasdóttir stundaði söngnám hjá Elísabetu Erlings- dóttur við Tónlistarskóla Kópa- vogs og Iauk þaðan burtfarar- prófi vorið 1975 og lauk tón- Morgunblaðið/Þorkell MARGRÉT Bóasdóttir og Blásarakvintett Reykjavíkur á æfingu í Hallgrímskirkju. menntakennaraprófí frá Tónlist- arskólanum í Reykjavík sama ár. Hún stundaði framhaldsnám í einsöngskennaradeild, óperu- og konsertdeild tónlistarháskól- ans í Heidelberg-Mannheim hjá Edith Jaeger og lauk þaðan prófum árið 1981. Margrét hef- ur haldið fjölda ljóðatónleika og sungið einsöngshlutverk í mörg- um helstu kirkjulegu verkum tónbókmenntanna. Hún starfar nú fyrir barnakóra við kirkjur, stýrir unglingadeild við Söng- skólann í Reykjavík og stjórnar Unglingakór Selfosskirkju og Vörðukórnum. Blásarakvintett Reykjavíkur skipa þeir Bernharður Wilkin- son (flauta), Daði Kolbeinsson (óbó), Einar Jóhannesson (klar- ínett), Jósef Ognibene (horn) og Hafsteinn Guðmundsson (fagott). Kvintettinn er tónlistar- hópur Reykjavíkurborgar 1998-1999. Miðasala á tónleik- ana fer fram í Hallgrímskirkju. LEIKLIST Félagsheimilið, Hnffsdal SÖNGLEIKURINN OLIVER eftir sögu Charles Dickens. Texti, lög og ljóð eftir Lionel Bart í þýðingu Flosa Ólafssonar. Litli leildiópurinn og Tónlistarskóli Isaljarðar. Leik- stjóri: Guðjón Ólafsson. Aðstoðarleik- stjóri: Greipur Gislason. Söngstjóri: Margrét Geirsdóttir. Hljómsveitar- stjóri: Sig. Friðrik Lúðvfksson. Hljóð- færaleikur: Baldur Geirmundsson, Beáta Joó, Sigríður Ragnarsdóttir. Dansar: Eva Friðþjófsdóttir, Þórunn Jónsdóttir o.fl. Förðun: Kristjana Jónsdóttir o.fl. Ljós: Sveinbjörn Björnsson. Leikmynd: Guðjón Ólafs- son. Leikendur: Anna Guðmundsdótt- ir, Auður Guðnadóttir, Fanný Bjarn- ardóttir, Finnur Magnússon, Frey- gerður Ólafsdóttir, Greipur Gíslason, Herdís Jónasdóttir, Páll Loftsson, Rúnar Rafnsson, Sara Sturludóttir, Sig. Friðrik Lúðvíksson, Þorkell Þórðarson, Þórunn Kristjánsdóttir, Þröstur Ólafsson. Unglingakór Tón- listarskólans á Isafirði syngur, og fer auk þess með ýmis leikin hlutverk. Þriðjudagur 23. mars. Á ÍSAFIRÐI hafa Tónlistarskól- inn og Litli leikhópurinn sameinað krafta sína í þessari sýningu á Oli- ver Twist. Ái'angurinn af þessu samstarfi er stórgóð sýning þar sem hæfileikar beggja aðila nýtast eins og best verða má. Og ekki kæmi á óvart ef sumar ungu stúlkurnar sem standa sig svo vel í sýningunni upp- götvi að þeim er ýmislegt til lista lagt sem þær þekktu ekki áður. Sýningar af þessu tagi hafa ómetan- Iegt þroskagildi fyrir unga fólkið sem tekur þátt í þeim. En það er ekki þess vegna sem rétt er að hvetja alla sem tök hafa á að sjá sýninguna. Hún tekst einfald- lega mjög vel, heldur áhorfandanum hugfóngnum frá upphafi til enda, og það er á henni yfirbragð agaðrar gleði, hófstillingar og vandaðra vinnubragða. Hér verður hvergi vart ofleiks, skvettugangs, og leik- stjórinn beitir hvergi ódýrum brögðum til að ná áhrifum heldur treystir hann sínu fólki. Þess vegna kemst ljóðræna verksins og mildin mitt í hörmungunum vel til skila. í því efni skiptir einnig miklu máli af- bragðs hljóðfæraleikur, blæbrigða- ríkur og fagur. Það er langt síðan ég hef heyrt eins vel spilað á það góða hljóðfæri harmoníku. Einnig hefur Guðjón Ólafsson leikstjóri gert haganlega umgjörð um verkið, einfalda, stflhreina og meðfærilega. Guðjón nýtir einnig áhorfendasalinn á áhrifaríkan hátt og skapar heillandi nánd. Búningar og geiwi eru einnig vandvirknislega unnin og leggja, ásamt góðu flæði, drjúgan skerf til þess að heildará- hrif sýningarinnar verða ekki brota- kennd. Þessi sýning hefur yfir sér sjarma unga fólksins sem tekur þátt í henni. Hún lýsir hæfileikum sem eru að springa út og listrænum aga sem birtist víða og er afar þekkileg- ur, t.d. í hreyfingum, látbragði og þokkafullum hneigingum í leikslok. Og söngurinn ber vitni þeirri hefð sem Isfirðingar hafa skapað sér á tónlistarsviðinu. Hann er vandaður. Þær Þórunn Anna Kristjánsdóttir, Auður Bii'na Guðnadóttir og Herdls Anna Jónasdóttir eru í stórum og vandasömum hlutverkum og gera allar sínu prýðileg skil. En það eru fleiri strengir í þess- ari hörpu: Félagar í Litla leikklúbbnum slá hér bæði á létta strengi og þá dramatísku. Þau Freygerður Ólafsdóttir og Finnur Magnússon skapa fyndnar og hæfi- lega afkáralegar persónur, og jafn- vel lítið hlutverk á borð við Sower- berry er fagurlega mótað og flutt af Sig. Friðriki Lúðvíkssyni. Páll Gunnar Loftsson stendur sig mjög vel sem Fagin, og að sumu leyti er túlkun hans dæmigerð fyrir það besta í þessari sýningu: góð radd- beiting, enginn asi, ekkert tilfinn- ingalegt yfirboð, heldur áhersla á að leyfa hinu mildilega að njóta sín án sýnilegrar áreynslu. Nú fer í hönd skíðavika á ísafirði. Þeir sem verða þar gestkomandi gera ekki annað betra en að fylla bekkina í Félagsheimilinu á Hnífs- dal ásamt heimamönnum eina kvöldstund og njóta sýningar sem er í senn ljúf, skemmtileg, vel unn- in, og í Dymbilvikunni kannski enn frekar en endranær, hæfileg. Guðbrandur Gíslason

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.