Morgunblaðið - 27.03.1999, Síða 57

Morgunblaðið - 27.03.1999, Síða 57
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. MARZ 1999 57 UMRÆÐAN Prófskrekkur Agústs Einarssonar ÁGÚST Einarsson, þingmaður og fyrrver- andi hagfræðiprófess- or, heldur áfram að agnúast út í efnahags- stefnu ríkisstjórnar- innar og gera lítið úr þeim árangri sem hér hefur óumdeilanlega náðst á undanförnum árum. Aðferðir hans eru gamalkunnar. Fyrst kom hann fram með stóryrtar yfirlýs- ingar í útvarpi 17. mars sl. þegar Þjóð- hagsstofnun hafði enn á ný staðfest góða af- komu þjóðarbúsins og árangur efnahagsstefnu ríkis- stjórnarinnar. Hélt hann því fram þar að allt „fjárlagadæmið" hafi verið „byggt á sandi“. Ætla má af þessum málflutningi að hagfræð- ingar Þjóðhagsstofnunar beiti vís- vitandi blekkingum í þágu stjórn- valda! Slíkur málfiutningur er ekki sæmandi. Fullyrðingar þing- mannsins eru úr lausu lofti gripnar eins og ég benti á í grein minni í Morgunblaðinu 20. mars sl. Ágúst Einarsson lætur sér þó ekki segj- ast því að hann rembist áfram sem rjúpa við staur við að túlka endur- skoðaða spá Þjóðhagsstofnunar með sínum sérkennilega hætti í grein í Morgunblaðinu sl. fimmtu- dag. Rangfærslur Ágústs Einarssonar í fyrri grein minni vakti ég með- al annars athygli á því að endur- skoðuð þjóðhagsspá fyrir árið 1999 staðfesti góða afkomu íslenska þjóðarbúsins. Hagvöxtur er tvöfalt meiri en í helstu nági-annaríkjum, kaupmáttur heimilanna hefur aldrei verið meiri, atvinnuleysi er nánast úr sögunni og verðbólga á svipuðu róli og annars staðar. Þá er staða ríkisfjármála traust og skuldir ríkissjóðs fara hraðminnk- andi. Öll þessi atriði koma fram í nýrri skýrslu Þjóðhagsstofnunar og sýna svo ekki verður um villst að sú stefna sem ríkis- stjóm Davíðs Odds- sonar hefiu’ fylgt hef- ur skilað umtalsverð- um árangri. Það er bara ekki hægt að túlka þessar tölur öðruvísi. Það erýíka athyglis- vert að Ágúst Einars- son hrekur í engu þær efnahagslegu stað- reyndir sem ég hef vakið athygli á heldur kýs að halda sig við fyrri fullyrðingar. Enn og aftur gefur hann í skyn að stjórnvöld hafi beitt vísvitandi blekk- ingum til að fegra útkomu fjárlaga. Hann nefnir þó engar tölur í þessu sambandi og færir engin rök fyrir þessum fullyrðingum. Reyndar Þjóðhagsspá Kaupmáttur heimil- anna, segir Geir H. Haarde, er talinn verða meiri en í fyrri spá og atvinnuleysi minna. segir hann í grein sinni að ómögu- legt sé að „segja til um hvort fjár- lögin riðlast“ vegna nýju þjóðhags- spárinnar „vegna þess hve óná- kvæmt þetta mat er.“ Ef þetta er rétt þá stenst ekki fyrri fullyrðing- in um að fjárlögin séu byggð á sandi! Á hvorn veginn vill Agúst eiginlega hafa þetta? Ég nefndi í fyrri grein minni að endurskoðuð þjóðhagsspá muni fremur styi’kja afkomu ríkissjóðs en veikja. Ástæðan er meðal ann- ars sú að kaupmáttur heimilanna er talinn verða meiri en í fyrri spá og atvinnuleysi minna. Þetta tvennt styrkir afkomu ríkissjóðs og stöðu efnahagsmála almennt eins og ég hygg að flestir átti sig á. Jákvæð einkunnagjöf Ég er ekki einn um þá skoðun að ái-angurinn í efnahagsmálum hér á landi að undanförnu hafi verið góð- ur. Islensk stjórnvöld hafa fengið afar jákvæða umfjöllun í skýrslum OECD og Alþjóðagjaldeyrissjóðs- ins, bæði vegna þeirra áherslu- breytinga sem orðið hafa í hag- stjórn og ýmissa skipulagsbreyt- inga sem ríkisstjómin hefur beitt sér fyrir á mörgum sviðum efna- hagslífsins. Sömu sögu er að segja af þeim fyrirtækjum sem hafa skoðað stöðu íslenskra efnahags- mála með það fyrir augum að meta lánshæfi okkar. Niðurstaða þess- ara aðila hefur verið á sama veg, að staða efnahagsmála sé traust og umbætur í stjórn efnahagsmála undanfarin ár hafi skilað mikilvæg- um árangri og komið íslandi í hóp þeirra ríkja sem best standa í þessu tilliti. Prófskrekkur þingmannsins Ég vil því ítreka að stefna ríkis- stjórnarinnar í efnahagsmálum á undanförnum árum hefur skilað umtalsverðum árangri, sama á hvaða mælikvarða er litið. Við þurf- um hins vegar að gæta þess vand- lega að glutra þessum árangi’i ekki niður. Hagsaga okkar íslendinga geymir mörg dæmi þess hvernig óá- byrg efnahagsstefna getur skapað glundroða í efnahagslífinu. Slíkt verður umfram allt að forðast, en í því efni lofar stefnuyfirlýsing hinn- ar svokölluðu Samfylkingar ekki góðu. Ágúst Einarsson telur mig hafa fallið á „fyrsta prófinu", hvernig svo sem ber að skilja það. Vandséð er hvernig menn fá falleinkunn fyrir að skila myndarlegum afgangi á fjárlögum og greiða niður skuldir ríkisins um tugi milljarða króna. Það læðist óneitanlega að mér sá grunur að þingmaðurinn sjálfur sé kominn með prófskrekk vegna kom- andi alþingiskosninga. Það finnst mér mjög eðlilegt. Höfundur er fjármáhiráðhcrra. Geir H. Haarde Truflaðar upp- lýsingarásir lífeyrissjóða Villandi svör varð- andi verðtryggingu eftirlauna Tilefni er til að þakka Karli Benediktssyni, famkvæmdastjóra Líf- eyrissjóðsins Éramsýn- ar, fyrir að svara grein minni frá 12. mars sl. og virði ég honum til vorkunnar hvernig hann svarar, án þess að upplýsa það sem um er spurt. - Einmitt vegna svona vinnubragða var grein mín skrifuð. Það er með ólíkind- um hve erfitt er að fá greið svör við einföld- um spurningum um eftirlaun fólks frá lífeyrissjóðum, þ.e.a.s. hvemig þau standast launaþróun í landinu. I stað þess að segja að eftirlaunamað- ur NN hafi fengið X kr. í laun í des. 1995 og að hann hafi fengið X kr. í Lífeyrismál Það er með ólíkindum, segir Árni Brynjólfs- son, hve erfitt er að fá svör frá lífeyrissjóðum. laun í des. 1998, er vitnað í sam-' þykktir sjóðsins: „Til grundvallar stigaútreikningi skal grundvallar- fjárhæð í janúar 1996 vera kr. 49.084 og breytist hún mánaðarlega í hlutfalli við breytingu á vísitölu neysluverðs til verðtryggingar frá 174,2 stigum". Síðan er vitnað í lög um skyldutryggingu lífeyi’isréttinda og starfsemi lífeyrissjóða nr. 129/1997 og sagt að fyrirbyggjandi ákvæði í samþykktum lífeyrissjóðs- ins komi í veg fyrir rýrnun eftir- launa. Ef verið væri að biðja um upplýs- ingar um laun ákveðinnar persónu og hún nafngreind, væri skiljanleg tregðan við að skýra rétt og um- búðalaust frá því sem um er spurt, en hér er ekki verið að spyrja um annað en það hvernig eftirlaun ónefndrar persónu í sjóðnum hafi breyst á þriggja ára tímabili, svo séð verði hver verðtryggingin er í raun og veru. Lesa má út úr svari framkvæmdastj óra Framsýnar að eftir- launin hafi hækkað jafn mikið og vísitala neysluverðs, eða um 5,5% sl. 3 ár, á sama tíma og launavísitalan hefur hækkað um 22,2%, - sem segir að þessi þrjú ár hafi laun hækkað fjórfalt meira að meðaltali en eftir- laun frá Lífeyrissjóðnum Framsýn. Ég vona sannarlega að svo sé ekki, enda ber svo vel stæðum sjóði, skv. lögum og samþykktum, að gera bet- ur. Fleiri þyrstir í fróðleik Um hliðstætt var spurt nýlega í tillögu sem samþykkt var á aðal- fundi Félags eldri borgara í Reykja- vík og beint til lífeyrissjóðanna, svo augljóst er að fleiri óska svars við því hvemig eftirlaunin eru í des. 1994 og des. 1998. Mikil áhersla hefur verið lögð á það af samtökum aldraðra að gmnn- lífeyrir, tekjuti-ygging og bætur frá Tryggingastofnun fylgi launavísi- tölu, en nokkuð vantar á að svo hafi verið. I þau 4 ár, sem til eru tekin í framangreindri samþykkt frá aðal- fundi FEB, hefur launavísitalan hækkað um 29,5%, vísitala neyslu- verðs um 7,6%, en eftirlaun og bæt- ur frá Tryggingastofnun um 22,7%. - Þarna vantar 6,8% á að rikið fylgi launaþróun, en engu að síður var gerð samþykkt um það á síðasta að- alfundi ÉÉB, að grunnlífeyrir al- mannatrygginga verði nú þegar tengdur launavísitölu, - neyslu- verðsvísitalan er talin ófullnægjandi. Hvers vegna er svona djúpt á svarinu frá Lífeyrissjóðnum Fram- sýn? Höfundur er félagi í adgerðarhópi aldraðra. Árni Brynjólfsson Spámaðurinn MAÐURINN, sem skrifaði bókina, er aft- ur kominn á kreik. Nú á dögunum var Þor- valdur Gylfason kall- aður sérstaklega til vitnis um það hér í blaðinu, að mikil hættumerki væru í ís- lensku atvinnulífi. Hin síðari ár hefur lands- lýður horft forviða á þennan mann gefa út hverja bókina af annarri og allar sama efnis. Fyrst hét bókin Almannahagur (1990), síðan Hagfræði, stjórnmál og menning (1991), þá Hagkvæmni og réttlæti (1993) og loks Síðustu foi-vöð (1995). Öll eru þessi rit greinasöfn, og velflestar eru greinarnar sama efnis: Rrafa um veiðigjald og skammir um ráðamenn þjóðarinn- ar. Til hægðarauka skal gripið nið- ur í síðustu bókinni. Meginstef ritsins Síðustu foi’vöð er, eins og nafnið sýnir, að hér sé allt að fara norður og niður, af því að ráðum Þorvaldar sé ekki hlýtt. Til dæmis segir þar á bls. 35: „Það er sorglegt, en satt: Við Islendingar höld- um áfram að dragast aftur úr öðrum Evr- ópuþjóðum í efna- hagslegu tilliti.“ Á bls. 39 segir, að ríkisstjórn Davíðs Oddssonar hafi „staðið heið- ursvörð um áfram- haldandi ófremdará- stand á öllum þeim sviðum, þar sem efna- hagsumbótaþörfin er mest“. Og á bls. 125 segir, að ráðandi öfl á íslandi „verði brotin á bak aftur fyrr eða síð- ar, en hætt er við því, að þau eigi eftir að kalla enn meiri fátækt yfir fólkið í landinu fram að því“. Eftir útkomu þessarar bókar hefur Þoi’valdur ótrauður haldið áfram ádeilum á ráðamenn. I Morgunblaðinu 24. maí 1998 segir hann til dæmis, að ónefndir ís- lenskir stjórnmálamenn séu iðnir við að mylja undir sig og einkavini sína, en „neita jafnframt að upp- lýsa, hverjir fjármagna einka- neyslu þeirra sjálfra (t.d. afmælis- Hagspár Hin síðari ár hefur landslýður horft forviða á þennan mann, segir Jónas Sigurgeirsson, gefa út hverja bókina af annarri og allar sama efnis. veislur)“. Jafnframt fer Þorvaldur fógnim orðum um hagstjórn ann- ars staðar í heiminum. Meðal ann- ars birtir hann í Lesbók Morgun- blaðsins 23. nóvember 1996 grein um hagstjórn í Taílandi undir heit- inu „Brosandi land“, þar sem sagði: „Taílendingar hafa á skömmum tíma náð aðdáunarverðum árangi-i af eigin rammleik og heilbrigðu hyggjuviti. Sjálfir berum við ís- lendingar með sama hætti einir ábyrgð á því, hversu kjörum okkar hefur hrakað síðustu ár miðað við Jónas Sigurgeirsson margar aðrar þjóðir fjær og nær.“ Skömmu eftir að Þorvaldur Gylfason mælti þessi orð, varð sem kunnugt er algert hrun í Taílandi, og sér ekki fyrir endann á erfið- leikum þjóðarinnar. Því síður hef- ur Þorvaldur Gylfason verið sann- spár um Island. Verðbólga er hér nú einna minnst í Evrópu. At- vinnuleysi er miklu minna en með- al grannþjóðanna. Fjárlög eru af- greidd með tekjuafgangi, og tekið er að greiða niður erlendar skuld- ir. Erlendar stofnanir, sem meta lánshæfi ríkja, hafa fært Island í besta flokk. Hagvöxtur er einn hinn mesti í aðildarríkjum Efna- hags- og framfarastofnunarinnar. íslendingar búa nú við einhver bestu lífskjör í heimi. Samkvæmt alþjóðlegri skýrslu, sem hagfræði- stofnun Háskóla íslands hefur gef- ið út, er ísland í röð þeirra fimm ríkja, þar sem atvinnufrelsi hefur aukist einna mest síðustu ár. Þegar Morgunblaðið spurði Þor- vald Gylfason síðan sérstaklega 3. júní 1998, við hverja hann ætti með orðum sínum um þá, sem „neita að upplýsa, hverjir íjár- magna einkaneyslu þeirra sjálfra (t.d. afmælisveislur)", neitaði hann að upplýsa það! Maðurinn, sem ræðst harkalega á ónefnda ís- lenska stjórnmálamenn fyrir að neita að upplýsa, hverjir kosti af- mælisveislur þeirra, neitar sjálfur að upplýsa, við hverja og við hvað hann eigi, svo að þessir menn geti svarað fyrir sig og lesendur metið ásakanir hans. Nú boðar Þoivaldur Gylfason á heimasíðu sinni á Netinu enn eina bókina, sem Mál og menning ætlar að sögn hans að gefa út nú í vor undir heitinu „Viðskiptin efla alla dáð“. Nafnið er gott. Én til þess að viðskipti efli alla dáð, verður var- an, sem seld er, að vera ósvikin. Ekki er annað að sjá á efnisyfirlit- inu en þetta sé enn eitt greinasafn- ið með sömu greininni aftur og aft- ur, sömu hrakspánni aftur og aft- ur, sömu rakalausu fullyrðingun- um aftur og aftur. Þetta er ber- sýnilega sama bókin í fimmta skipti. Höfundur cr sagnfræðingur.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.