Morgunblaðið - 27.03.1999, Síða 58
58 LAUGARDAGUR 27. MARZ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Samfylking án utanríkisstefnu
KYNNING á stefnu
samfylkingar vinstris-
inna leiðir í ljós, að þeir
hafa gefist upp við að
marka sér utanríkis-
stefnu. Leggst lítið fyiir
þá kappa, sem helst
sneiddu að okkur sjálf-
stæðismönnum fyrir
kosningamar 1995
vegna þess að utanríkis-
stefna okkar væri mein-
gölluð og vildu sannfæra
kjósendur um að nær
væri að kjósa Alþýðu-
flokkinn til að ná árangri
í utanríkismálum. Nú
skila þeir auðu vegna
þess að stofnað hefur
verið til pólitísks sam-
starfs við hefðbundna andstæðinga
farsællar utanríkisstefnu þjóðarinnar.
Til að draga athygli írá stefnuleysi
í utanríkismálum hafa samfylkingar-
menn lagt þeim mun meiri áherslu á
aðra málaflokka. Þai- má sérstaklega
nefna menntamál. Mætti ætla, að
þessi nýja pólitíska fylking væri að
boða nýja stefnu i menntamálum. Svo
er þó alls ekki eins og hér skal skýrt.
Þegar litið er fram hjá almennum
slagorðum í stefnu samfylkingarinn-
ar eins og hún er auglýst í Morgun-
blaðinu fimmtudaginn
25. mars kemur eftir-
farandi fram, þegar
kaflinn um fjárfestingu
í mannauði er skoðaður:
1. Námsárangur í
grunnskólum á að jafn-
ast á við það sem best
gerist annars staðar.
2. Bjóða verðm-
skemmri námsbrautir á
framhalds- og háskóla-
stigi.
3. Efla þarf vísinda-
rannsóknir og þróunar-
vinnu.
4. Styrkja þarf starf-
semi Háskóla íslands
og annarra háskóla.
5. Auka verður tölvu-
kennslu og beita nýrri upplýsinga-
tækni.
6. Tryggja ber aðgang allra að
upplýsingahraðbrautinni.
7. Veita á öllum möguleika á sí-
mepntun og starfsmenntun.
Eg fullyrði, að í þessum stefnuat-
riðum komi ekkert nýtt fram. Þvert
á móti er í þeim verið að árétta þá
stefnu, sem fylgt hefur verið undan-
farin ár og hrundið í framkvæmd
með markvissum hætti. Þessa full-
yrðingu er auðvelt að rökstyðja:
Stjórnmál
Samfylkingin, segir
Björn Bjarnason, við-
urkenndi sundurlyndi
sitt með því að skila
auðu í utanríkismálum.
Gripið hefur verið til margvís-
legra úrræða til að bæta námsár-
angur í skólum í samræmi við þá
stefnu, að skólar hér jafnist á við þá,
sem bestir eru. Ný skólastefna und-
ir kjörorðinu: Enn betri skóli hefur
hlotið brautargengi og er verið að
framkvæma hana með nýjum
námskrám fyrir leikskóla, grunn-
skóla og framhaldsskóla. Einfalt úr-
ræði eins og að birta niðurstöður í
samræmdum grunnskólaprófum
hefur skilað góðum árangri. Nýjar
stuttar starfsnámsbrautir eru að
mótast í framhaldsskólum. Háskóli
íslands hefur lagt áherslu á að skil-
greina nýjar stuttar námsbrautir.
Umsvif í vísindum og þróun hafa
stóraukist og þar hefur verið for-
gangsraðað í þágu upplýsingatækni
og umhverfismála. Sóknarfæri há-
skóla hafa verið stórefld með nýjum
lögum um þá og fjárveitingar til
skólanna hafa aukist. Tveir nýir,
einkareknir háskólar, Viðskiptahá-
skólinn í Reykjavík og Listaháskóli
Islands, hafa tekið til starfa. Með
nýjum námskrám er upplýsinga-
tækni útfærð í öllum námsgreinum
og allir, sem útskrifast úr gi'unn-
skólum eiga að kunna á lyklaborðið
og geta nýtt sér tölvur. Upplýsinga-
hraðbrautin hefur verið opnuð öllum
skólum og mikil áhersla lögð á að
þar sé unnt að nýta íslensku og
nálgast íslenskt efni. Stefna hefur
verið mótuð um símenntun og sér-
stök verkefnisstjórn er að hrinda
henni í framkvæmd.
Hvern einstakan þátt í stefnu síð-
ustu ára og framkvæmd hennar er
unnt að rekja nánar. Hins vegar er
ástæða til að efast um, að samfylking
vinstrisinna viti, hvemig hún ætlar
að framkvæma stefnu sína í mennta-
málum, verði hún ekki sporgöngu-
menn okkai-, sem höfum unnið að því
að gera góða skóla enn betri á und-
anfömum árum.
Fyrir utan þau atriði, sem hér
hafa verið nefnd, vill samfylkingin
hefja undanþágustefnu í skattamál-
um. Samhliða því sem þeir verða að
Björn
Bjarnason
þyngja hina almennu skattbyrði til
að efna loforð sín boða vinstrisinnar
ívilnanh- vegna einstakra verkefna.
Sá loforðalisti er orðinn langur og
ósannfærandi. Stefnan varðandi
Lánasjóð íslenskra námsmanna er
ekki heldur trúverðug, því að hún
miðar að því að raska öllum rekstr-
arforsendum sjóðsins og stefna
starfsgrundvelli hans í hættu.
Samfylkingarstefnan í menningar-
málum minnir á stefnuleysið í utan-
ríkismálum. Samfylkingin vill gera ít-
arlega úttekt á stöðu menningarlífs í
landinu og síðan ætlar hún að huga að
því að móta markvissa menningar-
stefnu, sem fylgja ber eftir með fram-
kvæmdaáætlun. Tómahljóðið í þess-
um orðum er mikið og ber ekki vott
um mikinn metnað.
Samfylkingin viðurkenndi sund-
urlyndi sitt með því að skila auðu í
utanríkismálum. Hún hefði svo sem
alveg eins getað gert það í mennta-
og menningarmálum. Textinn frá
samfylkingunni sýnir, að í mennta-
málunum hefði hún einfaldlega get-
að vísað til hins mikla átaks okkar
við endurnýjun á öllum skólastig-
um og viðurkennt, að hún hefði
ekkert nýtt fram að færa. Stjórn-
málaöfl, sem álykta um nauðsyn út-
tektar, hafa hvorki þrek né vilja til
að taka afstöðu - þannig er svo-
nefnd stefna vinstrisinna í menn-
ingarmálum.
Höfundur er menntamálaráðherra.
RABAUGLVSI I I IM G A
ATVINNU-
AUGLÝSINGAR
Hafnarfjörður
Slökkvilið
Hafnarfjarðar
Sumarafleysingar
Starfsmenn vantar til að leysa af í Slökkviliði
Hafnarfjarðar sumarleyfistímabilið 1999.
Umsækjendur um störf slökkviliðsmanna,
' skulu fullnægja eftirtöldum skilyrðum, saman-
ber reglugerð um menntun, réttindi og skyldur
slökkviliðsmanna nr. 195/1994.
1. Vera á aldrinum 20—28 ára, reglusamir og
háttvísir.
2. Hafa góða líkamsburði, gott andlegt og lík-
amlegt heilbrigði, hafa góða sjón og heyrn,
rétta litaskynjun og vera ekki haldnir loft-
hræðslu eða innilokunarkennd.
3. Hafa aukin ökuréttindi til að stjórna a) vöru-
bifreið og b) leigubifreið.
4. Hafa iðnmenntun sem nýtist í starfi slökkvi-
liðsmanna eða sambærilega menntun og
reynslu.
5. Gangast undir og standast læknisskoðun
og þrekpróf.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á varðstofu
slökkviliðsins við Flatahraun.
Umsóknir skulu berast undirrituðum fyrir 19.
apríl nk.
Slökkviliðsstjóri.
Verkamenn óskast
Verkamenn óskast í byggingavinnu á
Reykjavíkursvæðinu.
H Á I f t á r ó s
S. 566 8900 / 892 3349.
Símbréf 566 8904.
Netfang: www.alftaros.is.
Símavarsla
ALÞI N G I
Alþingi óskar að ráða starfsmann á
aðalskiptiborð.
í starfinu felst:
símsvörun og fjölbreytt símaþjónusta m.a.
skilaboðaþjónusta, boðun funda o.fl.
Hæfniskröfur:
• góðframkoma
• mikil þjónustulund
• tungumálaþekking mikilvæg, enskukunnátta skilyrði
Unnið er á vöktum milli kl. 8:00 og 19:00.
Starfið er laust nú þegar.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi milli Alþingis
og Félags starfsmanna Alþingis.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ráðning liggur
fyrir. Umsóknirnar gilda í 6 mánuði ef sambærilegt
starf losnar á þeim tíma.
Umsóknarfrestur er til og með 12. apríl n.k.
Upplýsingar veittar á skrifstofu Liðsauka frá
kl. 9-14 og á heimasíðunni: www.lidsauki.is
Fó/fr ogr þekking
Lidsauki 0
Skipholt 50c, 105 Reykjavík sfmi 562 1355, fax 562 3767
Netfang: www.lidsauki.is
Tölvupóstur: lidsauki@knowledge.is
Kranamaður óskast
Kranamaður óskast á byggingarkrana í
Reykjavík.
M í I f t á r ó s
S. 566 8900 / 892 3349.
Símbréf 566 8904.
Netfang: www.alftaros.is.
TIL SÖLU
Jörð til sölu
Hurðarbak í Svínadal, Hvalfjarðarstr.hr., Borg-
arfjarðarsýslu. Jörðin er um 200 ha, tún 48 ha.
Á jörðinni er íbúðarhús byggt 1967, fjós fyrir
25 kýr, 30 geldneyti og 15 kálfa, hlaða, fjárhús
og 2 vélageymslur.
Rúmlega 39.000 I greiðslumark í mjólk.
Laxveiði — Hitaveita. Nánari upplýsingar
veitir eigandi:
Ámi Ólafsson, sími 433 8919.
Tilboð óskast fyrir 15. apríl.
SMÁAUGLÝSINGAR
TILKYNNINGAR
Frá Sálar-
rannsóknar-
félagi íslands
Opið hús
í dag, laugardaginn 27. mars,
verður opið hús í Garðastræti 8
frá ki. 14—16. Nemendur úr
hringjum bjóða uppá heilun, spá
í bolla og lófa, vinsamlega verið
búin að hvolfa bolla og komið
með hann með ykkur, einnig
lesa þau í Tarot og indíánaspil og
e.t.v. eitthvað fleira. Allir eru vel-
komnir.
srfI.
FÉLAGSLÍF
Dagsferð sunnudaginn 28.
mars. Fyrirhuguð gönguferð
fellur niður.
Helgarferðir á skíðum.
9. —11. apríl. Þingvellir —
Hlöðufell — Úthlíð, skíða-
ferð. Gengið frá Þingvöllum
að Skjaldbreið, þaðan á
Hlöðuvelli og endað í Úthlíð.
Fararstjóri Sylvía Kristjáns-
dóttir. Undirbúnings- og
kynningarfundur verður 7.
apríl.
21,—25. apríl. Esjufjöll, skíða-
ferð. Gengið upp Breiðamerkur-
jökul í Esjufjöll. Gist í skála. Far-
arstjóri Sylvía Kristjánsdóttir.
Páskaferðir verða auglýstar í
sunnudagsblaði.
Aðalfundur Útivistar. Félagar,
munið aðalfund 29. mars kl.
20.00. Fundurinn verður á Korn-
hlöðuloftinu við veitingahúsið
Lækjarbrekku, Bankastræti 2.
Ferðaáætlun ársins kynnt á
heimasíðu: centrum.is/utivist
Halla Sigurgeirsdóttir,
andlegur læknir.
Huglækningar, sjálfsuppbygg-
ing, áruteiknun/2 form.
Sími 562 2429.
Hvítasunnukirkjan Fíladelfía
Kl. 20.00 er sýning á leikritinu
„Hlið himins, logar vítis".
Húsið opnað kl. 19.00, aðgangur
er ókeypis og allir velkomnir
meðan húsrúm leyfir.
Dalvegi 24, Kópavogi.
Almenn samkoma í dag kl. 14.
Ræðumaður: Helga Ármanns-
dóttir.
„Lofaður sé Drottinn Guö, Israels
Guð, sem einn gjörir furðuverk
og lofað sé hans dýrlega nafn
um eilífð og öll jörðin fyllist dýrð
hans. Amen amen."
Sálmur 72,18-19.
FERÐAFÉLAG
^ ÍSLANDS
MOfíKINNI 6 - SlMI 568-2533
Sunnudagsferðir 28. mars
kl. 10.30 Bláfjöll — Kistufell
— Kleifarvatn. Um 5—6 klst.
skíðagönguferð og góö æfing
fyrir páskaferðirnar. Verð 1.500
kr. Brottför frá BSÍ, austan-
megin og Mörkinni 6.
Kl. 13.00 Selvogsgata, 1.
hluti. Um 3 klst. fjölskylduganga
frá Lækjarbotnum í Kaldársel
undir leiðsögn Jónatans Garð-
arssonar frá Umhverfis- og úti-
vistarfélagi Hafnarfjarðar. Brott-
för frá BSÍ, austanmegin og
Mörkinni 6, en einnig er mæt-
ing v. kirkjug. Hafnarfirði.
Upphaf þjóðleiðasyrpu. Verð 500
kr., frítt f. börn m. fullorðnum.
Sjá næstu Ferðafélagsferðir á
textavarpi bls. 619 og heimasíðu:
www.fi.is.