Morgunblaðið - 27.03.1999, Qupperneq 65
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 27. MARZ 1999 65
UMRÆÐAN
„Skipulag“ fyrir
Islendinga
í ÁGÆTRI grein
sem Hafsteinn Núma-
son, fyrrverandi íbúi á
Súðavík, skrifaði í
Mbl. fyiT á árinu spyr
hann þeirrar sjálf-
sögðu spumingar
„hvaða ábyrgð fylgir
undirritun ráðherra" á
uppdrátt af snjóflóða-
hættumati? Þetta er
mjög tímabær spum-
ing og á sama hátt er
mjög eðlilegt að fólk
spyrji um þá ábyrgð
sem fylgir því að vinna
svæðisskipulag, aðal-
skipulag og deiliskipu-
lag þar eð þetta skipu-
lag hefur oft afgerandi áhrif á fast-
eignir manna og umhverfi, líf
þeirra og heilsu.
Skipulagsmál
Hvernig eiga þeir
sem ekki hafa hlotið
fullnaðarmenntun í
skipulagsfræðum, spyr
Gestur Olafsson, að
geta borið faglega
ábyrgð á skipulagi?
Hér er oft greint á milli faglegr-
ar ábyrgðar og pólitískrar ábyrgð-
ar. Til að fá réttindi til að teikna
bflskúr og leggja hann fyrir bygg-
ingarnefnd þarf viðkomandi að
hafa lokið löngu framhaldsskóla-
námi, hann þarf að árita uppdrátt
að mannvirkinu og taka faglega
ábyrgð á því að það sé hannað í
samræmi við lög og reglugerðir.
Viðkomandi þarf líka að hafa
starfsábyrgðartryggingu og ber
hann ábyrgð á göllum sem rekja
má til hönnunar í mörg ár eftir að
mannvirkið er byggt. Eðli málsins
samkvæmt er ekki hægt að ætlast
til þess af stjómmálamönnum að
þeir beri slíka faglega ábyrgð enda
er engin trygging fyrir því að þeir
hafi menntun og þekkingu til þess.
Til þess eru sérfræðingar á við-
komandi sviðum.
I flestum vestrænum löndum
þykir það nú sjálfsagt að gera
ákveðnar menntunar- og starfs-
reynslukröfur til þeirra sem fá
heimild til þess að vinna skipulag
og hafa þannig afgerandi áhrif á líf
og umhverfi fólks. í Evrópusam-
bandinu eru starfandi Samtök
skipulagsfræðinga (ECTP), sem
Skipulagsfræðingafélag Islands er
aðih að. Þessi samtök gera þær
lágmarkskröfur til
sinna meðlima að þeir
hafi lokið a.m.k. fjög-
urra ára námi í skipu-
lagsfræðum á háskóla-
stigi, eða jafngildi þess
og hafi auk þess a.m.k.
tveggja ára starfs-
reynslu. Sömu lág-
markskröfur til fulln-
aðarmenntunar í
skipulagsfræðum hafa
verið staðfestar hér á
landi af iðnaðarráðu-
neytinu og eru þær
forsenda fyrir því að
menn megi nota
starfsheitið skipulags-
fræðingur.
Nú bregður hins vegar svo við að
umhverfísráðuneyti Islands vill
ekki gera þá sjálfsögðu kröfu að ís-
lenskur almenningur fái notið við-
líka sérfræðiþekkingai- og reynslu í
þessum efnum og almenningur í
Evrópusambandinu, þrátt fyrir ít-
rekuð tilmæli Skipulagsfræðinga-
félags íslands. í skipulagsreglu-
gerð er þetta sérfræðisvið kaflað
„að sinna skipulagsgerð“ og þar er
Skipulagsstofnun falið að búa til
lista yfír þá aðila sem „sinna þess-
um starfa". í sjálfu sér er það jafn
fjarstæðukennt að fela Skipulags-
stofnun að búa til slíkan lista og að
Skipulagsstofnun skuli taka við
slíku verki, enda jafngildir þetta
því að útskrifa skipulagsfræðinga
(sem ætti að vera vettvangur há-
skóla) og veita þeim starfsréttindi.
Því er ekki nema eðlilegt að menn
spyrji - hvemig þeir sem ekki hafa
hlotið fullnaðarmenntun í skipu-
lagsfræðum eigi að geta borið fag-
lega ábyrgð á skipulagi? Hvers á
íslenskur almenningur að gjalda?
Getur verið að afstaða umhverfis-
ráðuneytisins mótist af því að eng-
inn skipulagsfræðingur hefur enn
verið ráðinn þar til starfa þótt það
ráðuneyti fari með yfírstjóm ís-
lenskra skipulagsmála?
Hér er yfirleitt um miklu mikil-
vægari mál að ræða en hönnun á
einum bflskúr og því ættum við að
gera þeim mun meiri kröfur til
þeirra sem standa fyrir skipulagi.
Væri okkur ekki líka nær að nýta
sérþekkingu íslenskra skipulags-
fræðinga til þess að skipuleggja
landnotkun og byggð á Islandi á
öraggum, hagkvæmum stöðum, í
sátt við náttúruna, í stað þess að
þurfa að verja milljörðum af sam-
eiginlegu fé landsmanna eftirá t.d.
til þess að reyna að tryggja lág-
marks öryggi fólks þar sem byggð
hefur verið skipulögð á hættu-
svæðum?
Höfundur er fominður
Skipulagsfræðingafélags Islands.
Gestur
Olafsson
"c
Runner Ranger
ASY CAMP
Tjaldvagnar
Opið alla helgina
sendiun myndalista um land allt.
EVRO
Heilsárs fellibústaður með öllum
lúxusþægindum fyrír fjölskylduna i ferðalagið
'm » h t * .
jr jgsj
Borgartún 22 105 Reykjavík. sími 551 1414 fax 551 1479 evro@islandia.is
4*
X
usqoqn
Hjá okkur eru Visa- og Euro- raðsamningar ávísun á staðgreiðslu
Ármúla 8 - 108 Reykjavík
Sími 581-2275 ■ 568-5375 ■ Fax 568-5275
1
r
t
I
1
Skipholt 37 • 105 Reykjavík
Sími 568 8388 • Fax 568 8348
Sendum í póstkröfu.
Astro Boby
6.900 kr.
Telstor
9.900 kr.
Lýsingarhönnun & lampabúnaður