Morgunblaðið - 27.03.1999, Page 86
86 LAUGARDAGUR 27. MARZ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
Brandari sem
varð að sögu
NÝJA myndasöguritið gisp! er nær
því að vera bók en blað, því það er
140 síður og er allt hið veglegasta á
að líta. Fjölbreytt efni er í bókinni
og eru nokkrir þeirra nori’ænu
myndasöguhöfunda sem eiga verk á
sýningunni Cap au Nprd kynntir
auk annarra norrænna höfunda sem
ekki eru á sýningunni. Stór hiuti
gisp! er þó tileinkaður íslenskum
myndasöguhöfundum og er í bók-
inni gott yfirlit yfir það sem er að
gerast á landinu í myndasögunni.
Fjórmenningarnir Bjarni Hin-
riksson, Þorri Hringsson, Jóhann
Torfason og Halldór Bjai-nason eru
lykilmennirnir í útgáfu gisp!, sem er
að koma út í áttunda skipti, og hafa
fylgt ritinu eftir frá fyrsta tölublaði
sem kom út árið 1990. Þeir eru fyrst
spurðir um sögu blaðsins.
„Við útskrifuðumst allir úr mynd-
. listarskólum árið 1989 og höfðum
N. allir haft áhuga á myndasögum frá
því á unglingsárunum. Þorri hafði
- gefið út myndasögubókina 1937 í
samvinnu við Sjón þetta ár og við
ákváðum að reyna fyrir okkur með
útgáfu á myndasögubiaði. Fyrsta
tölublað gisp! kom út seint á árinu
1990, en í því biaði komu Oiafur J.
Engilbertsson, Þórarinn Leifsson
og Bragi Halldórsson mikið við
sögu,“ segir Bjarni.
„Markmiðið hjá okkur upphaf-
•lega var að gefa blaðið út reglu-
. Iega,“ segir Halldór. „Fyrstu fjögur
blöðin komu út á tveimur árum en
eftir það varð ljóst að þetta var erf-
iður róður. Fimmta blaðið var bók
sem kom út í tengslum við sýningu
á Kjarvalsstöðum og var eiginlega
útgáfulega séð toppurinn í sögu
blaðsins. Sjötta blaðið var íylgirit
með Eintaki á 17. júní árið 1994 og
sjötta Gisp kom út ári seinna sem
sýningarskrá tveggja sýninga," seg-
ir Bjarni.
„I byrjun vildum við hafa blaðið
mjög markaðsvænt, prentuðum það
í 2000 eintökum og dreifðum í allar
sjoppur á landinu," segir Jóhann.
„Síðan hefur blaðið minnkað, orðið
menningarlegra, enda komumst við
að því að það er betri markaður í
menningunni," segir Halldór. „En
við reyndum allt til að fara þá leið
sem við vildum upphaflega. Höfðum
hasar á forsíðunni og vorum með
jólablað, vorum með póstkort og
fleira,“ segir Bjarni. „En það var til-
fínnanlegur skortur á ofbeldi og
klámi,“ segir Jóhann sem segir að
þeir hafi verið gagnrýndir fyrir
þann skort á sínum tíma.
- Þið hafíð ekki brugðist við þeim
kröfum markaðarins?
„Jú, núna í nýjasta biaðinu," segir
Halldór grafalvarlegur á svip. „Það
hefur bara tekið þennan tíma að
komast á þetta þroskastig," segir
Jóhann. „Við erum að vinna úr
þessum komplexum í myndasögu-
spuna í nýjasta blaðinu,“ skýtur
Halldór inn.
- Hvað er myndasöguspuni?
3
(gisp!)
FORSIÐAN á gisp!
sem er eftir Jóhann Torfason.
MBNNINdARBOttffi
ivnðpu Anifi 2000
2000.hel.fi
Helsinki menningarborg Evrópu áriö 2000 r samvinnu við g*fjg^g
\ RfKISÚTVÁRPÍÐ
Finnski fonleikuninn
Art goes Kainakka
djass, teknó og kitlandi klassík
um allan bae 26,- 2B. mars 1 999
Föstudagur 26. mars
Solon Islandus Anna-Mari Káhárá Band
kl. 22.00 Raakel Lignell & Kirmo Lintinen
GaukuráStöng Rinneradio
kl. 24.00
Kaffi Thomsen DJ Bunuel
kl. 23.00
Laugardagur 27. mars
Iðnó
kl. 16.00
Lenni-Kalle Taipale Trio
'P
Raakel Lignell S Kirmo Lintinen
Gaukur á Stöng DJ Bunuel
kl. 23.30
FinlandDj
SUOMI
FLUGLEIDIR Sm
Sunnudagur 28. mars
Gaukur á Stöng Rinneradio
kl. 21.30 Lenni-Kalle Taipale Trio
Anna-Mari Kahara Band
DJ Bunuel
Morgunblaðið/Þorkell
GISP! kæmi ekki út án ljórmenninganna. Frá vinstri: Þorri Hrings-
son, Bjarni Hinriksson, Halldór Baldursson og Jóhann Torfason.
„Spuni er náttúrulega tískuorðið í
dag. Þetta byrjaði sem brandari hjá
okkur," segir Halldór. „Fyrst, gerði
ég einn ramma og sendi hann til Jóa
í tölvupósti, sem hélt svo áfram og
þannig gekk sagan koll af kolli.“
„Gunnar Karlsson teiknaði líka þrjá
ramma í sögunni," segir Þorri.
„Menn voru farnir að ögra næsta
manni til að ganga skrefínu lengra í
ósómanum," segir Halldór. „En
sagan gekk mjög vel upp og ber
nafnið Heilbrigð ást.“
- Nú tengja margir myndasög-
una við barna- og unglingsárin.
Tímabil sem fólk vex síðan frá.
„Þetta er bara misskilningur,"
segir Bjami. „Ég held að allir sem
eru 40 ára og yngri hafí lesið
myndasögur. Það þekkja allir Ást-
rík og Tinna,“ segir Jóhann en bæt-
ir þvi þó við að hugsan-
lega séu fleiri strákar i
lesendahópnum.
- Höfðar myndasagan
meira til stráka en
steipna?
„Já,“ segja þeir allir í
kór. „Ég held að allir
strákar hafi einhvern
tíma lesið myndasög-
ur en kannski bara
sumar stelpur," segir
Jóhann. „Það tengist
því eflaust líka að
mun fieiri karlmenn
eru að teikna
myndasögur en
konur og þeir
skapa því eflaust
heim sem höfðar
meira til stráka
en stelpna. Ofur-
hetjan er t.d.
hugsanlega
meira í hugar-
heimi stráka en
stelpna. Það er reyndar
gaman að minnast á í þessu sam-
bandi að á blómaskeiði myndasög-
unnar í Bandaríkjunum frá alda-
mótum fram til ca. 1935 var mynda-
sagan gríðarlega fjölbreytt og ekk-
ert verið að höfða til yngri lesenda
eða karlkyns frekar en annarra,“
segir Bjami. „Það breyttist með
myndasögublöðunum sem hófu
göngu sína árið 1935,“ segir Þorri.
- Nú virðast myndasögur í dag sí-
feilt höfða meira til eldri lesenda.
„Það hefur verið meira snobbað
fyrir því undanfarin ár,“ segir Þorri
„Þetta er samt kannski fyrst pg
fremst lýsing á ástandinu á Is-
landi,“ segir Halldór sem bendir á
að myndasagan eigi góðu gengi að
fagna hjá börnum í Frakklandi og
víðar. „Samt hafa þeir kvartað yfir
því í Frakklandi að ekki sé samið
nóg af góðum sögum fyrir böm,“
segir Bjami. „Mun líklegra er að
myndasögur lifí góðu
lífi ef böm
byrja á því
að lesa þær
og halda
síðan áfram
þegar á full-
orðinsárin
kemur,“ bæt-
ir hann við.
- En er von
á fleiri gisp!-
blöðum í fram-
tíðinni?
„Næsta blað
kemur út eftir
sex ár og það
verður algjört
snilldai-verk,“
segir Halldór við
hlátur hinna.
„Þessi bók nálgast
nú það að vera
snilld," segir Jó-
hann „en sú næsta
verður náttúmlega
toppurinn."
kiuki uhvou
Viö Dómklrkluna-Bimt 661 2040
Stjörnuspá á Netinu vl> mbl.is
ALLTA.f= e/TTH\SA& A/ÝT7