Morgunblaðið - 01.04.1999, Page 8
8 FIMMTUDAGUR 1. APRÍL 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
BLESSAÐUR jólasveinninn okkar virðist endanlega hafa farið í rugl eftir heimsókn
sína til bróður síns í Finnlandi.
Meirihlutinn ekki
sammála í borgarráði
FIMM borgarráðsfulltrúar sátu
hjá á fundi á þriðjudag, þar af
tveir fulltrúar meirihlutans við af-
greiðslu tillögu menningarmála-
nefndar um ráðningu Signýjar
Pálsdóttur í starf menningar-
málastjóra Reykjavíkurborgar.
Á fundinum lagði borgarstjóri
fram tillögu um að tillaga menn-
ingarmálanefndar um að Signý
yrði ráðin í starfið yrði samþykkt.
Við atkvæðagreiðslu fékk Signý
tvö atkvæði meirihlutans en tveir
fulltrúar sátu hjá og bókaði annar
þeirra, Helgi Hjörvar, að hann
teldi að ráða ætti annan umsækj-
anda, Bjarna Daníelsson, til
starfans. Þrír fulltrúar Sjálfstæð-
isflokks sátu einnig hjá og vísuðu
til fyrri bókunar í menningar-
málanefnd.
Engin önnur tillaga kom fram
um ráðningu annarra umsækj-
enda.
með 24 stöðva minni • Sound Morphing • RDS
Þriggja diska spilari • Hátalarar þrískiptir: 100W -17 sm bassi • Power Bass
Magnari: 2 x 100W RMS • Útvarp með 24 stöðva minni • Sound Morphing • RDS
Þriggja diska spilari • Hátalarar þrikiptir: 100W -16 sm bassi • Power Bass
begar hljónteekl sklpta máll
jS # 1 nEt. jt i ■ 'fv
3 ára ábyrgð
BRÆÐURN I R
Lógmúla 8 • Sími 533 2800
UMBOÐSMENN UM ALLT LAND
Nýskipaður ríkisiögmaður
Lögfræðiskrif-
stofa ríkisins
í einkamálum
málin
ríkis-
Ríkislögmaður fer
með vörn þeirra
mála sem höfðuð
eru á hendur ríkinu og
sókn í þeim einkamálum
sem ríkið höfðar á hend-
ur öðrum,“ segir Skarp-
héðinn Þórisson hæsta-
réttarlögmaður en for-
sætisráðherra . skipaði
hann nýlega í embætti
ríkislögmanns og tekur
hann við embættinu hinn
1. maí næstkomandi.
„Það má segja að
embætti ríkislögmanns
reki lögfræðiskrifstofu
ríkisins í einkamálum.
Það er gerður greinar-
munur á einkamálum og
opinberum málum. Sak-
sókn í opinberum málum
er í höndum lögreglu-
stjóra og ríkissaksóknara.
-Af hvaða toga eru
sem berast til embættis
lögmanns?
„Oft er um að ræða skaða-
bótamál og uppgjör bótakrafna
sem beint er að ríkissjóði. Enn-
fremur má nefna til dæmis ýmis
launa og réttindamál, mál sem
varða skattskyldu og jafnréttis-
mál þar sem í hlut eiga ríkis-
stofnanir.“
Skarphéðinn segir að auk um-
sjónar einkamála á hendur rík-
inu sinni embætti ríkislögmanns
einnig lögfræðilegri ráðgjöf fyr-
ir ráðherra um einstök málefni.
„Jafnframt getur ráðherra
leitað til embættisins um aðstoð
við flókna samningagerð. Fjórir
hæstaréttarlögmenn starfa hjá
ríkislögmanni."
- Hvernig leggst í þig að fara
að starfa hjá hinu opinbera eftir
að hafa verið sjálfstætt starf-
andi lögmaður síðastliðin 25 ár?
„Það leggst bara vel í mig og
ég mun að sjálfsögðu hætta sem
sjálfstætt starfandi lögmaður
þegar ég tek við embættinu í
maí næstkomandi.
Eg er á hinn bóginn búinn að
vera starfandi lögmaður í aldar-
fjórðung og þekki sviðið vel. St-
arf ríkislögmanns er því vænt-
anlega ekki mjög ólíkt því sem
ég hef hingað til verið að fást
við.“
- Hefur margt breyst í starfi
lögfræðings frá því þú hófst
störf fyrir 25 árum ?
„Lögmennska hefur breyst
mikið á þessum tíma. Mark-
aðslögmál skipta orðið meira máli
en áður og fagið er að sigla inn í
samkeppnisumhverfi sem mun
hafa enn frekari áhrif á lög-
mennsku í framtíð- ____________
Skarphéðinn Þórisson
►Skarpliéðinn Þórisson er fædd-
ur í Reykjavík árið 1948. Hann
lauk embættisprófi í lögfræði frá
lagadeild Háskóla Islands árið
1973 og lagði síðan stund á fram-
haldsnám í félagarétti í Noregi.
Skarphéðinn öðlaðist réttindi
til málflutnings fyrir héraðsdómi
árið 1975 og fyrir hæstarétti árið
1980. Hann starfaði um árabil
hjá Benedikt Sveinssyni lög-
manni en hefur rekið eigin lög-
fræðiskrifstofu frá árinu 1979 nú
síðast í samvinnu við Gísla Bald-
ur Garðarsson, Sigmund Hannes-
son, Friðjón Om Friðjónsson,
Maríu Thejll og Tómas Þorvalds-
son. Skarphéðinn hefur setið í
Samkeppnisráði síðastliðin fimm
ár.
Eiginkona hans er Sigrún I.
Sigurðardóttir ritari og eiga þau
þijú börn.
Skarphéðinn segir
að rekstur lögmanns-
stofu sé meira farinn
að líkjast fyrirtækja-
rekstri hvað varðar
almenna samkeppni ""
og markaðsleg starfsemi skiptir
mun meira máli en áður.
„Þá hefur tilkoma EES-samn-
ingsins haft gríðarleg áhrif á
störf lögfræðinga og Evrópu-
réttur í heild inni sett mark sitt
á þetta svið.“ Hann segir að lög-
menn hafi þurft að tileinka sér
evrópskar réttarreglur og
kynna sér það efni frá grunni.
„Islenska lagasafnið nægir ís-
lenskum lögfræðingum ekki
Islenska laga-
safnið nægir
íslenskum
lögfræðingum
ekki lengur
lengur, þeir þurfa að sækja við-
miðanir í auknum mæli til Evr-
ópu.“
-Lögmenn hafa þá þurft að
endurmennta sig að undan-
förnu?
„Lögfræðingar þurfa stöðugt
að endurmennta sig. Á síðustu
átta eða níu árum hefur íslenskt
réttarkerfi gjörbreyst og sá lög-
maður sem ætlar að lifa af í
þessum heimi þarf að fylgjast
með og lesa sér til því annars
verður þekking hans fljótt úr-
elt.“
Skarphéðinn segir að Netið
hafi líka gjörbreytt allri starf-
semi lögmanna. „Netið er orðið
hornsteinninn í rekstri lög-
mannastofa. Auk þess sem laga-
safnið er ávallt uppfært á Net-
inu þá er þar að finna dómasöfn,
fræðirit og greinar um aðskilj-
anlegustu hjálpargögn í faginu.“
_________ - Hvernig sérðu
fyrir þér embætti
ríkislögmanns á
næstu árum?
„Ég hef enn ekki
kynnt mér sérstak-
lega starfsemi emb-
ættisins en geri ráð
að tilkoma mín muni
för með sér neinar
fyrir því
ekki hafa í
stórvægilegar breytingar. Emb-
ættið mun áfram halda áfram að
þjóna umbjóðanda sínum eins vel
og hægt er.“
- Hvað gerír nýskipaður ríkis-
lögmaðurí tómstundum sínum?
„Ég hef mjög gaman af úti-
vist, fjallgöngum og skíða-
mennsku og síðan spila ég brids
reglulega í fimm manna hópi.“