Morgunblaðið - 01.04.1999, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 1. APRÍL 1999 15
FRÉTTIR
Hans Höglund framkvæmdastjóri Evrópudeildar Yolvo
Nýjungar á hverju ári
í flokki stórra bfla
„VOLVO mun kynna nýjungar ár-
lega næstu árin og þar er ég eink-
um að tala um stærri bflana en
með S80 erum við að sækja
ákveðnar inn á markað lúxusbfla
en verið hefur,“ segir Hans
Höglund, framkvæmdastjóri fólks-
bfladeildar Volvo, sem hefur aðset-
ur í Brussel, en hann var staddur
hérlendis á dögunum í tengslum
við frumsýningu Brimborgar á S80
bílnum frá Volvo.
„Við höfum verið sterkir í bílum
af millistærð, S40 og V40, en eins
og allir aðrir bílaframleiðendur
verðum við að vera tilbúnir með
nýjungar og endurbætur um leið
og sala á einni gerð tekur að
minnka, þá verður sú næsta að
taka við,“ sagði Hans Höglund og
lýsti hann ánægju sinni með hið
nýja húsnæði Brimborgar sem
tekið hefur verið í notkun.
„Með S80 erum við að keppa við
Mercedes Benz, BMW og Audi og
á nokkrum mörkuðum einnig
Saab. Við teljum okkur tefla fram
góðum bfl, í S80 eru ýmsar nýj-
ungar og má þar ekki ‘síst nefna
öryggisatriði eins og hliðarloftpúð-
ana og gardínur sem draga eiga
mjög úr meiðslum vegna hliðar-
högga.“
Fólksbfladeild Volvo skiptir
heiminum í fimm markaðssvæði og
í Evrópu starfa 22 fyrirtæki að
sölu Volvo bfla, 17 eru í eigu Volvo
en hinir eru sjálfstæðir umboðsað-
ilar eins og Brimborg á Islandi.
„Við gerum ráð fyrir að selja í ár
um 250 þúsund bíla í Evrópu og er
Svíþjóð, heimamarkaðurinn, sá
stærsti þar sem yfir fjórðungur
bflanna selst. Þýskaland er í öðru
sæti með um 42 þúsund bíla sölu
og þar varð aukning í fyrra.I Bret-
landi seldust um 40 þúsund bflar
en þar varð lækkun.“ Hans
Höglund segir Volvo fyrirtækið
alla tíð hafa stílað á framleiðslu
hins vehjulega fjölskyldubíls, fyr-
irtækið hafi jafnan kappkostað að
bjóða sterka og örugga bfla sem
henti ekki síst öllum fjölskyldum.
Aðalstöðvar fólksbíladeildar Volvo
eru sem fyrr segir í Brussel og
segir framkvæmdastjórinn hafa
verið ákveðið árið 1990 að hafa
þær þar til að vera sem næst stóru
markaðssvæðunum í miðri Evrópu
og verksmiðjum fyrirtækisins sem
eru bæði í Belgíu og Hollandi auk
verksmiðjanna í Svíþjóð.
Hagstætt samstarf Ford
og Volvo
Samstarf Volvo og Ford segir
Höglund hagstætt en hann segir
enga breytingu verða gagnvart
kaupendum Volvo bfla, þeir muni
eftir sem áður geta keypt Volvo
bfla undir merkjum Volvo: „Fram-
leiðsla Volvo bíla heldur áfram í
nafni dótturfyrirtækisins, aðsetrið
verður áfram í Gautaborg og Volvo
bflar verða áfram þróaðir. Með
þessu verður fyrirtækið hins vegar
sterkara, þróunarvinnan og rann-
sóknir verða öflugri og það á eftir
að skila kaupendum Volvo enn
betri framleiðslu," sagði Hans
Höglund og kvaðst að lokum ekki
vera hræddur um skörun eða að
fólk þurfi að velja milli bíla frá
Ford eða Volvo.
Morgunblaðið/Ásdís
HANS Höglund, framkvæmdastjóri Evrópudeildar Volvo fólksbila,
(t.h.) og Egill Jóhannsson, framkvæmdastjóri Brimborgar, eru hér við
nýja S80 bílinn. Þegar hafa verið seldir 11 slíkir bflar hérlendis.
Rýmri veitingatíma frestað
BORGARRÁÐ frestaði á þriðju-
dag afgreiðslu á ákvæði til reynslu
í eitt ár, sem gerir ráð fyrir rýmri
veitingatíma áfengis. Samþykkt
var að heimila veitingatíma lengst
fram til kl. 3 aðfaranótt laugar-
dags, sunnudags og almennra frí-
daga á tilgreindum svæðum í borg-
inni en veitingastöðum er jafn-
framt heimilt að hafa opið allan
sólarhringinn.
I drögum að málsmeðferðarregl-
um vegna vínveitingaleyfa sem
samþykkt hafa verið í borgarráði
segir m.a. að umsagnir lögreglu,
byggingarfulltrúa, heilbrigðiseftir-
lits og eldvarnaeftirlits skuli fylgja
umsóknum auk þeirra gagna, sem
áskilin eru í áfengislögum og
reglugerð. Gert er ráð fyrir að al-
mennt líði ekki lengri tími en 4-6
vikur frá því umsókn berst þar til
hún er afgreidd. Um staðsetningu
vínveitingastaða skal fara eftir
reglum sem borgarráð setur að
fenginni umsögn borgarskipulags
og skal leita umsagnar borgar-
skipulags um einstaka umsóknir.
I þjónustukjörnum á eða við
íbúðasvæði er heimilt að veita vín
til kl. 23.30 alla daga en til kl. 1 að-
faranótt laugardags, sunnudags
eða almenns frídags. Gæta skal al-
mennra ákvæða um helgidagafrið.
A miðborgarsvæði, miðhverfum,
verslunar-, þjónustu,- og stofnana-
svæðum auk athafna-, iðnaðar- og
hafnarsvæða er heimilt að veita
vín fram til kl. 1 alla daga og til kl.
3 aðfaranótt laugardags, sunnu-
dags eða almenns frídags. Jafn-
framt er heimilt að veita leyfi til
veitinga áfengis utan dyra en
aldrei lengur en til kl. 22 og skal
sækja sérstaklega um slík leyfí.
[VíMrA'
ALLIR SUZUKI BÍLAR ERU MEÐ:
• vökvastýri • 2 loftpúða •
aflmiklar vélar • samlæsingar
rafmagn i rúðum og speglum
• styrktarbita í hurðum •
• samlitaða stuðara •
ÞRIR EKTA JEPPAR - EITT MERKI
- og JIMNY fékk gullverðlaunin '98 í Japan fyrir
utlit, gæði, eiginleika og möguleika!
\RA GRAND VITARA
VERÐ: TEGUND: VERÐ:
1.580.000 KR. GR, VITARA 2,0 L 2.179.000 KR.
1.830.000 KR. GR.VITARA
2.180.000 KR. EXCLUSIVE 2,5 LV6 2.589.000 KR.
Komdu
og sestu inn
Skoðaðu verð
og gerðu samanburð
TEGUND: VERÐ:
Beinskiptur 1.399.000 KR.
Sjálfskiptur 1.519.000 KR.
TEGUND:
ILX SE 3d
JLXSE 5d
DIESEL 5d
SUZUKI BILAR HF
Skeifunni 17. Sími 568 51 00.
Heimasíða: www.suzukibilar.is
SUZUKI SÖLUUMBOÐ: Akranes: Ólafur G. Ólafsson, Garðabraut 2, sími 431 28 00. Akureyri: BSA hf., Laufásgötu 9, slmi 462 63 00. Egilsstaðir: Bíla- og búvélasalan hf„ Miðási
19, simi 471 20 11. Hafnarfjörður: Guðvarður Elíasson, Grænukinn 20, slmi 555 15 50. Isafjörður: Bilagarður ehf.,Grænagarði, sími 456 30 95. Keflavlk: BG bilakringlan, Grófinni
8, sími 421 12 00. Selfoss: Bilasala Suðurlands, Hrismýri 5, simi 482 37 00. Hvammstanga: Bíla- og búvélasalan, Melavegi 17, simi 451 26 17.
. Æi , V> V
■