Morgunblaðið - 01.04.1999, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 01.04.1999, Qupperneq 28
28 FIMMTUDAGUR 1. APRÍL 1999 MORGUNBLAÐIÐ UR VERINU Friðrik Pálsson, formaður stjórnar SIF Bjartsýnn á framtíð saltfísk- iðnaðarins „MÉR lízt vel á þetta verkefni. Ég kem inn í félagið í miklum upp- gangi. Það hefur verið að stækka og dafna. Sighvatur Bjamason, sem nú lætur af störfum sem stjórnarformaður, get- ur verið mjög stoltur af því að hætta með fé- lagið á þessum tíma,“ sagði Friðrik Pálsson, nýkjörinn formaður stjórnar SIF, í samtali við Morgunblaðið. Verður þú starfandi formaður stjórnar? „Nei, það verður engin breyting á starfssviði stjórnarfor- manns frá því sem ver- ið hefur. Félag af þess- ari stærð þarf á því að halda að stjórn og Friðrik stjórnarformaður sinni Pálsson hlutverki sínu gagn- vart hluthöfum um eftirlitsskyldu. Það er það sem ég horfi á sem mitt aðalhlutverk auk þess að vinna með stjórninni og framkvæmda- stjóra og öðrum starfsmönnum að framtíðarþróun félagsins og við- skiptum eftir því sem menn hafa vit til að koma góðum hlutum fram.“ Hvernig er að vera kominn til SÍF aftur eftir 13 ár hjá SH? „Ég hlýt að viðurkenna að þetta er svolítið skondin hugsun að vera kominn aftur í þetta návígi við salt- fiskmarkaðinn. Ég hafði mjög mikla ánægju af honum alla tíð. Það var aragrúi af litlum framleið- endum um allt land, sem ég náði mjög góðu sambandi við, nokkurs konar útvegsbændur. Þeir era að sjálfsögðu til enn þann dag í dag, en iðnaðurinn hefur breytzt mikið og hefur stækkað og dafnað. Nú eru fleiri og stærri fyrirtæki í þess- ari vinnslu. Markaðurinn er töluvert ólíkur frysti- markaðnum. Það er gífurlega rík neyzlu- hefð fyrir saltfiski í saltfiskneyzlulöndun- um og fyiár vikið virð- ist sem neytendur þar taki betur verðsveifl- um en gerist í frysta fiskinum. Ég er því af- skaplega bjartsýnn á framtíð saltfiskiðnað- arins í heild þó hann hljóti auðvitað að búa bæði við skin og skúrir eins og annar iðnað- ur.“ Nú er SH stór hlut- hafi í SIF. Má rekja formennsku þína til þess? „Ég hef fylgzt mjög vel með fé- laginu á undanförnum árum og haft mikla ánægju af að sjá hvað það hafi verið á góðri leið. Meðal annars þess vegna keypti SH veru- legan hlut í félaginu í fyrra og er nú annar af tveimur stærstu hlut- höfum þess. Ég lít ekki á mig sem fulltrúa neinna sérstakra hluthafa í stjórninni. Hlutirnir gerast gjarn- an þannig, þegar svona er, að það kemur upp eitthvert nafn. Síðan er farið að leita eftir stuðningi við það nafn. Ég held að stuðningur við mig hafi komið nokkuð víða að, enda er eignaraðildin að SÍF mjög dreifð. Ella hefði ég ekki léð þessa máls,“ segir Friðrik Pálsson. Fæst gefinshjá auglýsingastofunni Góðu fóiki milli klukkan 13 og 15 í dag. Fyrstir koma fyrstir fáí Minnum á nýtt símanúmei okkar 5 700 200. G 0 T T F 0 L K AUGLVSINGASTOFA Morgunblaðið/Árni Sæberg VIÐ upphaf fundar. Gunnar Orn Kristjánsson, framkvæmdastjóri SIF, Þorsteinn Pálsson, sjávarútvegsráð- herra, og Sighvatur Bjarnason, fráfarandi formaður stjórnar SIF. Markaðsverðmæti SIF tuttugufaldað á sex árum „ÞEGAR SÍF var gert að hlutafé- lagi 1993 var markaðsvirði hluta- fjár tæpar 300 milljónir króna. Það er nú ríflega 6.000 milljónir. Mark- aðsverðmæti félagsins hefur því meira en tuttugufaldast á þessu tímabili, sem hlýtur að teljast frá- bær árangur," sagði Sighvatur Bjarnason, fráfarandi formaður stjómar SÍF, meðal annars í skýrslu sinni til aðalfundar SIF í gær. Sighvatur lagði áherslu á að mikilvægur þáttur í sókn félagsins væri sú ákvörðun stjórnar að sækja fram í neytendamarkaðina í stað þess að fjárfesta í viðskipta- vinum á Islandi. „Við keyptum þekkingu á dreifingu kældra sjáv- arafurða, vörumerkja og svo fram- vegis með það fyrir augum að gera fyrirtækið öðruvísi en önnur og draga úr áhættu í rekstri og styrkja stöðuna gagnvart öðrum seljendum á saltfiski. Vöramerki félagsins era orðin leiðandi vöra- merki á franska markaðnum sem dæmi. SIF-samstæðan er stærsti aðilinn í framleiðslu og sölu á reyktri sfld í Frakklandi með um 60% markaðshlutdeild eftir að hafa einungis verið á markaðnum í níu ár,“ sagði Sighvatur. Sighvatur gat þess að eitt fyrsta verk hans sem stjórnarformanns hefði verið að ráða Gunnar Öm Kristjánsson sem framkvæmda- stjóra félagsins. Hann færði hon- um og starfsfólki SIF þakkir fyrir samstarfið svo og þeim sem átt Gengi hlutabréfa í SIF hækkaði um 40% í fyrra GENGI hlutabréfa í SIF hf. hækk- aði á árinu 1998 um 39,86% en gengi bréfanna var skráð í lok árs- ins 1997 á 4,20 samanborið við 5,86 í lok ársins 1998. „Gengisbreyting þessi verður að teljast mjög viðun- andi í ljósi þess að hlutabréfavísi- tala Verðbréfaþings Islands hækk- aði aðeins um 9,76% frá upphafi ársins til ársloka. Gengi bréfanna hefur síðan hækkað um tæp 28% það sem af er árinu 1999 og er gengið skráð 12. mars á 7,5. Á þessum sama tíma hefur vísitala hlutabréfa á Verðbréfaþingi Is- lands hækkað um 6,97%,“ segir meðal annars í skýrslu Gunnars Amar Kristjánssonar, fram- kvæmdastjóra SIF, til aðalfundar félagsins. Gunnar Örn fjallaði um starf- semina á síðasta ári, vinnslu, út- flutning, starfsemi dótturfyrir- tækja og aðra þætti. Um starfsemi móðurfélagsins segir svo í skýrslu hans: „Árið 1998 var hlutdeild saltfiskvinnslunnar í þorskafla sem veiddist á íslands- miðum um 42% og hafði þá minnk- að úr rúmum 48% árið 1997. Eins og fram kemur á meðfylgjandi súluritum er hlutdeild söltunar í hefldarafla fyrir árið 1998 um 42%. Þrátt fyrir lækkun frá árinu 1997 hefur söltunin enn vinninginn þeg- ar litið er á skiptingu eftir verkun- arstigum. Heildarvelta móðurfélagsins 1998 var 9.070 milljónir króna sam- anborið við 8.005 milljónir króna árið 1997. Veltuaukningin í íslensk- um krónum er því um 13,3% en verðmæti seldra sjávarafurða jókst hins vegar í erlendri mynt um Hringdu "úna^- mm No® wvvw.hoH.'s hafa sæti í stjórn fyrirtækisins með honum. „Störf mín í þágu SIF hafa jafnan verið skemmtileg og ég man tímana tvenna í sögu félagsins. Til- finningar mínar til þess era djúpar, En nú er kominn tími til að ljúka þessum kafla í lífi mínu. Ég hef starfað við saltfisk með einum eða öðrum hætti frá átta ára aldri og get sagt að lífið hafi verið saltfisk- ur fram á þennan dag. Ég kveð SÍF stoltur, enda tekið virkan þátt í gríðarlegum uppgangi fyrirtækisins, þar sem okkur hefur tekist að koma hugmyndum okkar í verk á afar skynsamlegan hátt. Verðandi' stjórnarformaður tekur við góðu búi og getur vonandi eflt fyrirtækið enn frekar á komandi áram,“ sagði Sighvatur Bjarnason. FASTEIGNASALA 14,88%. Hagnaður ársins, eins og fram kom hér að framan, jókst um 226%, úr 156 milljónum árið 1997 í 509 milljónir á síðasta ári. Veltufé frá rekstri jókst úr 144 milljónum árið 1997 í 166 milljónir árið 1998 eða um 15%. Arðsemi eigin fjár var eins og áður sagði 24% árið 1998 saman- borið við 11% árið 1997. í árslok var eigið fé 2.487 milljónir og hafði þá aukist úr 1.423 milljónum í upp- hafi árs eða um 75%. Eiginfjárhlut- fall jókst úr 35,5% í lok ársins 1997 í 47% í lok ársins 1998. Innra virði hlutafjár jókst úr 2,21 í lok ársins 1997 í 3,16 í lok ársins 1998. Veltu- fjárhlutfall jókst einnig á milli ára, fór úr 1,22 í lok ársins 1997 í 1,26 í árslok 1998. Sala SÍF hf. á síðasta ári var um 28.702 tonn en var 27.850 tonn árið 1997 og er það um 3% aukning. Út- flutningur á árinu 1998 dreifðist til 18 landa. Helstu löndin era eins og áður Portúgal, Frakkland, Spánn, Italía og Kanada. Endanlegt skila- verð til framleiðenda sem hlutfall af endanlegu söluverði hélt áfram að hækka á árinu 1998. Þannig hef- ur hlutfallið hækkað öll árin frá því að SÍF var breytt í hlutafélag."
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.