Morgunblaðið - 01.04.1999, Qupperneq 56
<#8 FIMMTUDAGUR 1. APRÍL 1999
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ
+
Elskulegur faðir minn, tengdafaðir, bróðir okk-
ar og afi,
ÁKI JÓHANNES KARLSSON
frá Eyvík,
Tjörneshreppi,
sem lést sunnudaginn 28. mars, verður jarð-
sunginn frá Húsavíkurkirkju miðvikudaginn
7. apríl kl. 14.00.
Ævar Ákason, Þóranna Jónsdóttir,
Kristján Karlsson, Elísabet Jónasdóttir,
Svava Björg Karlsdóttir, Hinrik Þórarinsson,
Gunnsteinn Karlsson, Erla Eggertsdóttir
og barnabörn.
t
Ástkær bróðir okkar, mágur og frændi,
ÞÓRIR LEIFSSON,
Gullsmára 11,
Kópavogi,
sem lést fimmtudaginn 25. mars, verður
jarðsunginn frá Akureyrarkirkju föstudaginn
9. apríl kl. 13.30.
Minningarathöfn verður haldin í Vídalínskirkju,
Garðabæ, þriðjudaginn 6. apríl kl. 13.30.
Kristjana Leifsdóttir, Þorsteinn Sigurðsson,
Þorsteinn Leifsson, Hrafnhildur Baldvinsdóttir,
Þröstur Leifsson, Sigurbjörg Jóhannesdóttir,
systkinabörn og systkinabarnabörn.
+
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
GISSUR JÓNSSON
frá Valadal,
verður jarðsunginn frá Víðimýrarkirkju laugar-
daginn 3. apríl, kl. 14.00.
Valdís Gissurardóttir,
Jón Gissurarson,
Friðrik Gissurarson,
Kristján Gissurarson,
Stefán Gissurarson,
tengdadætur, barnabörn og barnabarnabörn.
+
HÖRÐUR EINARSSON
tannlæknir,
Faxatúni 9,
Garðabæ,
verður jarðsunginn miövikudaginn 7. apríl kl.
13.30. Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á
Félag nýrnasjúkra, s. 568 1865 og 560 1889.
Sigríður Antonsdóttir,
Guðfinna Harðardóttir, Hafsteinn Gunnar Jónsson,
Hrafnkell Harðarson
og barnabörn.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útfarir
foreldra okkar, tengdaforeldra, ömmu og afa,
ELÍSABETAR SIGURÐARDÓTTUR OG PÁLS ÞORGEIRSSONAR,
Grandavegi 47.
Þorgeir Pálsson, Anna Snjólaug Haraldsdóttir,
Hekla Pálsdóttir,
Sigrún Þorgeirsdóttir,
Björgvin B.B. Schram,
Elísabet Þorgeirsdóttir,
Brynhildur Þorgeirsdóttir,
Brynjólfur Páll Schram,
Arnaldur Geir Schram.
ÞORLEIFUR
EINARSSON
sér mjög annt um, enda var hann
formaður og helsti talsmaður um-
hverfissamtakanna Landverndar í
um áratug og vann þeim samtökum
allt sem hann mátti. Hann var einn
af hvatamönnum að stofnun Poka-
sjóðsins sáluga og barðist fyrir upp-
töku skilagjalds á drykkjarumbúð-
um svo dæmi séu nefnd.
Þorleifur var ekki alltaf auðveld-
ur í samskiptum og mátti stundum
greina óþohnmæði hjá honum ef ná-
lægir voru ekki jafn fljótir að hugsa
og greina kjarnann í viðfangsefn-
inu, enda komst hann þá stundum á
flug. Þorleifur var ákafamaður í
þeim málum sem hann hafði áhuga
á og unni sér þá engrar hvfldar
meðan eitthvað var enn óunnið í
þeim efnum. Hann var mjög rök-
fastur og hirti lítt um stundarvin-
sældir og taldi að síðari tímar
myndu sýna að hann hefði haft á
réttu að standa í málum sem styr
stóð um. Þá gat komið fyrir að hann
stigi á tær samferðamanna sinna
sem þoldu honum það misjafnlega
vel.
Við Sigríður sendum Ástu, Ktist-
ínu, Einari og Björk og fjölskyldum
þeirra svo og Gudrunu okkar inni-
legustu samúðarkveðjur.
Kristinn J. Albertsson.
Það eru tæpir þrír áratugir síðan
ég kynntist Þorieifi Einarssyni
fyrst, en með tímanum varð sam-
starf okkar allnáið, enda unnum við
á sömu stofnun svo að segja hlið við
hlið og höfðum ætíð mikil samskipti.
Við vorum ekki alltaf sammála og
sátum ekki inni á gafli hvor hjá öðr-
um löngum kvöldstundum, en samt
tel ég Þorleif til bestu vina minna.
Það varð mér til happs að kynnast
honum þegar ég var nýkominn frá
námi erlendis og vissi ennþá minna
en ég veit nú um jarðfræði Islands.
í fjölmörgum ferðum okkar um
landið kenndi hann mér meira um
jarðfræði þess en nokkur annar. Eg
held að nú sé kominn tími til þess að
þakka fyrir þá kennslu og þann
stuðning sem Þorleifur var alltaf
óþreytandi að sýna mér.
Þorleifur var mikill náttúrufræð-
ingur og ennþá meiri jarðfræðing-
ur. Hann var prýðilega menntaður í
jarðfræði, en þar að auki hafði hann
mikla tilfinningu fyrir landinu og
átti mjög auðvelt með að skilja sam-
hengið í náttúrunni. Því var hann
ætíð fljótur að átta sig á myndunar-
sögu og aldursafstöðu þegar hann
fékkst við jarðfræðilegar rannsókn-
ir. Rannsóknarstörf Þorleifs voru
aðallega tvíþætt, annars vegar
grunnrannsóknir og hins vegar hag-
nýtar rannsóknir. I grunnrannsókn-
um sínum kom hann víða við, en þar
skal einkum bent á rannsóknir í
loftslags- og gróðurfarssögu Islands
á ísöld og nútíma, jarðlagafræði ís-
aldar, einkum á Tjörnesi og Snæ-
fellsnesi, rannsóknir í eldfjallafræði
á Hellisheiði og víðar og rannsóknir
á eldgosum, einkum Öskjugosinu
1961, Surtseyjargosinu 1963-67 og
Heimaeyjargosinu 1973. Þorleifui-
vann að hagnýtum rannsóknum við
Sigöldu 1959, Búrfell 1960 og Eíri-
Þjórsá 1962-65, við vegajarðgöng í
Strákum við Siglufjörð 1963-67 og í
Oddsskarði 1964-74, við hafnar-
framkvæmdir í Sundahöfn og
Skipulag Reykjavíkur 1962-63.
Hann tók einnig virkan þátt í hag-
nýtum gosefnarannsóknum
1972-78. Þá hafði hann um tíma eft-
irlit með mannvirkjagerð fyrir
Náttúruverndarráð, einkum á Suð-
vestur- og Suðurlandi.
Þorleifur hefur skrifað mikið um
rannsóknir sínar og eru sumar
gi-einar hans vel þekkt grundvallar-
rit. Má þar nefna doktorsritgerð
hans um gróður- og loftslagssögu
frá lokum síðasta jökulskeiðs og nú-
tíma, sem hann rakti með frjógrein-
ingu íslenskra mómýra. Jarðlaga-
fræðileg skipting þessara tíma-
skeiða á íslandi hefur siðan að
mestu leyti byggst á niðurstöðum
hans. Ein þekktasta grein Þorleifs
er um segulmælingar á hraunlögum
á Tjörnesi, en þar tókst honum
ásamt tveimur bandarískum jarð-
fræðingum að aldursákvarða Tjör-
neslögin miklu nákvæmar en áður
hafði verið gert. Niðurstöður þeirra
félaga höfðu mikil áhrif á alþjóðlega
umræðu um lok tertíers og byrjun
kvarters, en mörkin milli þessara
tveggja síðustu tímabila jarðsög-
unnar hafa lengi verið hálfgert
þrætuepli jarðfræðinga. Þorleifur
skrifaði ágætar bækur um gosin í
Surtsey og Heimaey og voru þær
gefnar út á fimm tungumálum.
Mesta ritverk Þorleifs er þó vafa-
laust bókin Jarðfræði - saga bergs
og lands, sem fyrst kom út í
Reykjavík 1968, og er nú komin í
sex útgáfum og síðasta útgáfan
einnig á ensku og þýsku. Þar tók
þorleifur saman greinargott yfirlit
yfir jarðfræði landsins og er óhætt
að fullyrða að bókin bætti úr brýnni
þörf. Þar var komið rit sem var allt í
senn; kennslubók, alþýðlegt fræði-
rit, uppsláttarrit og vegvísir. Mjög
góð tök hans á íslensku koma vel
fram í bókinni, enda hef ég allgóðar
heimildir fjTÍr því að Halldór Lax-
ness hafi lýst því yfir eftir lestur
bókarinnar að Þorleifur væri rithöf-
undur. Halldóri þótti betra en ekki
að fletta upp í bók Þorleifs þegar
hann lauk við Kristnihald undir
Jökli eftir því sem hann sagði sjálf-
ur.
Þorleifur hélt fjölda fyrirlestra
um jarðfræðileg efni á fundum og
ráðstefnum hér heima, á alþjóða-
ráðstefnum og í háskólum víða um
heim; á Norðurlöndum, í Rússlandi,
Þýskalandi, Englandi, Bandaríkjun-
um og Nýja-Sjálandi, svo einhver
lönd séu nefnd. Hann var manna
víðförlastur og fáir ef nokkrir ís-
lenskir jarðfræðingar voru betur að
sér í jarðfræði og jarðsögu annarra
landa.
Þorleifur var mjög sjálfstæður
persónuleiki og ákveðinn í skoðun-
um. Hann var samt félagslyndur og
því voru honum falin margvísleg
störf í ýmsum félögum. Þá kemur
okkur síður á óvart að sú íþrótta-
grein, sem Þorleifur stundaði mest,
er hin dæmigerða hópíþrótt hand-
bolti og um tíma lék hann með ís-
+
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim, sem
sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og
útför systur okkar og mágkonu,
SIGRÍÐAR STEINUNNAR
JÓHANNESDÓTTUR,
sem lést föstudaginn 19. mars sl.
Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki á dvalar-
heimilinu Hlíð og Sjúkrahúsi Akureyrar fyrir góða
umönnun.
Ólafía Jóhannesdóttir,
Magnús Jóhannesson, Guðrún E. Ólafsdóttir.
+
Systir okkar og mágkona,
STEINUNN I. GUÐJÓNSDÓTTIR,
Norðurbrún 1,
verður jarðsungin frá Hafnarfjarðarkirkju mið-
vikudaginn 7. apríl kl. 13.30.
Bryndís Guðjónsdóttir, Þorlákur Guðmundsson,
Hrafnhildur Guðjónsdóttir, Betúel Betúelsson.
+
Alúðarþakkir til ailra þeirra sem sýndu okkur
samúð og vinarhug við andlát og útför hjart-
kærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
JÓNÍNU SIGRÍÐAR JÓNSDÓTTUR,
Austurbrún 4,
Reykjavfk,
fyrrum húsfreyju í Beykishúsi á ísafirði.
Sérstakar kærar þakkir eru færðar læknum, hjúkrunarfræðingum og
samstarfsfólki deildar 4-A á Borgarspítalanum og deildar 14-G á Land-
spítalanum fyrir nærfærna læknishjálp og aðhlynningu í veikindum hinn-
ar látnu.
Guðmundur Kr. Kjartansson, Kristín F. Hermundardóttir,
Kjartan P. Kjartansson, Sigríður Nikulásdóttir,
Jón S. Kjartansson, Kolbrún Karlsdóttir,
Guðfinnur R. Kjartansson, Erla B. Axelsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkirtil allra, sem sýndu okkur sam-
úð og vinarhug við andlát og útför
GUÐFINNU ÞORLEIFSDÓTTUR,
Grenimel 5,
Reykjavfk.
Jónína Halldórsdóttir, Axel Sigurðsson,
Garðar Halldórsson, Lovísa Ölversdóttir,
Dagbjört Halldórsdóttir, Kristinn Erlendsson,
barnabörn og barnabarnabarn.