Morgunblaðið - 01.04.1999, Side 71

Morgunblaðið - 01.04.1999, Side 71
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. APRÍL 1999 71 FÓLK í FRÉTTUM Tískusýning í Kringlunni Framkomu- og fyrir- sætunámskeið með fíkniefnafræðsli UNGMENNI sem höfðu lokið sjö vikna námskeiði hjá fyrirtækinu Castíng sýndu föt frá Sautján og Smasli í Kringlunni siðastliðinn föstu- dag. „Castíng er fyrir- sætuskrifstofa sem sérhæfir sig í að hafa fölk á öllum aldri og alls konar týpur á skrá,“ sagði Andrea Brabin, annar eigandi og framkvæmdastjöri Casting. „Við höfum verið að aðstoða við ieikaraval í biomyndir og fyrir sjönvarp, bæði á erlendum og innlendum markaði," bætti hún við. Ungmennin sem sýndu í Ki'inglunni voru öll að stíga sín fyrstu spor sem sýningarfólk. „Við köllum námskeiðið framkomu- og fyrirsætunám- skeið, því það er ekki ein- göngu ætlað stúlkum sem vilja verða fyrirsætur. A námskeiðinu er lögð áhersla á fram- komu og eflingu sjálfsöryggis en einnig er Ieiðbeint ineð förðun og fataval,“ sagði Andrea. „Á námskeiðinu er svo fíkniefna- fræðsla á vegum Hins hússins, leikræn tjáning og kennsla í hvernig vinna á fyrir framan myndavél svo eitthvað sé nefnt.“ Aðeins einn piltur sótti námskeiðið að þessu sinni svo ástæða er til að hvetja fleiri til dáða enda er náinskeiðið ætlað ungu fólki af báðum kynjum. KVIKMYNDIR/Háskólabíó sýnir myndina A Soldier’s Daughter Never Críes, með þeim Kris Kristofferson, Barböru Hershey og Leelee Sobieski. Bitið á jaxlinn GUNNAR Ingi Þorsteins- son var eini strákurinn á námskeiði Casthigs og stóð sig vel á tískusýning- unni. ÍS55S? Frumsýning ÞEIR Ismael Merchant og James Ivory eru sjálfsagt þekktastir fyrir þær kvik- myndir sínar sem gerðar eru eftir sögum sem gerast á Englandi, en meðal þeirra eru A Room With a Vi- ew, Howard’s End og The Remains of the Day. Þeim þótti heldur fatast flugið þegar þeir gerðu myndirnar Jefferson In Paris og Surviving Picasso, enda voru þeir þá ekki á sömu slóðum og í íyrri myndum sín- um. í myndinni A Soldier’s Daughter Never Cries hafa þeir Merchant og Ivory beint sjónum að tímabilinu í kringum 1970, og sem oftast fyrr skrifar Ruth Prawer Jhabvala hand- rit myndarinnar fyrh' þá, en í þetta sinn lagði James Ivory einnig hönd á plóginn við skriftirnar. Myndin er gerð eftir sjálfsævisögulegri bók Ka- ylie Jones, sem er dóttir rithöfundar- ins James Jones, en hann skrifaði stríðssögurnar From Here to Etem- ity og The Thin Red Line, sem eins og kunnugt er hafa báðar verið kvik- myndaðar. I myndinni er sögð saga banda- rískrar fjölskyldu sem búsett er í París á sjöunda áratugnum. Faðirinn (Kris Kristofferson) er rithöfundur og fyrrverandi hermaður, góðhjart- aður en kjaftfor, og móðirin (Barbara Hershey) er lífsglöð og tilfinningarík. Þau eiga saman dótturina Channa, sem leikin er af Leelee Sobieski. Það er í gegnum hennar augu sem áhorf- andinn upplifir söguna sem spannar tvo áratugi og gerist beggja vegna Atlantshafs. Fylgst er með þroska- ferli Channa og hinum ættleidda bróður hennar, Billy (Jesse Brad- ford), í París sjöunda ára- tugarins, en þar kemur meðal annarra við sögu sér- vitur kontratenór sem er vinur Channa. Fjölskyldan neyðist til að flytja heim til Bandaríkjanna snemma á áttunda ára- tugnum vegna veikinda föðurins og við heim- komuna verður fjöl- skyldan fyrir menning- arlegu áfalli, en í myndinni eru straum- um og stefnum í tónlist, tísku og stjómmálum þessa tímabils gerð góð skil. Kris Kristofferson leikur föðurinn í myndinni A Soldier’s Daughter Never Cries, en hann á sér fyrir- mynd í rithöfundinum James Jones. Kris, sem er þekktur söngvari og lagasmiður auk þess að vera leikari, er fæddur 22. júní árið 1936 í Brownsville í Texas, skammt frá landamærunum að Mexíkó, og hann lærði að tala spænsku áður en hann lærði að tala ensku. Pabbi hans var yfirmaður í bandaríska flughernum og var fjölskyldan á eilífum flækingi allt eftir þvi hvar hann þurfti að starfa hverju sinni, og skólagöngu sinni lauk Kris að lokum í San Mateo í Kalifomíu. Þetta flökkulíf setti mark sitt á hann og hefur hann lagt ófáa kílómetrana að baki í hljóm- leikaferðum allt frá því árið 1970 þegar lögin hans náðu hvað mestum vinsældum, t.d. lögin Me and Bobby McGee og Help Me Make It Through The Night. Síðan þá hefur Kris farið nánast á hverju ári í hljómleikaferð og upp á síðkastið sem meðlimur í hljómsveitinni The Highwaymen BARBARA ,, ________ Jesse íí We^ev , . , ,l,<^ ásamt ævagömlum vinum sínum, þeim Willie Nelson, Johnny Cash og Waylon Jennings. Kris lauk á sínum tíma háskólaprófi í bókmenntum og hlaut eftirsóttan styrk til að stunda nám við Oxford-háskóla. Að námi þar loknu var hann um skeið flugmaður í bandaríska hemum, en fluttist svo til Nashville til að reyna að koma undir sig fótunum þar sem lagasmiður og tónlistarmaður. Það liðu aðeins fáein ár þar til hann sló í gegn með laginu Sunday Moming Coming Down, sem var valið sveitasöngur ársins 1970 og jafnframt var Kris valinn lagahöf- * undur ársins. Kvikmyndaferilinn hóf Kris árið 1971 en hátindinum á þess- um ámm náði hann í myndinni Á St- ar Is Born þar sem hann lék á móti Barböm Streisand og hlaut hann Golden Globe-verðlaunin sem besti leikari fyrir frammistöðu sína. Ferill hans færðist hins vegar smátt og smátt af hvíta tjaldinu yfir á sjón- varpsskjáinn, eða þar til árið 1996 er hann lék í myndinni Lone Star sem færði honum á ný frama á hvíta tjald- inu. Síðan hefur hann m.a. leikið í myndunum Blade, Dance With Me.- og Payback. NYTT UTLIT NÝJARVÖRUR VERO M Laugavegi 95 • Kringlunni

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.