Morgunblaðið - 08.04.1999, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 08.04.1999, Blaðsíða 4
4 FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR ÞRÁTT fyrir talsvert meiri inn- fiutning á nýjum fólksbílum til landsins síðustu þrjú ár en árin þar á undan virðist ekki hafa skap- ást vandamál með endursölu á not- uðum bílum. Líklegt er talið að verðmæti notaðra bíla sem nú eru á bílasölum í landinu geti numið 5-7 milljörðum króna ef miðað er við að meðalverðið sé nálægt 700-800 þúsund krónum. Viðmælendur Morgunblaðsins segja að það gleymist oft í þessari umræðu að hátt í 50 þúsund fólks- bílar af heildarfólksbílaflotanum, sem í árslok 1998 taldi rúmlega 140 þúsund bíla, eru af stói-u ár- göngunum, 1986-1988. Þessir bílar séu nú að týna tölunni og sumir telja að búast megi við meiri af- skriftum á þessum árgerðum á næstunni en áður. Upp úr 1990 var um 8% af bílaflotanum afskráður á ári en ekki nema um 3% á árí sl. 2-3 ár og hefur það komið mönn- um í bílgreininni á óvart. Meðalaldur bfla lækkað Aukinn innflutningur á nýjum fólksbílum, með tilheyrandi skrán- ingarbreytingum á notuðum bíl- um, geri samt ekki annað en að fylla í skörð eldri afskráðra bíla. Forsvarsmenn bílaumboðanna telja að mikill vöxtur í bílasölu það sem af er árinu, 45% fyrstu þrjá mánuðina og 75% í marsmánuði miðað við sama mánuð í fyrra, gefí ekki fyrirheit um árið í heild. Sumir telja líklegast að salan verði svipuð og í fyrra en aðrir gera ráð fyiir lítilsháttar aukn- ingu. Söluaukningin undanfarin ár hefur engu að síður leitt til þess að meðalaldur bílaflotans hefur lækkað úr 9,2 árum 1997 í 8,8 ár á síðasta ári. Lægð var í bílainnflutningi allt frá 1989 til 1996 ef árið 1991 er undanskilið. Að meðaltali voru fluttir inn á þessum árum um 6.200 bílar. Árið 1996 seldust 8.042 bílar, 10.146 árið 1997 og 13.599 bílar í fyrra. Meðalsala þessara þriggja ára var því tæplega 10.600 bflar og 11.872 á síðustu tveimur árum. Það sem af er þessu ári hafa selst 3.784 fólksbílar, eða 1.261 bfll að meðaltali á mánuði. Miðað við óbreytt ástand yrði heildarsala á nýjum fólksbílum á árinu 15.132 Innflutningur nýrra bifreiða 1971-98 20.000 18.000 16.000 14.000 12.000 10.000 8.000 6.000 4.000 2.000 0 Fólksb. og hópf.bílar (1971-87) Fólksbilar (1988-1998) Aðrir bílar r—i uuu —j 1-1 - 1971 1975 1980 1985 1990 1995 1998 Meðalaldur fólks- bifreiða 1988-98 75% aukning í sölu á nýjum bflum í marsmánuði Tímabundið skot eða stöðug söluaukning? Aukinn innflutningur á nýjum bílum virðist ekki hafa hægt á sölu á notuðum bílum. Guðjón Guðmundsson skoðaði markaðinn og komst að því að verðmæti notaðra bíla sem eru á bílasölum landsins gæti numið 5-7 milljörðum króna. bílar. Þetta telja forsvarsmenn bílaumboðanna afar ólíklega niður- stöðu. „Ég held að það séu ekki for- sendur fyrir því að það verði svona mikil aukning áfram. Við gerðum ráð fyrir því að hún yrði einhver fram eftir árinu en höfum lítið vilj- að gefa upp um seinni hluta ársins. Margir hafa talið að aukningin yrði 10-15% á ársgrundvelli en hugsanlega gæti hún dreifst þannig að hún yrði meiri fyiTÍ hluta árs en svipuð aukning á seinni hluta ársins og hún var allt árið í fyrra,“ segir Bogi Pálsson, formaður Bílgreinasambandsins og forstjóri P. Samúelssonar. Bogi hefur ekki trú á því að mikla söluaukningu fyrstu þrjá mánuði ársins megi rekja til kom- andi Alþingiskosninga en bendir á að mikið hafi verið um kynning- ar á nýjum bílum það sem af er árinu og mikil samkeppni sé á markaðnum. „Mér finnst þó ekki ólíklegt að menn hugsi með sér að frekara aðhald verði í peninga- málum eftir kosningar og þjóðin verði hvött til aukins sparnaðar, en ég hef ekki trú á því að breyt- ingar verði gerðar á vörugjöld- um.“ Lifnað yfír sölu á notuðuni bflum Jónas Þór Steinarsson, fram- kvæmdastjóri Bflgreinasambands- ins, bendir á að ástæður fyrir auk- inni bílasölu megi m.a. skýra með auðveldari lánafyrirgreiðslu, ytri aðstæður séu breyttar og upp- sveifla sé í þjóðfélaginu. Bílgreina- sambandið spáði því í byrjun árs að söluaukning milli ára yi’ði um 14%. Jónas Þór segir að spár margra bílaumboða hafí verið svip- aðar. Olíkt því sem margir hefðu ætl- að hefur lifnað yfir sölu á notuðum bflum. Hjá P. Samúelssyni jókst sala á notuðum bflum sl. tvo mán- uði þrátt fyrir stóraukna sölu á nýjum bflum. Bogi Pálsson segir að staða á notuðum bflum hafi ekki vaxið í takt við söluaukningu á nýj- um bflum. Margir viðskiptavinir Morgunblaðið/Golli BJÖRN Bjarnason menntamálaráðherra kynnir nýja leikskólastefnu á leikskólanum Mánabrekku á Seltjarnamesi. 1993 var sett svokölluð uppeld- isáætlun fyrir leikskóla og eft- ir henni hefur verið starfað síðan. Segja má að í því felist veruleg stefnumörkun og stefnubreyting af hálfu ráðu- neytisins að hafa ekki lengur uppeldisáætlun heldur aðal- námskrá fyrir leikskóla. Þannig eru tekin af öll tvímæli um það að ieikskólinn er hluti af hinu almenna skólakerfi okkar og fyrsta skólastigið," sagði menntamálaráðherra. Fyrsta námskráin fyrir leikskóla BJÖRN Bjarnason menntamála- ráðherra kynnti í gær nýja leik- skólastefnu undir heitinu Enn betri leikskóli. Þetta er í fyrsta sinn sem mörkuð er sérstök skólastefna fyrir leikskólastigið. Kynningarrit um nýja leikskóla- stefnu verður send skólum og öllum foreldrum barna á aldrin- um 0-5 ára. Enn betri skóli er kjörorð nýrrar skólastefnu sem mótuð hefur verið á vegum mennta- málaráðherra og tekur hún til leikskóla, grunnskóla og fram- haldsskóla. Námskrár þessara þriggja skólastiga hafa verið endurskoðaðar til að ná mark- miðum nýrrar skólastefnu. Sam- eiginleg endurskoðun á að tryggja eðlilegt samhengi á milli náms í Ieikskóla og grunnskóla annars vegar og grunnskóla og framhaldsskóla liins vegar og samfellda stígandi frá upphafí leikskólagöngu til námsloka í framhaldsskóla. Gildi leikskólans áréttað í máli menntamálaráðherra kom fram að um níu af hverjum tíu börnum hér á landi hafa ver- ið í Ieikskóla áður en þau hefja nám í grunnskóla. Leikskólinn sé grunnurinn að öllu skóla- starfi. Með kynningarritinu sé gildi leikskólans og gildi þess starfs sem þar er unnið áréttað. Áhersluatriði námskrár fyrir leikskóla eru í sex liðum, þ.e. heilsa og hreyfing, mál og málörvun, myndsköpun og myndmál, tónlist og tónlistariðk- un, náttúran og umhverfið og menning og samfélag. „Rétt er að minnast þess að heimilisbankinn www.bi.is a rettn ókeypis aðgangur til ársins 2000 'tfP ®BÚNAÐARBANKINN Skíma Traustur bartki fyrirtækisins eru að bæta við bfl á heimilið þannig að oft sé ekki um skipti að ræða. Töluvert hafi einnig borið á þessu síðast þegar vel áraði í efnahagsmálum þjóðar- innar. Vandamál í sölu notaðra bíla hafi síðan komið upp 1992-1995 þegar niðursveifla kom í efnahag- inn og þjóðin vildi fækka bflum á heimilunum. Jón Ragnarsson, bílasali hjá Bílahöllinni, segir að sala á notuð- um bílum sé ósköp svipuð og hún hefur verið undanfarin misseri þrátt fyrir mikla söluaukningu á notuðum bflum. „Það fer svo stór hluti af notuðum bflum inn í um- boðin en fyrir hinn almenna bíla- sala held ég að sé hægt að tala um meðalárferði," segir Jón. „Markaður fyrir alla þessa bfla“ Bflasölur á Stór-Reykjavíkur- svæðinu eru um 40 að tölu fyrir ut- an umboðin. Jón telur að hátt í 10.000 notaðir bílar séu til sölu á öllu landinu og hugsanlega um 7 þúsund bflar á Stór-Reykjavíkur- svæðinu. Meðalverð á notuðum bíl- um sé ekki undir 700-800 þúsund krónum. Ætla megi að það liggi 5-7 milljarðar ki'óna í notuðum bfl- um á bílasölum landsins. „Sannleikurinn er sá að það er markaður fyrir alla þessa bíla. 10-12 þúsund bfla sala á ári er eðlileg því það fara a.m.k. út 1.500-2.000 bflar á ári í afskriftir. Það er afskráð mjög mikið núna og 1986-1988 árgangarnii- eru að detta út í stórum stíl. Ég hef hins vegar enga trú á því að það verði söluaukning á nýjum bflum á þessu ári. Þetta er líklega bara skot núna,“ segir Jón. Staðan er misjöfn hjá bílaum- boðunum hvað varðar lagerstöðu á notuðum bílum. Gylfi Gunnarsson, framkvæmdastjóri Honda-um- boðsins, kveðst telja að umboðin eigi hátt í 2.500 notaða bfla, sem er svipuð staða og undanfarin 2-3 ár. „Við eigum yfirleitt notaða bíla sem er um 10% af heildarsölunni á ári. Það er ágæt staða en ég veit að þetta hlutfall er hjá sumum um- boðum 15-20%. 20% af um 14.000 bílum, sem var heildarsala nýrra bíla á síðasta ári, er um 2.800 not- aðir bflar,“ segir Gylfi. Yélsleða- maður fannst heill á húfí STARFSMAÐUR Lands- virkjunar á biluðum vélsleða fannst heill á húfi milli klukk- an 15 og 16 í gær við Laugar- fell, vestan Jökulsár í Fljóts- dal í Norður-Múlasýslu. Sex manns úr Hjálparsveit skáta á Héraði og félagar úr Björg- unarsveitinni Gró á Egilsstöð- um höfðu þá leitað mannsins. Gerði vart við sig með talstöð Maðurinn gat gert vart við sig með talstöð, sem hann hafði fengið lánaða. Leitai-- menn voru kallaðir út klukkan 13.45. Samband náðist við manninn um klukkan 14.30 og kom þá í ljós að ekkert amaði að honum. Maðurinn hafði verið í sam- floti með öðrum starfsmanni Landsvirkjunar sem var á jeppa á leið inn í Eyjabakka. Vélsleðamaðurinn hugðist aka sleða sínum inn að Kárahnúk- um en sleðinn bilaði skömmu eftir að leiðir þeirra skildu í nágrenni við Laugarfell. Við leitina gekk á með dimmum éljum, en veður var þó betra en leitarmenn höfðu búist við.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.