Morgunblaðið - 08.04.1999, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 08.04.1999, Blaðsíða 12
12 FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Flokkarnir undirbúa kosningabaráttuna fyrir alþingiskosningarnar í vor Reykj aneskjördæmi Biiist er við auknum þunga eftir næstu helgi SEX stjórnmálaflokkar bjóða fram lista í öllum átta kjördæmum lands- ins fyrir alþingiskosningarnar í vor. Þeir eru D-listi Sjálfstæðisflokks, B- listi Framsóknarflokks, F-listi Frjálslynda flokksins, H-listi Húmanistaflokks, S-listi Samfylking- arinnar og U-listi Vinstrihreyfmgar- innar - Græns framboðs. Auk þess hefur Kristilegi lýðræðisflokkurinn kynnt framboðslista í Reykjavíkur- kjördæmi og boðað lista í Reykja- neskjördæmi. Enn gætu þó fleiri framboð komið fram því framboðs- frestur rennur út 23. apríl nk. Flokkarnú' sem bjóða fram á lands- vísu hafa kynnt framboðslista í öllum kjördæmum landsins og búið er að opna kosningamiðstöðvar þeirra víða um land. Fleiri slíkar miðstöðvar verða opnaðar á næstu dögum og hafa allir nema tveir flokkar komið sér upp heimasíðu á Netinu. Þar er m.a. hægt að nálgast upplýsingar um frambjóðendur og stefnumál. Sam- fylkingin hyggst opna heimasíðu sína í dag, fimmtudag, og Húmanista- flokkurinn um næstu helgi. Hanna Bima Kristjánsdóttir, framkvæmdastjóri þingflokks sjálf- stæðismanna, segir að kosningaund- irbúningur Sjálfstæðisflokksins gangi vel, „enda sé stefnan skýr og skipulag flokksins gott.“ Að sögn Hönnu Bimu má segja að nýafstað- inn landsfundur flokksins, sem hald- inn var um miðjan mars sl., hafí markað ákveðið upphaf að kosninga- baráttu flokksins fyiTr komandi al- þingiskosningar, en þar hafi verið samþykktar málefnaályktanir flokks- ins og stjórnmálayfírlýsing hans. Hún tekur fram að ailir framboðs- listar flokksins liggi fyrir og að Mánuður er til alþingiskosninganna, 8. maí nk., og má búast við að meiri þungiíærist í kosningabaráttuna um og eftir næstu helgi. Árna Schram ræddi við talsmenn ílokkanna sem bjóða fram á landsvísu og forvitnaðist um undirbúning baráttunnar. skipulagt kosningastarf sé nú hafið í kjördæmunum, til dæmis með fund- um og vinnustaðaheimsóknum fram- bjóðenda. Leggur hún í því sambandi áherslu á að kosningastarf Sjálfstæð- isflokksins sé „mjög valddreift," eins og hún orðar það og vísar til þess að baráttunni sé að mestu leyti stjómað í kjördæmunum sjálfum. Aðspurð segir Hanna Birna að gefíð verði út kynningarefni um áherslur flokksins og frambjóðendur á næstu vikum, en bætir því við að kostnaði við auglýsingar og útgáfu verði stillt í hóf. Frumkvæði Framsóknarflokksins Egill Heiðar Gíslason, fram- kvæmdastjóri Framsóknarflokksins, telur að Framsóknarflokkurinn hafi tekið ákveðið frumkvæði í kosninga- baráttunni að þessu sinni með áber- andi auglýsingum í Morgunblaðinu síðustu vikurnar og dreifingu kynn- ingarbæklinga í hús í einstökum kjördæmum, til dæmis á Reykjanesi. Aðspurður kveðst Egill telja að flokkurinn hafi með því náð ákveðnu forskoti í kosningabaráttunni. „Við höfum tekið ákveðið frum- kvæði í kosningabaráttunni og eftir því hefur verið tekið,“ fullyrðir hann og bendir á að róðurinn muni smám saman þyngjast eftir því sem nær dregur kosningunum. Engin ástæða sé til annars en að ætla að kosninga- baráttan verði hörð. Hann bendir á að búið sé að opna kosningamið- stöðvar flokksins í einstökum kjör- dæmum, svo sem á Reykjanesi, og að á næstu dögum verði fleiri mið- stöðvar opnaðar í öðrum kjördæm- um, til dæmis í Reykjavík. Þá megi búast við meira kosningaefni frá Framsóknarflokknum, sem lýsi stefnu hans og frambjóðendum. Samfylkingin hefur kosningabar- áttuna formlega á laugardag með kosningahátíð í Háskólabói, að sögn Hákons Gunnarssonar, fram- kvæmdastjóra kosningastjórnar Samfylkingarinnar. „Þar verða allir framboðslistar Samfylkingarinnar m.a. kynntir, haldnar pólitískar ræð- ur, ljóðaupplestrar og ýmis skemmtiatriði fara fram, svo eitt- hvað sé nefnt." Hákon bætir því við að áhersla sé lögð á að hátíðin verði vel heppnuð og að þar nái menn að stilla saman strengi sína í „barátt- unni sem framundan er.“ Þá segir hann að frambjóðendur í einstökum kjördæmum séu byrjaðir að kynna sig og stefnumál Samfylk- ingarinnar með því að fara á t.d. fjöl- menna vinnustaði, en auk þess er verið að framleiða kynningarefni í blöð og sjónvarp. Snörp kosningabarátta Kosningabarátta Vinstrihreyfing- arinnar - Græns framboðs hófst formlega með kynningu stefnuyfir- lýsingai- flokksins í lok mars sl. og segir Steinþór Heiðarsson, fram- kvæmdastjóri hreyfingarinnar, að verið sé að undirbúa útgáfuefni með kosningaáherslum flokksins og kynn- ingu á frambjóðendum. „Þá er verið að skipuleggja fundi í kjördæmunum um tiltekin mál, til dæmis sjávarút- vegsmál og umhverfismál,“ segir hann og bendir auk þess á fundaher- ferð hreyfingarinnar undir slagorð- inu Græna smiðjan. Þeir fundfr séu ætlaðir til kynningar og fræðslu á umhverfismálum og hafi byrjað í febrúai- sl. og standi eitthvað fram yfir kosningar. Einnig, segii' hann, er verið að undirbúa aðra fundaherferð um samfélagsleg málefni, sem bera á yfirskriftina Rauða smiðjan. Steinþór segir ekki ljóst hve miklir fjái-munir muni fara í kosningabarátt- una en telur að það verði ekki nálægt þeirri upphæð sem stærstu flokkam- fr, Sjálfstæðisflokkurinn, Framsókn- arflokkurinn og Samfylkingin, leggi til þessa málaflokks. Aðspurður býst hann við snarpri kosningabaráttu en kveðst vonast til þess að hún verði fyrst og fremst málefnaleg. Ekki miklir fjármunir Margrét Sverrisdóttir, ritari Frjálslynda flokksins, segir að kosn- ingabarátta flokksins hefjist form- lega á laugardag en þá sé ætlunin að halda heilsdagsfund, eins konar sam- ráðsfund, með frambjóðendum flokksins í efstu sætum listanna í kjördæmunum. „Þar munum við stilla saman strengi okkar og ákveða nánar um hvernig kosningabaráttunni verður háttað á hverjum stað,“ segir hún og tekur fram að þá verði kosningaefni einnig dreift til kjördæmisráða flokksins. Búið sé að gefa út stjórn- málaályktun flokksins sem og fisk- veiðistefnu hans. Margrét tekur fram að ekki verði miklum fjármunum varið í kosninga- baráttuna, þar sem flokkurinn hafi ekkert fé á milli handanna. Júlíus Valdimarsson, fulltrúi Húmanistaflokksins, tekur í svipað- an streng og Margrét. „Við fáum engan styrk frá hinu opinbera eins og stóru flokkarnir," segir hann og tekur fram að mikilvægasta skrefið í kosningabaráttu Húmanista hafi verið að leggja fram framboðslista í öllum kjördæmum landsins. „Næsta skref er að nýta okkur mjög vel öll þau tækifæri sem gefast til að kynna stefnu okkar í útvarpi, sjón- varpi og í blöðum." Hann tekur auk þess fram að frambjóðendur Húmanistaflokksins leggi mikla áherslu á að kynna sig og sína stefnu með því að tala „beint við fólkið". Til dæmis með því að fara á vinnustaði og ganga í hús. Framboðs- listi Sam- fylking- arinnar EFTIRFARANDI framboðslisti var samþykktur einróma ó fundi kjördæmisráða Alþýðuflokks og Al- þýðubandalags og Reykjanesanga Samtaka um kvennalista sem hald- inn var á þriðjudaginn var, þ. 6. apr- fl. Samkvæmt reglum undangengins prófkjörs voru fyrstu sex sæti list- ans bindandi. 1. Rannveig Guðmundsdóttir alþingismaður, Kópavogi. 2. Guðmundur Ámi Stefánsson alþingismaður, Hafnarfirði. 3. Sigríður Jóhannesdóttir alþingismaður, Reykjanesbæ. 4. Þórunn Sveinbjarnardóttir blaðamaður, Reykjavík. 5. Agúst Einarsson alþingis- maður, Seltjarnamesi. 6. Jón Gunnarsson fram- kvæmdastjóri, Vogum. 7. Lúðvík Geirsson blaðamaður, Hafnarfirði. 8. Katrín Júlíusdóttir háskólanemi, Kópavogi. 9. Magnús Jón Ámason aðstoðarskólastjóri, Hafnarfirði. 10. Kristín Guðmundsdóttir sjúkraliði, Kópavogi. 11. Gestur Páll Reynisson háskólanemi, Reylqanesbæ. 12. Dóra Hlín Ingólfsd. rannsóknar- lögreglumaðm', Mosfellsbæ. 13. Björn Hermannsson rekstrarfræðingur, Garðabæ. 14. Kristín Karlsdóttir,dósent við KÍ, Bessastaðahreppi. 15. Petrina Baldursdóttir leikskólastjóri, Grindavík. 16. Emil Láms Sigurðsson heilsugæslulæknir, Hafnarfirði. 17. Helga E. Jónsdóttir leikskólastjóri, Kópavogi. 18. Sveinbjörn Guðmundsson verkstjóri, Sandgerði. 19. Ragna B. Björnsdóttir verkakona, Hafnarfirði. 20. Pálmi Gestsson leikari, Kópavogi. 21. Lovísa Einarsdóttir íþróttakennari, Garðabæ. 22. Hörður Zóphaníasson, fyirver- andi skólastjóri, Hafnarfirði. 23. Þórunn Bjömsdóttir kórstjóri, Kópavogi. 24. Auður Sveinsdóttir Laxness húsmóðir, -Mosfellsbæ. Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar Mikil stígandi að undanförnu GREIÐA má atkvæði utan kjörfund- ar átta vikum fyrir kjördag og hefur þessi möguleiki því staðið kjósendum opinn síðan 13. mars. Atkvæða- greiðsla með þessum hætti er einkum i umsjá sýslumanna um allt land en samkvæmt lögum getur hún einnig farið fram á skrifstofu og heimili hreppstjóra, um borð í íslensku skipi þar sem skipstjóri hefur fengið afhent kjörgögn og erlendis í sendiráðum, fastanefndum og sendiráðsskrifstof- um og skrifstofum lqörræðismanna. Eins og jafnan hefur atkvæða- greiðslan farið hægt af stað og að sögn Þóris Hallgrímssonar, lögfræð- ings hjá sýslumannsembættinu í Reykjavík, hafa á bilinu 130-40 manns neytt atkvæðaréttar sins á skrifstofu embættisins hingað til. Þórfr segir erfitt að spá um endan- legan fjölda utankjörfundaratkvæða. „Það er mjög misjafnt á milli ára og fer meðal annars eftfr því hvenær í ári kosningar fara fram. Þegar kosið er um hásumar er viðbúið að fleiri kjósi með þessum hætti en ef kosið er að vetrarlagi. í forsetakosningun- um síðustu, í lok júní, kusu um 12.000 manns. Fjöldi utankjörfund- aratkvæða hefur verið á bilinu sex til tólf þúsund.“ Þessar viðmiðunartölur eiga við þá sem kjósa hjá sýslumannsembættinu í Reykjavík en þar á meðal er fólk sem er á kjörskrá í öðrum kjördæm- um. „I þeim hópi eru til dæmis námsmenn sem búa hér en eru á kjörskrá úti á landi. Það er síðan þeirra að koma atkvæðinu til skila í sitt kjördæmi," segir Þórir. Eftfr því sem nær dregur kjördegi fjölgai' þeim sem vilja kjósa með þessum hætti og segist Þórir hafa orðið var við „mikinn stíganda" að undanfórnu. Þegar straumþunginn er orðinn of mikill fyrir skrifstofu embættisins í Skógarhlíð er „kosn- ingaskrifstofunni" komið fyrir í rýmra húsnæði. „Við stefndum að því að færa okkur í Hafnarbúðir í Tryggvagötu 19. apríl en flytjum hugsanlega fyrr ef fram fer sem horffr.“ Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hófst hjá sendiráðum 25. mars síð- astliðinn en eitthvað seinna hjá ræð- ismönnum. Ekki liggja fyrir tölur hjá utanríkisráðuneytinu um hvað margir hafa þegar kosið. Morgunblaðið/Ásdís Sjálfstæðismenn á Reykjanesi Kosningaskrifstofa opnuð KOSNINGAMIÐSTÖÐ Sjálf- stæðisflokksins í Reykjanes- kjördæmi var formlega opnuð í Sjálfstæðishúsinu við Strand- götu 29 í Hafnarfirði í gær. Efstu menn á lista Sjálfstæðis- flokksins í kjördæminu voru þar mættir til leiks og kynntu ýmis stefnumál flokksins. Á myndinni má sjá hvar þau Kristján Pálsson, Árni M. Mathiesen, Gunnar I. Birgis- son, Helga Guðrún Jónasdóttir og Geir H. Haarde ræða sam- an.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.