Morgunblaðið - 08.04.1999, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 08.04.1999, Blaðsíða 52
52 FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 1999 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ KARÓLÍNA KRISTÍN BJÖRNSDÓTTIR + Karólína Kristín Björnsdóttir fæddist í Vest- mannaeyjum 22. nóvember 1919. Hún lést á Hrafnistu í Hafnarfirði 29. mars síðastliðinn. Foreldrar hennar voru hjónin Jónína Jónsdóttir, f. í Efri- Holturn undir Eyja- íjöllum 11.7. 1892, d. ** 1976, og Björn Jóns- son útgerðarmaður frá Akurey í Land- eyjum, f. 9.6. 1886, d. 1924. Systkini Karólínu Krist- ínar voni Oddur, f. 13.9. 1921, d. 1.2. 1950, hann starfaði um ára- bil í Rafha í Hafnarfirði; og Björney Jóna, f. 9.8. 1924, hjúkr- unarfræðingur, búsett á ísafírði, giftist Magnúsi Elíassyni frá Grunnuvík í Jökulfjörðum, f. 12.6. 1908, d. 26.3.1991. Eiginmaður Karólínu var Lárus Jónsson organisti, f. 26.3. 1896, d. 15.4. 1975 frá Giljum í Mýr- dal. Karólína og Lárus eignuð- ust íjögur börn. Þau eru: 1) Jónína Sigríður, f. 5.5. 1947, verslunarmaður, gift Gísla Hin- rik Sigurðssyni framkvæmda- stjóra, f. 16.12. 1944. Börn þeirra eru: a) Sigurð- ur Björn, verkfræð- ingur, f. 1.5. 1966, kvæntur Sæunni Þór- isdóttur, f. 30.7. 1967. Þeirra börn eru: Sunna Jónína, f. 10.12. 1985, Tinna Þuríður, f. 1.6. 1990, Ester Jóhanna, f.16.6. 1994, og Salome Lilja, f. 19.4. 1996. b) Krist- ín Helga, uppeldis- fræðingur, f. 19.7. 1969. Barn: Tómas Arni Tómasson, f. 10.4. 1989. Sambýlis- maður Sigurður Þorsteinsson bif- vélavirki, f. 17.12. 1968. Barn: Gísli Snær, f. 8.8. 1997. c) Olga Björney, B.A., f. 19.7. 1970, gift Davíð Gunnarssyni verkfræðingi, f. 22.11. 1968. Barn: Gunnar Ingi, f. 4.2. 1999. d) Jóna Björk, nemi, f. 17.10. 1978, unnusti Jens Sigurðs- son nemi, f. 22.11. 1977. 2) Birna, hjúknmarfræðingur, f. 26.7. 1949, gift Karli Þorsteini Guð- mundssyni sjómanni, f. 31.5. 1947, d. 5.12. 1973. Giftist Val Hugasyni framkvæmdastjóra, f. 18.11. 1956. Börn þeirra eru: a) Axel Karlsson, múrari, f. 31.3. 1969. b) Lárus Steinar Karlsson, málari, f. 11.11. 1970. Barn: Daníel Aron, f. 20.2. 1996. Móðir Ðaníels er Jóna Lilja Dosmaacar. c) Sigríður Anna Óladóttir, f. 28.12. 1975. Sambýlismaður: Albert Svein- jónsson verslunarmaður. Börn: Helena Natalía, f. 20.6. 1996, og Albert Óli, f. 5.12. 1998. d) Henný Hugadóttir, nemi, f. 3.2. 1978. 3) Oddný Fjóla, sjúkraliði, f. 11.2. 1955, gift Finnbirni Þor- bergs Kristjánssyni verktaka, f. 26.1. 1955. Börn þeirra eru: a) Kristján Jóhann, bifvélavirki, f. 1.4. 1972, barn: Jökull Þór, f. 15.12. 1996. b) Magnús, nemi, f. 10.2. 1980, unnusta Sara Björk Kristjánsdóttir, nemi, f. 11.10. 1981. c) Karólína, nemi, f. 10.9. 1984. 4) Jón Þórir matreiðslu- maður, f. 31.3. 1957, d.18.8. 1977. Karólína bjó á Hverfísgötu 38 b í Hafnarfírði frá því hún gifti sig 1941 og þar til hún fluttist á Hrafnistu í Hafnarfirði árið 1993. Hún starfaði að félags- málum og var virk í KFUK í Hafnarfírði, Kvenfélaginu Hr- ingnum, Kvenfélagi Þjóðkirkj- unnar í Hafnarfírði, Orlofs- nefnd húsmæðra í Hafnarfirði og Góðtemplarafélaginu í Hafn- arfirði, St. Daníelsher. Karólína vann hjá Rafveitu Hafnarfjarð- ar sem matráðskona um árabil eða þar til hún lét af störfum vegna heilsubrests. Utför Karólínu verður gerð frá Þjóðkirkjunni í Hafnarfirði í dag og hefst athöfnin klukkan 15. Húsið okkar var bakhús við Hverfisgötuna í Hafnarfirði. Það var fallegt, hvítt tvílyft hús með grænu þaki og fallegum trjágarði. Það þótti frekar stórt hús á þessum tíma. Það stóð á hæð með einstöku útsýni yfir Hafnarfjörð. Sund, eins og við köll- uðum það, lá frá Hverfisgötunni upp 7 að húsinu og brekkunum fyrir fram- an það. Sundið var þakið rauðamöl og í kjallaranum á húsinu hans Ella gamla var brjóstsykursgerð, sem ilmaði svo yndislega. Umhverfíð var óspillt hraun og lautir. A sumrin lékum við okkui- þarna í mömmuleik og búi, feluleik og alls kyns ímyndunarleikjum þar sem klettamir með blóðbergi og lyngi og grasbalar með fíflum og sól- eyjum voru í bakgrunninn. A veturna voru þar sleðabrekkur, tvær langar og brattari, fyrir stóru krakkana, og ein lítil og ekki eins brött fyrir þau yngri - og út um eldhúsgluggann fylgdist mamma með okkur og stutt var að hlaupa inn og hlýja sér. Pabbi vann hjá Rafveitu Hafnar- ^ fjarðar á þessum árum auk þess sem hann vann sem organisti, söngstjóri og söngkennari. Hann tók líka nem- endur heim í orgelkennslu, en forláta orgel vai- á heimilinu og oft tekið í það. Pabbi og mamma voru mikið tónlistarfólk. Mamma með fallega söngrödd sem hún var ófeimin við að láta hljóma og pabbi með orgelið sitt, og oft sömdu þau lög og ljóð í sam- einingu. Persónuleg, alhliöa útfararþjónusta. Áralöng reynsta. Sverrir Olsen, Sverrir Einarsson, útfararstjóri útfararstjóri Útfararstofa íslands Suðurhlíð 35 ♦ Sími 581 3300 Á þessum árum eða milli 1950 og 1960 var heimilislífið í fóstum skorð- um. Það voru heitar máltíðir tvisvar á dag. Pabbi fór í vinnuna á morgn- ana og kom heim í hádeginu kl. 12. Þá var mamma til með matinn og all- ir borðuðu saman. Þá fór pabbi inn í rúm og „fleygði sér“ og þegar klukk- una vantaði 10 mínútur í 1 fór ein- hver inn og „ýtti við honum“ til að hann gæti verið mættur í vinnuna stundvíslega. Það var áríðandi skyldustarf sem allt heimilisfólkið bar ábyrgð á. Klukkan 3 var kaffi- tími fyrir alla nema pabba sem var í vinnunni. Þá var vinsælt nýbakað brauð úr Snorrabakaríi sem var neð- ar í götunni, franskbrauð eða normalbrauð með mysingi eða smjöri var í uppáhaldi. Kaffið var hitað á eldavél í gamaldags kaffi- könnu og notað smávegis af exporti í rauðum staukum til að skerpa bragðið. Klukkan 7 var svo kvöld- matur og kvöldkaffi seinna um kvöldið. Pabbi og amma lásu oft upp ýmsar þjóðsögur og ævintýri eða spennandi skáldsögur um ástir og örlög á kvöldin. Hverfið okkar var heimur út af fyrir sig. Við höfðum allt við hönd- ina, þurftum ekki á bíl að halda, enda voru þeir fágætir á þessum tíma. Þarna var Hallabúð sem sá okkur fyrir nýlenduvörum, Mjólkur- búið var niður við læk, Skálholt, sem hægt var að fara í þegar aðrar búðir voru lokaðar, og Betubúð, þar sem við fengum allt til sauma, en mamma átti fótstigna saumavél sem hún var dugleg að nota, því hún saumaði mikið á okkur og hafði gaman af að hafa okkur vel til fara. A sunnudagsmorgnum fengum við oft að fara með pabba í Mjólkurbúið að kaupa mjólkina sem var þá á flöskum. Á heimleiðinni kom pabbi oft við hjá Siggu frænku og hún UTFARARSTOFA OSWALDS sími 551 3485 ÞJÓNUSTA ALLAN SÓLARHRINGINN AÐAíJSTRÆ'n 4B • 101 REYKJAVÍK LÍKKJSÍUVINNUS1OEA EYVINDAR ARNASONAR lumaði alltaf á góðgæti til að stinga upp í okkur, en ekki var það nú alltaf vel séð hjá mömmu, því hún beið heima með sunnudagssteikina og vildi síður að við bofðuðum á „milli mála“. Mamma var hetjan okkar og sá möndull sem heimilislífið snerist um. Hún var þessi sterki, heillandi per- sónuleiki, listræn og gáfuð. Hún var alla tíð mjög hraust og ósérhlífin og gekk í að gera það sem gera þurfti. Eg man eftir henni úti í þvottahúsi þar sem gufuna lagði um allt hlaðið þegar hún var að sjóða þvottinn í þvottapotti og nudda á þvottabretti og skola í ótal bölum áður en hann var undinn og hengdur út á snúru. Mömmu datt alltaf í hug að gera hreint á góðviðrisdögum, okkur stelpunum til mikillar armæðu, því við vildum fá hana út í sólina með okkur. Mamma hafði alla tíð mikinn áhuga á félagsstörfum og hún pass- aði upp á að við færum í Sunnudaga- skóla KFUM og K til hans Jóels á sunnudagsmorgnum og aldrei komumst við hjá því að selja merki kvenfélagsins Hringsins þegar merkjasöludagar voru. Mamma kenndi mér margt. Ein af mínum allra fyrstu minningum er frá því ég var lítil og myrkfælin. Mömmu ráð við myrkfælni var ein- falt; fara bara og gá, kveikja ljós og skoða það sem ég var hrædd við. Það virkaði alltaf. Mamma kenndi okkur líka að vera góð við lítilmagnann, dýr, fugla og börn. Hún gaf alltaf fuglunum úti í garði og ýmsa flæk- ingsketti hændi hún að sér og gaf. Hún var í miklu uppáhaldi hjá barnabömunum því hún sinnti þeim alltaf mikið, las fyrir þau, söng, og lék við þau endalaust. Síðustu æviár mömmu voru henni erfið. Hún fékk blæðingu inn á heil- ann að vetri til þegar hún fór út að moka snjó frá húsinu sínu. Hún vissi að ég var að koma í heimsókn og vildi taka vel á móti mér. Eftir það hrakaði henni stöðugt og síð- ustu árin var lítið orðið eftir af hennar leiftrandi persónuleika. En H ' ' ■£ H Erfisdrykkjur H H H H H H H P E R L A N Sími 562 0200 miiiiiiixxxiiii: hún var alltaf jákvæð og kvartaði aldrei og kvæðin og vísurnar sem hún kunni ógrynnin af komu sjálf- krafa þegar tækifæri gafst, þótt allt annað væri gleymt. Hún lést í her- berginu sínu á Hrafnistu í Hafnar- firði 29. mars síðastliðinn; umkringd börnunum sínum og barnabörnum sem elskuðu hana og skiptust á að sitja við rúmið hennar þar til yfir lauk. Mig langar að láta fljóta með eina af hennar litlu vísum: Láttu ekki leiðast þér lífið til þess of stutt er leitaðu uppi Ijós og yl svo lífið verði geislaspil. Með ást og þakklæti, mamma mín. Jónina Sigríður. Hún elsku amma Karó hefur kvatt þennan heim. Það var ekki laust við að ég fyndi fyrir nokkrum létti, því ég veit hvað hún var orðin þreytt, enda búin að vera svo ólík sjálfri sér í talsverðan tíma. Eg mun ætíð minnast hennar úr litla eldhúsinu á Hverfisgötunni, þar sem jafnan var setið og spjallað er mamma kom með okkur systkinin í heimsókn. Skemmtilegast þótti okkur krökkun- um þó að leika niðri í gjótu. Það var svo spennandi og hættulegt að bram- bolta um þetta ski-ýtna og oddhvassa hraun. Hún amma var óendanlegur viskubrunnur. Mér þótti hún svo vit- ur, virtist bókstaflega vita alla hluti og var óspör á að miðla af þekkingu sinni til okkar krakkanna. Svo lét hún aldrei ógert að fara með vísu eða syngja kvæði við öll tækifæri, stór og smá. Alltaf skyldi hún finna kvæði sem passaði, og ef hún ekki kunni, þá var það bara búið til á staðnum. Eg hafði stundum á til- finningunni að hún talaði einhvers konar vísna-mál. Ég minnist þess að iðulega er hún var í heimsókn hjá okkur í Hvannhólmanum tók hún litlu systur mína til sín, ruggaði henni og fór með eina af vísunum sínum: Jóna, viltu fyrir mig prjóna, litla leppa í skóna, svo mér verði ekki kalt. Elsku amma mín. Þú vai’st svo frið- sæl og falleg þar sem ég sá þig liggj- andi í rúminu þínu, stuttu eftir að þú kvaddir. Nú veit ég að þú ert komin á staðinn sem þú þráðir og ég veit að þér líður vel. Leiðinlegt þykir mér þó að þú skyldir ekki ná að sjá nýjasta langömmubamið þitt, Gunnar Inga, son okkar Davíðs. Hann er ljósið í lífí okkar og hjálpar okkur að takast á við missinn. Og elsku mamma. Ég veit að þú áttir svo erfitt að geta ekki verið með ömmu þegar hún fór, en við vit- um öll að þú varst með henni og okk- ur hinum í anda. Ég kveð þig, amma mín, með þess- um línum: Hin langa þraut er liðin, nú loks hlaustu friðinn, og allt er orðið rótt, nú sæll er sigur unninn og sólin björt upp ninnin á bak við dimma dauðans nótt. (V. Briem) Olga Björney Gísladóttir. Nú ert þú faiún, amma mín. Þá rifjast upp fyrir mér allar stundirnar sem við áttum saman frá því ég var barn. Það var alltaf svo gaman að koma til þín á Hverfísgötuna leika sér í gjótunni og í hrauninu, fara með þér í Kaupfélagið og niður á Strandgötu. Við fengum líka að heimsækja þig í Rafveitunni og fylgjast með þér elda í öllum stóru pottunum. Það voru ýmis ævintýri sem ég upplifði með þér, eins og að fara til Reykjavíkur með strætó, en það fannst mér mikið ferðalag þegar ég var barn. Þú tókst mig líka með þér í lengri ferðir, til Eyju frænku á ísa- firði og í rútuferðir með kvenfélag- inu, en þar lést þú mig standa upp og syngja fyrir allar konurnar í rútunni, ofsalega montin af barnabarninu þínu. Söngur og ljóð er eitt af því sem einkenndi þig mest í mínum huga. Þú varst alltaf að fara með ljóð fyrir okk- ur og allt fram á síðustu árin varst þú til í að syngja með okkur ef tækifæri gafst. Mér er minnisstætt þegar við Siggi fórum að sækja þig á Hrafnistu til að fara í mat til mömmu og pabba og þú söngst alla leiðina með Tomma í aftursætinu. Þú varst alltaf svo glöð og jákvæð, sama hvað gekk á og hvernig þér leið. Ég vil þakka þér fyrir allar góðu stundirnar sem við áttum saman, amma mín. Guð geymi þig. Kristín Helga Gísladóttir. Elsku amma. Nú ertu farin. Ég minnist þeirra stunda sem við áttum saman á Hverfisgötunni, söngsins og leikjanna, fótboltans í bakgarðinum, bíóferðanna og göngutúra niður í Kaupfélag. Til þín er gott að láta hugann reika um litla stund. Hjá þér er kærst að hvíla sálu veika og kælda lund. Ur minningum og munablómum smáum ég mynda brú, að andans tignar hugarlönd- um háum, þann heim átt þú. Þar rís einn tindur hæst úr hugans djúpi, en hulinn snjá. Að sjá það allt, sem enn er faldað hjúpi, það er mín þrá. (Ólína Andrésdóttir.) Með þessum orðum vil ég kveðja elsku ömmu mína. Hvíli hún í friði. Magnús Finnbjörnsson. Elsku amma. Nú ert þú farin og því vil ég kveðja þig, og þakka þér fyrir allar yndislegu samverustund- irnar. Það var alltaf svo gott að koma til þín í eldhúsið í Rafveitu Hafnar- fjarðar, þar sem þú starfaðir með myndarbrag í fjöldamörg ár. Heima á Hverfisgötunni áttum við margar góðar stundir við sögulestur og leiki. Elsku amma, þú kenndir mér svo margt um lííið, að kunna að gefa og þiggja. Ég mun eiga og geyma eilífa minningu um þig, elsku amma mín. Hún arama átti lítið eldhús á Akranesi. Vaskurinn sneri út í hom og hjá glugganum voru fjórir skápar. Einnig var þar ísskápur sem í þann tíð þótti hið mesta völundarverk og fáum ætlað. Stundum þegar heimurinn varð of stór fyrir lítinn strák, lofaði hún amma mér að sitja upp á ísskápn- um. Þá hætti lítill strákur að gráta og hélt heiminum í hendi sér. Núna er hún amma dáin og farin ég veit ekki hvert. En lítill strákur er orðinn stór, ber ísskáp á bakinu og heimurinn heldur honum í hendi sér. (Arni Ibsen.) Hvíldu í friði, amma mín, með ei- lífri þökk fyi-ir allt. Kristján Finnbjörnsson. Konan vai- að hringja frá Hrafn- istu, amma er dáin. Allar góðu minn- ingarnar komu upp í hugann. Þegar við fórum í feluleik og ég ætlaði aldrei finna þig, en þá stóðst þú á baðkarsbrúninni bak við hurðina og beiðst eftir mér. Ég man allar sög- urnai' sem þú last fyrir mig, Friðrik og Katrín var uppáhalds sagan okk- ar, og hlógum við alltaf saihan að henni. Þú vildir öllum alltaf svo vel. Alltaf þegar ég kom til þín straukstu hend- urnar mínar og hlýjaðir þeim. Þegar allt er inni hljótt og enginn mig að hugga er þá gott að eiga sér eina rós í glugga. (K.B.) Elsku amma mín, svona minnist ég þín. Þú varst glaðlynd og öllum góð. Þú munt lifa áfram í minningu minni. Takk fyrir allar góðu stund- irnar, elsku amma. Þín nafna, Allan sólarhringinn. www.utfararstofa.ehf.is/ Karólína.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.