Morgunblaðið - 08.04.1999, Side 8
8 FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Meirihluti hreppsnefndar V-Landeyja
Ekki frekari aðgerðir
SAMPYKKT var tillaga meirihluta
hreppsnefndar V-Landeyjahrepps á
hreppsnefndarfundi í fyrradag, þess
efnis að ekki væri ástæða til frekari
aðgerða af hálfu hreppsnefndar
vegna óskar níu íbúa hreppsins um
opinbera rannsókn ríkislögreglu-
stjóra á því hvort átt hafi sér stað
meint brot fyrrverandi oddvita
hreppsins, Eggerts Haukdals, sem
varða við almenn hegningarlög, bók-
haldslög, sveitarstjórnarlög, stjórn-
sýslulög og skattalög.
Brynjólfur Bjarnason oddviti seg-
ir að rökin fyrir tillögu meirihlutans
séu byggð á skýrslu endurskoðanda
ársreiknings hreppsins fyrir árið
1997 þar sem skýringar komi fram á
málinu og því sé engin ástæða fyrir
opinbera rannsókn ríkislögreglu-
stjóra.
Tillaga minnihlutans, þess efnis að
hreppsnefnd færi fram á það við rík-
islögreglustjóra að hann yrði við ósk
íbúanna og flýtti rannsókninni var
felld.
Tillögur meiri- og minnihlutans
voru lagðar fram vegna bréfs ríkis-
lögreglustjóra þar sem saksóknari
hjá efnahagsbrotadeild embættisins
óskaði eftir afstöðu hreppsnefndar
vegna beiðninnar auk frekari
gagna.
Oddviti segir að ríkislögreglustjóri
muni fá umbeðin gögn og það verði
að vera verk hans að meta hvort
ástæða sé til opinberrar rannsóknar
út frá þeim gögnum sem hann hefur
í höndunum.
begar hljómtaekl sklpta máll
Magnari: 2 x 100W RMS • Utvarp með 24 stöðva minni • Sound Morphing • RDS
Þriggja diska spilari • Hátalarar þriskiptir: 100W -17 sm bassi • Power Bass
Magnari: 2x100W RMS • Utvarp með 24 stöðva minni • Sound Morphing • RDS
Þriggja diska spilari • Hátalarar þríkiptir: 100W - 16 sm bassi • Power Bass
Lógmúlo 8 * Sími 533 2800
UMBOÐSMENN UM ALLT LAND
Heilsuræktarráðstefna
Menntun
skapar traust
Jónína Benediktsdóttir
Heilsuræktarráð-
stefna verður hald-
in í Digranesskóla
um næstu helgi en það er
FIA einkaþjálfaraskólinn
sem stendur að ráðstefn-
unni. Jónína Benedikts-
dóttir hefur séð um skipu-
lagningu ráðstefnunnar.
„Pessi ráðstefna er
stærsta heilsuræktarráð-
stefna sem haldin hefur
verið hér á landi. Hún er
þríþætt, kennsla fer fram í
þoifimi og spinning og síð-
an eru fyrirlestrar um
stjórnun líkamsræktar-
stöðva."
- Hvers vegna var
ákveðið að híikhi ráðstefnu
sem þessa hér á landi?
„Hreyfing, hollt matar-
æði og nægur svefn er
besta forvöm sem til er.
Sænska rannsóknin Liv 90
leiddi í ljós að það eru einungis
um 8% Svía sem stunda reglulega
líkamsrækt. Ég tel líklegt að
þessar tölur séu svipaðai- hér á
landi og er þess fullviss að aukin
fræðsla og menntun í heilsurækt
skili sér margfalt til baka. Með
aukinni fræðslu og menntun
eykst virðing fyrir þessu fagi sem
ég tel að eigi heima innan heil-
brigðisstéttarinnar. Heilbrigðis-
ráðuneytið ætti að stuðla að auk-
inni fræðslu og uppbyggingu leið-
beinenda í líkamsræktarstöðv-
um.“
- Hvernig er líkamlegt ástand
Islendinga ef miðað er til dæmis
við Svía?
„íslendingar þurfa að slaka
meira á og eftir að hafa búið í Sví-
þjóð þá finnst manni allt á fleygi-
ferð hér heima. Fólk er endalaust
að ganga á varaforðann sinn.
Jónína segir að starfsfólk lík-
amsræktarstöðva þurfi að huga
að því að andlegt ástand skiptir
jafn miklu máli og það líkamlega.
„Fólk getur verið í góðu líkam-
legu formi en liðið illa á sálinni.
Við hjá Planet Pulse höfum lagt
áherslu á að þegar fólk gengur út
frá okkur sé það ekki einungis í
góðu líkamlegu foi-mi heldur sé
það í andlegu jafnvægi líka. Hjá
okkur er enginn hávaði, góður
tími fer í öndun og slökun og við
leggjum áherslu á jóga og að við-
skiptavinirnir fái slökunarnudd í
pottunum hjá okkur.“
- Hver telur þú að ástæðan sé
fyrir því að fleiri stunda ekki
reglulega líkamsrækt?
„Ef fólk endist í heilsurækt
meira en 3 mánuði er líkamsrækt
orðin að lífsstíl. Margar líkams-
ræktarstöðvar hérlendis hafa
hins vegar boðið upp á skamm-
tímamarkmið í heilsurækt. Þau
geta skaðað meira en byggt upp.
Þegar fólk er alltaf að byrja og
hætta í líkamsrækt missir það
sjálfstraustið og það er eingöngu
hægt að njóta þess að stunda
heilsurækt alla ævi ef
sjálfstraustið er fyrir
hendi.
Heilsuræktarstöðv-
ar þurfa að ávinna sér
traust almennings og
menntun skapar traust.“
-Hvernig verður námskeiðið
um helgina byggt upp?
„Við fáum til okkar Henrik
Withen en hann er einn af frum-
kvöðlum í spinning (hjólatímum)
og sá Evrópubúi sem hefur náð
hvað lengst í kennslu á þessu
sviði. Hann hefur einnig framleitt
hjólin sín sjálfur. Henrik verður
með spinning tíma og fer ítarlega
í tæknina við að hjóla. Þá sýnir
►Jónína Benediktsdóttir er
fædd á Akureyri árið 1957. Hún
útskrifaðist sem íþróttafræðing-
ur frá Mc-Gillháskólanum í
Montreal árið 1981. Hún stofn-
aði stúdíó Jónínu og Ágústu
ásamt Ágústu Johnson árið 1986
og átti líkamsræktarstöðina
Aktiverum í Helsingborg í Sví-
þjóð frá 1993-1998.
Jónína var valin Atvinnurek-
andi ársins í Helsingborg árið
1997. Hún stofnaði heilsurækt-
arstöðina Planet Pulse árið
1997.
Jóm'na á þrjú börn.
hann hversu mikil úthaldsþjálfun
felst í spinning og í lok námskeið-
isins verður hann með maraþon
tíma.“
Jónína segir að fjórir íslenskir
kennarar sem starfa erlendis
verði kynntir á þessai-i ráðstefnu.
„Þrír þeirra starfa nú á heilsu-
ræktarstöðinni Aktiverum sem
ég rak í Svíþjóð um árabil. Þetta
eru þau Anna Sigurðardóttir sem
er margfaldur Islandsmeistari í
samkvæmisdönsum sem mun
kenna allt það nýjasta í þolfimií-
þróttinni og Gunnar Már Sigfús-
son sem er sérfræðingur í palla-
tímum. Hann mun kynna nýjung
sem felst í að hver og einn notar
tvo palla í einu. Hann verður
einnig með einfalda stepptíma
fyrir þá sem vilja.
Þá mun Gísli Símonarson sem
er frumkvöðull í spinning verða
gestur okkar. Hann hefur sett af
stað svokallað aldamótaspinning.
Fólk sest á hjólin og Gísli sýnir á
meðan bíómyndir sem hann hefur
sjálfur framleitt. Þær miða að því
að koma fólki í sérstakt huglægt
ástand meðan það reynir á lík-
amann í spinning."
Að lokum verður Guðfinna Sig-
urðardóttir með okkur en hún er
framkvæmdastjóri stórrar stöðv-
ar í Malmö og kennir þolfimi víða
um Evrópu."
Að lokum segir
Jónína að nokkrir fyr-
irlestrar verði um
stjórnun og rekstur,
markaðssetningu og
mannleg samskipti.
„Við ætlum að tala um aðra hlið á
heilsurækt þ.e. fara í það hvernig
ferlið á að vera frá því að við-
skiptavinurinn kemur á heilsu-
ræktarstöð og þangað til hann er
kominn í gott fonn. Við förum inn
á markaðssetningu á líkamsrækt,
sölu og gæðaeftirlit." Ráðstefnan
í Digranesskóla er öllum opin og
nánari upplýsingar um hana er að
finna á Netinu. Slóðin er
www.planetpulse.is/fia
Fólk gengur
endalaust á
varaforðann