Morgunblaðið - 08.04.1999, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 1999 9
FRÉTTIR
Fulltrúi stærstu ferðaskrifstofu í Kína bjartsýnn á aukinn
ferðamannastraum Kínverja til fslands
Telur þúsundir
Kínverj a
áhugasamar
um Islandsferð
LILI Guan, framkvæindastjóri
kínversku ferðaskrifstofunnar
CITS Travel á Norðurlöndum,
kveðst afar bjartsýn á að kín-
verskir ferðamenn haldi hingað
til lands í auknum mæli og seg-
ir Island hið áhugaverðasta í
augum landa sinna. Hún kveðst
einnig gera sér vonir uin að ís-
lenskir ferðamenn fari í aukn-
um mæli til Kína. CITS Travel
og Samvinnuferðir-Landsýn
hafa undirritað samning um
gagnkvæma skipulagningu
ferða milli landanna.
CITS, eða Alþjóðlega kín-
verska ferðaþjónustan, er ríkis-
rekin og stærsta fyrirtæki sinn-
ar tegundar í Kína. LiLi Guan
hefur starfað hjá fyrirtækinu
um margra ára skeið og hóf að
starfrækja skrifstofu þeirra í
Kaupmannahöfn fyrir fjórum
áram síðan. A þeim tíma hafa
ferðir Dana til Kína margfald-
ast og voru í fyrra tvö þúsund
talsins.
Landið á
bakvið nafnið
„Ég held að nafn íslands, sem
greypist í huga Kínverja frá
barnæsku, hafi mikið aðdráttar-
afl fyrir kínverska ferðamenn,
ekki síst þar sem fæstir vita af
eigin raun hvernig landið bak-
við nafnið lítur út. Þá hefur
Kína á seinustu árum opnað dyr
sínar gagnvart erlendum ríkj-
um ásamt því sem landsmenn
hafa aukið ferðafrelsi og hafa
meira fé umleikis en áður. Kín-
verjar vilja fyi'ir vikið ferðast
og skoða erlend lönd í auknum
mæli. Island er mjög frábnigðið
Kína og því er það mjög spenn-
andi og áhugaverður kostur,"
segir LiLi Guan. Hún nefnir
sérstaklega náttúru íslands í
því sambandi og segir að á
skoðunarferðum hennar hér-
lendis hafi borið fyrir augu
hennar landslag sem líkist
hvorki því sem finna má í Kína
né í öðrum löndum sem hún
hefur heimsótt. „fslensk nátt-
úra vekur mér furðu og í fyrstu
skoðunarferðinni sem ég fór í
fannst mér eins og ég væri
stödd á annarri plánetu. Ég tel
landið fagurt og hrífst af því. I
Kína hafa stór náttúrusvæði
horfið vegna mannfjölgunar og
þar er alls staðar fólk, þannig
að það er kærkomin hvfld fyrir
kínverskan ferðamann að skoða
náttúru sem ekki er undirlögð
af mönnum."
Aðspurður um hvaða ljón
væru helst í vegi kínverska
ferðamanna sem hyggja á Is-
landsferð nefnir hún verðlagið
sem sé allt annað og hærra en
kínverskur almenningur á að
venjast á sínum heimaslóðum.
„Island er mjög dýrt samanbor-
ið við þau lífskjör sem Kínverj-
ar búa almennt við. En margir
Kínverjar hafa lagt fé til hliðar
í því skyni að heimsækja önnur
lönd lieimsins og þó svo að þeir
velji ekki endilega Island sækja
þeir önnur lönd heim óháð
verðlagi þeirra. Þeiin var mein-
að að ferðast áður og láta sér
því í léttu rúmi liggja hvað hlut-
irnir kosta í þeim löndum sem
þeir ferðast til núna, enda koma
þeir ekki þangað til að vinna
heldur til að skoða löndin og
njóta reynslunnar samfara
ferðalaginu."
Ferðahömlum
verið aflétt
LiLi segir að strangar ferða-
hömlur liafi verið við lýði í Kína
til ársins 1976 en á þeim tíma
sem liðinn er liafi mörgum
þeirra verið aflétt. „Enn getur
verið erfiðleikum bundið að fá
vegabréfsáritun eða ferðaleyfi
til erlends ríkis, ekki síst þar
sem mörg ríki neita Kínverjum
um inngöngu nema þeir séu að
heimsækja viðkomandi land til
að koma á viðskiptasamböndum
eða öðru þess háttar. Island er
hins vegar í hópi vinsamlegra
ríkja sem taka á móti kínversk-
um ferðalöngum þótt þeir eigi
ekki flóknara erindi en skoða
sig um og njóta þess sem þar
stendur til boða. Ég er viss um
að þessi afstaða hvelji kín-
verska ferðamenn enn frekar
til að ráðast í Islandsferð," seg-
ir LiLi Guan.
Hún segir erfitt að spá fyrir
um hversu margir landar henn-
ar myndu vilja koma hingað til
lands en þó sé Ijóst að þúsundir
Kínverja hafí ráð á að kaupa
slíka ferð og hafi á því áhuga.
„Við getum greitt götu þeirra
hvað varðar vegabréfsáritun og
skipulagningu hópferða, þannig
að ferðin ætti ekki að vera
neinum vandkvæðum bundin. f
Kína eru svo gríðarlega margir
íbúar að auðvelt er að finna lík-
lega ferðamenn og þó að hópur-
inn sé aðeins frá einni borg er
stærð borganna með þeim hætti
að hópurinn myndi sjálfkrafa
vera ijölmennur," segir hún.
Ánægja með samstarf
Hún kveðst einnig telja mikla
möguleika fólgna í ferðum Is-
lendinga til Kína og hafi dvöl
hennar hérlendis Ieitt í Ijós rík-
an áhuga á ferðum á fjarlægar
slóðir. CITS og Samvinnuferð-
ir-Landsýn hafa þegar ákveðið
að skipuleggja ferð til Kína síð-
ar á þessu ári, auk þess sem ís-
lenska ferðaskrifstofan hefur
milligöngu um ferðir þangað
fyrir bæði einstaklinga og hópa.
Flogið er í gegnum Kaup-
mannahöfn þar sem aðalskrif-
stofu CITS Travel á Norður-
Iöndum er að finna, að sögn
Auðar Björnsdóttur hjá SL.
„Þetta samstarf hefur gengið
mjög vel og við höfum átt rnjög
LILI
góð samskipti við erindreka
CITS. Kína er stórt og mikið
land sem ekki er hægt að skoða
í einni ferð en hins vegar er
hægt að sjá brot af því besta og
við munum reyna að bjóða Is-
lendingum sambærilega dag-
skrá og sett var saman fyrir
Clinton Bandaríkjaforseta og
fjölskyldu hans í fyrra,“ segir
Áuður.
Ný vegabréf tekin í notkun 1. júní
Tölvulesanleg' og
erfíðara að falsa þau
NY VEGABREF, sem Kristín
Þorkelsdóttir listamaður hefur
hannað, verða tekin í notkun 1.
júní næstkomandi. Prentun
þeiiTa verður flóknari en hinna
gömlu, þau verða tölvulesanleg
og með vatnsmerki og ýmsum
öðrum öryggisatriðum sem gera
að verkum að erfiðara verður að
falsa þau.
Kolbeinn Árnason, formaður
nefndar um útgáfu vegabréfa,
segir að breytingin sé meðal
annars gerð að kröfu Banda-
ríkjamanna og er skilyrði fyrir
því að Islendingar geti áfram
ferðast til Bandaríkjanna án
vegabréfsáritunar.
„Við höfum verið á undan-
þágu varðandi þetta í nokkuð
mörg ár, en nú hafa Bandaríkja-
menn gefið lokafrest til ársins
2000 fyrir þessar breytingar.
Norðmenn og Danir tóku meðal
annars fyrir skömmu í notkun
ný vegabréf til að uppfylla þessi
skilyrði."
Ríkislögi’eglustjóri mun gefa
öll nýju vegabréfin út en hægt
verður að sækja um þau á lög-
reglustöðvum eins og verið hef-
ur. Kolbeinn segir að gera megi
ráð fyrir að biðin eftir vegabréf-
unum verði nokkuð lengri en
áður, eða allt að tíu dagar, en
kostnaðurinn verður sá sami.
Þó verður hægt að fá útgefið
vegabréf með hálfs dags fyrir-
vara ef þörf er á, en þá verður
þjónustan dýrari.
„Vegabréfuy eru með fána-
blárri kápu. Á innri síðunum
eru ákveðin þemu, meðal ann-
ars landnámið, landafundirnir,
náttúra landsins og nútíminn.
Engar tvær síður verða eins.
Að mínu mati, og þeirra sem vit
hafa á, er þetta mjög vel
heppnuð hönnun," segir Kol-
beinn.
Peysurúvalið í Glugganum
Glugginn
Laugavegi 60, sími 551 2854
UCictojUé
Köflóttar buxur
Kvartbuxur
Bermúdabuxur
tískuverslun
Rauðarárstíg 1, sími 561 5077
Stjörnuspá á Netinu
ós o« stólar!
Opið laugardaga frá 10-16
oíBmslm
GJAFIR & HÚSGÓCN
Suðurlandsbraut 54, sími 568 9511
(við hiiðina á McDonalds)
'ILBOÐ
SUIHIAR-
FATNAÐUR
V ÚRVAL* ALLAR STÆRÐIR • BETRA VERÐ / Kr. 980,-
Regn-og
vindjakkar
S-WI-L-XL
flðeins
Quelle
VERSLUN
DALVEGI 2 • KÓPAVOGI
SÍMI: 564 2000