Morgunblaðið - 08.04.1999, Síða 10
10 FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Nærri 70 erindi á þingi skurðlækna og svæfíngalækna
Spáð 2% aukningn mjaðma-
aðgerða á ári næstu 30 árin
Karlmaður
handtekinn
með 8 millj-
óna króna
ránsfeng
KARLMAÐUR var handtekinn á
páskadag með ránsfeng að verð-
mæti 8 milljónir króna eftir innbrot
í íbúðarhús í Reykjavík.
Hann hafði fjarlægt ýmsa gripi
og búnað úr húsinu er hann var
gripinn. Maðurinn hefur verið úr-
skurðaður í gæsluvarðhald til föstu-
dags, en hann hefur oft komið við
sögu lögreglu.
Tilkynnt um 28
innbrot um páskana
Tilkynnt var um 28 innbrot á
heimili, í fyrirtæki og bifreiðar í
Reykjavík um páskahelgina. Inn-
brot eru færri en um páskana í
fyrra, en þá voru þau 44 talsins. Af
innbrotunum 28 í ár voru 6 á heimili.
Á PINGI Skurðlæknafélags íslands
og Svæfinga- og gjörgæslulæknafé-
lags Islands, sem stendur í dag og á
morgun, verða flutt 68 erindi og
segir Bjarni Torfason, formaður Sk-
urðlæknafélags íslands, mikla og
vaxandi grósku í báðum félögunum
sem endurspeglist í vaxandi gæðum
rannsókna í fræðigreinunum.
Meðal þess sem kynnt verður á
þinginu í dag er spá um þörf á
gerviliðaaðgerðum á mjöðmum
vegna frumslitgigtar á íslandi
næstu 30 árin. Segir í ágilpi Þor-
valdar Ingvarssonar og samstarfs-
lækna hans að gerviliðaaðgerðum í
mjöðm hafi fjölgað mjög frá árinu
1982 og svo virðist sem þörfínni sé
enn ekki fullnægt. Spá þeir því að
aðgerðum fjölgi úr 221 árið 1996 í
260 árið 2005, 300 árið 2015 og 368
árið 2030 eða um 2% á ári. Segja
læknarnir nauðsynlegt að heilbrigð-
isyfirvöld geri jafnt og þétt ráð fyrir
auknu fé til gerviliðaaðgerða á
næstu árum.
í nýjasta tölublaði Læknablaðs-
ins eru birt ágrip erinda sem flutt
verða á þinginu og þar er einnig
ávarp Bjarna Torfasonar. „Við sem
erum starfandi sérfræðingar á Is-
landi fögnum sérstaklega framlagi
ungra lækna og læknanema og
framlagi lækna í sérnámi svo og
sérfræðinga erlendis frá, enda er
dugmikil nýiiðun mikilvæg til fram-
tíðar litið.“ Meðal umfjöllunarefna
má nefna nýjung í meðferð stón-a
bruna með húðlíki, nýjar leiðir í
meðhöndlun á lófakreppu, spá um
þörf fyrir gerviliðaaðgerðir í
mjöðmum næstu 30 árin og skurð-
aðgerðir til réttingar á kryppu eftir
eldri hryggbrot, svo nokkuð sé
nefnt.
Rétta má kryppu
eftir hryggbrot
Síðastnefnda efnið kynnir Bogi
Jónsson, sérfræðingur á bæklunar-
skurðdeild Landspítalans, og í
ágripi hans og Halldórs Jónssonar
er lýst meðferð til að laga kryppu
eftir hiyggbrot. Voru níu karlar
réttir en þeir höfðu hlotið brot í
brjóstmjóbaki. Var hryggskekkja
þein-a yfir 35 gráður í öllum tilvik-
um og þjáðust þeir mjög af verkjum
vegna þessa. Með aðgerðinni tókst
að rétta alla sjúklingana í eðlilega
líkamsstöðu og sjö af níu gátu snúið
aftur til starfa.
„Sennilega er oft um að ræða
beygju-tog-áverka þar sem áverkar
á aftari liðbönd hiyggjarins hafa
ekki verið greindir, heldur aðeins
hryggbrotið sjálft. Oruggasta leiðin
til að greina slíka áverka myndrænt
er með segulómun og ætti ávallt að
gera slíka rannsókn í ofangreindum
tilvikum," segir í niðurlagi ágrips-
ins.
Fyrstu birtingarnir úr Geirlandsá
ÞANNIG var ástandið austur við Sog um hátíðirnar, hvít jörð og skarir við bakka. Nú mun ástandið mun
betra. Það eru Friðleifur Friðleifsson og Jón Þ. Einarsson sem þarna reyna fyrir sér á Bfldsfellsbreiðu.
FYRSTU sjóbirtingarnir voru
dregnir úr Geirlandsá á þriðju-
dagskvöldið, alls tólf stykki, allir
í svokölluðum Ármótum sem er
jafnan afgerandi besti veiðistað-
urinn hvort heldur er á vorin eða
haustin. Þetta voru „góðir físk-
ar“ að sögn Gunnlaugs Óskars-
sonar sem var á leið austur í gær
og hafði haft tal af veiðimönnum
við ána.
Geirlandsáin hefur annars ver-
ið erfið til veiða þessa fyrstu
daga vertíðarinnar, fyrst afar
vatnslítil, en síðan í meiri eða
minni flóðaham. Aflinn á þriðju-
dag kom til með þeim hætti að
veiðimaður einn ærðist af að-
gerðarleysi við að horfa á ána
ryðjast dökkleita til sjávar, ók í
loftinu í Ármótin og fann lygnan
blett þar sem sýnilega var mikill
fískur undir. Eftir að hafa dregið
fimm fiska, ók hann til veiðihúss
og Iét vita af veiðinni. Undir
myrkur höfðu sjö til viðbótar
veiðst.
Fyrstu daga veiðitímans,
þ.e.a.s. flesta daga nýafstaðinna
páska, var afar erfitt um vik við
skaftfellsku árnar, snjór á bökk-
um og ís á ám. Þetta hefur verið
að lagast mjög með hlýnandi
veðri og búast má við að Hörgsá
fari brátt að skila sinni fyrstu
veiði á land.
Glæðist aðeins í Sogi
Það er aðeins að glæðast í Sog-
inu, en ís og snjór drógu mjög úr
möguleikum veiðimanna fyrstu
dagana. Menn sáu nokkuð af
fiski sem tók ekki. En nýverið
veiddust t.d. þijár vænar bleikjur
í Bfldsfelli og á þriðjudag komu
órar á land í Alviðru. Þá hafa
rmenn reytt eitthvað upp í
Þrastalundi, en þeir hafa það
svæði á leigu til 20. júní, er
Stangaveiðifélagið Lax-á tekur
við.
Regnbogar
í Þorleifslæk
Þokkaleg veiði hefur verið i'
Þorleifslæk, þ.e.a.s. Varmá neð-
an brúar á þjóðvegi númer eitt.
Mest hefur veiðst af sjóbirtingi,
en einnig nokkuð af regnboga.
Fyrsta daginn, á skírdag, fékk
t.d. veiðimaður fjóra fiska, allt
regnboga. Onnur stöng fékk tvo
og var annar þeirra mjög dökkur
og þunnur hængur. Sonur Rósars
Eggertssonar tannlæknis veiddi
fiskinn og sagði Rósar, sem var
viðstaddur, að svil hefðu lagað úr
gotrauf regnbogans. Það er ekk-
ert nýtt að regnbogar veiðist í
Þorleifslæk, en það er e.t.v. rann-
sóknarefni hvort þeir hrygna
þar.
Landmæl-
ingar fá
ný mæling-
artæki
LANDMÆLINGAR íslands fengu
í gær afhent Trimble GPS land-
mælingartæki ásamt hugbúnaði til
úi-vinnslu á mæligögnunum. Um er
að ræða tvö Trimble 4000ssi tæki
og eitt Trimble 4700 tæki og er
búnaðurinn keyptur af fyrirtækinu
Ismai- hf.
Með þessum tækjum og hugbún-
aði er bæði hægt að mæla í raun-
tíma, þannig að niðurstöður mæl-
inganna fást strax þegar verið er
að mæla, og einnig til úrvinnslu að
mælingum loknum. Tækin nota
gervitungl sem ganga umhverfis
jörðu í 20.000 km hæð til að reikna
staðsetningu. Þetta er ein ná-
kvæmasta tækni við landmælingar
sem völ er á og er hægt að mæla
með nokkurra millímetra ná-
kvæmni, segir í fréttatilkynningu.
„Þessi búnaður er algjör bylting
fyrir mælingardeild Landmælinga
Islands og er hún nú í stakk búin
að leysa fiest landmælingai-verk-
efni stofnunarinnar á næstu árum,“
segir í tilkynningunni.
Mæla gömul þrfliyrninganet
Helstu verkefnin sem tækin
verða notuð til á næstunni ei*u að
mæla inn gömul þríhyrninganet í
samvinnu við nokkrar ríkisstofnan-
ir svo hægt verði að reikna þau yfir
í nýtt grunnstöðvanet landsins og
einnig verður unnið að eftirlits-
mælingum á grunnstöðvanetinu.
Opinn dag’ur í Hólaskóla
OPINN dagur verður haldinn 17.
apríl í Hólaskóla á Hólum í Hjalta-
dal.
Við skólann era starfræktar þrjár
meginnámsbrautir: Ferðamála-
braut, en markmið hennar er að
mennta fólk til starfa við ferðaþjón-
ustu í dreifbýli í anda sjálfbærrar
ferðamennsku. Fiskeldisbraut, þar
sem lögð er áhersla á að veita
fræðslu um fiskeldi og nýtingu
vatnafisks á íslandi. Námið er í
nánum tengslum við fiskeldisrann-
sóknir skólans. Hrossaræktarbraut,
en markmið hennar er að stuðla að
auknum framförum í hrossarækt-
inni, bættu uppeldi og meðferð
hrossa, betri tamningum og reið-
mennsku svo og aukinni arðsemi í
greininni. í framhaldi af námi við
hrossaræktarbrautina er boðið upp
á aukið nám til menntunar reið-
kennara. Á Hólum er margvísleg
starfsemi í tengslum við námið, má
þar nefna hrossakynbótabú ríkisins,
rannsóknarstöð í silungseldi, ferða-
þjónustu yfir sumartímann, vatna-
lífssýningu, sumarbúðir íyrir börn
svo eitthvað sé nefnt.
Tilgangurinn með opna deginum
er að kynna þá fjölbreyttu starfsemi
sem fram fer á Hólum. Dagskráin
þann 17. apríl hefst kl. 13.30 með
reiðsýningu og keppni við reiðhöll
skólans þar sem nemendur sýna
listir sínar.
Kl. 15 verður helgistund í Hóla-
kirkju. Þar verður fagnað þeim
áfanga að nú er að ljúka gagngerum
endurbótum á skólahúsinu en húsið
var allt orðið mjög lúið. Árið 1995
hófust framkvæmdir við skólahúsið,
en elsti hluti þess, sem er frá 1910,
er hannaður af Rögnvaldi Ólafssyni,
en seinni hlutinn frá 1927, er hann-
aður af Guðjóni Samúelssyni. Nú
hefur húsið verið endurbætt og end-
urbyggt að hluta og þetta veglega
skólahús Hólaskóla öðlast sína fyrri
reiyn, segir í fréttatilkynningu.
I skólahúsinu mun jafnhliða fara
fram kynning á því námi sem er í
boði við skólann. Nemendur af
ferðamálabraut, fiskeldisbraut og
hrossabraut ásamt nemendum á
framhaldsdeild hrossabrautar Hóla-
skóla kynna þau verkefni sem þeir
hafa fengist við í vetur í íþróttahúsi
skólans. Námið eins og það er í dag
tekur eitt ár og lýkur með verk-
námi.
Áætlað er að dagskránni Ijúki kl.
17. Kaffiveitingar verða í boði skól-
ans. Allir velunnarar Hólaskóla era
velkomnir heim að Hólum þennan
dag.
Andlát
ÓLÖF
BJARNADÓTTIR
ÓLÖF Bjarnadóttir
lést á Droplaugarstöð-
um 31. mars síðastlið-
inn. Hún var fædd í
Reykjavík 11. nóvem-
ber 1919, dóttir Ás-
laugar Ágústsdóttur
og séra Bjarna Jóns-
sonar dómkirkju-
prests.
Ólöf tók stúdents-
próf frá Menntaskól-
anum í Reykjavík árið
1938 og árið 1944 gift-
ist hún Agnari Klem-
ens Jónssyni, sendi-
herra og síðar ráðu-
neytisstjóra, en hann lést árið 1984.
Eftir að Ólöf gifti sig dvaldist
hún lengi erlendis
vegna starfa eigin-
manns síns í utanríkis-
þjónustunni. Var hún
sendiherrafrú í
London, París, Osló og
Kaupmannahöfn. Eftir
að hún fluttist heim
vai- hún um árabil
sjálfboðaliði á bóka-
safni Rauða krossins á
Landspítalanum. Síð-
ustu tvö æviárin naut
Ólöf umönnunar á
hjúkranarheimilinu
Droplaugarstöðum í
Reykjavík.
Börn þeirra hjóna urðu fjögur og
eru þrjú þeirra á lífi.