Morgunblaðið - 08.04.1999, Síða 22
22 FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 1999
MORGUNBLAÐIÐ
ÁRÁS NATO Á JÚGÓSLAVÍU
rar- ■ -:*~y
Reuters
STARFSMENN hjálparstofnunar ganga um mannlausar flóttamannabúðir við landamæri Júgóslavíu og Makedóníu. 40.000 Kosovo-búar voru
fluttir þaðan fyrirvaralaust með rútum í fyrrinótt.
Makedóníumenn tæma flóttamannabúðir við landamærin að Serbíu
Flóttamenn fluttir
með valdi til Albaníu
Serbar reka flóttamenn
aftur til Kosovo
Flóttamannahjálp Sameinuðu þjóðanna
kvaðst í gær hafa miklar áhyggjur af tug-
þúsundum Kosovo-búa, sem yfirvöld í
Makedóníu létu flytja með rútum úr búð-
um við landamærin að Serbíu í fyrrinótt.
Yfírvöld í Júgóslavíu lokuðu einnig
landamærastöðvum í Kosovo og
neyddu þúsundir flóttamanna til að
snúa aftur til héraðsins.
FÓLKSFLÓTTINN
TALIÐ var að alls hefðu um 60.000
Kosovo-búar verið í flóttamannabúð-
unum í Blace í Makedóníu þegar lög-
reglu- og hermenn voru sendir þang-
að í fyrrinótt til að flytja allt flótta-
fólkið í burtu með rútum. Flótta-
mannahjálp Sameinuðu þjóðanna
sagði að um 25.000 þeirra hefðu ver-
ið flutt í bráðabirgðabúðir nálægt
Skopje, höfuðborg Makedóníu, og
sögðust hafa miklar áhyggjur af ör-
yggi hinna flóttamannanna 35.000.
Andrea Angeli, talsmaður Flótta-
mannahjálparinnar, sagði síðdegis í
gær að 14.000 flóttamannanna hefðu
komið til Albaníu og fleiri væru á
leiðinni þangað. Aðrir kynnu að hafa
verið fluttir til Grikklands og Tyrk-
lands.
Albanska fréttastofan ATA hafði
eftir flóttamönnunum í Albaníu að
makedónskir lögreglumenn hefðu
barið þá með kylfum og neytt þá til
að fara í rúturnar.
Kiro Gligorov, forseti Makedóníu,
varði þessar aðgerðir og sagði að
eðlilegt væri að albanskir íbúar
Kosovo yrðu fluttir til Albaníu. Ekk-
ert pláss væri fyrir þá í Makedóníu.
Algjör glundroði í
flóttamannabúðunum
Þúsundir Kosovo-búanna voru
einnig fluttar í flóttamannabúðir,
sem NATO hefur reist í Stankovac,
einu af úthverfum Skopje. Algjör
glundroði var í flóttamannabúðun-
um, sem voru aðeins ætlaðar 4.000
manns, en um 8.000 flóttamenn voru
komnir þangað eftir flutningana í
fyrrinótt.
Margir flóttamannanna leituðu í
örvæntingu af skyldmennum sem
þeir urðu viðskila við í glundroðan-
um. „Verið svo væn að hjálpa mér að
fínna mömmu mína,“ hrópaði ungur
maður til fréttamanna þegar
makedónskir lögreglumenn meinuðu
honum að fara í flóttamannabúðirn-
ar. „Hún er í búðunum en veit ekki
hvar ég og systur mínar erum.“
Paula Ghedini, talsmaður Flótta-
mannahjálparinnar, kvaðst hafa
miklar áhyggjur af meðferð
makedónskra yfirvalda á flóttafólk-
inu. „Mikilvægast er að fólkið fari
sjálfviljugt og fjölskyldurnar verði
ekki aðskildar. Menn geta ekki sett
fólk í rútur án þess að segja því
hvert förinni er heitið.“
„Ef við hefðum vitað að þetta biði
HÓPUR Kosovo-búa bíður í röð eftir því að fá úthlutað vatni í flótta-
mannabúðum sem reistar hafa verið við þorpið Brazde, um 25 km
norðan við Skopje, höfuðborg Makedóníu.
okkar hefðum við frekar viljað vera
áfram í Pristina og deyja þar,“ sagði
einn flóttamannanna.
Fluttir á brott
„í skjóli rnyrkurs"
Fréttamenn sem fóru til Blace í
gærmorgun sögðu að engir flótta-
menn væru þar lengur. Sjónarvottar
sögðu að flóttafólkinu hefði verið
smalað í rútur og því hefði ekki verið
leyft að taka með sér eigur sínar.
Paul Stromberg, talsmaður
Flóttamannahjálpar Sameinuðu
þjóðanna, sagði aðgerðu- Makedóníu-
manna mikið áhyggjuefni. Rútm-nai-
hefðu verið sendar í flóttamannabúð-
irnar „fyrirvaralaust og í skjóli
myrkurs“.
Stromberg sagði að Flóttamanna-
hjálp Sameinuðu þjóðanna hefði
alltaf lagt áherslu á að flóttafólkið
yrði ekki flutt nauðugt úr búðunum.
Hann kvað stofnunina hafa áhyggjur
af því að aðgerðir Makedóníumanna
yrðu til þess að fjölskyldur Kosovo-
búanna tvístruðust frekar.
Serbar loka landa-
mærastöðvum
Öryggis- og samvinnustofnun
Evrópu (ÖSE) skýrði ennfremur frá
því að yflrvöld í Júgóslavíu hefðu
lokað helstu landamærastöðinni milli
Serbíu og Albaníu í fyrrinótt. „Okk-
ur skilst að þau hafí sagt flóttamönn-
unum að þeim sé óhætt að snúa aftur
heim vegna vopnahlés Serba,“ sagði
Andrea Angeli, talsmaður ÖSE.
Stjórnvöld í Júgóslavíu lýstu yfir
vopnahléi í fyrradag vegna páskahá-
tíðar rétttrúnaðarkirkjunnai' en leið-
togar NATO höfnuðu yfirlýsingunni
og svöruðu henni með frekari árás-
um á serbnesk skotmörk.
Að minnsta kosti 280.000 Kosovo-
búai’ hafa flúið til Albaníu síðasta
hálfa mánuðinn og flestir þeh-ra í
gegnum landamærastöðina í Morina.
Um 30-40.000 manns hafa farið yfir
landamærin á degi hverjum að und-
anförnu en flóttamannastraumurinn
til Albaníu minnkaði verulega í gær.
Ekkert flóttafólk sást við
landamærastöðina í Morina. „Við vit-
um ekki hvað gerðist," sagði al-
banskur landamæravörður. „Líklega
hafa Serbar vísað þeim öllum burt.“
Talsmaður Flóttamannahjálpar
Sameinuðu þjóðanna sagði að engir
flóttamenn hefðu farið yfir landa-
mærin í gegnum afskekkta
landamærastöð, Qafa e Prushet, í
fyrradag og Serbar hefðu líklega
lokað henni. „Til að komast í gegnum
Qafa e Prushit þurfa menn að vera i
fylgd serbneskra hermanna vegna
þess að jarðsprengjur hafa verið
lagðar á svæðinu.“
Serbar lokuðu einnig landamæra-
stöðinni Jazince og vísuðu þúsundum
manna, sem höfðu beðið þar dögum
saman eftir því að komast til Ma-
kedóníu, aftur til Kosovo. Um 20.000
Kosovo-búar höfðu beðið þar í 25 km
bílaröð.
Þögn sló á um hundrað Albana,
sem biðu eftir ættingjum sínum
handan landamæranna, þegar þeir
sáu flóttafólkið aka í átt að Kosovo.
Þeir sögðu útilokað að flóttafólkið
hefði ákveðið af sjálfsdáðum að snúa
aftur til héraðsins.
Fréttastofan Ritzau hafði eftir
Anders Ladekarl, deildarstjóra
Danska flóttamannaráðsins, að
serbneskir hermenn hefðu rekið alls
um 40.000 Kosovo-búa aftur til hér-
aðsins frá landamærunum að Ma-
kedóníu.
Jamie Shea, talsmaður Atlants-
hafsbandalagsins, sagði að betra
væri fyrir fólkið að dvelja í flótta-
mannabúðunum undir vernd NATO
en í „auðnum“ Kosovo þar sem „öllu
hefur verið stolið“. „Ég vona að
serbneska stjórnin sé ekki að leika
sér að lífi fólksins."
Ráðgert að senda 20.000
flóttamenn til Kúbu
Ráðherrar frá ríkjum Evrópu
komu saman í Lúxemborg í gær til
að ræða hvernig taka ætti á flótta-
mannavandanum. Nokkur ríki hafa
boðist til að taka við flóttafólki til
bráðabirgða til að létta undir með
nágrannaríkjum Serbíu, sem segjast
ekki ráða við flóttamannastrauminn
frá Kosovo. Bandaríkjamenn hyggj-
ast t.a.m. flytja 20.000 flóttamenn í
bandaríska herstöð á Kúbu.
Flóttamannahjálp SÞ segir að
rúmlega 400.000 manns hafi flúið frá
Kosovo frá því árásir NATO hófust
24. mars. 262.000 þeirra hafi flúið til
Albaníu, 120.000 til Makedoníu,
36.700 til Svartfjallalands, 8.000 til
Bosníu og 6.000 til Tyrklands. Sada-
ko Ogata, framkvæmdastjóri Flótta-
mannahjálparinnar, hyggst fara á
svæðið á næstu dögum til reyna að
bæta hjálparstarfið.
Vildu ekki fara
til Tyrklands
Tíu flugvélai' fluttu flóttafólk frá
Makedóníu til Tyrklands og Noregs í
íyrradag en flutningarnir hafa sætt
gagni-ýni vegna frétta um að flótta-
fólkið hefði verið flutt nauðugt úr
flóttamannabúðunum.
Embættismenn Sameinuðu þjóð-
anna sögðust hafa hafið rannsókn á
fréttum um að margir flóttamann-
anna, sem voru fluttir til Tyrklands,
hefðu ekki viljað fara þangað og