Morgunblaðið - 08.04.1999, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 1999 23
ÁRÁS NATO Á JÚGÓSLAVÍU
MAKEDÓNSKIR hermenn fylgjast með flóttamönnum, sem bíða eftir því að verða fluttir af akri við
landamærin að Júgóslavíu.
Mótmæli
múslima og
gyðinga
ZAVIA Mordan, flóttamaður frá Kosovo, heldur á nýfæddum syni
sínum í sjúkrahústjaldi, sem ísraelski herinn hefur sett upp í Skopje í
Makedóníu. Þar eru 100 rúm og 70 starfsmenn.
nokkrir þeirra hefðu verið neyddir til
að fara um borð í flugvélarnar.
Fréttaritari BBC-útvarpsins sagði
að margir flóttamannanna hefðu ekki
fengið að vita hvert þeir yrðu fluttir.
Verða ekki fluttir
nauðugir
Breski herforinginn Tim Cross, yf-
irmaður hersveitai- sem skipuleggur
hjálparstarf NATO, sagði í gær að
séð yrði til þess að flóttafólkið yrði
ekki flutt nauðugt til annarra landa
og fjölskyldumar yrðu ekki aðskildar.
Þjóðverjar hafa boðist til að taka
strax við flóttafólki og fyrsti hópurinn
var fluttur með flugvél til Þýskalands
í gær. Cross sagði að vel yrði staðið
að þeim flutningum. Flóttamanna-
hjálp SÞ og ÖSE hefðu komið upp
skráningarkerfi í flóttamannabúðun-
um og hygðust setja upp skilti með
áletruninni: „Komið hingað ef þið vilj-
ið fara til Þýskalands".
í gærmorgun höfðu þúsundir
flóttamannanna skráð sig á lista yfir
þá sem vilja fara til Þýskalands. Aðrir
sögðust vilja bíða eftir því að aðrir
kostir byðust. „Ég vil hvorki fara til
Þýskalands né Noregs. Öll fjölskylda
mín er í Sviss og ég vil fara þangað,“
sagði Esma Berisha, 26 ára háskóla-
nemi sem var hrakin frá heimili sínu í
Pristina.
50.000 Kosovo-búar
hafa flúið til Serbíu
Júgóslavneski ráðherrann Milan
Bozic sagði í gær að 50.000 íbúar
Kosovo, þeirra á meðal Albanar og
Serbar, hefðu flúið til annarra svæða
í Serbíu vegna loftárása NATO.
„10.000 þeirra eru í Belgrad, 25.000 á
serbneskum svæðum nálægt Kosovo
og hinir 15.000 í felum hjá vinum og
ættingjum út um alla Serbíu.“
NATO hefur sagt að um 831.000
manns, eða um helmingur allra íbúa
Kosovo, hafí flúið heimili sín á einu
ári, flestir þeirra síðustu tíu daga.
Bozic sagði þetta miklar ýkjur og
deila þyrfti tölu NATO með fjórum
eða fímm til að fá út réttan fjölda
flóttamannanna.
Múslimar flýja til Bosniu
Flóttamannahjálp Sameinuðu
þjóðanna sagði að 11.000 múslimar
hefðu flúið frá Júgóslavíu til Bosníu
frá því loftárásir NATO hófust.
Flestir þeiiTa hefðu búið í Sanjak í
vesturhluta Júgóslavíu en á meðal
þeirra væru einnig múslimar frá
Svartfjallalandi og Belgrad.
Margir múslimanna segjast hafa
flúið til að komast hjá því að þurfa að
gegna herþjónustu og af ótta við að
Serbar myndu ráðast á þá til að
hefna árása NATO.
Dhaka. Reuters.
HEITTRUAÐIR múslimar hafa
oft á tíðum haldið því fram að
Vesturlönd, hinn kristni heimur,
hafi óbeit á íslamstrú og vilji
tortíma henni. Nú virðist þó sem
Vesturlönd hafi áunnið sér þögl-
an stuðning múslima víðsvegar
vegna loftárása Atlantshafs-
bandalagsins (NATO) á Serba,
til varnar trúbræðrum þeirra,
Kosovo-Albönum.
Víðsvegar ineðal fslamskra
þjóða hafa grimmilegar árásir
herja Milosevics verið gagn-
i'ýndar. I Egyptalandi héldu þús-
undir námsmanna f mótmæla-
göngu á mánudag til að lýsa
andstöðu við „slátrarann Milos-
evic“ og mótmæla aðgerðaleysi
þjóða gagnvart trúbræðrum sín-
um Kosovo-Albönum.
Yfírvöld í Kúvæt og Bangla-
desh hafa einnig fordæmt
grimmilegar árásir Milosevic og
hafa báðar þjóðirnar lagt sitt af
mörkum við að styðja við fíótta-
menn frá Kosovo.
ísraelar og Palestínumenn
hafa einnig stutt flóttamenn frá
Kosovo, en reynsla Kosovo-Alb-
ana minnir þá mjög á meðferð
nasista á gyðingum í seinni
heimsstyrjöldinni.
Palestínustjórn hefur hafíð
skipulagningu við aðstoð flótta-
mannanna og hefur sjúkraað-
stöðu verið komið upp í Mak-
edóníu á vegum Israela. Einnig
hefur á vegum óháðra félaga-
samtaka í Israel verið flogið
með fyrstu sendinguna af þrem-
ur af hjálpargögnum til Albaníu.
Við komuna til Albaníu sagði
talsmaður samtakanna; „Hingað
erum við komin í nafni gyð-
inga.“
J^E^AINl^UREMT
Vor- oq sumarCitimir eru komnir
Förðunar- og snyrtifræðingar
verða hjó okkur í dag
og ó morgun.
- nýja liti
Viðkynnum: - nýjar vöiur
- nýjan ilm
OculuS
^usturstræti 3
Sími 551 4033
Vertu
velkomin
Hægt er að panta tímo í fðrðun
ísíma 551 4033
Fyrsta 100% ferska,
hreina Retinol -varan
POWER A.
PURE RETINOL REPAIR
THERAPY
EINSTÖK MINNKUN
A HRUKKUM OG HÚÐ-
SKEMMDUM
Tímamótatækni:
Tvö krem í einni flösku. Við notkun blandast kremin og til
verður hreint Retinol. POWER A. dregur sjáanlega úr
hrukkum og línum og lagfærir bletti af völdum sólar og
önnur yfirborðs húðlýti (lítil ör, ójafnan húðlit, bletti).
Kynning í dag, föstudag og langan laugardag.
Glæsilegur kaupauki þegar verslað er fyrir kr. 3.000
eða meira.
Bankastræti 8,
sími 551 3140.
á>ara s
frúmsýnifip' 16. cipríl 1999
III rmi'
isi i:\skv ori it vv
;-'-J1111 Síini 557 7475