Morgunblaðið - 08.04.1999, Side 30
30 FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 1999
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Innvortís
og útvortís
MYJVDLIST
Ásmundarsafn, Sigtúni
HÖGGMYNDIR
RAGNHILDUR
STEFÁNSDÓTTIR
Til 13. maí. Opið daglega
frá kl. 13-16.
MANNSLÍKAMINN hefur ver-
ið helsta viðfangsefni myndhöggv-
ara frá því fagið varð til á forsögu-
legum tíma, eða fyrir um 30 þús-
und árum. Sé þess gætt að mynd-
list öðlaðist sérstæða merkingu
sem veraldleg iðja á Grikklandi til
forna með ofuráherslu þarlendra
myndhöggvara á túlkun mannlegs
líkamsburðar verður varla sagt að
Ragnhildur Stefánsdóttir sé að
færa okkur nýjan sannleik í efn-
isvali. Hitt er miklu nær að hún
birti okkur nýja sýn á kroppinn;
sýn sem er í samræmi við endur-
vakinn áhuga okkar á fyrirbærinu
á tímum ómælisframfara í læknis-,
erfða- og taugasálfræði.
Olíkt öllum þeim aragrúa lista-
manna sem fengist hafa við lík-
amslist á undanfömum áratugum
virðist Ragnhildur laus við beina
tilvistarlega skírskotun. Hún hafn-
ar samasemmerkinu milli kroppa-
sýningar og sársauka - ódulbúinn-
ar birtingar kvalalosta og sjálf-
spyntingarhvatar - en slík tvíliða
hefur verið nær einráð í líkamslist
okkar tíma. Engin sálarkreppa á
borð við afskræmingu Bacons, ein-
angrun Giacomettis eða skepnu-
skap Naumans gerir vart við sig í
list hennar. Þar bíður tilvistar-
hyggjan fullkominn ósigur fyrir
fyrirbærafræðinni, þeirri einlægu
undrun sem við verðum fyrir
ý§> mbl.is
__ALLTAf- eiTTH\fAÐ NÝTl-
frammi fyrir jafnóræðum hlut og
mannslíkamanum.
Á meðan kollegar Ragnhildar
hamast við að opinbera líðan sína
með sérkennilega narkissískum
hætti, spyr hún hlutlægra spum-
inga um eðli líkamans; spurninga
sem em mun áhugaverðari en allt
pínu- og kvalatal í Ijósi þeima upp-
götvana sem yfir okkur hvolfast úr
heimi vísinda og tækni. Bak við
þessar spumingar skín í
fölskvalausa afhjúpunarhvöt sem
er snöggtum framsæknari en öll
tilvistarleg frumspeki: Hvernig má
það vera að allar þessar tilfinning-
ar; öll þessi skynjun og stórbrotna
hugsun sé bara efnafræði líffær-
anna; miður geðslegt innvols hrúg-
að saman á bakka eins og ávöxtum
í körfu?
Það er eitthvað afar kaldrana-
legt, en um leið ofurraunhæft við
slíkar vangaveltur. Ragnhildi tekst
að færa okkur að rótum ótta okkar
og umkomuleysis, einmitt á þann
punkt þar sem forfeður okkar
stóðu yfir iðmm áður sprell-
fjömgra samferðamanna sinna og
bragðust við óbærilegum fallvalt-
leik tilvemnnar með því að setja
saman flókið kerfi væntinga sem
svo heppilega vildi til að engum
tókst að sanna né afsanna. Það er
okkur nefnilega um megn að við-
urkenna að öll okkar háleitasta
sýn og fegurstu kenndir séu ein-
ber afleiðing ógeðugs og undur-
sviplegs innyflafjörs.
Ásmundarsafn hentar verkum
Ragnhildar afbragðsvel. Hlutlaust
og birturíkt umhverfi þessara feg-
urstu sýningasala landsins myndar
ákjósanlega umgjörð um frábæra
sýningu hennar. Verldn sem öll
era úr gipsi og gúmi draga til sín
athygli áhorfandans eins og segull
enda em þau hvert og eitt eins og
minnisvarði um mannslíkamann og
óendanlegar vangaveltur okkar
um hann.
Halldór Björn Runólfsson
mínúta
frábært útlit
Tafarlaust. Ahrifaríkt. Magnaö.
EXTRACT OF SKIN CAVIAR
FIRMING COMPLEX
Einföld andlitslyfting.
Fínar Ifnur hverfa.
Faröinn endist lengur.
Frábært.
SWITZERLAND
Kynning fimmtudag og
föstudag kl. 13-18
fnyrtivörtLverélun
Austurstræti 16, sími 511 4511
HYGEA, Kringlunni 8-12,
HYGEA, Austurstræti 16, HYGEA, Laugavegi 23, LIBIA í
Mjódd, AGNES snyrtistofa, Listhúsinu v/Engjateig,
Snyrtistofan JÓNA, Hamraborg 10, Snyrtistofan MANDÝ,
Laugavegi 15, GALLERÍ FÖRÐUN, Hafnargötu 25, Keflavík,
Á HVOLFI, ein af fjölmörgum eftirminnilegum höggmyndum Ragn-
hildar Stefánsdóttur í Ásmundarsafni.
LANDSLAG, sláandi mynd af vélbúnaði líkamans, eða fallvaltleik
mannsævinnar, eftir Ragnhildi Stefánsdóttur.
Til heiðurs Indriða
BÆKLR
Greinasafn
GREINAR AF SAMA MEIÐI
Afmælisrit til heiðurs lndriða
Gíslasyni. Ritstjórn: Baldur Sigurðs-
son, Siguröur Konráðsson og
Örnólfur Thorsson.
Rannsóknarstofnun Kennaraháskóla
íslands 1998, 419 bls.
GREINASAFN það sem hér er
til umsagnar var gefíð út á síðast-
liðnu ári til heiðurs Indriða Gísla-
syni, íslenskufræðingi og fyrrver-
andi prófessor við Kennaraháskóla
Islands, í tilefni sjötugsafmælis
hans árið 1996. Eins og fram kemur
í formála bókarinnar hefur Indriði
unnið mikið og gott starf við
kennslu-, fræði- og uppeldisstörf á
langri starfsævi og tekur efni
greinasafnsins til áhugamála hans:
íslenskra fræða, kennslu- og upp-
eldismála. Bókinni er skipt niður í
fimm hluta sem saman standa af 26
mislöngum greinum. Hlutarnir
nefnast: Af skáldskap, Um móður-
málskennslu, Af tungutaki, Ur
handraðanum og Af Austurlandi.
I safninu kennir margra grasa og
ekki er hægt að fjalla hér um allar
greinarnar í svo stuttum ritdómi,
eins og gefur að skilja, en ég mun
taka nokkur dæmi til að gefa hug-
mynd um efni og efnistök. Það má
þó ekki skiljast þannig að þær
greinar sem ég læt ónefndar séu á
nokkurn hátt „ómerkilegri" en þær
fáu greinar sem ég kýs að nefna, val
mitt er að mörgu leyti tilviljunar-
kennt og vafalaust háð mínum eigin
smekk og áhugasviði framar öðm.
Þótt greinarnar 26 séu að sjálf-
sögðu margvíslegar og ólíkar að
gerð má þó greina ýmsa „rauða
þræði“ í efni og efnistökum. Einn
sá gildasti snýr að þeim vanda að
kenna íslensk fræði í skólum á þann
hátt að nemendur hafi bæði gagn
og gleði af. Hér má nefna skemmti-
legar greinar þeirra Örnólfs Thors-
sonar um fornsagnakennslu í
grannskóla, „Fornritastiginn, eða
Grettir fer í grunnskóla", og Hjalta
Hugasonar, ,Ást við fyrstu sýn.
Mynd Guðríðar Þorbjarnardóttur í
Grænlendinga sögu og Eiríks sögu
rauða. Báðar þessar greinar bera
vitni um mikinn vilja til að koma
fornsagnaarfinum á framfæri við
ungu kynslóðina á aðgengilegan og
skemmtilegan máta og báðar ættu
þær að geta nýst öðmm með sama
markmið. Greinar þeirra Baldurs
Sigurðssonar, „Orðhlutaleið í staf-
setningarkennslu", og Sigríðar Þ.
Valgeirsdóttur, „Kennarinn og læsi
barna“, falla einnig að þessu mark-
miði, og reyndar fjalla allar grein-
arnar í kaflanum Um móðurmáls-
kennslu á einn eða annan hátt um
það hvernig móðurmálið verður
best kennt í skólum.
Af greinum um skáldskap má
nefna tvær greinar um kveðskap
Málþing um
íslenzkar
bókmenntir
HOLLVINAFÉLAG heim-
spekideildar gengst fyrir
stuttu málþingi í dag klukkan
17-19 um spurninguna „Hvað
er að gerast í íslenzkum nú-
tímabókmenntum?" Málþing-
ið fer fram á Kaffi Reykjavík
við Vesturgötu. Öllum er
heimill ókeypis aðgangur og
gestir geta keypt sér vejting-
ar á staðnum.
Frummælendur verða
Dagný Kristjánsdóttir dósent
og Guðmundur Andri Thors-
son rithöfundur. Umræðum
stjórnar Pétur Már Ólafsson
útgáfustjóri.
I fréttatilkynningu segir:
„Til að gefa nokkra mynd af
því hvers má vænta hefur
Guðmundur Andri í hyggju að
leggja svolítið út af hinni
frægu setningu Steins Stein-
ars um að hið hefðbundna
ljóðform sé nú loksins dautt
og ennfremur huga að stöðu
skáldsögunnar, einkum með
hliðsjón af þeim mikla fjölda
sögulegra skáldsagna sem
komið hefúr út á síðustu ár-
um.“
Níu kvenskáld
með upplestur
í Gerðarsafni
UPPLESTUR verður í kaffi-
stofu Gerðarsafns, Listasafns
Kópavogs, á vegum Ritlistar-
hóps Kópavogs í dag kl. 17.
Að þessu sinni lesa úr verkum
sínum níu kvenskáld úr Kópa-
vogi.
Skáldin em: Anna S.
Bjömsdóttir, Guðríður Lillý
Guðbjömsdóttir, Guðrún Guð-
laugsdóttir, Helga K. Einars-
dóttir, Kristjana E. Guð-
mundsdóttir, Sigríður Helga
Sverrisdóttir, Sigríður Vil-
hjálmsdóttir, Sigrún Guð-
mundsdóttir og Sigrún Odds-
dóttir.
Aðgangur er ókeypis og all-
ir velkomnir.
Gíslasyni \
Stephans G. Stephanssonar eftir þá
Baldur Hafstað og Harald Bessason
og athyglisverða grein Eysteins
Þorvaldssonar um kveðskap Ólafs
Kárasonar ljósvíkings. Benedikt Jó-
hannesson skrifar kostulega grein
sem nefnist „Hvað kostar að tala ís-
lensku?“ þar sem hann reynir að
meta til fjár kosti og galla þess að
viðhalda íslenskunni sem aðaltungu 1
þjóðarinnar. Gísli Jónsson fjallar
um íslensk nöfn kennd við Krist,
annars vegar, og Þór, hins vegar, og
sýnir fram á að vinsældir nafngift-
anna haldast nú á dögum lítt í hend-
ur við kristinn eða heiðinn átrúnað.
Af þessum stiklum má sjá að efni
Greina af sama meiði er fjölbreyti-
legt og er viða drepið niður þótt
uppsprettan sé ætíð hin sama: ís- |
lensk fræði og tunga. Greinasafn I
þetta er þess eðlis að fáir munu lík- |
lega lesa það frá upphafi til enda í f
einni striklotu, eins og við til að
mynda lesum skáldsögur (nema
þeir séu þeim mun áhugasamari um
íslensk fræði). Ég trúi því hins veg-
ar að safnið eigi eftir að veita mörg-
um lesendum bæði ánægju og fróð-
leik þegar gripið verður til þess og
ein og ein gi-ein lesin. Og án efa
mun það gagnast mörgum við |
kennslu og fræðistörf í framtíðinni !
og má því teljast af því allnokkur
fengur.
Soffía Auður Birgisdóttir
'’TTr'W’