Morgunblaðið - 08.04.1999, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 1999 35
Froðusnakk
MÖRGUM bauð í
grun, að ræða for-
manns Sjálfstæðis-
flokksins á landsfundi
og afgreiðsla fundarins
á sjávarútvegsmálum
væri friðþægingartal
og fagurgali. Raunar
sagði berum orðum í
ályktun fundarins, að
stefnan í fiskveiði-
stjórnarmálum skyldi
hlíta sömu grundvall-
arreglu og gilt hefir
þennan áratug. Þess
vegna hefðu menn ekki
þurft að velkjast í vafa.
Nú hefir allri óvissu
verið eytt. I viðræðum
fréttamanna við formann Sjálf-
stæðisflokksins í útvarpi miðviku-
daginn 30. mars sl. tók hann skýrt
fram að hann vildi byggja á núver-
andi kvótakerfi, „sem hefði gefið
þjóðinni allan þennan arð“, eins og
hann orðaði það. Að hans áliti
„byggir íslenzkur efnahagur á
kvótakerfinu". I kringum þessar
niðurstöður var höfð uppi skrúð-
mælgi og málalengingar, froðu-
snakk í sama tilgangi og áður að
slá ryki í augu kjósenda.
Þegar menn minnast orða og yf-
irlýsinga formanns Framsóknar-
flokksins á miðstjórnarfundi hans,
þar sem hann kvað afmarkaðar
breytingar koma til greina, en
grundvallarstefnan yrði óbreytt,
þá vita menn að áframhaldandi
stjórn þessara flokka mun engu
breyta í réttlætisátt í
sjávarútvegsmálum:
• Öll sjávarauðlind
íslands mun færast á
örfárra manna hend-
ur innan áratugar -
• Mörgum byggðar-
lögum mun blæða út,
eins og Breiðdalsvík -
• Brottkast fisks fyr-
ir milljarða á ári held-
ur áfram -
• Skuldir útvegsins
hlaðast upp í stjam-
fræðilegar tölur, þeg-
ar sægreifarnir selja
eign sína við okur-
verði -
• Starfsgreinin verð-
ur áfram lokuð fyrir ungum at-
hafna- og aflamönnum.
Formenn kvótaflokkanna eru
búnir að smíða sér fullyrðingar um
ágæti núverandi kerfis, sem eiga
sér enga stoð í staðreyndum.
Einnig eru andsvör þeirra við
breytingatillögum út í hött, ef
þeim á annað borð þóknast að við-
urkenna að slíkar tillögur séu til:
1. fullyrðing: Fiskveiðistjórnar-
kerfið gefur hámarksafrakstur
auðlindarinnar.
Svar: Kerfið neyðir sjómenn til
svo hóflauss brottkasts fisks að
einn kunnasti fiskiskipstjóri lands-
ins, Hrólfur Gunnarsson, gerir ráð
fyrir að það nemi allt að 200.000 -
tvö hundruð þúsund - tonnum af
þorski. Það hálfa væri nóg til að
gera fullyrðinguna forkastanlega.
Sverrir
Hermannsson
bæði heimskuleg og skaðleg.
Afleiðingarnar eru miklir erfiðleik-
ar, upplausn og aukin tíðni hjóna-
skilnaða, og ekki síst vansæl börn
og unglingar, sem ekki fá þann
stuðning sem þeir þurfa á að halda
út í lífið. Ekki er vafamál að koma
mætti í veg fyrir margan harm-
leikinn með því að búa börn og
unglinga betur undir lífið og fræða
foreldra um hlutverk sitt og
ábyrgð.
Nauðsynlegar úrbætur
Það þarf að efla og styrkja fjöl-
skylduna, tryggja fjárhagslegt ör-
yggi hennar og gera henni kleift
að lifa farsælu fjölskyldulífi.
Fæðingarorlof þarf að lengja og
tryggja báðum foreldrum rétt til
orlofs, annist þau bamið saman.
Foreldrar eiga að halda launum
sínum í fæðingarorlofi, og greiðsl-
ur eiga að koma úr sérstökum
sjóði, sem allir atvinnurekendur
greiða í óháð kyni og aldri starfs-
manna sinna. Þá þarf að auka rétt
til svokallaðs foreldraorlofs á
fyi’stu æviárum barnsins.
Tryggja þarf að laun fyrir 40
stunda vinnuviku dugi til sóma-
samlegrar framfærslu, en jafn-
framt er eðlilegt að stefna að 35
stunda vinnuviku. Til þess eru all-
ar forsendur, enda margsannað að
atvinnulífið tapar ekki á slíku.
Leggja þarf áherslu á félagsleg
ún-æði í húsnæðiskerfinu og létta
greiðslubyrði vegna húsnæðislána
vegna þess að öruggt og viðráðan-
legt húsnæði skiptir miklu fyrir
velferð fjölskyldunnar.
Gegn ofbeldi
Þá er afar brýnt að vinna gegn
hvers kyns ofbeldi og fíkniaefna-
neyslu. Mikilvægasti forvarnar-
þátturinn er einmitt að styrkja
fjölskylduna, m.a. með fyrrnefnd-
um aðgerðum. En það þai'f að taka
sérstaklega á þessum vanda, móta
stefnu og fylgja henni eftir. Sér-
staklega þarf að vinna gegn kyn-
ferðislegu ofbeldi gagnvart konum
og bömum, sem veldur miklum og
langvinnum þjáningum og skaða.
Börn og unglingar, sem lenda í
vanda vegna fikniefnaneyslu,
verða að fá tafarlausa og góða úr-
lausn. Best er auðvitað að byrgja
brunninn áður en barnið dettur of-
an í hann, en þegar skaðinn er
skeður er algjörlega óforsvaran-
legt að það þurfi að bíða mánuðum
saman eftir aðstoð og meðferð.
Sama er að segja um vanda geð-
sjúkra barna. Það er þjóðfélaginu
til vansa og viðkomandi fjölskyld-
um mikil raun hvernig búið er að
börnum með geðræn vandamál og
úr því þarf að bæta.
Gulls igildi
Vinstrihreyfingin - grænt fi-am-
boð leggur áherslu á að bæta vem-
lega stöðu fjölskyldunnar, styrkja
fjárhagslegan gmnn hennar og
auka möguleika fólks með ung
börn til samveru. Aðeins þannig
má vinna gegn upplausn heimila
og vanda ungmenna, sem birtist
ekki síst í auknu ofbeldi og fíkni-
efnaneyslu.
Það vakti hlátur á nýlegri ráð-
stefnu um fjölskyldumál, þegar
einn fyrirlesara sagði, að íslensk
böm væra alin upp eins og harð-
gert sauðfé. Því miður er sann-
leikskom í þeim orðum og brýnt
að snúa við blaði.
Gott uppeldi og þroski barna er
ekki einkamál foreldra, heldur sá
sameiginlegi auður, sem framtíð
okkar byggist á. Okkur ber að búa
svo um hnúta að sérhver einstak-
lingur komist til þess þroska sem
efni standa til. Það er ekki aðeins
réttur hans, heldur hagur samfé-
lagsins í heild, vegna þess að vel
metinn, ánægður og heilbrigður
einstaklingur er samfélaginu gulls
ígildi.
Höfundur cr ulþingiskonn.
2. fullyrðing: Mikil hagræðing
hefir orðið í gi’eininni undir núgild-
andi kerfi.
Svar: Þessu er öfugt farið. Und-
ir kvótakerfi hefir afkastageta
hverrar rámlestar í fiskiskipaflot-
anum minnkað um 40%. Olíunotk-
un á hverja aflaeiningu hefir auk-
izt um 124%. Hefðbundnum vertíð-
arbátum, sem fluttu bezta og
ódýrasta hráefnið að landi, hefir
næstum verið útrýmt. Gífurlegar
fjárfestingar hafa orðið í toguram
meðan fullkomin frystihús hefir
skort hráefni og fólk atvinnu í
landi. Svívirðilegasta „hagræðing"
þessara herra er eyðing byggð-
Kvótinn
Hvert stefnir hraðbyri,
spyr Sverrir
Hermannsson, undir
núverandi gjafa-
kvótakerfí?
anna, þar sem fólk flýr verðlausar
eignir sínar.
3. fullyrðing: Við markaðssetn-
ingu aflaheimilda munu stórfurst-
arnir yfirbjóða aðra og sölsa þær
allar undir sig á skömmum tíma.
Svar: Lénsherrarnir, sem
stjórnvöld hafa ausið í gjafakvót-
anum, fá ekki að nýta þann auð til
að yfirbjóða á markaði. Fyrst í
stað verður sóknarstýringu beitt
og áfram ef vel tekst tÖ, með heild-
araflahámarki, en ella veiðiheim-
ildir markaðssettar, en byggðun-
um fyrst í stað séð fyrir lífvænleg-
um veiðiheimildum á meðalverði
markaðs. Þegar frá líður verður
smáútvegsbóndinn fullkomlega
samkeppnisfær rið þá stóra, enda
aflar hann verðmætasta fisksins
með ódýnistum hætti.
En - með leyfi að spyrja: Hvert
stefnir hraðbyri undir núverandi
gjafakvótakerfi? Hafa menn ekki
fyrir augum, að 22 - tuttugu og
tveimur - aðilum í þjóðfélaginu
hefir jöfnum höndum verið gefið
eða þeir sölsað undir sig í skjóli
gjafaauðsins um 57% allrar ís-
lenzkrar sjávarauðlindar? Þykjast
menn ekki rita að þeir bættu rið
sig nær 6% á síðasta ári? Það mun
taka þá tæp tíu ár að ná henni allri
með sama áframhaldi. En þá verða
þeir að öllum líkindum ekki tutt-
ugu og tveir talsins heldur tíu eða
tólf. Svo hratt brýzt arðránsbylt-
ingin íslenzka fram.
Það kann vel að vera að foringj-
um stjómarflokkanna takist með
fimbulfambi og froðusnakki að
sigra í orrastunni hinn 8. maí nk.
En styrjöldinni um réttlæti á Is-
landi munu þeir tapa.
Höfundur er form. Frjálslynda
flokksins.
Nýju Kringlunni, sími 588 9944
'slim-line"
dömubuxur frá
gardeur
Oðtmtv
tískuverslun
v/Nesveg, Seltj., s. 5611680
Áskorun til
þingmanna
NOKKUÐ hefur ver-
ið rætt í fjölmiðlum og
manna á meðal um
milljarðana sem ríkis-
stjórnin ákvað að verja
til vegaframkvæmda
úti á landi. Sýnist sitt
hverjum um þá ráðstöf-
un, einkum þó að svæð-
ið hér á suðvesturhorn-
inu var sett hjá.
Ekki tel ég eftir pen-
inga í vegaframkvæmd-
ir úti um iand. Þeirra
njótum rið þéttbýlisbú-
ar í betri vegum á ferð-
um okkar um landið. En
miðað rið margumtal-
aða þijá milijai-ða er er-
indi það sem hér er reif-
að smátt í sniðum peningalega séð.
Við hér á suðvesturhorninu sem
gaman höfum af að fara á skíði höf-
um verið einstaklega heppin í vetur
hvað veður og snjóalög áhrærir. Eft-
ir nokkur mögur ár fyrir skíðaunn-
endur hefur loksins ræst úr. Veðr-
áttan og skíðafærið í páskavikunni
kórónaði þó allt. Talið er að á fóstu-
daginn langa hafi um 6000 manns
heimsótt Bláfjöllin. Ætla má að bílai'
á svæðinu hafi verið á þriðja þúsund-
inu þann dag.
Frá Elliðaárbrú að Skíðaskála Ár-
manns í Bláfjöllum eru um 40 km. Af
þeirri vegalengd eru um 36 km með
bundnu slitlagi. Síðustu 4 km að
skíðasvæðinu er malarvegur. Það er
þessi spotti sem gerir skíðafólkinu
gramt í geði. Hann er bæði holóttur
og illur yfirferðar. A sólardögum er
hann hreint forað þar sem sólin
bræðir úr snjóraðningnunum og
vatn rennur sífellt inn á veginn. Þeir
sem fara á hreinum og glansandi bíl-
um að heiman koma á þeim ötuðum
auri á áfangastað. Fólk verður því að
gæta ítrustu varkámi til að færa sig
ekki út við að ná skíðum og öðru dóti
af toppum bílanna. Á vegaáætlun
hafa nokkrum sinnum verið áætlaðar
smáupphæðir í Bláfjallaveg, þ.e. veg-
inn frá Suðurlandsvegi á Sandskeiði
og suðureftir. Fyrir það fjái-magn
var gert verulegt átak sumai'ið 1997
en herslumuninn vantaði að komast
alla leið og rið það hefur setið.
Og nú er ég kominn
að aðalefni þessarar
greinar. Eg veit að
þingmenn þess fólks
sem þúsundum saman
sækir sér ánægju og
hressingu í Bláfjöllin,
meðan þar er snjó að
finna, taki nú rögg á
sig og láti klára þennan
fjögurra kílómetra
spotta og einnig að
sjálfsögðu afleggjarann
að skíðasvæði fram í
Eldborgargili. Miðað
við síðustu ákvarðanir
ríkisstj órnarinnar
varðandi fjárveitingar
til vegamála get ég
vart ímyndað mér ann-
að en þjóðarsátt yrði um þá fjár-
veitingu sem þyrfti til að ljúka
þessu verki.
Fjármálaráðherrann sem jafn-
framt er þingmaður Reykvíkinga
Skíði
Síðustu 4 km að skíða-
svæðinu, segir Kristján
Benediktsson, er
holóttur malanægur.
ætti að ganga fram fyi'ir skjöldu og
segja: „Þetta er sanngirnismál. Við
gerum þetta bara.“ Geri fjármála-
ráðherrann hins vegar ekkert eigum
rið vonandi einhverja röska menn í
þingmannaliðinu til að taka þetta
mál upp á arma sína.
Nú koma þá í hug menn eins og
Ólafur Örn sem gengið hefur á skíð-
um á Suðurpólinn og þvert yfir
Grænlandsjökul og Árni Mathiesen
sem tilheyrir mikilli íþróttafjöl-
skyldu. Fleiri mætti rissulega nefna
til þessa máls þótt hér verði látið
staðar numið.
Með bestu kveðjum og eindreginni
von um jákvæðar undirtektir.
Höfundur er fyrrv. form.
BláfjaJlanefndar.
Kristján
Benediktsson
Fiskar
dulbúnir
sem skór
Frábærir skór sem henta jafnt í vatni sem á landi. Quick-
diy nubuck efni sem andar heldur þér við efnið. Kr. 7.990.-
Columbia
Sportswear Compan j *
Skeifunni 19 - S. 568 1717