Morgunblaðið - 08.04.1999, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 1999 43
UMRÆÐAN
Tryggingayfirlæknir
elur á fordómum
í Morgunblaðinu 23.
mars sl. birtist grein
eftir tryggingayfír-
lækni sem hann kýs að
kalla „Sólarlandaferðir
psoriasissjúklinga“. I
greininni segir jafn-
framt „ferða afmark-
aðs hóps sjúklinga
með psoriasis til hinna
sólríku Kanaríeyja" og
„að tryggja útvöldum
einstaklingum Spánar-
ferðir á kostnað ríkis-
ins.“ Við lestur grein-
arinnar setti mig
hljóðan og ég átti
erfitt með að trúa því
að læknir skyldi skrifa
í anda fáfræði og fordóma.
í huga fólks eru sólarlandaferðir
skemmti- og afþreyingarferðir fjöl-
skyldu í sumarleyfi. Þeir psoriasis-
sjúklingar sem ég hef talað við eru
gjörsamlega agndofa yfir þessum
ummælum. Að líkja loftslagsmeð-
ferð psoriasissjúklinga á norrænni
meðferðarstöð við hefðbundnar
sólarlandaferðir er með ólíkindum
og ber iyrst og fremst vott um van-
þekkingu tryggingayfirlæknis á
sjúkdómnum og meðferðinni.
A meðferðarstöðinni, sem rekin
er af norska Ríkisspítalanum,
starfa læknar og hjúkrunarfólk.
Þar eru húðsjúklingar frá Norður-
löndunum og flestir eru með sjúk-
dóminn á háu stigi og felst með-
ferðin í því að stunda sólböð og sjó-
böð frá morgni til kvölds í þrjár
vikur ásamt því að borið er á sjúk-
lingana á kvöldin, ýmis lyf og krem
til afhreistrunar. Loftslagsmeðferð
er hvai-vetna viðurkennd á Norður-
löndum sem ein áhrifaríkasta og
varanlegasta meðferð við psoriasis
og þar er verið að gefa fleiri sjúk-
lingum kost á meðferðinni. Margir
þessara sjúklinga þyrftu að leggj-
ast á spítala í sínu heimalandi ættu
þeir ekki kost á loftslagsmeðferð.
Ummæli tryggingayfirlæknis eru
því í hæsta máta óviðurkvæmileg
og til þess fallin að ala á fordómum
í garð psoriasissjúklinga.
Rannsóknir
á Bláa lóninu
Fjölmargar rannsóknir hafa ver-
ið gerðar af böðun í Bláa lóninu
sem sýna árangur við húðsjúk-
dómnum psoriasis. Um það er ekki
deilt. I grein ti-yggingayfirlæknis
er því haldið fram að formaður
SPOEX hafi hafi lýst því yfir að
ekki væru til neinar rannsóknir
sem sýndu fram á árangur af böð-
un í Bláa lóninu. Hið rétta er að því
var haldið fram að engar saman-
burðarrannsóknir hefðu verið
gerðar á þessum tveim tegundum
meðferða sem réttlættu að einni
tegund meðferð væri hætt með til-
komu annarrar. Reyndar fól
Tryggingaráð tryggingayfirlækni
og deildarstjóra sjúkratrygginga-
deildar í apríl 1996 að kanna hvort
loftslagsmeðferð á Kanaríeyjum
sparaði útgjöld TR
m.a. í lyfja- og læknis-
kostnaði. SPOEX er
ekki kunnugt um að sú
könnun hafi farið
fram. I skýrslu Bláa-
lónsnefndar frá árinu
1996, en hún stóð íyrir
mörgum rannsóknum
á Bláa lóninu, eru eng-
ar tillögur um að með-
ferð í Bláa lóninu komi
í stað loftslagsmeð-
ferðar.
Árið 1996 þegar
Tryggingaráð ákvað
að fella niður
loftslasmeðferð psori-
asissjúklinga var ekki
leitað sjónarmiða sjúklinganna
sjálfra eða sérfræðinga í húðsjúk-
dómum. Enginn húðlæknir hefur
lýst því yfir að Bláa lónið geti leyst
loftslagsmeðferð af hólmi. Akvörð-
unin var því tekin af pólitískt
kjörnu Tryggingaráði. I grein
tryggingayfirlæknis koma fram ný
Húðlækningar
Enginn húðlæknir
hefur lýst því yfír, segir
Karl Magnússon,
að Bláa lónið geti
leyst loftslagsmeð-
ferð af hólmi.
rök: „sjúklingar hafi verið sendir
frá öðrum löndum til böðunar í
Bláa lóninu og að unnið hafi verið
að kynningu þessa meðferðarúr-
ræðis með tilliti til að fjölga erlend-
um sjúklingum við Bláa lónið“ og
jafnframt segir: „Auk þess þótti
eðlilegra að hlúa að íslenska með-
ferðarforminu, en að láta skattpen-
ingana renna til erlendra aðila."
Hér er greinilegt hvað hefur gerst,
pólitísk ákvörðun hefur verið tekin
um að „hlúa að íslenska meðferðar-
forminu", þ.e. Bláa lóninu, alveg
óháð því hvað sjúklingar eða sér-
fræðingar hefðu um málið að segja.
Þetta er sérstaklega athyglisvert
þegar litið er til þess að skv. upp-
lýsingum tryggingayfírlæknis hafa
útgjöld til psoriasismeðferðar þre-
faldast síðan 1996.
Siglinganefnd
Tryggingastofnunar
Árið 1996 og 1997 var því lýst yf-
ir af hálfu TR að allri meðferð væri
hætt og fengu sjúklingar umsóknir
sínar endursendai- frá stofnuninni.
Sérstaka athygli hefur vakið að
siglinganefnd hefur sett mjög
ströng skilyrði fyrir þvi að sjúk-
lingar geti farið í loftslagsmeðferð.
Meðal annars verða sjúklingar að
hafa gengið í gegnum mjög
stranga, erfiða og dýra lyfjameð-
ferð sem getur valdið aukaverkun-
um og treysta margir sjúklingar
sér ekki til þess.
Hlutur heilbrigðisráðherra
og stjórnmálamanna
Ekki verður hjá því komist í máli
þessu að vekja athygli á afstöðu og
framgöngu stjórnmálamanna í
málinu. SPOEX hefur ítrekað
reynt að koma sjónanniðum sínum
á framfæri við heilbrigðisráðherra
síðan 1996 þegar Ti-yggingaráð tók
fyrmefnda ákvörðun. I íyrirspurn
á Alþingi árið 1996 staðfesti heil-
brigðisráðherra ákvörðun Trygg-
ingaráðs.
Við meðferð frumvarps til laga
um breytingu á lögum um al-
mannatryggingar og félagslega að-
stoð á Álþingi um daginn var
margt sem kom okkur verulega á
óvart. Samtökin fréttu af frum-
varpinu fyrir tilviljun og var þvi
ekki gefinn neinn kostur á að skýra
sjónarmið við samningu þess. Sér-
staka athygli okkar vöktu ummæli
heilbrigðisráðheiTa í framsögu-
ræðu um að í frumvarpinu væru
einungis fólgnar réttarbætur. Full-
trúai- samtakanna fóru á fund heil-
brigðisráðhen-a og óskuðu breyt-
inga á ákvæði frumvarpsins sem
gerði ráð fyrir að fellt væri niður
ákvæði sem tryggt hefur rétt
psoriasissjúklinga til lofslagsmeð-
ferðar. Fundurinn bar engan ár-
angur og ljóst lá íyrir að heilbrigð-
isráðherra hafði kosið að hafa að
leiðarljósi þau ófaglegu vinnubrögð
Tryggingaráðs sem áður er vitnað
til. Fulltrúar samtakanna fóru á
fund heilbrigðis- og trygginga-
nefndar Alþingis, en það bar engan
árangur og fljótt kom í ljós að
meirihluti nefndarinnar kaus að
virða okkar sjónarmið að vettugi í
einu og öllu. Minnihluti nefndar-
innar kom hins vegai’ til móts við
okkar sjónarmið. Síðasta hálmstrá-
ið var að skrifa formönnum stjóm-
arflokkanna. Það hafði engin áhrif.
Hinn 10. mars sl. var frumvarpið
síðan rætt í skjóli myrkurs á Al-
þingi. I þeim umræðum kom ber-
lega fram þrautseigja og ósérhlífni
heilbrigðisráðherra og framsögu-
manns meirihluta heilbrigðis- og
trygginganefndar Alþingis við að
ganga á réttindi psoriasissjúklinga.
Okkur er hulin ráðgáta hverra er-
inda þeir þingmenn ganga. Málið
var síðan borið undir atkvæði þing-
manna á síðustu klukkustundum
þingsins og féllu atkvæði þannig að
lagaákvæðið um loftslagsmeðferð
psoriasissjúklinga var fellt brott
með samþykki allra stjórnarþing-
manna gegn atkvæðum stjórnar-
andstöðunnar.
Stjórn Samtaka psoriasis- og ex-
emsjúklinga telur að niðurstaða
þessa máls sé mesta áfall sem þessi
sjúklingahópur hefur orðið fyrir
síðan samtök okkar voru stofnuð
árið 1972.
Höfundur er rítarí Samtaka
psoríasis- og exemsjúklinga.
Karl
Magnússon
Um ofveiði
HVENÆR er fiski-
stofn ofveiddur og
hvenær er um vanveiði
að ræða? Mörkin
verða til þegar arð-
semi af veiðum nýtur
ekki lengur við og
hagnaður breytist í
taprekstur. Aflasam-
dráttur verður til
vegna náttúrulegra að-
stæðna í sjónum og að
mjög litlum hluta
vegna veiða. Það er
ótrúleg einföldun að
hrópa alltaf ofveiði
þegar aflasamdráttur
verður vegna náttúru-
legra aðstæðna.
Hugtakið ofveiði hefur lifað með
íslensku þjóðinni í margar aldir,
t.d. má lesa það í bók eftir Vilhjálm
Þ. Gíslason, sem út kom árið 1945
og heitir Sjómannasaga, þar segir:
um miðja átjándu öld bönnuðu
bændur á sunnanverðu Snæfells-
nesi línuveiðar vegna ofveiði.
Getur það verið, að með allri
þeirri menntun, sem íslendingar
hafa notið á þessari öld ásamt vís-
indalegri þekkingu, að við skulum
sitja í sama farinu og var fyrir tvö
hundruð og fimmtíu árum, hvað
varðar hugtakið ofveiði.
Eg er viss um, að síldin, hvorki
sú islenska né sú norska og því síð-
ur norsk-íslenska, hefur aldrei ver-
ið ofveidd. Síldarstofnar í Norður-
Atlantshafi hrygna við strendur Is-
lands og Noregs að vetrarlagi og
fara síðan í ætisleit eftir hi-ygning-
una út um Atlantshafið. Þetta ger-
ist ef æti er ekki til staðar við
strendur landanna. Olíklegt þykir
mér, að síld sem klekst út við Nor-
egsströnd og elst þar upp skreppi
til íslands í kui’teisisheimsókn.
Nei, hún er í ætisleit.
Ef Norðmenn hefðu verið skyn-
samir og gleymt hugtakinu ofveiði,
og veitt eins mikið af síld síðustu
þrjátíu árin og þeim var mögulegt
að veiða, þá færi síldin ekki í ætis-
leit um Átlantshafið og þaðan af
síður alla leið til Islands. Þeir
hefðu losnað við deilur um kvóta
við aðrai’ þjóðir um veiðar úr eigin
stofni, ef þeir hefðu haft þor til að
veiða sinn síldarstofn að þeim
álagsmörkum sem að ofan greinir.
Það eru skelfileg mistök að
halda því fram að hægt sé að
geyma fiskinn í hafinu, þegar nátt-
úran sjálf er algerlega lokuð bók
fyrir mannkyninu. Þessu má líkja
við bónda sem setur á eitt þúsund
fjár, en hefur enga möguleika á
fóðri fyrir meira en eitt hundrað.
Góð samlíking fæst við hafbeit á
laxi, þar gleypir náttúran sjálf á
ársgrundvelli 85-99%
af þeim laxi, sem í haf- *
ið er settur til eldis.
Meðaltals heimtur eru
því aðeins fimm til sjö
fiskar af hverjum eitt
hundrað, sem í sjó er
sleppt. Skynsamleg
nýting verður ekki til
með boðum og bönn-
um, það er fullreynt.
Vemdaðir fiski-
stofnar hrynja þrátt
fyrir engar veiðar. Við
sjáum hrun í mörgum
stofnum, svo sem síld, '
rækju, grálúðu, ufsa,
ýsu, humri og mörgum
fleiri þrátt fyrir veiði-
takmarkanir undanfarin 20 til 30
ár. Þá fiskveiðistjómun sem er á
íslandi nú verður aldrei sátt um,
einfaldlega vegn þess að fiskistofn-
ar stækka og minnka af náttúra-
Fiskistofnar
Það eru skelfíleg mis-
tök, segir Hrólfur S.
Gunnarsson, að halda
að hægt sé að geyma
fiskinn í hafinu.
legum og veðurfarslegum ástæð-
um. Það gerist þrátt fyrir engar
veiðar.
I núverandi kvótakerfi hafa út-
gerðarmenn verið að einbeita sér
að veiðum í ákveðna fiskistofna,
sumir í uppsjávartegundir og aðrir
í einstaka botnfisktegundir. Verði
náttúralegt hran í einhverjum
stofni, þýðir það fall viðkomandi
útgerðar, sem hefur einhæft sig of
mikið vegn núverandi kvótakerfis
við ákveðna fisktegund, og hefur
ekki möguleika á að kaupa sig inn í
keifið aftur.
Sú besta veiðistýring sem til er
og verður alltaf um ókomin ár er
markaðslögmálið. Vegna þess að
eina stjórntækið, sem til er, eru
peningar þá ber að nota þá til
veiðistýringar og til innheimtu auð-
lindagjalds með hjálp fiskmarkaða.
Til er máltæki: betri er krókur en
kelda. I keldunni leynist kvótakerf-
ið, og svamla nú allir stjómmála-
flokkar á Islandi þar. Nýjasta út-
spil í’íkisstjómarinnar er trúboðinn S
Ragnar Árnason, sem boða skal
heimsbyggðinni fagnaðarerindið
íslenska kvótakerfið, sem aldrei
verður sátt um.
Höfundur er skipstjóri.
Hrólfur S.
Gunnarsson
Skólavörðustíg 35,
sími 552 3621.
azuvi
flísar
mm
Stórhöfða 17, við Gullinbrú, s. 567 4844.
www.flis@fliS.is • netfang: flis@itn.is
FIAT
Ný hugsun...
MAREA WEEKEND
Fallegur, rúmgóður fjölskyldubíll
á 1,550.00n
Istraktor
BÍLAR FVRIR ALLA
SMIÐSBÚÐ 2 - GARÐABÆ - SÍIVIi 5 400 800
nnnn
PALIO WEEKEND
ABS, loftpúðar, mikil veghæð
Frábær ferðabíll á 1.260.000
ítölsk snilld, gríðarlegt pláss, ótrúlegt verð.
6 manna bíll á 1.590.000.