Morgunblaðið - 08.04.1999, Qupperneq 48
48 FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 1999
HESTAR
MORGUNBLAÐIÐ
MIKIL sveifla var á Guðmari og Nökkva frá Tunguhálsi II í flokki
hinna vönu og höfðu sigur.
HESTAKOSTURINN á Meðalfelisvatni hefur að hkindum aldrei verið
jafn góður sem nú og meðal þeirra sem voru vel ríðandi var Guðbjörg
Snorradóttir á Móbrá frá Daismynni en þær höfnuðu f fjórða sæti.
Enn hækkar tollurinn
hjá Orra frá Þúfu
Folatollurinn undir Orra frá Þúfu hefur
enn verið hækkaður og að sama skapi virð-
ist aðgengi annarra en eigenda að hestin-
um ætla að verða torsóttara en verið hefur
til þessa. Valdimar Kristinsson aflaði
frétta af nýafstöðnum hluthafafundi Orra-
félagsins sem haldinn var um páskahelgina
og veltir hér upp ýmsum hliðum málsins.
RÍR af eigendum hestsins
lögðu fram tilboð á fundin-
um i þá tíu folatolla sem
seldir hafa verið árlega til
tveggja ára. Fundurinn samþykkti
að taka tilboðinu sem hljóðaði upp á
1,5 milljónir króna fyrir hvort árið
sem þýðir að þeirgreiða 150 þúsund
krónur fyrir folatollinn hjá Orra.
Pað voru þeir Sigurður Sæmunds-
son, Brynjar Vilmundarson og
Gunnar Arnarsson sem tilboðið
gerðu en að sögn Sigurðar kaupa
þeir þessa folatolla á svipuðum
kjörum og verið hefur þ.e. að inni-
falin er ómskoðun og séu hryssurn-
ar ekki með fyli fá þeir að halda aft-
ur undir hestinn eða endurgreiddur
er hluti fyljunargjaldsins. Kvaðst
Sigurður reikna með að nota alla
tollana sjálfur, sagði það gefa vel af
sér. í sama streng tóku bæði Gunn-
ar og Brynjar en enginn þeirra vildi
þó útiloka aðra möguleika.
Folöldin á hálfa
milljón króna
Vel gengi að selja folöld undan
Orra og 1. verðlauna hryssum,
verðið væri á bilinu 500 til 600 þús-
und krónur. Með þessu tilboði þre-
menninganna væri um ríflega 67%
hækkun að ræða á fyljunargjaldi
frá því verði sem var á þeim tíu toll-
um sem seldir voru á frjálsum
markaði í fyrra og vaknar nú
spurningar hvort þessi hækkun hafi
einhver áhrif á verð á folatollum al-
mennt. Almennt virðast menn van-
trúaðir á að þessi verðbreyting
breyti miklu á verði annarra stóð-
hesta. Að vísu getur hækkandi verð
á einstökum hestum losað um verð-
hömlur en slíkt er talið verka á
lengri tíma. Eigeindur Óðs frá
Brún samþykktu fyrir skömmu að
verð á tolli skyldi vera 70 þúsund
krónur en í því væri innifalið girð-
ingagjald og virðisaukaskattur.
Verð hjá Óði var milli 40 og 50 þús-
und í fyrra. Ekki hefur verið ákveð-
ið hvað verðið á Galsa frá Sauðár-
króki verður í sumar en aðaleigandi
hestins Andreas Trappe hefur lýst
yfir áhuga að hækka úr 35 þúsund-
um króna í 60 - til 70 þúsund. Af
þessu má ráða að verðið fari hækk-
andi á dýrari hestunum en spurn-
ing hvað verði með minni spámenn-
ina. Framboð á stóðhestum er mik-
ið um þessar mundir og því fróðlegt
að sjá hver þróunin verður fram á
vorið.
Þremenningarnir hafa yfír að
ráða sautján hlutum í Orra af sex-
tíu. Gunnar er með þrjá, Brynjar
með fjóra og Sigurður hefur for-
ræði yfir tíu hlutum Holtsmúlabús-
ins. Mikil ásókn hefur verið í þessi
pláss hjá hestinum af hryssueig-
endum sem ekki eiga hlut í hestin-
um. Hafa margir eigendur góðra og
þekktra hryssna farið þar bónleiðir
til búðar. Nokkuð hefur verið sótt í
Orrasyni þótt enginn þeirra virðist
líklegur til að kallast föðurbetrung-
ur enn sem komið er.
140 skammtar frystir
Byrjað var að taka sæði úr Orra
fyrir nokkru sem kunnugt er og
verður að sögn Sigurðar tekið úr
honum til 25. maí. Að sögn Páls
Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
KEPPNIN var hörðust í efsta flokknum en þar voru hlutskarpastir í lokin Guðmar Þór á Nökkva sem sigraði,
Sigurður Sigurðarson á Garpi, Guðmundur Skúlason á Maístjörnu, Bjarni Sigurðsson á Jarli og Sigurður V.
Ragnarsson á Hrafni.
4. Logi Laxdal á Flygli frá Flögu á
9,35 sek.
5. Magnús Blöndal á Fiðlu frá
Hvammi á 9,39 sek.
Opna Barkarmótið
í Glaðheimuni
BREIÐFYLKINGIN var fín hjá börnunum en hér fara fjögur efstu,
Heiðar á Kalda, Þorvaldur á Drífu, Linda á Fasa og Lovísa á Blæ. Á
myndina vantar Kamillu og Safír.
2. Sigurður Sigurðsson á Garpi frá
Syðra-Langholti.
3. Guðmundur Skúlason á Maí-
stjörnu frá Svignaskarði.
4. Bjarni Sigurðsson á Jarli frá
Svignaskarði.
5. Sigurður V. Ragnarsson á Hrafni
frá Hala.
Skeið: lOOm fiugskeið
1. Viðar Halldórsson á Prins frá
Hvítárbakka á 8,85 sek.
2. Guðmar Þ. Pétursson á Þraut frá
Grafarkoti á 9,25 sek.
3. Arnar Bjarnason á Gasellu úr
Hafnarfirði á 9,32 sek.
Opinn flokkur
1. Vignir Siggeirsson, Sleipni, á
Ofsa frá Viðborðsseli.
2. Halldór G. Victorsson, Gusti, á
Hugin frá Vestra-Fíflholtshjáleigu.
3. Bjarni Sigurðsson, Gusti, á Eldi
frá Hóli.
4. Erling Sigurðsson, Fáki, á Helj-
ari frá Guðnabakka.
5. Logi Laxdal, Fáki, á Flugu frá
Breiðabólstað.
16 ára og yngri
1. Svandís D. Einarsdóttir, Gusti, á
Ögra frá Uxahrygg.
2. Rakel Róbertsdóttir, Geysi, á
Stöku frá Ytri-Skógum.
3. Berglind R. Guðmundsdóttir,
Gusti, á Sjöstjörnu frá Svigna-
skarði.
4. Kristján Magnússon, Herði, á
Rúbín frá Breiðabólstað.
5. Hugrún D. Þorgeirsdóttir, And-
vara, á Gusti frá Stóra Hofi.
Valdimar Kristinsson
‘ Hestaval á
ísnum á Með-
alfellsvatni
LENGI hefur staðið til að halda
mót á Meðalfellsvatni í Kjós en sök-
um ísleysis eða annarra annmarka
hefur það ekki tekist fyrr en á laug-
_ ardag fyrir páska. Mótið sem átti í
^raun að verða samkoma nokkurra
harðarfélaga varð að fjölmennri
samkomu sem tókst með miklum
ágætum og má segja að þar hafi
flogið fiskisagan því mótið var nán-
ast ekkert auglýst. Þá dreif að tals-
verðan fjölda manna að horfa á.
Kjósverjar völdu samkomunni nafn-
ið Vetrarleikar Kjósverja ‘99. Mikið
hefur verið riðið á vatninu undan-
farið og ísinn verið mjög góður að
sögn hestamanna í Kjós. Aðeins var
farið að þiðna á mótsdaginn þannig
að örlítil bleyta var á ísnum en
heimamenn höfðu skafið góðar
brautir á ísinn þannig að reiðfæri
var með ágætum.
_ Keppt var í tölti barna, unglinga
ungmenna og tveimur flokkum full-
orðinna en mótinu lauk með 100
metra fljúgandi skeiði. Skráningar
voru eitthvað á annað hundrað sam-
kvæmt upplýsingum forráðamanna
mótsins, þar af voru 23 í skeiði og
yfir fimmtíu fullorðnir. Verðlaun
voru aðallega í formi kjöts sem
framleitt er í Kjósinni en einnig
sáust páskaegg á lofti. Verðlaunin
voru afhent í Kaffi Kjós sem er
huggulegt kaffihús rétt við vatnið.
Isinn var mældur daginn fyrir mót
og reyndist hann vera 42 sentimetr-
ar að þykkt.
Keppendur voru víða að og var
stemmningin góð í indælu veðri og
fögru umhverfi enda eru Kjósverjar
ákveðnir í að gera slíkt mót að föst-
um lið hvert ár þegar aðstæður
leyfa.
En úrslit urðu annars sem hér
. Tgegir og með fylgja úrslit frá Opna
Barkarmótinu sem haldið var fyrir
páska í glæsilegri reiðhöll þeirra
Gustsmanna í Kópavogi.
Tölt
Börn
1. Heiðar Hauksson á Kulda frá
Grímsstöðum, Kjós.
2. Þorvaldur Hauksson á Drífu frá
Grímsstöðum, Kjós.
3. Linda Pétursdóttir á Fasa frá
Nýjabæ, Borg.
4. Lovísa Guðmundsdóttir á Blæ
frá Helgadal, Mos.
5. Kamilla P. Sigurðsdóttir
á Safír.
Unglingar
1. Berglind R. Guðmundsdóttir á
Sjöstjörnu frá Svignaskarði.
2. Kristján Magnússon á Hrafnari
frá Hindisvík.
3. Þórarinn Orrason á Gjafari frá
Hofsstöðum.
4. Guðbjörg Snorradóttir á Móbrá
frá Dalsmynni.
5. Svava Arnórsdóttir á Prins frá
Litla-Moshvoli.
Ungmenni
1. Sigurbjörn G. Sigurðsson á
Hausta.
2. Sigurður Halldórsson á Meitli frá
Enni.
3. Heiða Aðalsteinsdóttir á Blossa
frá Eilífsdal, Kjós.
4. Guðlaug Karlsdóttir á Áfanga frá
Ólafsvöllum.
Minna vanir
1. Nína Möller á Heru frá Áimóti.
2. Jón Þ. Daníelsson á Hnokka frá
Armóti.
3. Kristinn Þ. Þorkelsson á Vordísi
frá Hörgshóli.
4. Jón Jónsson á Garra frá Ríp.
5. Kolbrún Ólafsdóttir á Mózart frá
Nýjabæ, Eyjaf.
Meira vanir
1. Guðmar Þ. Pétursson á Nökkva
frá Tunguhálsi.