Morgunblaðið - 08.04.1999, Síða 49
MORGUNBLAÐIÐ
HESTAR
FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 1999 49*»-
FRETTIR
Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
ORRI frá Þúfu situr tryggur í hásæti íslenskrar hrossaræktar og virð-
ist fátt geta fellt hann af þeim stalli. Oðru fremur er það sterk staða í
kynbótaniati Bændasamtaka Islands og markaðsöflin sem tryggja hon-
um þessa sterku stöðu en hér er það Rúna Einarsdóttir sem stýrir þess-
uin mikla gæðingi inn á frægðarbrautina á sýningu í Gunnarsholti.
Stefánssonar dýralæknis sem kom á
fund félagsins lítur vel út með sæðið
úr Orra, gæði sæðisins í góðu lagi
og er reiknað með að frystir verði
úr honum 140 skammtar sem þýðir
að hægt verður að sæða 70 hryssur
með þessum skömmtum að öllu
jöfnu. Ekki hefur verið ákveðið
hvenær þessir frystu skammtar
verða notaðir. Sagði Sigurður að
samstaða væri um það innan félags-
ins að allt kapp yrði lagt á að
ti-yggja endingu stóðhestsins Orra
sem nú fyllir brátt þrettánda vetur-
inn. Hesturinn hefur sem kunnugt
er aðeins eitt eista og má lítið út af
bera eins og Brynjar Vilmundarson
benti á. „Eitt högg á eistað getur
gert út um hestinn sem ræktunar-
grip,“ sagð Brynjar sem er sam-
mála því að áhættuminnst væri að
nota hann eingöngu í sæðingar og
með því móti væri einnig hægt að
margfalda afkastagetu hans. Brynj-
ar benti hins vegar á að ekki væri
áhugi fyrir því af hálfu eigenda
OiTa að fá fleiri en 70 folöld undan
honum árlega. Telur hann að ef tal-
an færi til dæmis í 150 á ári væri
hætta á að eftirspurnin í hestinn
minnkaði sem þýddi aftur tap íyrir
eigendurna.
Þessi leikur þeÚTa þremenninga
hefur tvíþættan tilgang, í fyrsta lagi
tryggja þessir aðilar sér líklega ein
átta folöld á ári umfram það sem
þeir annars fengju en með þessu eru
þeir einnig að hækka markaðsvirði
hlutabréfanna í Orra. Brynjar taldi
mjög líklegt að þeir folatollar sem
hugsanlega yrðu gefnir falir af hálfu
einstakra eigenda myndu hækka í
150 þúsund. Hann kvaðst reyndar
undrandi á að verðið á þeim tollum
sem einstakir eigendur hafa selt
skuli ekki hafa farið á hærra verði.
Hæsta verðið hafi slagað upp í 150
þúsund að því er hann best vissi og
væri það ekki í samræmi við þá
miklu eftirspurn sem verið hefur í
hestinn að hans mati.
Komast færri að en vilja
Ekki fer milli mála að Orri frá
Þúfu er sannkallaður gullkálfur. Ef
þremenningarnir hafa gefið tóninn
með markaðsverð folatolls hjá Orra
má reikna út hverju klárinn skilar á
ári. Brúttótekjur yrðu 10,5 milljónir
krónar ef gengið er út frá því að 70
hryssur fari undir klárinn og mark-
aðsvirði hvers folatolls yrði 150 þús-
und krónur. Hægt er að draga frá
300 þúsund krónur vegna endur-
greiddra folatolla af þeim tíu sem
þremenningarnir fá afnot af og ef
dregnar eru 200 þúsund vegna
kostnaðar við reksturs hestsins,
fóður og hirðing ásamt girðinga-
gjaldi og ýmislegt fleira. Má því
ætla að Orri sé að skila eigendum
sínum kringum 10 milljónum króna
á þessu ári og er þá ótalinn hagnað-
ur af þeim sæðisskömmtum verða
frystir á þessu ári. Klárinn virðist í
algjörum sérflokki hvar sem á málið
er litið. Hann var strax mjög at-
hyglisverður einstaklingur ungur
foli í tamningu og sannaði enn betur
yfirbm-ði sína eftir því sem hann var
taminn meira. Hann sló eftirminni-
lega í gegn bæði á fjórðungsmótinu
1991 þá 5 vetra og þremur ái-um
seinna í B-flokki gæðinga á lands-
móti. Hann gaf tóninn strax fyrsta
veturinn sem byrjað var að temja
undan honum og með hverju árinu
hefur hann styrkt stöðu sína sem
reiðhestafaðir og kynbótahestur í
fremstu röð. Hross undan honum
þykja geðgóð og fljóttaminn og al-
mennt eru þau pnið á fax og tagl.
Tölt afkvæmanna þykir að sama
skapi eðlisgott.
Þegar svo kemur að peningahlið
málsins er allt á sömu bókina lært,
það verður allt að gulli sem frá Orra
kemur. Hann virðist bera höfuð og
herðar yfii- aðra kynbótahesta og
allir virðast vitlausir í að halda und-
ir hann en þar komast færri að en
vilja.
Einstak-
lingskeppni
í skólaskák
SKÓ L ASKÁKMÓT Reykjavíkur
1999, einstaklingskeppni, hefst í fé-
lagsheimili Taflfélags Reykjavíkur í
Faxafeni 12 mánudaginn 12. apríl
kl. 19. Tefldar verða níu umferðir
eftir Monrad-kerfi, ef næg þátttaka
fæst. Umhugsunartími verður 30
mín. á skák fyrir hvem keppanda.
Keppnin skiptist í tvo aldurs-
flokka, eldri flokk fyrir nemendur
8.-10. bekkjar og yngri flokk fyrir
nemendur 1.-7. bekkjar.
Rétt til þátttöku eiga tveir efstu
menn í skákmótum gi-unnskóla í
hvorum flokki um sig, alls fjórir. Ef
forfóll verða í einhverjum skólum er
mögulegt að fleiri en tveir komist
að. Þrír efstu menn í hvorum flokki
þessara Reykjavíkurúrslita fá ekki
rétt til þátttöku í Landsmóti skóla-
skákar sem fram fer um mánaða-
mótin apríl-maí nk.
---------------
Námskeið í
skyndihjálp
REYKJAVÍKURDEILD RKÍ
gengst fyrir tveimur námskeiðum í
almennri skyndihjálp. Fyrra nám-
skeiðið hefst mánudaginn 12. apríl
kl. 19-23. Einnig verður kennt 13.
og 15. apríl á sama tíma. Helgar-
námskeið verður dagana 16.-18.
apríl.
Meðal þess sem verður kennt á
námskeiðinu er blástursmeðferðin,
endurlífgun með hjartahnoði, hjálp
við bruna, beinbrotum og blæðing-
um úr sárum. Einnig verður fjallað
um helstu heimaslys, þ.m.t. slys á
börnum, og forvamir almennt. Að
námskeiðinu loknu fá nemendur
skírteini sem hægt er að fá metið í
ýmsum skólum.
---------------
Þýska kvik-
myndin „Mutter
Courage“sýnd
GOETHE-Zentrum, Lindargötu 46,
sýnir fimmtudaginn 8. apríl kl. 20.30
þýsku verðlaunakvikmyndina „Mutt-
er Courage“ frá árinu 1995. Þetta er
fyrri myndin af tveimur sem Goethe-
Zentrum sýnir um efnið „Gyðingai-
og Þýskaland".
Kvikmyndin er byggð á sannri
sögu eftir Elsu Tabori og gerist í
Búdapest 1944 þegar borgin er her-
numin af Þjóðverjum. Flytja á Gyð-
ingakonu nokkra í útrýmingarbúðir
nasista en hún sýnir mikið hugi’ekki
í viðleitni sinni til að halda lífi.
Leikstjóri er Michael Verhoeven
en í aðalhlutverkum eru enska leik-
konan Pauline Collins og leikskáldið
George Tabori, sonur Elsu Tabori.
Myndin er með enskum texta og
aðgangur er ókeypis.
Fæst í apátekum
Z* _ • TM
ínaxin
( eNQtFERHYUKl)
Pað en munur á engifen.
Zinaxin inniheldur staölaöan engifer-extnakt
sem tryggir jafnan styrk virku efnanna í hvenri framleiðslu.
Sömu gæðin í hvert sinn.
Kína hefur engiferrót verið notuð við ferðaveiki, sem styrkjandi
fyrir meltingarfærin og við bólgum og stirðleika í liðum.
Ég vil hér með þakka öllum er sýndu mér
þann vinarhug og hlýju á níutíu ára afmœli
mínu hinn 12. mars sl., að koma til mín í
heimsókn með gjafir, blóm og góðar óskir.
Sérstaklega er ég þakklát þeim Álftagerð-
isbrœðrum, Sigfúsi og Pétri Péturssonum og
undirleikara þeirra, Stefáni Gíslasyni frá
Miðhúsum, fyrir að koma og syngjafyrir mig
og fólkið mitt, falleg lög í afmælinu. Starfs-
fólkinu á Sjúkrahúsi Sauðárkróks vil ég
einnig þakka mjög vel fyrir það sem það
gerði til að gleðja mig.
Nikólína Jóhannsdóttir
frá Sólheimagerði,
Akrahreppi.
auðveldar þér vinnuna
1. Helmingi styttri strautími
2. Loftsog í strauborði
3. Fer vel með viðkvæmt efni
4. Með aukabúnaði breytir þú
tækinu í gufuhreinsitæki
SKEIFUNNI 3E-F • 128 REYKJAVÍK
SÍMI581 2333 • FAX 568 0215
Komdu og sjóðu nýju sumarlitina frá MARBERT
Þeir undirstrika fegurð þína.
%
Við kynnum sumarlitina ásamt fleiri spennandi nýjungum
frá MARBERT. Verið velkomin.
Kynning í dag og á morgun i
snyrtivörudeild Hagkaups, Smáratorgi.
JHÍ-H'1U:L1I:>........................
Stór-Reykjavíkursvæðið:
Libio Mjódd, Nona Hólagarði, Snyrtivörudeild Hagkaups, Skeifunni, Evíta Kringlunni, Snyrtivöru-
deild Hagkaups, Kringlunni, Holts Apótek Glæsibæ, G.E. Snyrtivörur, Laugavegi 61, Snyrtihöllin
Garðatorgi, Garðnbæ, Snyrtivörud. Hagkaups, Smáratorgi og Sandra Smáratorgi, Kópavogi.
Landið:
Gallery Förðun Keflavík, Árnes Apótek Selfossi, Apótek, Vestmannaeyja, Krisma isafiríi,
Tara Akureyri, Húsavíkur Apótek.
■r
I