Morgunblaðið - 22.05.1999, Qupperneq 2
2 LAUGARDAGUR 22. MAÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Gæsluvarðhaldskröfu yfír Briggs hafnað
I farbanni þar
til dómur fellur
HÉRAÐSDÓMUR Akureyrar úr-
skurðaði í gær breska ríkisborgar-
ann Kio Aiexander Ayobambele
Briggs, sem ákærður hefur verið
fyrir að standa að innflutningi mik-
ils magns E-taflna, í farbann þar til
dómur gengur í máli hans í héraði,
þó ekki lengur en til 15. september
næstkomandi. Kröfu ákæruvaldsins
um áframhaldandi gæsluvarðhalds-
vist yfir Kio Briggs var hins vegar
hafnað.
I úrskurði dómsins segir að ekki
hafi verið færð fram nein sérstök
rök fyrir því að almannahagsmunir
krefjist þess að ákærði sitji í gæslu-
varðhaldi uns endanlegur dómur
gengur. Briggs var fundinn sekur í
héraðsdómi Reykjavíkur um inn-
flutning á E-töflum 11. mars síðast-
liðinn og dæmdur í sjö ára fangelsi,
en Hæstiréttur ómerkti úrskurðinn
á fimmtudag og vísaði málinu heim í
hérað til nýrrar aðalmeðferðar og
dómsálagningar.
Ákæruvaldið benti m.a. á að með
hliðsjón af alvarleika sakarefna
þætti nauðsynlegt að Briggs sæti í
gæsluvarðhaldi uns endanlegur
dómur gengi í málinu, auk þess sem
hann væri útlendingur án fastrar
búsetu hérlendis og því mætti ætla
að hann reyndi að komast úr landi
ef hann gengi laus.
Af hálfu ákærða var þessum sjón-
armiðum mótmælt og engin hætta
sögð á að Briggs reyndi að komast
úr landi, þar sem það væri nánast
ómögulegt enda hefði vegabréf hans
verið tekið af honum. Hann hefði
auk þess engan áhuga á að koma
sér undan að mæta fyrir dóm í mál-
inu.
Dómurinn féllst á að nokkur
hætta gæti verið á að Briggs reyndi
að koma sér úr landi ef hann gengi
laus, en telja yrði vægara úrræði,
svo sem farbann, nægjanlegt til að
koma í veg fyrir að hann færi af
landi brott.
„Mars“ kvikmynduð á Islandi?
Morgunblaðið/Golli
ÞYRLA Landhelgísgæslunnar kemur með hina slösuðu á Sjúkrahús Reykjavíkur
Nærri drukknaður eftir
að bifreið valt út í á
60 manns yrðu ráðnir
BÚAST má við að á annað hundrað
milljóna króna komi í hlut Islend-
inga og að um sextíu manns verði
ráðnir til starfa ef ákveðið verður að
taka hluta kvikmyndarinnar
„Mars“, með leikaranum Val Kilmer
í aðalhlutverki, hér á landi. Sam-
kvæmt heimildum Morgunblaðsins
hefur íslenska kvikmyndaiyrirtækið
Pegasus átt í viðræðum við Wamer
Bros. í Bandaríkjunum um að taka
hluta myndarinnar hér. Akvörðunar
er að vænta innan skamms.
I frétt í bandaríska tímaritinu
Variety, sem sagt var frá í Morgun-
blaðinu í gær, segir að myndin eigi
að fjalla um fyrsta geimfarann sem
fer til plánetunnar Mars, en þar
verður hann strandaglópur. Aætlað
er að tökur hefjist í lok ágúst eða
september á Islandi og í Astralíu.
Tímaritið segir að samningar við
leikarann Val Kilmer um að leika
aðalhlutverkið séu á lokastigi.
Vinnslustöðin
Fundað áfram
um helgina
STJÓRN Vinnslustöðvarinnar hf.
fjallaði á fundi sínum í gær um
rekstrarvanda fyrirtækisins og leiðir
til að bregðast við honum. Ekki tókst
að Ijúka fundinum í gær og verður
honum haldið áfram um helgina.
Stefnt er að því að komast að niður-
stöðu fyrir næstkomandi þriðjudag.
Meðal þeirra hugmynda sem fram
hafa komið um breytingar á rekstr-
inum eru lokun frystihúsanna í Vest-
mannaeyjum og Porlákshöfn, sala á
einu skipi og söltun í stað frystingar.
Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins eru leikstjóri myndar-
innar og aðstandendur einkum að
leita að hrauni sem minnir á Mars
og hafa þeir þegar kynnt sér mynd-
ir af ýmsum stöðum á landinu. Lík-
legt er að leikstjórinn komi hingað
ásamt föruneyti innan fárra vikna
til að kanna aðstæður, ef ákveðið
verður að taka myndina hér.
Áð á Grána-
stöðum á
Grænlands-
jökli
ICE225 leiðangursmennirnir
tjölduðu í gærkvöldi í 2.200 m
hæð vestan í hábungu Græn-
landsjökuls eftir 150 km dagleið.
Þar með er búið að vinna upp
seinkun sem varð á leiðinni að
jöklinum. Búöirnar eru um 50
km frá hábungunni sem er
2.500-2.700 m há. Gott veður
var á staðnum, heiðskírt og
Iogn, 19°C frost og kólnaði
hratt.
„Þetta er búið að ganga mjög
vel. Færið verið gott, jökullinn
sléttur og olíueyðslan lítil.
Reyndar skarir á kafla, en að
skána aftur. Núna loksins erum
við í málum sem við könnumst
við,“ sagði Amgrímur Her-
mannsson, leiðangurssíjóri. Hann
UNGUR karlmaður var nærri
drukknaður eftir að bifreið sem
hann var farþegi í fór út af veginum
á Hrútafjarðarhálsi og lenti í Svert-
ingsstaðaá skömmu fyrir klukkan
tvö í gær. Honum var bjargað upp
úr vatninu eftir þrjár mínútur. Veg-
farandi blés í hann lífi og var hann
síðan fluttur á sjúkrahús með þyrlu
Landhelgisgæslunnar ásamt tveim-
ur félögum sínum. Ökumaðurinn er
grunaður um ölvun við akstur.
í bflnum voru þrír ungir karl-
menn, sá elsti á miðjum þrítugsaldri
var mjög ánægður með dags-
verkið og kvað létt yfir mönnum.
Búðir gærdagsins nefndu Islend-
ingamir Gránastaði til heiðurs
fslenskum hesti sem fór yfir
og sá yngsti innan við tvítugt. Þeir
voru á suðurleið frá Hvammstanga
og voru að taka fram úr þegar öku-
maðurinn missti stjóm á bílnum,
hann fór út af veginum, valt nokkr-
ar veltur og endaði á hlið úti í Svert-
ingsstaðaá.
Einn mannanna festist í bflnum
og tók það félaga hans, sem minnst
var slasaður, þrjár mínútur að losa
hann. Þegar loks tókst að koma
honum á fast land þurfti vegfarandi
að blása í hann lífi.
Samkvæmt upplýsingum frá lög-
Grænlandsjökul fyrr á öldinni.
Dagbók leiðangursmanna,
fréttir og fleiri upplýsingar er að
finna í netútgáfu Morgunblaðsins
(http://www.mbl.is).
reglu er áin að jafnaði lítil og renn-
ur í gegnum ræsi undir veginn, en
um þessar mundir eru í henni
vatnavextir. Lítill straumur er í
henni en töluverð drulla á botninum
og var því erfitt fyrir mennina að
komast á land.
Læknir frá Hvammstanga sem
kom á slysstað ákvað að kalla á
þyrlu Landhelgisgæslunnar til að
sækja mennina og voru þeir fluttir á
Sjúkrahús Reykjavíkur. Samkvæmt
upplýsingum frá lækni á slysadeild
er enginn þeirra í lífshættu.
Varðhald
fyrir inn-
brot
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
dæmdi í gær ungan mann, sem
handtekinn var fyrir innbrot í Gerð-
unum í Reykjavík, í gæsluvarðhald
til 23. júní. Hann játaði nokkur inn-
brot og er grunaður um hátt á ann-
an tug innbrota. Hann hefur áður
komið við sögu hjá lögreglu.
Annar maður var handtekinn í
gærmorgun vegna gruns um aðild
að innbrotum í nýbyggingar og á
vinnusvæðum.Hann hefur játað sjö
innbrot. Talsvert magn af þýfi var
gert upptækt og hefur því verið
komið til skila. Þýfið er metið á ann-
an tug milljóna króna.
Þá voru nýlega upplýst hátt í tug
innbrota í heimahús og fyrir rúmri
viku var maður handtekinn vegna
þeirra. Mikið af þýfinu úr þessum
innbrotum náðist og hefur verið
komið til skila. Þar á meðal var hald
lagt á skotvopn.
Að sögn lögreglu eru öll þessi
mál, auk annarra innbrota, sem til-
kynnt hafa verið, enn í rannsókn.
Jeppaleiðangursmenn lögðu að baki 150 km í gær
Ljósmynd/Malte Udsen
INGIMUNDUR Þorsteinsson við fyrsta Toyota-jeppann sem leiddi
fyrstu ökuferðina á Grænlandsjökul. Leiðin lá upp skriðjökul um 133
km norður af höfuðstaðnum Nuuk.
Sérblöð í dag
m itiwm
ÍARDOGUM
m
Skipulag
og lýsing
í garðinum
FH-ingar burstuðu Fylkis-
menn í Árbænum/B2
Steingrímur gerði atlögu
að meti Þórólfs Beck/B1
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.is