Morgunblaðið - 22.05.1999, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 22. MAÍ 1999 21
NEYTENDUR
Nýtt
Nýjar vörur
frá McCain
HEILDVERSLUNIN Dreifing hóf
í vikunni sölu og dreifingu á tilbún-
um frosnum vöfflum frá McCain.
Vöfflurnar verða boðnar í þremur
bragðtegundum og eru átta vöfflur í
pakka. Aðeins þarf að hita vöfflurn-
ar upp í ristavél eins og venjulegt
brauð og eru þær þá tilbúnar eins
og þær væru nýbakaðar. Vöfflurnar
fást í öllum helstu matvöruverslun-
um landsins. Fyrsta sending seldist
upp á örskömmum tíma, segir í
fréttatilkynningu frá Dreifingu.
Blautklútar
á augn- og and-
litsfarða
FARIÐ er að selja blautklúta sem
notaðir eru á augn- og andlitsfarða.
í fréttatilkynningu frá i&d ehf.
kemur fram að klútamir eru unnir
úr viskósefni og í þeim er hreinsi-
mjólk, hreinsivatn og raki. Blaut-
klútamir koma í 20 stykkja pakkn-
ingum og þeir fást í lyfjaverslunum
og hjá Nýkaupi, Hagkaupi og víðar.
Náttúrulegur
nefúði
KOMINN er á markað náttúrulegur
nefúði, Stérimar, sem gerður er úr
dauðhreinsaðri jafngildri sjávar-
blöndu. í fréttatilkynningu frá
Ýmusi ehf. kem-
ur fram að efnið
sé fyrir alla ald-
urshópa og úð-
ann má nota 2-6
sinnum á dag.
Stérimar er fá-
anlegt í 50 og
100 ml úðahylkj-
um og fæst í ap-
ótekum um land
allt.
Nýkaup á Eiðistorgi formlega opnað eftir breytingar
Ferskar vörur og til-
búinn heitur matur
í GÆR, föstudaginn 21. maí, var
Nýkaup á Eiðistorgi formlega opn-
að eftir umfangsmiklar breytingar.
Að sögn Finns Arnasonar fram-
kvæmdastjóra hjá Nýkaupi er nú
lögð áhersla á þjónustu við við-
skiptavini, ferskar vörar, tilbúinn
heitan mat og mikið vöraúrval. Búið
er að koma upp nýju kjöt- og fisk-
borði og aðstöðu fyrir tilbúinn heit-
an mat. Þá var sett upp nýtt ávaxta-
og grænmetistorg, nýtt bakarí og
mjólkurtorg.
Finnur segir að margir hafi kom-
ið að þessum breytingum en hönn-
unin var í höndum arkitektanna
Donald Stone og Kent Wells írá
Charles Sparks & Co í Chicago.
Finnur segir að markmiðið með
þessum breytingum sé að koma til
móts við væntingar viðskiptavina til
hverfisverslunar sem leggur
áherslu á ferskleika, gæði, þjónustu,
vöruúrval og kost á hagkvæmum
innkaupum á algengum heimilisvör-
Morgunblaðið/Ásdís
FINNUR Árnason
framkvæmdastjóri
Nýkaups.
Sala hafín á nýrri
tegund nautakjöts
SALA á fyrstu nautgripunum af
Limousine kyni á Islandi hófst í
vikunni. Gripirnir koma frá Gunnari
Jónssyni á Egilsstöðum.
I fréttatilkynningu frá Nýkaupi
kemm- fram að Limousine nautgripir
séu taldir gefa matbesta kjötið með
tilliti til bragðgæða og hefur kjötið
einnig verið talið mjög meyrt og er
það m.a. ástæða þess að kynið var
valið til ræktunar hér. Limousine
gripir ná 280 kg þyngd á 18-22
mánuðum, sem er sami tími og tekur
venjulega íslenska gripi að ná um
220 kg þyngd.
Nýkaup og Ferskar kjötvörar hafa
samið um kaup á þeim gripum sem
falla til á þessu ári frá Gunnari, en
gera má ráð fyrir 2-10 gripum á
mánuði út þetta ár, en síðan má
búast við auknu framboði. I
fréttatUkynningunni frá Nýkaupi
kemur fram að Gunnar hafi náð
góðum árangri í þessari ræktun og sé
framkvöðuU á þessu sviði hér á landi.
Nú var slátrað 8 gripum og var sá
stærsti 440 kg. Þar sem takmarkað
magn kom á markað verður kjötið af
gripunum eingöngu selt í verslun
Nýkaups í Kringlunni og verslun
Nýkaups við Eiðistorg.
Nautalund af stærsta gripnum frá
EgUsstöðum var um 3 kg að þyngd
en lund af venjulegum íslenskum
nautgrip er 1,3-1,4 kg að þyngd.
Innralærisvöðvi mældist 7 kg, en
algeng vigt af íslenskum nautgrip er
3,5 kg.
Nóatún
Fyrstu svart-
fuglseggin
FYRSTU svartfuglseggin eru kom-
in í Nóatún. Að sögn Jóns Þorsteins
Jónssonar markaðsstjóra hjá Nóa-
túni kostar stykkið af þeim 129
krónur en eggin koma af Langa-
nesi. Jón segir að fyrstu eggin séu
sex dögum seinna á ferðinni en' í
fyrra og hann bendir á að um leið
og meira fer að berast af eggjum
lækki verðið.
Molta seld í Blómavali
og Fossvogsstöðinni
MOLTA hefur um árin verið seld
pokuð og í lausu á endurvinnslu-
stöðvum Sorpu. Nú hefur starfsemi
stöðvanna breyst og þvi var ókveðið
að hefja samstarf við Blómaval í Sig-
túni og Fossvogsstöðina um smásölu
á Moltu í pokum. í fréttatilkynningu
frá Sorpu kemur fram að Sorpa
muni eins og áður afgreiða moltu og
moldarblandaða moltu í lausu á kerr-
ur og vörabíla við móttökustöðina í
Gufunesi. Þar hefur verið komið
upp nýju athafnasvæði fyrir moltu-
vinnsluna. Sorpa væntir þess að
umrædd þrjú fyrirtæki muni í
framtíðinni þróa ýmsar sérhæfðar
moltublöndur.
HOFTEIGUR 24
TVEGGJA ÍBÚÐA HÚS
Opið hús í dag, laugardag, milli kl. 14 og 16.
Um er að ræða þetta fallega einbýli/tvíbýli sem er kjallari, hæð og
ris, 180 fm ásamt 60 fm bilskúr. í kjallara er 2ja herbergja íbúð með
sérinngangi. Frábær staðsetning. Gerið svo vel að líta inn. Verð
17,5 milljónir.
Skeifan fasteignamiðlun,
Suðurlandsbraut 46, sími 568 5556.
Veiðimaðurinn
Veiðimaðurinn
tilkynnir
Móttaka fyrir viðgerðarþjónustu á hjólum og
stöngum er í eftirfarandi verslunum:
Útilíf • Vesturröst • Intersport
Nánari upplýsingar fást í GRÆNNI LÍNU.
j^Abu
Garcia
for life.„
$dttw pmni
t PARKER
SONNET