Morgunblaðið - 22.05.1999, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 22.05.1999, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ MARGMIÐLUN LAUGARDAGUR 22. MAÍ 1999 37 Intel kynnir nýjan RlSC-örgjörva INTEL er helsti örgjörvaframleið- andi heims á svið einkatölva. Fram- leiðsla fyrh'tækisins og veldi hefur lengstaf byggst á svonefndum CISC- örgjörvum sem verða því erfiðari viðureignai- sem þeir verða öflugri og svo komið að ekki er hægt að gera miklu betur. Við því hefur fyrir- tækið brugðist meðal annars með því að samþætta við ClSC-skipan Penti- um-örgjörva sinna, RlSC-högun, ef svo má segja, en þó haldið sig að mestu við eldri hönnun. Næsta skref í þeim efnum verður að Intel hyggst skipta yfír í 64 bita örgjörva, sem fyrsta gerð hans, Mereed, kemur á markað í haust, en HP lagði Intel lið við smíði á honum. Intel-menn eru þó með fleiri járn í eldinum því skammt er síðan fregnir bárust af nýjum örgjörvum frá Intel sem byggjast á hönnun annars aðila. Orgjörvar þeh- sem Intel hefur framleitt hafa þótt henta heldur illa í ferðatölvur, hvað þá í lófa- eða vasa- tölvur, því þeir nýta orku illa, hitna of mikið og eyða allt of miklu raf- magni fyrir tölvur og tól sem byggj- ast á rafhlöðum. Fyrir vikið hafa ýmsir framleiðendur séð sér leik á borði að framleiða örgjörva í smá- tölvur, en gríðarlegur markaður er fyrir slíka örgjörva nú þegar og á eftir að vaxa stórlega á næstu miss- erum. Þannig hafa ýmis fyrirtæki makað krókinn á lófa-/vasatölvu- markaði og algengustu örgjörvai- þar verið SH/3 frá Hitachi og MIPS frá SGT/MIPS. Við því átti Intel ekk- ert svar, því þótt fyrirtækið hafi sett á markað hitaeiningasnauða útgáfu af Pentium-örgjörvum sínum er ill- mögulegt að gera þá svo neyslugr- anna að dugi í svo litlar vélar. A Bretlandi starfaði til skamms tíma fyrirtækið Advanced Risc Machines, skammstafað ARM, og hannaði 32 bita örgjörva sem Intel keypti fyrir skemmstu, reyndar af Digital, sem komist hafði yfir hönn- unina íyrir löngu. Digital hafði miðað hönnuninni talsvert áfram, gert ör- gjörvann enn öflugri með tilliti til orkunotkunar og afls, og nefnt StrongARM, svona rétt til að undir- strikaþað. StrongARM öi-gjörvinn er þegar notaður í nokkrar gerðir lófatölva, þeirra helstri líklega Jomada 820- tölvuna frá Hewlett-Packard, en sú er með 190 MHz StrongARM ör- gjörva. Intel sér þó fyrir sér að ekki verði þeir bara notaður í lófa- og vasatölvur, heldur verði þá einnig að finna í sjónvörpum, örbylgjuofnum, farsímum, fjarstýringum, bílum og svo má telja. Fyrir vikið eru fjöl- margar gerðir örgjörvans í smíðum, Höfrungur frá Nin- tendo EINS og áður hefur komið fram er Nintendo að leggja drög að 128 bita leikjatölvu sem kallast Dolphin, höfrungur, enn sem komið er. Dolp- hin er ætlað að keppa við PlaySta- tion II í verði en slá henni við í gæð- um og kemur á markað í Japan nokkrum mánuðum á eftir PSX II. IBM og Matsushita sjá um vél- búnaðinn, en gert er ráð fyrir því að vélin verði tilbúin í lok næsta árs. Eins og áður hefur komið fram er örgjörvinn 0,18 míkrona kopar PowerPC úr smiðju IBM, 400 MHz og kallast Gekko. Grafikörgjörvinn er saman settur af ArtX og verður 0,18 míkron, 200 MHz Embedded DRAM. Minni tölvunnar verður há- hraða DRAM með 3,2 Gb á s. band- vídd. Matsushita er að ganga frá gagnasniðinu á DVD diskunum sem vélin kemur til með að nota, en ekki á að vera hægt að gera af þeim ólög- ætlaðar í ólík tæki og tól, og næsta ári eru væntanlegir örgjörvar með hraða frá 33 upp í 600 MHz, sem eru með orkuþörfina frá 40 upp í 450 millvött. Til gamans má geta þess að hefðbundin sparnaðarútfærslá Pentium örgjörva fyrh- fartölvur þarf að minnsta kosti átta vött. Örgjörvafræðingar hafa lengi bor- ið lof á StrongARM-örgjörvann fyrir það hve hönnun hans er sveigjanleg og imeð hann að vopni hyggjast In- tel-menn ná viðlíka yfirburðum á markaði fyrir til að mynda sam- skiptabúnað, lófatölvur og farsíma, svo dæmi séu tekin. Þar mætast stál- in stinn þar sem MIPS hefur komið sér víðá fyrir og IBM stendur einnig 'sterkt að vígi með PowerÞC-örgjör- ■ valínu sína, aukinheldur sem fyrir- tæki eins og Lucent horfa girndar- augum til markaðarins. rrongAB^ Sm • - wam Ertu á leið í sumarfrí? Komdu þá fyrst í Intersport. Hjá okkur færðu allt sem þig vantar. Sumarjakkar, sport- fatnaður, íþróttaskór, strigaskór, sundfatnaður o.fl. o.fl. sem gerir fríið ánægjulegra. ÞÍN FRÍSTUND - OKKAR FAG VINTERSPORT Blldshöfða 20 • 112 Reykjavlk • sími 510 8020 • www.intersport.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.