Morgunblaðið - 22.05.1999, Blaðsíða 62
62 LAUGARDAGUR 22. MAÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
„Hörðustu töffar-
arnir með
beltin spennt“
Grettir
Pabbi gamli var vanur
aS segja: „Litlir hundar*
eru i
yap »ð/ ,,
* nV
ð* k ))
Ljóska
Hi/ilik f&sinnoJí
-Hvtrnig dc tturþti
\___pitlo-> kug?!
fyoSrtiQ
sUmr&ót-
Ferdinand
Þetta er aðeins fyrsta lotan, Og nú er komin Sjáðu til, Kalli Bjarna,
og við erum nú þegar með rigning.. þú verður bara að trúa!
núll fjörtíu stigum undir!
Frá Ragnheiði Davíðsdóttur:
UM miðjan júní eru liðin fimm ár
frá þvi skipulegt forvarnarstarf
hófst hjá Vátryggingafélagi íslands
en fyrsta verkefnið var að setja á
markað eina öruggustu bamabíl-
stóla sem völ er á í heiminum.
Haustið 1994, hófust síðan umferð-
arfundir VÍS, „Tökum slysin úr um-
ferð“ þar sem fjallað er um afleið-
ingar umferðarslysa og hafa þeir
fundir verið haldnir reglulega síðan.
Á þessum fimm árum hafa 10.000
ungmenni sótt umferðarfundi VIS á
yfir 300 fundum. Á fundunum eru
sýnd viðtöl við fómarlömb umferð-
arslysanna, m.a. ungt fólk sem vald-
ið hefur slysi, ökumenn og farþega
sem slasast hafa í umferðinni, for-
eldra þeirra, skólafélaga og aðra
sem um sárt eiga að binda. Þá er
fjallað um afleiðingar ölvunarakst-
urs, hraðaksturs, bílbeltanotkun,
viðhorf ungra ökumanna til umferð-
arinnar og fleira. VÍS hefur átt
mjög gott samstarf við Félag fram-
haldsskólanema en nemendafélög
skólanna hafa boðað til umferðar-
funda á skólaárinu, þar sem fulltrú-
ar VIS hafa mætt, ásamt ýmsum
gestum en meðal þeirra em fatlaðir
einstaklingar úr SEM-samtökun-
um, lögreglumenn og sjúkraflutn-
ingamenn. Fundirnir em afar
áhrifaríkir og skilja eftir sig sterkan
boðskap í baráttunni við umferðar-
slysin.
Tvisvar í mánuði era síðan haldn-
ir umferðarfundir í húsakynnum
VIS, Armúla 3, Reykjavík og em
þeir opnir öllum ungum ökumönn-
um, ökunemum og aðstandendum
þeirra. Fundirnir era á dagskrá
annað hvert mánudagskvöld og
hefjast stundvíslega klukkan 19.30.
Auk dagskrárinnar fá þátttakendur
að gjöf blaðið Stanz, penna, T-bol
og endurskinsmerkispjald á skóla-
töskuna. VIS hefúr einnig frá upp-
hafi umbunað sérstaklega þátttak-
endum umferðarfundanna, sem
tryggja eigin bíl hjá félaginu, með
því að veita þeim veralegan afslátt
af ábyrgðartryggingu. Þau hlunn-
indi fá þeir einir sem mæta á fund-
ina.
Þótt aðaláherslan í forvamastarfi
VÍS hafi beinst að ungum ökumönn-
um, hefur félagið þó ekki gleymt
öðram þjóðfélagshópum. Samfara
útleigu á bamabflstólunum hefur
VÍS boðið upp á sérhæfð fræðsluer-
indi um slysavamir bama og ung-
menna hjá félagasamtökum, á leik-
skólum og fleiri stöðum, og sérstaka
forvarnadagskrá fyrir eldri borgara
þar sem fjallað er um slysavarnir,
innan og utan heimilis, vatns-
tjónsvamir, þjófavarnir og brana-
vamir. Nýjasta verkefnið í for-
vamamálum VÍS era forvamafund-
ir/námskeið með bflstjóram fólks-
og vöruflutningabfla þar sem fjallað
er um öryggisatriði sem tengjast
þeirri atvinnugrein. Þar er meðal
annars fjallað um ökurita, hraðatak-
markara, ökuhraða, hjólbarða, bfl-
belti, tengibúnað og frágang farms,
flutning hættulegra efna, farsíma-
notkun og fleira. Foreldrar og for-
ráðamenn ungmenna á ökunáms-
aldri era hvattir til að senda böm
sín á umferðarfundi VÍS. Til marks
um gildi þeirra er eftirfarandi saga:
Ung stúlka snýr sér að undirritaðri
í verslun og segir henni að hún hafi
mætt á umferðarfund VÍS í
menntaskólanum þar sem hún
stundar nám. „Jæja, og hvemig
fannst þér?“ spurði forvamafulltrú-
inn. „Hann hafði mikil áhrif á mig -
en það er ekki aðalmálið, því við vin-
konumar notum alltaf bflbelti og
ökum aldrei of hratt. En hörðustu
töffaramir í skólanum, sem aldrei
notuðu bflbelti, hafa ekki tekið þau
niður síðan fundurinn var haldinn."
Þessi orð færðu mér heim sanninn
um að VÍS væri á réttri leið í bar-
áttunni við umferðarslysin.
RAGNHEIÐUR DAVÍÐSDÓTTIR,
forvarna- og öryggismálafulltrúi Vá-
tryggingafélags Islands.
Vanhugsuð vinnubrögð
Frá Eggerti E. Laxdal:
ÞAÐ stendur ekki á því að sekta
fólk fyrir smávegis mistök, eins og á
sér stað með bflbeltin, því að oft era
þau svo klaufalega staðsett, að það
er ekki nema fyrir æfða fimleika-
menn að læsa þeim. Lásamir nema
við rassinn í stað þess að vera ofan-
vert á vinstra læri, þar sem til
þeirra næst.
í mörgum fimmmanna bflum era
ekki nema fjögur belti, tvö fram í og
tvö aftur í. Þetta rýrir notagildi bíl-
anna og er furðuleg ráðstöfun,
þessu þarf að breyta. Það er ekki
nóg að setja lög, ef ekki er mögu-
legt að halda þau og gera löggæsl-
una að Grýlu á fólkið, með blokk og
penna, til þess að skrá sökudólga í
dagbækm- lögreglunnar sem brota-
menn, í stað þess að vera fólki til að-
stoðar, þegar á þarf að halda. Ég
lýk þessu með bílbeltin og sný mér
að öðra, sem einnig varðar öku-
menn.
Við afleggjarann frá Reykjavík,
þar sem sveigt er inn á leiðina til
Hveargerðis og Selfoss er stærðar
skilti, með ýmsum staðanöfnum, en
þar sést hvorki nafn Hveragerðis né
Selfoss, sem þó era fjölfómustu
staðimir. Þetta kemur sér illa fyrir
marga ferðamenn og ekki síst út-
lendinga, enda aka margir framhjá
þessum vegamótum, þegar engin
leið er að snúa við á þessum vegi.
Þetta þarf að lagfæra og setja nafn
Hveragerðis og Selfoss efst á skilt-
ið, með stórum stöfum.
EGGERT E. LAXDAL,
Frumskógum 1, Hveragerði.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að iútandi.