Morgunblaðið - 22.05.1999, Qupperneq 6
6 LAUGARDAGUR 22. MAÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Auðvelt
að nálgast
eiturlyf
UM 93% fólks á aldrinum 12 til
30 ára telja að þau geti mjög
eða frekar auðveldlega orðið
sér úti um ólögleg vímueftii á
Islandi, en um 1% telur það
mjög erfítt. Ef aðeins er litið á
aldurshópinn 12 til 15 ára, þá
telja um 83% þeirra að auðvelt
sé að verða sér úti um ólögleg
vímuefni. Þetta kom fram í nið-
urstöðum könnunar Gallup.
I könnuninni var unga fólkið
einnig spurt að því hversu mikil
ógn það teldi að stafaði af vímu-
efnum á íslandi í dag og telja
82% fólks að mikil ógn stafi af
vímuefnum.
Afengisneysla var einnig
könnuð og kom í ljós að um
17% unglinga á aldrinum 12 til
15 ára neyta áfengis, 82% ung-
linga á aldrinum 16 til 19, 94%
fólks á aldrinum 20 til 24 ára og
um 85% fólks á aldrinum 25 til
30 ára. Hærra hlutfall pilta en
stúlkna neytir áfengis oft eða
11% pilta en rúmlega 3%
stúlkna.
Reykingar voru einnig at-
hugaðar, en samkvæmt könn-
uninni reykja um 4% unglinga á
aldrinum 12 til 15 ára, 26% ung-
linga á aldrinum 16 til 19 ára og
um 32% fólks á aldrinum 20 til
30 ára.
491 kærður
fyrir
hraðakstur
ALLS var 491 ökumaður kærður
fyrir of hraðan akstur og 54 kærðir
iyrir ölvun við akstur á Islandi í vik-
unni 3. til 9. maí sl, en þá fylgdist
lögreglan sérstaklega með
hraðakstri og ölvunarakstri í tengsl-
um við verkefni norrænna lögreglu-
manna undir yfírskriftinni norræna
umferðarvikan.
I sömu viku var fylgst með
hraðakstri og ölvunarakstri á hinum
Norðurlöndunum og segir Hjálmar
Björgvinsson aðalvarðstjóri umferð-
ardeildar ríkislögreglustjóra að
fjöldi þeirra sem kærðir voru fyrir
hraðakstur eða ölvunarakstur hér á
landi viku hafí verið hlutfallslega
svipaður fjölda þeirra sem kærðir
voru á hinum Norðurlöndunum.
Alls voru 14.697 ökumenn kærðir
fyrir hraðakstur á Norðurlöndunum
í umræddri viku en þar af voru 565
sviptir ökuréttindum. Tveir þeirra
voru á íslandi. Þá voru alls 525
kærðir fyrir ölvun við akstur á öllum
Norðurlöndunum.
Faldi am-
fetamín í
áfengis-
flösku
TOLLVERÐIR í flugstöð Leifs Ei-
ríkssonar tóku flugfarþega með um
80 grömm af amfetamíni í fórum
sínum á þriðjudag, þegar hann var
að koma til landsins. Maðurinn
reyndi að smygla fíkniefnunum til
landsins í áfengisflösku. Málið' er
talið upplýst.
Þá hefur lögreglan í Reykjavík
handtekið nokkra aðila og lagt hald
á talsvert magn fíkniefna undan-
farna daga, þar á meðal kókaín og
amfetamín.
Fylgst með
fíkniefnasölum
Lögreglan hefur að undanfömu
lagt áherslu á að fylgjast með aðil-
um sem grunaðir eru um sölu fíkni-
efna, að sögn Ómars Smára Ár-
mannssonar aðstoðaryfirlögreglu-
þjóns hjá lögreglunni í Reykjavík.
Þannig leiddi samstarf lögreglu-
manna í þremur umdæmum í liðinni
viku til handtöku tveggja manna,
sem komið höfðu utan af landi til
innkaupa fíkniefna í borginni.
Mennimir hafa verið granaðir um
sölu fíkniefna í bæ á Austurlandi og
vora með um tíu grömm af hassi í
fórum sínum, þegar þeir voru teknir
höndum.
Tveir menn sem lögreglan hafði
afskipti af reyndust vera með kóka-
ín í fórum sínum og maður á fímm-
tugsaldri var handtekinn með rúm-
lega 30 grömm af hassi í fórum sín-
um, en hann er grunaður um sölu
ýmissa fíkniefna til yngra fólks.
Maðurinn viðurkenndi neyslu og
sölu efnanna.
Auk þess hefur lögreglan lagt
hald á nokkurt magn fíkniefna eftir
að hafa stöðvað ökumenn við um-
ferðareftirlit og við leit að þýfi í
húsum.
„Starfsmenn fíkniefnadeildar í
samstarfí við aðra lögreglumenn,
bæði á starfssvæði lögreglunnar í
Reykjavík og annars staðar, munu á
næstunni leggja mun meiri áherslu
á að vinna úr fyrirliggjandi upplýs-
ingum frá almenningi, fylgjast með
grunuðum sölumönnum fíkniefna og
hafa eftirlit með þeim eftir því sem
ástæða þykir til,“ segir Ómar
Smári.
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn varar við hættu á verðbólgu
Fjárlagagerð hemji
eftirspurnina
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn, IMF,
hefur sent frá sér fréttatilkynningu
um efnahagsástandið á íslandi og
varar stofnunin við hættu á aukinni
verðbólgu. Telur stofnunin að fjár-
lagagerð íslenskra stjómvalda eigi
að gegna mikilvægu hlutverki við að
hemja eftirspum á fjármálamark-
aði. Stofnunin benti jafnframt á
nauðsyn þess að draga úr ríkisút-
gjöldum og, ekki síst, að ná stjóm á
launaskriði hjá ríkisstarfsmönnum.
Stofnunin telur að rétt hafi verið
að hækka vexti snemma í marsmán-
uði sl. og að svigrúm sé til frekari
aðgerða á því sviði.
Birgir ísleifur Gunnarsson seðla-
bankastjóri segir að afstaða Al-
þjóðagjaldeyrissjóðsins komi sér
ekki á óvart. Grunnurinn að frétta-
tilkynningunni sé vinna sendinefnd-
ar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins sem
kom til Islands í janúar sl.
„í lok sinnar heimsóknar gaf
sendinefndin frá sér yfirlýsingu
sem birt var í fjölmiðlum og var hún
mjög í þessum dúr. Við höfum jafti-
framt rætt um að nauðsynlegt sé að
beita ríkisfjármálum í svona þenslu-
ástandi. Einnig höfum við beitt að-
haldssamri fjármálastefnu og mun-
um gera það áfram. Vaxtahækkanir
hafa ekki verið á döfinni. Við fylgj-
umst auðvitað með nánast frá degi
til dags hvemig hinar einstöku vís-
bendingar þróast sem við förum eft-
ir þegar við metum ástandið. Ekk-
ert hefur ennþá kallað á vaxta-
hækkun að okkar mati, hvað sem
seinna verður," segir Bfrgir ísleif-
Hann segir að umræðan um
þensluástand í efnahagslífínu sé að
sínu mati dálítið ýkjukennd. „En ef
ekkert verður að gert og þróunin
heldur áfram eins og hún er núna
gæti verið hætta framundan í efna-
hagslífinu. Hættan er sú að verð-
bólgan fari af stað með meiri hraða
en við höfum séð. Við höfum verið í
innan við 2% verðbólgu en nú hafa
komið þrjár mælingar sem benda til
þess að hún sé hærri en hún var í
fyrra og jafnvel allt að 3%, sem er
þó ekkert stórkostlegt miðað við
það sem gerist í öðrum löndum. En
við verðum að sjá til þess að það
verði staðnæmst þar og helst að ná
verðbólgu aftur niður fyrir 2%,“
sagði Birgir ísleifur.
Bíóköttur
HANN horfir óragur í myndavél-
ina, þessi köttur sem skyndilega
hefiir fengið hlutverk í bíómynd
vegfarandans, enda er hann mið-
bæjarköttur og vanur því að fólk
dáist að honum þar sem hann sit-
ur í glugganum sfnum og fylgist
með mannlífinu á Laugaveginum.
Helgi Hjörvar um álit minnihluta á uppbyggingu í Laugardal
Sýnir sundrungu og
skort á forystu
Eldur kom upp í verkfæraskúr Fiskalóns
Tjónið gæti numið
einni milljón
SIGURBERG Kjartansson fiskeldis-
fræðingur telur að tjón vegna elds-
voða í verkfæraskúr, bárujáms-
klæddu timburhúsi, fiskeldisstöðvar-
innar Fiskalóns í Ölfushreppi geti
numið um eða yfir einni milljón
króna. Eldsins varð fyrst vart um
fimmleytið í gærmorgun og lagði þá
mikinn reyk út úr húsinu. Fimm
stundarfjórðungum síðar hafði
slökkviliðið í Hveragerði ráðið niður-
lögum eldsins. Hins vegar þurfti að
kalla slökkviliðið út að nýju rétt fyrir
klukkan átta í gærmorgun vegna
þess að aftur var farið að loga í hús-
inu. Greiðlega gekk að slökkva eldinn
í seinna skiptið.
Að sögn Sigurbergs standa út-
veggir hússins uppi en þakið féll nið-
ur við brunarm. Þá ■segfr-hamr að“—leysuströTidr ~
tölvubúnaður, vatnsdælur og ýmis
verkfæri hafi eyðilagst í brunanum.
Telur hann öruggt að húsið sé tryggt
en óvíst sé með innanstokksmunina.
Vegna brunans fór rafmagnið af fisk-
eldisstöðinni en búið var að koma því
í lag um fjögurleytið í gærdag. Fisk-
urinn, segir Sigurberg, var aldrei í
hættu. „Þegar rafmagnið fór af
stöðvaðist dæla sem leiðir heitt vatn
til fiskeldisstöðvarinnar. Það kom
hins vegar ekld að sök því kalt vatn
er leitt ofan úr fjalli í stöðina. Fiskur-
inn var því aldrei í hættu.“
Auk Sigurbergs starfar á Fiska-
lóni Höbye Christiensen eigandi
stöðvarinnar. Hann hefur átt stöðina
í um fimm ár og leigir hana nú Sil-
ungi, fyrirtæki í fiskeldi á Vatns-
TALSVERÐ umræða varð um
skipulagsmál í Laugardalnum í
Reykjavík á fundi borgarstjórnar á
fimmtudagskvöld m.a. vegna hug-
mynda um að Landssími íslands hf.
fái úthlutað lóð sem tónlistarhúsi
var ætluð og vegna umsóknar um
byggingu kvikmyndahúss. Borgar-
fulltrúar Reykjavíkurlistans segja
borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins
sundraða í málinu en þeir sjálfir
telja að meirihlutinn hafi þegar
ákveðið að heimila umræddar bygg-
ingar.
Ólafur F. Magnússon, borgarfull-
trúi Sjálfstæðisflokksins, lagði fram
bókun vegna málsins og telur hann
að endurskoða eigi öll áform um
byggingáframkvæmdir austast í
Laugardal á svæðinu milli Engja-
vegar og Suðurlandsbrautar. Hann
segir að íþróttastarf og útivist eigi
að hafa forgang í skipulagi og nýt-
ingu dalsins og leggja þurfi áherslu
á að sátt náist um skipulag svæðis-
ins jafnt innan borgarstjómar sem
utan.
Helgi Hjörvar, oddviti Reykjavík-
urlistans, sem einkum tók þátt í um-
Jimr'
Gísladóttur borgarstjóra, sagði
sundrungu og skort á forystu áber-
andi í afstöðu sjálfstæðismanna í
þessu máli. Inga Jóna Þórðardóttir
og fleiri hefðu í borgarráði verið
hlynnt því að höfuðstöðvar Lands-
símans rísi við Suðurlandsbraut,
gegnt húsi Orkuveitu Reykjavíkur,
Júlíus Vífill Ingvarsson hefði lagt til
að þar risi víkingaaldargarður,
Kjartan Magnússon og Guðlaugur
Þór Þórðarson vildu að iþróttahreyf-
ingunni yrði falin öll uppbygging og
Ólafur F. Magnússon vildi endur-
skoða öll áform. Þannig væru uppi
þrjár eða fjórar skoðanir hjá minni-
hlutanum. Helgi minnti á að búið
væri að gefa Landssímanum vilyrði
fyrir lóðinni og ekki væri eins og
byggja ætti í miðjum dalnum. í ný-
byggingu Landssímans væri líka
gert ráð fyrir tæknisafni á jarðhæð
sem gæfi gestum Fjölskyldu- og hús-
dýragarðsins færi á enn fjölbreyttari
afþreyingu. Aðspurður sagði Helgi í
samtali við Morgunblaðið að ekki
hefði verið tekin nein afstaða hjá
meirihlutanum til umsóknar um
byggingu kvikmyndahúss, málið
~væritil skoðunar.-------------——
Borgarfulltrúar Reykj avíkurlistans
lögðu áherslu á að ljúka uppbyggingu
sem nú stæði yfir í Laugardalnum og
neftidu framkvæmdir við sundlaug-
arnar, hugmyndir um heilsuræktar-
miðstöð og skautahöll og frágang á
bflastæðum og aðkomu að Laugar-
dalsvelli.
Áskorun til borgarstjórnar
vísað frá hjá ÍTR
Málið var einnig rætt á fundi
íþrótta- og tómstundaráðs í gær og
þar lagði Kjartan Magnússon, annar
fulltrúa Sjálfstæðisflokksins í ráðinu,
það til að skora á borgarstjóm að
beita sér fyrir því að það land sem
enn er til ráðstöfunar í Laugardaln-
um verði nýtt til starfsemi í þágu
íþróttaiðkunar eða annarrar starf-
semi tengdri útiveru og tómstunda-
iðkun fjölskyldna. Tillögunni var vís-
að frá. „Þessi frávísun og afstaðan
sem fram kom í borgarstjóm stað-
festir í mínum augum þau áform
meirihlutans að láta verða af bygg-
ingu kvikmyndahúss og leiktækjasal-
ar í Laugardalnum," sagði Kjartan
Magnússon í samtali við Morgunblað-
iðígær. ........