Morgunblaðið - 22.05.1999, Qupperneq 12
12 LAUGARDAGUR 22. MAÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Samráðsfundur um skýrslu ESB um aðgang að opinberum upplýsingum
Leitað
eftir áliti
Islendinga
Evrópusambandið hefur sent sérfræðinga
sína víða um Evrópu til þess að kynna hina
svokölluðu grænbók, sem er skýrsla sam-
bandsins um opinberar upplýsingar í upp-
lýsingasamfélaginu. Trausti Hafliðason sat
fund sem haldinn var af þessu tilefni á
Grand hóteli á fimmtudaginn.
SAMRÁDSFUNDUR um
skýrslu Evrópusambands-
ins, sem nefnd hefur verið
grænbók (Green Paper) og
fjallar um opinberar upplýsingar,
vai- haldinn á Grand hóteli á
fimmtudag, en á fundinum var rætt
um skýrsluna og afstöðu Islendinga
til hennar. Ola-Kristian Hoff, sér-
fræðingur hjá ESB, kynnti skýrsl-
una, en framkvæmdastjórn sam-
bandsins leitar eftir sem víðtæk-
ustu áliti á henni. Hann sagðist bú-
ast við því að setti ESB lög um
upplýsingar og aðgengi að þeim
myndu þau um margt líkjast ís-
lensku upplýsingalögunum, sem
sett voru árið 1996.
Verkefnisstjórn um upplýsinga-
samfélag og upplýsingaskrifstofan
MIDAS-NET, sem rekin er í
tengslum við margmiðlunaráætlun
ESB og EFTA, stóðu fyrir fundin-
um, sem var vel sóttur, en um 80
manns sátu hann.
Grænbókin var gefin út 20. janú-
ar, en útgáfan er liður í undirbún-
ingi stefnumótunar ESB á þessu
sviði. í skýrslunni er tekið á ótal at-
riðum varðandi upplýsingar frá
hinu opinbera, t.d. eru opinberar
upplýsingar skilgreindar, fjallað er
um aðgengi að þeim, höfundaiTétt,
vemdun gagna og ábyrgð, verð-
lagningu gagna og áhrif einkaréttar
á samkeppnisstöðu.
Ástandið í góðu lagi hér
Hoff sagði að ESB hygðist not-
færa sér þær upplýsingar sem
kæmu fram á samráðsfundum, eins
og þeim sem haldinn var á Grand
hóteli á fimmtudaginn, til að móta
stefnu í upplýsingamálum, en hann
sagði að enn væri ekki vitað
hvenær eða hvort ESB smíðaði sér-
staka upplýsingalöggjöf. Þó að upp-
lýsingamar verði ekki notaðar til
að hanna löggjöf um upplýsingamál
þá verða niðurstöðurnar af þessum
samráðsfundum gefnar út af ESB
þegar búið verður að skoða þær og
meta.
Island er fjórða landið sem Hoff
heimsækir í þessum tilgangi en áð-
ur hafði hann sótt fundi til Noregs,
Portúgals og Spánar. Hann sagði
að þó nokkur munur væri á því
hvernig umræðurnar þróuðust í
hverju landi fyrir sig og af umræð-
unum hér að dæma sagðist hann
líta þannig á að ástandið væri í
nokkuð góðu lagi. Sú staðreynd að
á fundinum var mest rætt um
kostnað við upplýsingaþjónustu og
það hvort hið opinbera eða einkaað-
ilar ættu að annast þjónustuna gef-
ur til kynna að gæðin séu mikil og
að fólk sé almennt ánægt með það
sem nú þegar er á boðstólum. Til
samanburðar var á fundinum í
Portúgal mest fjallað um gæði
þjónustunnar og lítið framboð af
gögnum og sagði Hoff þær athuga-
semdir vera mun alvarlegri en þær
sem hér komu fram. Hann sagði að
töluverður munur væri á Norður-
og Suður-Evrópu í þessum málum.
Má koma öllum upplýsingum
fyrir á einum stað?
Á fundinum fjölluðu íslenskir
sérfræðingar um málið frá mismun-
andi hliðum og eins og kom fram í
máli Hoff, snerist umræðan að
miklu leyti um kostnað við aðgengi
að upplýsingum og það hvort hið
opinbera eða einkaaðilar ættu að
sjá um að koma upplýsingunum til
almennings. Einnig var fjallað um
það hversu dreifðar upplýsingarnar
frá hinu opinbera væru á Netinu,
þ.e. að ráðuneyti og stofnanir væru
hvert með sína heimasíðu með sín-
um upplýsingum og að þar gætti
oft lítils samræmis, þar sem sumir
uppfærðu upplýsingar fyrr en aðrir
o.s.frv. Þá var þeirri hugmynd
kastað fram hvort ekki væri hægt
að koma öllum upplýsingunum fyrir
á einum stað, þ.e. á einni heimasíðu
þannig að notendur þyrftu ekki að
hamast við að leita að þeim hér og
þar á Netinu.
Kristján Andri Stefánsson, lög-
fræðingur í forsætisráðuneytinu,
flutti erindi á fundinum um aðgang
að upplýsingum hjá hinu opinbera.
I máli hans kom fram að árið 1996
hefði ríkisstjórnin markað ákveðna
stefnu um málefni upplýsingasam-
félagsins undir því metnaðarfulla
formerki að „Islendingar verði í
fararbroddi þjóða heims við nýt-
ingu upplýsingatækni í þágu bætts
mannlífs og aukinnar hagsældar".
Að sögn Kristjáns falla megin-
markmið stefnunnar að mestu leyti
saman við markmið Evrópusam-
bandsins, eins og þau eru kynnt í
grænbókinni.
Reglurnar verði skýrar
og einfaldar
Hvað varðar samræmingu á upp-
lýsingalögum innan Evrópu, sagði
Kristján: „Ég vil aðeins leggja
áherslu á að henni verði a.m.k. ekki
beitt nema í þeim tilvikum sem það
er greinilega til þess fallið að ná
fram hinum alkunnu markmiðum
Evrópusamvinnunnar og öruggt að
þarfir viðskiptalífsins krefjist
þess.“
„í grænbók Evrópusambandsins
er velt upp þeirri spumingu hvort
samræming takmörkunar- og und-
anþáguákvæða eigi rétt á sér. Þeg-
ar til þess er litið að hve miklu leyti
slíkar takmarkanir em þannig
komnar undir mati stjómvalda á
hverjum stað hljóta hinsvegar að
vakna með manni efasemdir um að
samræming þeirra geti nokkurn
tíma þjónað nema takmörkuðum
tilgangi. Verði af einhvers konar
samræmingu er a.m.k. vert að
hnykkja á nauðsyn þess að reglurn-
Morgunblaðið/Ásdís
HALDINN var samráðsfundur um skýrslu Evrópusambandsins um op-
inberar upplýsingar og afstöðu íslendinga til hennar, en um 80 manns
sóttu fundinn, sem var haldinn á Grand hóteli á fimmtudaginn.
ÞÓR Jónsson, varaformaður
Blaðamannafélags íslands,
sagði að félagið væri um margt
ánægt með íslensku upplýsinga-
lögin þótt það hefði ýmsar at-
hugasemdir fram að færa.
ar verði skýrar og einfaldar annars
vegar og hins vegar að tryggðar
verði virkar leiðir til að fá leyst úr
ágreiningsmálum með einföldum,
skjótum og ódýrum hætti.“
Aðgangur hefur verið rýmkaður
Kristján fjallaði einnig þó nokk-
uð um réttarástandið á íslandi fyrir
og eftir gildistöku upplýsingalag-
anna árið 1996. Það sem helst hefur
breyst er að aðgangur almennings
að upplýsingum frá hinu opinbera
hefur verið rýmkaður mjög, en
meginreglan er sú að allir geta
krafist aðgangs án þess að þurfa að
nefna einhverja ástæðu fyrir beiðn-
inni. Kristján sagði að upplýsinga-
lögin hefðu breytt starfsskilyrðum
stjórnvalda og krafist ákveðinnar
hugarfarsbreytingar hjá starfsliði
stjórnsýslunnar og e.t.v. almenn-
ingi líka.
Kristján sagði hins vegar að al-
mennt væri viðurkennt að ákveðna
hagsmuni bæri að verja fyrir óheft-
um aðgangi almennings og því ríkti
þagnarskylda um ýmsar upplýsing-
ar og að varðandi annað væri
stjórnvöldum heimilt en ekki skylt
að veita upplýsingar. Þær takmark-
anir og undanþágur sem eru í gildi
hér á landi eru færri en víða annars
staðar, en víðtækari.
Takmarkanir og undanþágur
voru útfærðar með nokkuð almenn-
ari og fyrirferðarminni hætti hér en
þekkist t.d. á Norðuriöndunum
vegna fámennisins hér, en það ger-
ir stjórnvöldum kleift að starfrækja
eitt og sama kærustigið fyrir synj-
anir um aðgang að gögnum á
grundvelli upplýsingalaga, þ.e. úr-
skurðamefnd um upplýsingamál.
Urskurðir nefndarinnar eiu endan-
legir á stjómsýslustigi og hafa því
fordæmisgildi og stuðla að því að
samræmi skapist um framkvæmd
laganna með hraðari og öruggari
hætti en annars hefði orðið.
Að áliti Kristjáns er engin knýj-
andi þörf fyrir almenna lagasetn-
ingu á sviði upplýsingamála, þótt
e.t.v. þurfi að kanna einstök álita-
efni nánar.
Kostnaðarsamt að hafa
lokað sljórnkerfí
Að sögn Þórs Jónssonar, varafor-
manns Blaðamannafélags Islands,
en hann flutti erindi á fundinum, er
félagið um margt ánægt með ís-
lensku upplýsingalöggjöfina, þó
það hafi ýmsar athugasemdir fram
að færa. Að hans sögn snúa athuga-
semdirnar fyrst og fremst að því
hversu rúman frest stjórnvöld hafa
til þess að afgreiða fyrirspurnir, þá
mætti gildissvið laganna vera víð-
ara og að lokum eru skjalasöfn
hvorki nógu vel uppfærð né í nægi-
lega góðu lagi til þess að hægt sé að
nýta sér lögin til fullnustu.
Þór sagðist á heildina litið vera
nokkuð ánægður með grænbókina.
„I grænbókinni kveður við nýjan
tón hjá Evrópusambandinu, sem
fyrir fjórum árum, þegar Svíar
gengu í það, var furðu lostið yfir því
að í Svíþjóð væri í krafti upplýs-
ingalaga hægt að fá ýmis gögn og
skjöl frá ESB, sem ekki væri hægt
að fá í Brussel vegna þess að þar
voru þau stimpluð sem trúnaðar-
mál,“ sagði Þór. „Embættismenn
sambandsins töldu að þarna væri
kominn leki að sambandinu sem
þyrfti að setja undir, en í grænbók-
inni er aftur á móti bent á að það
þurfí að vera auðvelt að afla sér
upplýsinga frá stjórnkerfinu í hin-
um mismunandi löndum bandalags-
ins, atvinnulífsins vegna og vegna
reglna um frjálsan flutning þjón-
ustu og markaðsvöru á milli landa.“
Þór sagði að margt í grænbók-
inni væri athyglisvert en þó hefði
honum fundist einkar athyglisvert
að sjá hversu miklum fjármunum
væri sóað, einungis vegna þess
hversu stjórnkerfið væri lokað og
sagði hann að evrópska einkaleyfa-
stofan mæti það svo að meira en 18
milljarðar evra (um 1.370 milljörð-
um íslenskra króna) á ári væru
lagðir í rannsóknir sem þegar hefðu
farið fram á vegum annarra.
Upphafið að enn frekari
umræðu
Guðbjörg Sigurðardóttir, for-
maður verkefnisstjórnar um upp-
lýsingasamfélagið, fagnaði því
hversu fundurinn var vel sóttur og
taldi það bera vott um mikinn
áhuga fólks á þessu málefni, en hún
sagði að samanborið við önnur lönd
stæði Island sig nokkuð vel á þess-
um vettvangi. Hún sagði að samt
væri hægt að gera betur og að opna
yrði meira umræðuna um persónu-
vernd og höfundarréttindi.
Varðandi grænbókina sagði Guð-
björg að hún hefði í raun ekki að
geyma neinar spurningar sem
kæmu sérstaklega á óvart en að til-
koma hennar hefði hinsvegar sett
ákveðinn þrýsting á að koma þess-
um málum í opinbera umræðu.
„Þó við teljum okkur vera mjög
vel stödd í þessum málum þá þurf-
um við stöðugt að vera á verði og
það má telja að þessi fundur hér í
dag (fimmtudag) sé í raun upphafið
að enn frekari umræðu um upplýs-
ingamál í okkar samfélagi,“ sagði
Guðbjörg.
EFTA-dómstóllinn
Norskir
styrkir
ólög-
mætir
EFTA-dómstóllinn hafnaði á
fimmtudag kröfu ríkisstjórnar
Noregs um ógildingu á ákvörð-
un Eftirlitsstofnunar EFTA um
að kerfi framlaga til almanna-
trygginga í Noregi feli í sér
ólögmæta ríkisaðstoð.
I fréttatilkynningu frá dóm-
stólnum segir, að samkvæmt al-
mannatryggingalögum sem
tóku gildi í Noregi í febrúar
1997, greiði launþegar og at-
vinnurekendur framlag til al-
mannatrygginga. Atvinnurek-
endur greiða framlag sem
reiknað er á grundvelli brúttó-
launa launþega og er á bilinu 0-
14,5% eftir því í hvaða sveitarfé-
þagi launþegi hefur fast aðsetur.
Á þéttbýlissvæðum í Suður-
Noregi er framlagið 14,1% en 0
á tilteknum svæðum í Norður-
Noregi.
Ólögmæt ríkisaðstoð
Eftir athugun á málinu tók
Eftirlitsstofnun EFTA (ESA)
ákvörðun um að kerfið fæli í sér
ólögmæta ríkisaðstoð í skilningi
61. greinar EES-samningsins.
Ríkisstjórn Noregs höfðaði mál
til ógildingar á ákvörðuninni og
byggði á því að Eftirlitsstofnun-
in hefði með ákvörðun sinni
sjálf brotið gegn EES-samn-
ingnum.
EFTA-dómstóllinn taldi að
kerfið ívilnaði ákveðnum fyiir-
tækjum eða framleiðslu og fæli
því í sér ríkisaðstoð í skilningi
61. gr. EES-samningsins en
ekki almenna ráðstöfun sem
félli utan gildissviðs greinarinn-
ar, eins og ríkisstjórn Noregs
hélt fram.
Söfnun fyrir
fórnarlömb
á Balkanskaga
Yfír sjö millj-
ónir söfnuðust
í peningum
RÚMLEGA sjö milljónir króna í
peningum og 620 ullarteppi að
verðmæti 1,7 milljónir kr. söfn-
uðust í landssöfnun Hjálpar-
starfs kirkjunnar og Rauða kross
íslands fyrir fómarlömb stríðs-
átakanna á Balkanskaga í vik-
unni. Söfnunin hófst á mánudag
en lauk formlega á fimmtudag.
Enn er þó hægt að leggja inn á
söfnunarreikning hjá Sparisjóði
Reykjavíkui' og nágrennis,
SPRON, nr. 1150-26-56789.
Að sögn Jónasar Þórissonai-,
framkvæmdastjóra Hjálpar-
starfs kirkjunnar, gaf SPRON
m.a. 450 þúsund krónur í söfnun-
ina, íslandsbanki 500 þúsund
krónur og Elliheimilið Grund 75
þúsund krónur. Þá gáfu margir
einstaklingai’ sem ekki vilja láta
nafns síns getið upphæðir að
fimmtíu þúsund krónum og Raf-
veita Akureyrar gaf teppin 620
sem áður voru nefnd.
Jónas segir að söfnunarfénu
verði varið til að búa í haginn fyr-
ir flóttamenn í flóttamannabúð-
unum á Balkanskaga, til dæmis
með kaupum á ýmsum nauðsynj-
um. Komist hins vegar friður á
verður fénu varið til uppbygging-
ar á svæðinu.
I
-