Morgunblaðið - 22.05.1999, Side 20
20 LAUGARDAGUR 22. MAÍ 1999
NEYTENDUR
MORGUNBLAÐIÐ
Debenhams í Smáralind árið 2001
Alvöru „magasín“
á tveimur hæðum
Debenhams verður fyrsta erlenda deilda-
---------------------7----------------
skipta stórverslunin á Islandi með fatnað,
snyrtivörur og ýmsan heimilisvarning en
hún verður opnuð í Smáralind árið 2001.
Guðbjörg R. Guðmundsdóttir brá sér
í Debenhams í Brighton í Englandi ásamt
nýráðnum framkvæmdastjóra Debenhams
-----7--------------------------------
á Islandi, Bryndísi Hrafnkelsdóttur.
MARGAR nýjar verslanir hafa
sprottið upp hér á landi undanfarin
ár og það er dálítið skrítin tilfínn-
ing að þramma niður Oxford stræti
í London og þekkja nöfn verslan-
anna að heiman svo sem Morgan,
Oasis, Monsoon, Accessorize, og
H&M. Og nú stendur fyrir dyrum
hjá Baugi að opna Top Shop innan
skamms og árið 2001 deildaskiptu
stórverslunina Debenhams í
Smáralind.
Aformað er að Debenhams verði
á tveimur hæðum í 4.000-5.000 fer-
metra húsnæði. Þessi nýja verslun-
arsamstæða, sem mun heita
Smáralind, er byggð upp þannig að
tvær stórverslanir verða hvor í sín-
um enda hennar og 110-130 versl-
anir og þjónustufyrirtæki á milli.
Hagkaup verður í öðrum enda
byggingarinnar í 10.000 fermetra
húsnæði og þess má geta að mat-
vöruverslanimar verða tvær því
jafnframt er reiknað með að Nóa-
tún verði með tæplega þúsund fer-
metra pláss í Smáralind. Gert er
ráð fyrir að byggingin verði alls
54.000 fermetrar að stærð.
Nýtt útlit Debenhams
búðanna
Bryndís Hrafnkelsdóttir, sem er
nýráðinn framkvæmdastjóri Deb-
enhams á íslandi, hefur undanfarin
ár starfað sem fjármálastjóri Hag-
kaups. Við heimsóttum Deben-
hams í Brighton, með viðkomu í
London, nú í vikunni en sú búð var
opnuð fyrir hálfu ári og er svipuð
að stærð og sú verslun sem verður
í Smáralind. Verslunin í Brighton
gefur einnig góða mynd af því sem
íslenskir neytendur geta búist við
því hún er hönnuð í samræmi við
áform Debenhams um framtíðarút-
lit verslananna.
Breidd í vöruverði
Debenhams er svona eins og for-
framaðir ferðalangar hefðu sagt
hér á árum áður að væri „ekta
magasín á mörgum hæðum“ og í
Brighton er Debenhams á þremur
hæðum í nýrri verslunarsamstæðu
miðsvæðis í bænum. Það er hvorki
hægt að segja að Debenhams sé
ódýr né dýr verslun því það er tölu-
verð breidd í úrvali og vöruverði.
Viðskiptavinir geta keypt ódýrar
herraskyrtur, borgað meðalverð
fyrir þær eða keypt dýrar skyrtur.
Það er stefna hjá Debenhams að
hafa nokkra breidd í vöruvali og
hafa verðið mismunandi eftir gæð-
um enda eru hátt í 300 vörumerki
seld í Debenhams.
Aðalinngangurinn í Debenhams í
Brighton er á annarri hæð. A þeirri
hæð er snyrtivörudeildin áberandi
og herrafatnaði gefið mikið pláss.
Snyrtivörudeildin er öðruvísi en
víða annarsstaðar í deildaskiptum
stórverslunum. Þar geta viðskipta-
vinir gengið um og valið sjálfir
snyrtivörurnar. Þá er einnig boðið
upp á þjónustu snyrtifræðings sem
hefur aðstöðu innaf snyrtivöru-
deildinni. Hann tekur viðskiptavini
í andlitsbað, plokkun og litun, slök-
un og handsnyrtingu svo dæmi séu
tekin og sérstök dagskrá er fyrir
brúðir.
Herrafatadeildin var skemmti-
lega uppsett, það er að segja skipu-
lagið var eftirtektarvert. Herra-
skyrtur voru flokkaðar eftir vöru-
merkjum og síðan eftir litum og
allar merkingar voru mjög skýrar.
Síðan var sérdeild undir nærfatnað
herra, aftnarkað pláss fyrir sokka
og svo mætti áfram telja.
Mæla brjóstastærðir
Kvenfatnaðurinn var niðri í
þessari verslun og þar var glugga-
íaust, lægra undir loft en á hinum
hæðunum og teppi á gólfum. Eftir
að hafa verið á hinum hæðunum
fann maður hvað birtan skiptir
miklu máli. A þessari hæð var líka
sérstök undirfatadeild fyrir konur.
Þar var viðskiptavinum boðið að
panta sérstakan viðtalstíma hjá
starfsmanni deildarinnar til að fá
úr því skorið hvaða brjóstahaldara-
stærð hentar. I ljós hefur komið að
í Bretlandi virðast allt að 75%
kvenna ganga í röngum stærðum
af bijóstahaldara og hjá Deben-
hams hefur þessi þjónusta verið
mikið notuð.
Stærsta brúðkaups-
gjafaþjónustan
Forráðamenn hjá Debenhams
hafa fitjað upp á ýmsum öðrum
nýjungum. Þeir hafa undanfarin
þijú ár boðið upp á brúðkaups-
gjafaþjónustu og eru í dag stærstir
í Bretlandi á þeim vettvangi. Þjón-
ustan virkar þannig að verðandi
brúðhjón koma í Debenhams með
góðum fyrirvara og fara í sérstaka
deild sem ætluð er brúðhjónunum.
Þar fá þau í hendur skanna sem
þau ganga með um búðina og beita
á þá hluti sem þau kjósa að fá í
brúðkaupsgjöf. Skanninn les núm-
er af vörunum og færir þær á nafn
brúðhjónanna. Gestir geta síðan
komið í Debenhams hvar sem er í
Bretlandi og fengið þennan lista í
hendur en hlutimir eru strokaðir
jafnóðum af listanum og þeir eru
keyptir. Þegar brúðhjónin eru gef-
in saman fá þau síðan gjafabréf frá
Debenhams sem hljóðar upp á 5%
af því sem gestimir hafa keypt fyr-
ir handa þeim.
Kaffihúsin nauðsynleg
Þegar farið er í deildarskipta
stórverslun í útlöndum er nauðsyn-
legt að geta sest niður og fengið
sér kaffi í miðjum verslunarleið-
angri. Bryndís segir að í Deben-
hams á Islandi verði komið á fót
kaffihúsi. A veitingastaðnum í
Brighton var lítið hom fyrir börn-
in. Þar gátu þau raðað í sérstök
bamabox því sem hugur gimtist úr
sérstöku bamaborði. Bryndís segir
að lögð verði áhersla á að koma
upp góðu kaffihúsi í Debenhams í
Smáralind.
Hún bendir á að verslunin heima
verði byggð upp í samvinnu við
Morgunblaðið/Guðbjörg R. Guðmundsdóttir
BRYNDÍS Hrafnkelsdóttir, nýráðinn framkvæmda-
stjóri Debenhams á íslandi, segir að á næstu mán-
uðum skýrist hvemig deildaskiptingin verði í Deb-
enhams en verslunin verður á tveimur hæðum.
Debenhams í Bretlandi. Gerður
var sérleyfissamningur við Baug.
Baugur hefur því með allan rekst-
ur fyrirtækisins hér heima að gera.
Vömmar segir Bryndís að verði
valdar á forsendum starfsfólksins
hér heima enda markaðurinn í
Bretlandi og á íslandi ekki alveg
eins. „Vömvalið verður skoðað á
næstu mánuðum og ákveðið hvaða
leiðir verða valdar. Sumt heillar
meira en annað og það em nokkrar
deildir sem ég held að við ættum
að leggja meiri áherslu á en aðrar.
Enn sem komið er er þó alltof fljótt
að ræða um það því fram til ársins
2001 kann margt að breytast í
þeim efnum.“
Á VEITINGASTAÐNUM í Debenhams var sérstakt
borð fyrir börn þar sem þau gátu valið í barnabox
það sem hugur gimtist.
Þegar Bryndís er spurð hvort
verðið verði sambærilegt og það er
í Bretlandi segir hún að lögð verði
kapp á að Debenhams á íslandi
verði samkeppnisfær við Deben-
hams í Bretlandi.
200 ára fyrirtæki
Debenhams fyrirtækið stendur á
gömlum merg en það var stofnað
fyrir rúmlega tvö hundmð áram.
Mikið vatn hefur rannið til sjávar
síðan þá og nú em verslanir Deb-
enhams orðnar 95 talsins, flestar í
Englandi en einnig í Skotlandi og á
Irlandi. A næstu ámm stendur til
að opna nokkrar nýjar verslanir í
Bretlandi og halda áfram með að
taka þær búðir sem fyrir era í
gegn.
Fyrir tveimur áram gekk
Debemhams opinberlega frá fyrsta
sérleyfissamningnum við fyrirtæki
utan Bretlands, M H Alshaya
Group í Mið-Austurlöndum. Fyrsta
búðin var opnuð í Barein, þá önnur
í Kúveit í september sl. og í Dúbaí
fyrir nokkrum vikum. I haust verð-
ur síðan fjórða verslunin opnuð í
Jeddah. Baugur er annað fyrirtæk-
ið sem Debenhams gerir við sér-
leyfissamning og Debenhams í
Smáralind verður þá fimmta versl-
unin utan Bretlands. Stefnt er að
því opna fleiri verslanir utan Bret-
lands á næstu áram.
ÞAÐ er stefna hjá Debenhams að hafa nokkra breidd í vöruvali og
hafa verðið mismunandi eftir gæðum enda eru hátt í 300 vörumerki
seld í Debenhams. I Brighton var hægt að fá skyrtur á lágu verði,
meðalverði og dýrar skyrtur, allt eftir merkjum og gæðum.
VÖRUR til heimilisins taka mikið rými í búðinni í Brighton, rúmfatn-
aður, handklæði, búsáhöld, gluggaljöld og gjafavörur af ýmsum toga.