Morgunblaðið - 22.05.1999, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 22. MAÍ 1999 29
LISTIR
Ljósmynd/Grímur Bjarnason
BESSI Bjamason og Guðrún Þ. Stephensen í hlutverkum sínum.
Þjóðleikhúsið í leik-
ferð með Mann í
mislitum sokkum
UM mánaðamót hefst leikferð Þjóð-
leikhússins með leikrit Arnmundar
Backman, Maður í mislitum sokk-
um, í leikstjórn Sigurðar Sigurjóns-
sonar. Verkið hefur verið sýnt á
Smíðaverkstæðinu frá liðnu hausti.
Að þessu sinni verður sýnt á
fimm stöðum á landinu, byrjað á
Snæfellsbæ, þaðan í ísafjarðarbæ, á
Blönduós, í Aðaldal og endað á
Austurhéraði. Verður 100. sýning á
verkinu á Isafirði hinn 5. júní.
Maður í mislitum sokkum lýsir í
léttum dúr viðburðaríkum dögum í
lífi ekkju á besta aldri og nokkuiTa
vina hennar. Hvað gerir góðhjörtuð
kona þegar hún finnur ókunnugan,
rammvilltan og minnislausan mann
á förnum vegi? Tekur hann auðvitað
með sér heim!
Leikendur í Mislitum sokkum eru
úr hópi ástsælustu leikara landsins,
þau Þóra Friðriksdóttir, Bessi
Bjarnason, Guðrún Þ. Stephensen,
Erlingur Gíslason, Helga Bach-
mann, Arni Tryggvason, Tinna
Gunnlaugsdóttir og Olafur Darri
Olafsson. Lýsingu hannar Asmund-
ur Karlsson. Höfundur leikmyndar
og búninga er Hlín Gunnarsdóttir.
Sigurður Sigurjónsson leikstýrir.
Sýningar eru 2. júní í Félags-
heimilinu á Klifi, Olafsvík, 4. og 5.
júní í ísafjarðarbæ og í Félagsheim-
ilinu Hnífsdal, 8. júní 1 Félagsheim-
ilinu Blönduósi, 9. júní í Félags-
heimilinu Ýdölum í Aðaldal og 11.
og 12. júní í Félagsheimilinu Vala-
skjálf á Egilsstöðum. Sýningarnar
hefjast kl. 20.30.
DAGAR lita og tóna heitir lista-
hátíð sem haldin er í Akóges í
Vestrnannaeyjum nú um helgina.
Boðið verður upp á djasstónleika
laugardags- og sunnudagskvöld
og líkt og fyrri ár hefur mynd-
listarmanni verið falið að móta
umgjörð hátíðarinnar.
Það er Grímur Marinó Stein-
dórsson sem sýnir verk úr
blandaðri tækni í Akóges. Einn
skúlptúra hans, Harpa, er tákn
liátíðarinnar og verður komið
fyrir við ytri höfnina að hátíð
lokinni. A sýningu Gríms verða
skúlptúrar, veggmyndir úr
málmi og klippi-, vatnslita- og
olíumyndir.
Menning-
ardagar
í Eyjum
Hermann Einarsson, einn for-
svarsmanna hátíðarinnar, segir
helstu djasstónlistarmenn lands-
ins spila í Eyjum um helgina. En
hátíðin er nú haldin í áttunda
sinn. Meðal þeirra sem þar
koma fram eru þeir Ami Schev-
ing, Karl Möller, Alfreð Alfreðs-
son, Árni Elvar og dixiesveit
lúðrasveitar Vestmannaeyja. Að
sögn Hermanns enda tónleikarn-
ir bæði kvöldin á djammsessjón.
Hermann segir mikið um að
vera í Eyjum um helgina, en há-
punktur hátíðarinnar verði þó í
raun ekki fyrr en sunnudaginn
30. maí, þegar Niels-Henning
0rsted Pedersen spilar í Eyjum
á tónleikum tileinkuðum minn-
ingu Eyjólfs Pálssonar, eins for-
göngumanna hátíðarinnar. Sýn-
ing Gríms stendur fram yfir
tónleika Niels Henning og er
þetta önnur sýning hans á ár-
inu.
GRÍMUR Marinó Steindórsson við eitt verka sinna.
HARPA, tákn listaliátíðarinnar, sem komið verður
fyrir við ytri höfnina.
Hátíðardagskrá í tilefni sjötugsafmælis
írska leikritaskáldsins Brians Friels
Þykir fremsta
núlifandi
s
leikritaskáld Ira
ÍRSKA leikritaskáldinu Brian Fri-
el var fagnað vel við hátíðlega at-
höfn sem haldin var í Abbey-leik-
húsinu í Dublin fyrir skömmu en
Friel varð sjötugur fyrr á þessu
ári. Kynnti rithöfundurinn og
bókmenntafræðingurinn Seamus
Deane þá hátíðardagskrá, sem
efnt er til í tilefni afmælisins, og
sem vara mun allt fram í ágúst.
Sett verða upp helstu leikrit Fri-
els, lesið verður upp úr verkum
hans og efnt til ýmissa annarra
viðburða.
Friel er þekktasta núlifandi
Ieikritaskáld íra en hann fæddist í
bænum Omagh á Norður-Irlandi
og hefur ástandið á N-Irlandi
ávallt verið honum nokkuð hug-
leikið, þótt hann hafi reyndar í
verkum sínum tekist á við ýmisleg
sammannleg einkenni.
Friel vakti fyrst athygli á sér
árið 1964 með leikritinu Phila-
delphia, Here I Come sem fjallar
um angist og vandamál ungs íra
sem flytjast vill búferlum til
Bandarílqanna, eins og svo al-
gengt var um Ira fyrr á þessari
öld.
Angistin og mannleg vandamál
er reyndar eitt af helstu viðfangs-
efnum Friels og leikritið Freedom
ofthéCity, frá árinu 1974, byggði
hann m.a. á atburðum „blóðuga
sunnudags" í Derry árið 1972,
þegar breskir hermenn skutu til
bana þrettán óbreytta borgara,
eftir að kaþólikkar höfðu efnt til
mótmælagöngu í borginni.
Onnur helstu verk Friels Volun-
teers, frá árinu 1975, og
Translations frá árinu 1980, fjalla
ekki með beinum hætti um vanda-
mál N-Irlands en í báðum má þó
finna undirtóna sem skírskota til
ástandsins. Er það álit margra
fræðimanna að síðartalda leikritið
sé hans besta.
Meðal annarra leikrita má
nefna eitt af þeim nýrri, Dancing
at Lughnasa frá árinu 1990, sem í
fyrra var kvikmyndað og fór leik-
konan Meryl Streep með aðalhlut-
verkið í kvikmyndaútgáfunni.
Eins og svo mörg önnur gerist
það í þorpinu Ballybeg í Donegal-
sýslu, þorpi sem Friel bjó til í
upphafi ferils síns og hefur gjarn-
an nýtt sem baksvið fyrir þau
átök nútíma og fortíðar, framfara
og afturhalds eða samheldni og
þjóðfélagslegs niðurbrots sem svo
mjög einkenna verk hans.
Friel er sagður ekki mjög gef-
inn fyrir athygli fjölmiðlanna og
hefur kosið að helga líf sitt leik-
húsinu. Verk hans þykja þó
standa fyllilega fyrir sínu, og vel
það, og þykir Friel-leiklistarhátíð-
in einn helsti viðburður í írsku
menningarlífi á þessu ári.
ÞESSI AUGLÍSING E R BIRT í UPPLÝSINGASKYNI
VERÐTRYGGÐ EINGREIÐSLUBRÉF FBA
GJALDDAGI 10. APRÍL 2 0 0 5
VERÐBRÉFAÞING ÍSLANDS
HEFUR SAMÞYKKT AÐ TAKA TIL SKRÁNINGAR
VERÐTRYGGÐ EINGREIÐSLUBRÉF FBA:
1. flokkur 1999
Krónur 2.000.000.000,00
Gjalddagi 10. apríl 2005
Fjárfestingarbanki atvinnulífsins tekur að sér markaðsmyndun
á ofangreindum flokki og hefst viðskiptavaktin eigi síðar en
10. apríl 2003.
Skuldabréfaflokkurinn verður skráður 26. maí 1999.
Skráningarlýsingu og önnur gögn s.s. samþykktir og síðasta
ársreikning er hægt að nálgast hjá FBA, Ármúla 13A, Reykjavík,
v;
umsjónaraðila skráningarinnar.