Morgunblaðið - 22.05.1999, Síða 65

Morgunblaðið - 22.05.1999, Síða 65
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. MAI1999 I DAG BRIDS Umííjún Oiiðniundur l’áll Arnarson BRESKI bridspenninn Da- vid Bird hefur um árabil skrifað skemmtisögur um bridslífíð í klaustri einu á Bretlandseyjum. Ábótinn í klaustri Davids Birds er mistækur spilari, en á einu sviði eru yfirburðir hans ótvíræðir - hann er meist- ari eftirmálans. Hér er ábótinn í austur í vörn gegn sex hjörtum: Suður gefur; allir á hættu. Norður ♦ G1052 V G762 ♦ K3 + K62 Vestur Austur * 9873 A ÁKD4 *8 V 5 * D9754 ♦ G1062 * D95 * G1074 Suður A6 V ÁKD10943 ♦ Á8 AÁ83 Vestur Norður Austur Suður — - - 1 l\jarta Pass 2hjörtu Dobl Pass 2spaðar 3t\jörtu Pass 6hjörtu Pass Pass Pass Utspil vesturs var spað- anía. Sagnhafí lét tíuna, ábótinn tók slaginn á drottningu og spilaði næst spaðaás, sem suður trompaði. Hvernig líst les- andanum á horfur sagn- hafa? Hann virðist vera með óhjákvæmilegan tapslag á lauf, en þessi byrjun varn- arinnar í spaðalitnum gef- ur vonir um þvingun. Suð- ur tekur öll trompin og tígulás. Spilar svo tígli að blindum í þessari stöðu. Norður A G5 V - ♦ K ♦ K6 Vcstur + 87 ¥- ♦ - *D95 Austur + K4 ¥ - ♦ - + G107 Suður + - ¥3 ♦ 8 *Á83 Tígulkóngurinn þvingar báða andstæðingana í svörtu litunum! Ef vestur hendir spaða, gleypir sagnhafi spaðaáttuna með því að spila gosanum. Vestur hendir því laufi. Austur er í svipuðum vanda: Ef hann hendir spaða, verður hægt að trompa niður kónginn, og ef hann kastar laufí fær sagnhafi tólfta slaginn þar. Og nákvæmlega svona spilaði klaustur- sveinninn í suður. „Pú máttir ekki spila spaða í öðrum slag,“ sagði vestur vingjarlega, og ábótinn var nógu góður spilari til að skilja það: „Það sér hver maður,“ svaraði hann, „en á móti mönnum með svona sagn- tækni verður að taka slag- ina strax - við gátum vel átt tvo slagi á spaða.“ i skrefið er að setja megrun, Jóhannes minn. Árnað heilla rj p'ÁRA afmæli. í dag, I Dlaugardaginn 22. maí, verður sjötíu og fimm ára Sigríður Magnúsddttir, Dalbraut 20, Reykjavfk, áður Hjallavegi 38. Hún tekur á móti vinum og vandamönnum í dag milli kl. 16 og 19 í Breiðfirðinga- búð við Faxafen. ^/"LÁRA afmæli. í dag, I v/laugai'daginn 22. maí, verður sjötugur Guðlaugur Gíslason frá Steinstúni, Háaleitisbraut 40, Reykja- vík. Undanfarið 31 ár hefur Guðlaugur verið fram- kvæmdastjóri Stýrimanna- félags Islands, síðar Skip- stjóra- og stýrimannafélags íslands. Eiginkona hans er Kristjana E. Kristjánsdótt- ir. Guðlaugur og Kristjana verða að heiman í dag. Gullbrúðkaup GULLBRÚÐKAUP. Hinn 29. maí næstkomandi eiga gullbrúðkaup hjónin Svava Júlíusdóttir og Gunnar Ein- arsson frá Núpi, Berufjarðarströnd, nú til heimilis að Hrauntúni 1, Breiðdalsvík. Fyi'ir þá sem vilja samgleðj- ast þeim þennan dag verður opið hús á Hótel Bláfelli, Breiðdalsvík, frá kl. 16. Með morgunkaffinu 43o -IARNOU1SS Ég sagði að þetta væri ekki hurðin inn í matsalinn. Guðmundur GuðmundtBon SKÓLASKÁLD (1874-1919) Brot úr Ijóðinu Kirkjuhvoll LJOÐABROT KIRKJUH VOLL Hún amma mín það sagði mér: „Um sólarlagsbil á sunnudögum gakk þú ei Kirkjuhvols til! Þú mátt ei trufla aftansöng álfanna þar. — Þeir eiga kirkju í hvolnum, og barn er ég var, í hvolnum kvað við samhljómur klukknanna á kvöldin.“ Hún trúði þessu, hún amma mín, - ég efaði ei það, að allt það væri rétt, er hún sagði um þann stað. Ég leit því jafnan hvolsins með lotningu til, - éjg lék mér þar ei nærri um sólarlagsbil: Eg þóttist heyra samhljóminn klukknanna á kvöldin. En fomtnin með aldrinum þó óx svo mér hjá og einhver kynleg löngun og brennandi þrá. - A sumarkvöldi björtu um sólarlagsbil á sunnudegi Kirkjuhvols ég reikaði til. -1 hvolnum glymur samhljómur klukknanna á kvöldin. STJÖRNUSPA eftir Frances Drake J TVIBURAR Afmælisbarn dagsins: Þú ert fjölfróður og fyndinn og fundvís á réttu leiðina út úr hvers konar vanda. Hrútur _ (21. mars -19. apríl) Með því að safna saman öllum smáatriðunum færð þú þá heildarmynd sem gerir þér kleift að leysa gátuna. Gefðu gaum að heilsu þinni. Naut (20. apríl - 20. maí) Láttu það eftir þér að hóa sam- an þínum traustustu vinum og eiga með þeim góða stund. I slíku öryggi geta menn látið hvað sem er flakka. Tvíburar (21. maí - 20. júní) Aft Það getur valdið missldlningi ef þú ferð of hratt fram með þín mál. Farðu þér hægar og gefðu öðrum góðan tíma til þess að skilja hvað það er í raun sem þú vilt. Krabbi (21. júní - 22. júlí) Það getur verið hollt að skoða hlutina úr fjarlægð en allt hefur sinn tíma og þú þarft að nálgast hlutina á ný til þess að geta breytt þeim. Ljón (23. júlí - 22. ágúst) /W Það freistar þín að skoða eigin mál frá ýmsum sjónarhornum. Þetta er hægt ef menn gefa sér tíma og eru umfram allt heiðar- legir gagnvart sjálfum sér. Meyja -j. (23. ágúst - 22. september) UUðL Mundu að þú ert sjálfur besti talsmaður hugmynda þinna svo gættu þín bæði til orðs og æðis. Áð öðrum kosti nærðu engum árangri. (23. sept. - 22. október) Ui iL Þótt sjálfsgagnrýni geti verið holl kann hún að keyra úr hófi fram eins og allt annað. Vanda- mál heimsins eru ekki öll þér að kenna. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóvember) Oft er það svo að þegar maður gerir einhverjum greiða þá skil- ar hann sér aftur þegar maður þarf sjálfur á aðstoð að halda. Hafðu þetta í huga þegar leitað er til þín. Bogmaður (22. nóv. - 21. desember) tmf.} Sumum hentar best að fleygja sér til sunds og berjast síðan á hæl og hnakka þar til landi er náð hinumegin. Þér hentar bet- ur að kanna vatnið áður en þú leggur af stað. Steingeit (22. des. -19. janúar) dmC Það getur verið þreytandi þeg- ar allir vilja stjórna manni og skipanirnar ganga sitt á hvað. Vertu óhræddur við að segja meiningu þína. Vatnsberi (20. janúar -18. febrúar) Cáb Oft koma menn sér ekki beint að erindinu og þá þarft þú að sýna þolinmæði og bíða þess sem á bakvið býr. Óþolinmæði getur bara skemmt fyrir öllu. Fiskar ^ (19. febrúar - 20. mars) >¥i> Þótt ekki sé nauðsynlegt að vita öll smáatriði áður en lagt er af stað kemur sér þó vel að vita í stórum dráttum hvað framund- an er. Kynntu þér því mála- vöxtu. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár a f þessu tagi eru ekki byggöar á traustum grunni vísindalegra staðreynða. FRETTIR Lýsir áhyggjum vegna uppsagna kennara MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi ályktun stjórnar For- eldrafélags Ólduselsskóla vegna uppsagna kennara við skólann: „Á fundi í stjórn Foreldrafélags Ölduselsskóla 18. maí 1999 var samþykkt svohljóðandi ályktun: Stjóm Foreldrafélags Öldusels- skóla lýsir yfn- áhyggjum sínum vegna uppsagna kennara við skól- ann en í fréttum kom fram að 13 af kennurum skólans hefðu skilað inn uppsögnum sínum. Þar sem um er að ræða tæpan þriðjung af kennur- um við skólann er ljóst að ófremd- arástand getur skapast ef upp- sagnimar verða að veruleika enda ekki útséð um hvernig muni ganga að manna slíkan fjölda til starfa að nýju. Stjórn foreldrafélagsins skor- ar á aðila málsins að finna lausn á •> þessum vanda sem fyrst og tryggja að skólastarf geti áfram verið með þeim hætti sem stjórnin telur að foreldrar og böm þeirra eigi kröfu á.“ Hugheilar þakkir mínar sendi ég ykkur öllum, sem glödduð mig með heimsóknum, gjöfum og kveðjum á nírœðisafmœli mínu 10. maí. Lifið heil. Hansína F. Guðjónsdóttir, Grandavegi 47. 10 rósir (q, 990 # Mikið úrval af útskriftar- og brúðargjöfum. Opið til kl. 10 öll kvöld Fákafeni 1 1, sími 568 9120 LANDSBYGGÐARFOLK Við bjóðum upp ó gistingu ón morgunverðar til 6. júní. Verð: 2ja manna herb. 3.800 ,- eins manns herb. 2.000. ff(eSt/eqa /áfúí __________________c/________________________ Mjölnisholt 14, 3. hæð ♦ s. 551 2050 og 898 1492 Það eru kompudagar um næstu helgi og þá er leiga á bás undir kompudót Kr. 2800ádag STÓRGLASILEO , , FLUGMOÐELSYNIN KOLAPORTINU 12.-13. JÚNÍ FLUCMÓDEL - FLUCSKÓLAR - FLUGHERMAR SMÍÐAHERBERCI - FLUCMÓDELSKÓLAR FLUCMYHDIR - KOSIÐ BESTA MÓDELIO 1999 KOiAPORTIÐ MARKAÐSTORC

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.