Morgunblaðið - 22.05.1999, Qupperneq 67

Morgunblaðið - 22.05.1999, Qupperneq 67
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. MAÍ 1999 6T( I I I FÓLK í FRÉTTUM KVIKMYNDIR/Laugarásbíó sýnir kvikmyndina At First Sight með þeim Val Kilmer og Miru Sorvino í aðalhlutverkum. Myndin er byggð á sann- sögulegri sögu læknisins og höfundarins Olivers Sacks. Þegar augun ljúkast upp VIRGIL (Val Kilmer) hefur verið blindur frá barnæsku. Hann býr í öruggu hverfi í New York þar sem allir þekkja hann og hann starfar sem nuddari. Þegar hann hittir Amy (Mira Sor- vino) sem er stressaður arkitekt á Manhattan breytist líf hans. í upp- hafi gerir hún sér ekki grein fyrir að hann sé blindur og hún fer að trúa honum fyrir sínum innstu leyndarmálum. Virgil veitir Amy traust og blíðu sem hún hefur aldrei kynnst áður. Þau verða ástfangin og Virgil ákveður að prófa að fara í að- gerð í von um að fá sjónina aftur. Hann fer til augnsérfræðingsins Phil Webster (Nathan Lane) undirbýr hann fyrir augnaðgerð- ina. Ef aðgerðin tekst verður Virgil að læra á heiminn upp á nýtt, verða eins og nýfætt barn á ný sem uppgötvar heiminn í fyrsta sldpti á nýjan hátt. At First Sight er byggð á bók Oli- vers Sacks, To See and Not See. Sacks hefur hlotið fjölmargar viður- kenningar fyrir bækur sínar, en hann er einnig þekktur læknir. Meðal verka hans er bókin Awaken- ings, en mynd byggð á þeirri bók hlaut Óskarstilnefningu á sínum tíma. Aðrar þekktar bækur hans eru m.a. The Man Who Mistook His Wife for a Hat og The Island of the Colorblind. Saga hans To See and Not See birtist í ritgerðasafninu An Anthropologist on Mars og er byggð á sannri sögu. Oliver Sacks segir um söguna að blint fólk hafi ótrúlega þróað snert- iskyn. í upphafi sögunnar er Virgil sáttur við líf sitt þrátt fyrir blindu sína á meðan Amy sem virðist á yf- irborðinu hafa allt sem fólk sækist eftir eins og starfsframa er sú sem á við mun meiri vandamál að stríða. „Ég á vin í Nýju Mexíkó, mynd- höggvara, sem missti sjónina í Ví- etnam,“ segir Val Kilmer. „Ég lærði heilmikið af honum. Hann hefur mikla kímnigáfu og innri styrk. Virgil líkist honum talsvert." Leikstjórinn Irvin Winkler á að baki farsælan feril, en kvikmyndii' hans hafa hlotið tólf Óskarsverðlaun og 45 tilnefningar til Óskarsverð- launa. Meðal þekktra mynda hans eru Raging Bull, The Right Stuff, GoodFellas og They Shoot Horses, Don’t They, allt myndir sem hafa hlotið einróma lof gagnrýnenda. „Vísinda- og læknisfræðilegur þátt- Frumsýning LEIKSTJÓRINN Irwin Winkler með dr. Oliver Sacks sem skrifaði söguna. NATHAN Lane í hlutverki læknisins og Val Kilmer. 4. ur sögunnar er mjög áhugaverður, ir Winkler. „Ég held að fólk muni en það var samt mannlegi þátturinn viija sjá myndina af því að hún sýnir sem dró mig að þessari mynd,“ seg- hvemig hjörtu mannanna slá.“ < VORDANSLEIKUR MILLJÓNAMÆRINGANNA w \ ! ásamt Bjarna Arasyni, Ragnari Bjarnasyni, Bogomil Font og Pall Oskari 22. maí á Bjarni Arason Ragnar Bjarnason Bogomil Font Forsala aðgöngumiða (immtudag og föstudag kl. 11—18 í hljóðfæraversluninni Samspili, Laugavegi 168, sími 562 2716, og Broadway, sími 5331166, laugardag frá kl. 13.66. * X \
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.